Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 18
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 897-9706. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 862-1169.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Úr
bæjarlífinu
Globetrotters í Smáranum | Hið gam-
alkunna körfuboltalið Harlem Globetrott-
ers er væntanlegt til landsins í maí næst-
komandi og verður með tvær sýningar í
Smáranum í Kópavogi 22. maí.
Lið Harlem kom síðast
til landsins fyrir tveimur
árum og var þá uppselt á
sýningar í Laugardals-
höllinni, skv. frétta-
tilkynningu frá aðstand-
endum heimsóknarinnar.
Að þessu sinni verða
sýningarnar aðeins tvær,
kl. 14 og kl. 20 laug-
ardaginn 22. maí.
Miðasala hefst 8. mars og verður tilkynnt
síðar hvar hún fer fram.
„Nú í ár eru Harlem Globetrotters búnir
að bóka sig með 220 sýningar víðsvegar um
heiminn og virðist ekkert lát vera á vin-
sældum þessa frábæru skemmtikrafta sem
hafa skemmt miljónum manna um allan
heim í meira en 85 ár,“ segir í frétt frá að-
standendum sýningarinnar.
Brunavarnir bættar | Ráðist verður í end-
urbætur á brunavörnum íþróttahússins á
Flateyri og Sundhallar Ísafjarðar í kjölfar
úttektar eldvarnareftirlits
Ísafjarðarbæjar á húsunum.
Ástand brunavarna í Sund-
höllinni var talið slæmt en
sæmilegt í íþróttahúsinu á
Flateyri. Íþrótta- og æsku-
lýðsnefnd Ísafjarðar fjallaði
um málið og fól Birni Helga-
syni, íþrótta- og æskulýðsfulltrúa Ísafjarð-
arbæjar, að gera strax úrbætur á því sem
hægt er en öðrum þáttum var vísað til tækni-
deildar bæjarins til frekari útfærslu. Björn
segir tiltölulega einfalt mál að uppfylla til-
mæli eldvarnareftirlitsins vegna íþrótta-
hússins á Flateyri og verði gengið í það.
Meiri aðgerð sé hins vegar að verða við til-
mælunum vegna Sundhallarinnar á Ísafirði
enda sé það mun eldra hús.
Sundhöllin var byggð árið 1945. Þar þarf
að sögn Björns m.a. að bæta við flóttaleiðum
í kjallara og á lofti þar sem bókasafnið á Ísa-
firði var áður til húsa. Auk þess er farið fram
á að settar verði upp sjálfvirkar eldvarn-
arhurðir við sundlaug og íþróttasal.
Grundarfjarðarbær,Fjarðabyggð, Ísa-fjarðarbær og
Fjölmenningarsetur hafa
átt í samstarfi um þýðingu
á stöðluðum húsaleigu-
samningi á pólsku.
Elsa Arnardóttir, for-
stöðumaður Fjölmenning-
arseturs, segir fólk þurfa
húsnæði um leið og það
kemur til landsins. „Því
getum við ekki gert kröfu
um að fólk sé farið skilja
íslensku þegar það gengur
frá húsaleigusamningi.
Þetta er dæmi um skjal
sem léttir öllum lífið,“ seg-
ir Elsa á vef Bæjarins
besta. Þýðingin er bæði á
pólsku og íslensku. „Það
var talið mikilvægt að hafa
íslenskuna með svo ekki
fari á milli mála hvaða
ákvæði er verið að tala um
og einnig styður það undir
íslenskunámið að hafa
hana með,“ sagði Elsa.
Pólverjar eru lang-
fjölmennasti hópur inn-
flytjenda á Íslandi.
Á pólsku
Ólafsvík | Börnin hafa allt-
af verið hrifin af dýrum og
er Alex Rafn Guðlaugsson
engin undantekning á því.
Alex Rafn, sem er 4 ára,
hefur mikið yndi af hest-
um og dvelur hjá þeim
löngum stundum.
Alex Rafn hefur að und-
anförnu dvalið hjá afa sín-
um og ömmu á Arn-
arstapa á Snæfellsnesi,
þar sem hann unir sér við
leiki og göngutúra um
náttúruperlur Arnarstap-
ans.
Morgunblaðið/Alfons
Axel Rafn hrifinn af hestum
Margt er það semmiður fer“ erhending sem
Hjálmar Freysteinsson
hefur gert sér að leik að
nota í vísum sínum.
Hann sá viðtal við Ást-
þór Magnússon í Kast-
ljósi:
Það er margt sem miður fer
mörgu því við kvíðum,
þó er verst hve Ástþór er
afleitur á skíðum.
Einar Kolbeinsson
horfði einnig á viðtalið,
sem Svanhildar Hólm
Valsdóttir tók, en hún
var nýlega valin kyn-
þokkafyllsta kona lands-
ins:
Ýmsum virðist konan kær,
körlum eykur máttinn.
Jafnvel Ástþór ekki nær
að eyðileggja þáttinn!
Glettnin býr líka í vísu
Matthíasar Joch-
umssonar, sem hann orti
árið 1915 til frændsyst-
ur sinnar Önnu Thor-
oddsen (f. 1858), sem bjó
í Kolasundi í Reykjavík:
Nú er úti æskan rjóð við ástar
fundi,
líkur sneyptum, snoðnum hundi
snudda ég nú í Kolasundi.
Enn af Ástþóri
pebl@mbl.is
Neskaupstaður | Skýjafar tek-
ur stundum á sig kynjamyndir
og fólk með frjótt ímyndunarafl
les oft ýmislegt úr þeim sem
ekki sést í fljótu bragði. Það get-
ur átt við á þessari mynd sem
tekin var í Neskaupstað fyrir
skömmu af morgunroðanum
þegar hann gerist hvað rauð-
astur, en engu er líkara en að
fljúgandi diskur svífi yfir firð-
inum.
Morgunblaðið/Ágúst Blöndal
Kynjamyndir á himni
Morgunroði
Árbær | Ársafn er nafn á nýju bókasafni í
Árbæjarhverfi sem borgarstjórinn í
Reykjavík, Þórólfur Árnason, opnaði á
sunnudag. Húsakynni safnsins eru í
Hraunbæ 119. Húsið sem notað er undir
starfsemina er nýtt og allur búnaður
safnsins sömuleiðis, að því er segir í til-
kynningu.
Samkeppni fór fram um val á nafni á
bókasafnið í Árbæ og veitti borgarstjóri
höfundi nafnsins Ársafn, Erlu Kristínu
Jónsdóttur bókaverðlaun við opnunina. Þá
fluttu ávörp þau Anna Torfadóttir borg-
arbókavörður, Stefán Jón Hafstein for-
maður menningarmálanefndar og Andri
Snær Magnason rithöfundur og Árbæing-
ur í fjórða lið.
Ársafn verður opið mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og föstudaga frá kl. 11
til 19 en á sunnudögum frá kl. 12 til 17.
Safnið verður lokað á miðvikudögum og
laugardögum.
Fjölmenni var á opnunarsamkomu í
nýja safninu.
Nýtt bókasafn
opnað í Árbæ
Reykjavík | Stjórn Höfuðborgarsamtak-
anna hefur ítrekað þá ósk sína að Flug-
málastjórn birti strax opinberlega endur-
skoðað lokauppgjör vegna kostnaðar við
undirbúning, hönnun og byggingu flugvall-
ar í Vatnsmýri á árunum 1997 til 2003.
Einkum er þess óskað að gerð verði sér-
stök grein fyrir umframkostnaði, sem kann
að hafa hlotist af flýtingu framkvæmda við
Norður-Suður-braut um eitt ár, frá 2002 til
2001. Ákvörðun um flýtingu var tekin ell-
efta maí 2001, um þremur vikum eftir al-
menna atkvæðagreiðslu í Reykjavík um
framtíðarlandnotkun í Vatnsmýri. Flýting
framkvæmdanna hafði, samkvæmt til-
kynningu Höfuðborgarsamtakanna, í för
með sér tilflutning á um 280 milljónum
króna á milli ára, uppbrot á verksamningi
og mikla nætur- og helgarvinnu mánuðum
saman, sumarið 2001.
Flugmálastjórn
birti uppgjör
♦♦♦
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Tangarhöfða 1 • 110 Reykjavík • Símar 567 2357 og 893 9957
Fleiri húsbílar
væntanlegir í mars og apríl
Sjón er sögu ríkari
Komið og skoðið úrval af húsbílum
Umboð á Akureyri:
Sigurður Valdimarsson
Óseyri 5