Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 22
AKUREYRI
22 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
www.islandia.is/~heilsuhorn
SENDUM Í PÓSTKRÖFU
Glerártorgi, Akureyri, s. 462 1889
fæst m.a. í Lífsinslind í Hagkaupum,
Fjarðarkaupum
Árnesaptóteki Selfossi og
Yggdrasil Kárastíg 1.
C og E- vítamín
Gott fyrir reykingafólk
Síðumúla 13, sími 588 2122
www.eltak.is
VOGIR
Eltak sérhæfir sig í sölu
og þjónustu á vogum
Bjóðum eitt mesta úrval
á Íslandi af smáum
og stórum vogum
Hafðu samband
Brúðkaupsblaðið fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 5. mars. Meðal efnis
eru greinar um mat, förðun, hárgreiðslu, fatnað, skreytingar og gjafir.
Auglýsendur: Pantið fyrir kl. 16 mánudaginn 1. mars.
Allar nánari upplýsingar veita sölu- og þjónustufulltrúar á auglýsingadeild
Morgunblaðsins í síma 569 1111 eða á augl@mbl.is
Segðu já!
Auglýstu í Brúðkaupsblaði Morgunblaðsins
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
O
R
23
67
5
0
3/
20
04
„ÉG ER eiginlega að ná þessu,“
sagði Elísa Rut Guðmundsdóttir
sem ásamt öðrum nemendum í
Menntasmiðju unga fólksins hefur
verið í óða önn að búa til svo-
nefndan „vindlurk“, sem er hljóð-
færi frumbyggja Ástralíu og nefn-
ist „didgeredoo“ meðal innfæddra.
„Við höfum verið að búa hljóð-
færin til á Punktinum, fengum trjá-
búta úr Vaglaskógi sem við svo
höggvum innan úr og sköfum svo
vandlega með þar til gerðum verk-
færum,“ sagði Elísa. Georg Hol-
lander aðstoðar nemendurna við að
búa hljóðfærin til, en þau eru svo
skreytt eftir kúnstarinnar reglum
og smekk hvers og eins. Og þá er
bara eftir að læra listina að leika á
vindlurkinn, en nú síðustu daga
hafa nemendur verið í æfingavinnu
með Buzby Birch frá Bretlandi þar
sem blásið er af miklum áhuga og
kappi. Buzby hefur dvalið í Ástr-
alíu og kynnt sér þetta sérstæða
hljóðfæri sérstaklega.
Fljót að ná tökum
á hljóðfærinu
„Þetta gengur út á að anda nán-
ast stanslaust, byggist upp á hring-
öndun,“ sagði Elísa og nefndi að
nemendur hefðu gantast með það
sín á milli að rétt væri að efna til
tónleika, „okkur fannst við svo
hæfileikarík,“ sagði hún og hló, en
sagði að ekki væri ólíklegt að
krakkarnir tækju hljóðfærin fram
þegar kæmi að útskrift og opnu
húsi í vor. „Þetta er rosalega
skemmtilegt, einhvern veginn allt
öðru vísi en annað sem maður hef-
ur gert. Ég var líka svo montin
þegar Buzby sagði að hann hefði
aldrei séð neinn áður sem hefði
verið svona fljótur að ná tökum á
hljóðfærinu,“ sagði Elísa hin
ánægðasta með árangurinn og blés
ákaft í lurkinn því til staðfestingar.
Elísa sagði lífið í Menntasmiðju
unga fólksins gott og gefandi, „al-
veg yndislegt í einu orði,“ eins og
hún orðaði það. Hún hefur einnig
reynslu af því að sækja Mennta-
smiðju kvenna, en þar voru eins og
nafnið gefur til kynna konur og þá
á öllum aldri, „þær elstu milli sex-
tugs og sjötugs.“ Menntasmiðja
unga fólksins er hins vegar fyrir
bæði kyn, en aldurinn miðast við 17
til 26 ára. „Það er allt öðru vísi
stemmning í þessum hópi, hér
kynnist maður fólki á svipuðum
aldri og maður er sjálfur og það
eru allir orðnir góðir vinir. Við
reynum að styðja hvert annað, en
margir eru að reyna að koma undir
sig fótunum á nýjan leik eftir áföll.
Það eru öll mál leyst strax og þau
koma upp,“ sagði Elísa.
Nýtist þeim sem takast
á við breytingar í lífinu
Menntasmiðja unga fólksins er
nú haldin þriðja sinni á Akureyri,
en starfsemin miðar að því að auka
lífshæfni þeirra sem sækja námið.
Hún er byggð upp í anda lýðskóla
á Norðurlöndum og nýtist m.a.
þeim sem standa á tímamótum eða
eru að takast á við breytingar í líf-
inu. Námið er þríþætt, sjálfsstyrkj-
andi, hagnýtt og skapandi og er
sérstaklega miðað við óskir og
þarfir ungs fólks sem af ein-
hverjum ástæðum hefur ekki fund-
ið sig í námi eða atvinnu. Markmið
þess er að hjálpa unga fólkinu til
að takast á við lífið og fóta sig á
ný.
Nemendur í Menntasmiðju unga fólksins búa til vindlurka
Rosalega skemmtilegt
Morgunblaðið/Kristján
Góður hljómur: Bretinn Buzby Birch segir Unu til um hvernig á að bera sig
að við að blása í vindlurkinn. Hann hefur kynnt sér hljóðfærið sérstaklega.
Morgunblaðið/Kristján
Eins og frumbyggi: Elísa Rut Guð-
mundsdóttir náði strax góðum tök-
um á hljóðfærinu, sem upprunnið
er meðal frumbyggja Ástralíu.
RÚMLEGA tvítugur piltur hefur í
Héraðsdómi Norðurlands eystra
verið dæmdur í fimm mánaða fang-
elsi, þar af fjóra skilorðsbundið til
þriggja ára, fyrir hótanir og hnífa-
burð á almannafæri að kvöldi laug-
ardagsins 5. apríl 2003 í miðbæ Ak-
ureyrar svo og fyrir líkamsárás í
húsi í bænum 7. júní sama ár, þar
sem hann sló stúlku „mörgum högg-
um með krepptum hnefa í andlit
hennar og höfuð, með þeim afleið-
ingum að hún fékk blóðnasir, mar
yfir nefrót og undir vinstra auga og
út á vinstri kinn og bólgu yfir kinn-
beini vinstra megin, húðblæðingar í
og bakvið vinstra eyra, bláma í
hársverðinum aftan og ofan við eyr-
að, auk þess sem hann hótaði að
drepa hana ef hún yfirgæfi íbúðina“,
eins og sagði í ákæruskjali.
Tveir hnífar sem lögregla lagði
hald á voru gerðir upptækir og hinn
dæmdi þarf að greiða 2⁄3 hluta sak-
arkostnaðar, þ.m.t. 100.000 kr. í
málsvarnarlaun skipaðs verjanda
síns.
5 mánaða
fangelsi fyrir
hótanir og
líkamsárás
Kynning hjá Kjarki | Kynningar
fundur um sjálfshjálparsamtök
sem nefna sig Kjark verður í Gler-
árkirkju á morgun, laugardaginn
28. febrúar, kl. 14.
Markmið Kjarks eru að stuðla að
betra lífi samborgaranna, til að
mynda með því að koma á fót sjálfs-
hjálparhópum fyrir þá sem hafa
lent í ofbeldi í hvaða mynd sem er,
þ.e.a.s. nauðgun, einelti, ofbeldi af
hálfu foreldra í æsku og eða maka,
sambýlismanns. Einnig að vekja at-
hygli á því hvernig ofbeldi getur
stýrt líðan fólks, gefa fólki tækifæri
til að hitta aðrar manneskjur sem
hafa verið í svipuðum sporum,
segja frá og læra af þeirra reynslu.
Framtíðarsýn Kjarks er að geta
verið með forvarnarstarf inni í
skólum og halda fyrirlestra um nið-
urbrot einstaklingsins eftir ofbeldi
og þá möguleika að byggja sig upp
aftur eftir þá erfiðu reynslu. Einnig
að vinna með öðrum samtökum sem
láta sig mannréttindamál varða.
♦♦♦