Morgunblaðið - 27.02.2004, Qupperneq 26
LISTIR
26 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Í
slenski dansflokkurinn
frumflytur í kvöld, föstu-
dagskvöld, tvö ný verk,
Æfingu í Paradís eftir
belgíska dansahöfundinn
Stijn Celis og Lúnu eftir Láru
Stefánsdóttur. Fyrra verkið er
samið fyrir átta dansara við tónlist
eftir Chopin, myndrænt verk sem
fjallar um fólk í leit að betra lífi.
Það rís úr auðninni og finnur eitt-
hvað annað, eða eins og höfund-
urinn segir sjálfur: „Verkið fjallar
á einhvern hátt um hæfni ein-
staklingsins til þess að hefja sig
upp úr aðstæðum sínum. Hann
stendur andspænis hópnum, er á
gráu svæði og verkið segir frá því
hvernig hið ónormala verður
normalt.“
Hvað er ónormalt?
„Það er síbreytilegt. Við sjáum
stöðugt nýjar myndir af því hver
verður útundan og í rauninni er
verkið helgað þeim sem hafa kjark
til þess að vera einstaklingar.“
Eru þá normin alltaf að breyt-
ast?
„Nei, þau eru alltaf hin sömu en
við erum öll stöðugt að reyna að
bæta okkar smásmugulegu tilveru,
þannig að innra líf okkar end-
urspeglist út á við. Ummyndanir
hafa verið þema í verkum mínum.
Ég hef gaman af því að vinna með
spurninguna um kyn; konur, karla,
kynvitund. Niðurstaðan verður oft-
ar en ekki kaldhæðnisleg afstaða
til ýmissa þátta samfélagsins.“
Eru normin heftandi?
„Normin viðhalda stöðugleika og
hafa eitthvað að gera með það að
eldast. Þau eru áhugaverð að því
leyti að við notum þau til sjálf-
skipulagningar og til þess að vísa
okkur sjálfum veginn í samfélagi
sem er í grundvallaratriðum
neyslusamfélag og gengur oftar en
ekki á þarfir einstaklingsins.“
Lítil leikverk
Tónlistin í sýningunni er prel-
údíur, næturljóð, valsar og mars-
úrkar eftir Chopin í sérstæðum
búningi. Árið 1961 útsetti Roy
Douglas tónlistina fyrir hljómsveit
og kallaði chopiniana. Hljómsveitin
í Fíladelfíu í Bandaríkjunum tók
hana upp í mars sama ár undir
stjórn Eugenes Ormandys og það
er sú upptaka sem heyrist í upp-
færslu Íslenska dansflokksins.
„Það má segja að með þessari
útsetningu hafi tónlist Chopins
verið gerð að balletttónlist,“ segir
Celis um leið og hann bætir því við
að hann semji þó ekki abstrakt
dansa. „Allir mínir dansar eru
saga, lítil leikverk, þar sem hreyf-
ingarnar endurspegla tilfinningar
sem eru greyptar í tilfinningalega
steina.“
Æfing í Paradís er fyrsta verk
Stijns sem Íslenski dansflokkurinn
flytur. Hann hóf feril sinn sem
dansari við konunglega ballettinn í
Flanders í Belgíu. Einnig var hann
dansari hjá Zürich-ballettinum, Le
Ballet du Grand Théatre í Genf og
svo síðast hjá einum þekktasta
dansflokki á Norðurlöndum, Cull-
berg í Svíþjóð. Hann starfaði sem
dansari til ársins 1997. Stijn Celis
samdi sitt fyrsta verk 1993. Síðan
þá hefur hann samið fjölda verka
fyrir þekkta dansflokka eins og
Cullberg-ballettinn, Gulbenkian í
Portúgal, Bern-ballettinn, Ballet
Mainz, Ballet Wiesbaden og Ballet
Nürnberg í Þýskalandi. Haustið
2004 tekur Stijn Celis við starfi
listræns stjórnanda Bern-
ballettsins.
Dansarar í Æfingu í Paradís eru
Guðmundur Helgason, Guðmundur
Elías Knudsen, Katrín Ingvadótt-
ir, Katrín Á. Johnson, Peter And-
erson, Steve Lorenz, Unnur El-
ísabet Gunnarsdóttir og Valgerður
Rúnarsdóttir.
Í tunglsins tæra skini
Á sýningu Íslenska dansflokks-
ins að þessu sinni verður frumflutt
verk eftir Láru Stefánsdóttur.
Verkið hefur hlotið heitið Lúna og
sýnir konur og karla stíga lífsvals-
inn í tunglsins tæra skini. Þetta
eru myndir sem tengdar eru ást,
þrá, von, baráttu og gleði við tón-
list Hjálmars H. Ragnarssonar,
Cyrano, sem hann hlaut Grímu-
verðlaunin fyrir í júní 2003.
Verkið segir Lára hafa orðið til
á seinustu tveimur árum. „Vorið
2002 lést náinn vinur, Einar Krist-
ján Einarsson, hljómsveitarstjóri
Rússíbananna. Eitt það síðasta
sem hann lét eftir sig með hljóm-
sveitinni er hljóðrit af tónlist
Hjálmars. Sumarið 2002 var mér
boðið að taka þátt í alþjóðlegu
dansverkefni í Avignon í Frakk-
landi. Þar vann ég með ungum
dönsurum frá Frakklandi, Spáni,
Ítalíu, Tékklandi og Íslandi og þar
varð til upphafið að lokum Lúnu,
„Í tunglsins tæra
skini“.
Haustið 2002 sett-
um við hjá Pars Pro
Toto upp sýninguna
Elegia á nýja sviði
Borgarleikhússins.
Þar vann ég áfram
með tónlist Hjálmars
í flutningi Rússíbana
og að hluta með
dönsurunum sem
voru með í Frakk-
landi. Þarna urðu til
fleiri myndir um leit-
ina, ástina, þrána,
baráttuna, vináttuna
og lífið. Brot úr þess-
um myndum eru í Lúnu.“
En þótt kveikjan að verkinu hafi
verið lát náins vinar heldur ástin,
þráin, baráttan og hringrás lífsins
áfram. Núna, í upphafi þessarar
viku, fæddi Lára son og má segja
að meðan á meðgöngu hans hefur
staðið hafi verkið tekið nýja stefnu
og nýjar myndir orðið til við tón-
listina.
Auðveldara að sjá
léttu hliðarnar
„Upphaflega var um að ræða
myndskreytingu við tónlistina – og
þá við fáeina kafla hennar,“ segir
Lára. „Núna er þetta orðið heild-
stætt verk þar sem eru dans-
myndir við hvern tónlistarkafla.
Ég er með fleiri dansara og það er
mun meiri gleði í verkinu. Þegar
vinna við verkið hófst var eitt líf
að hverfa, en í þetta sinn var nýtt
líf að verða til. Það hafði óneit-
anlega áhrif á mig og niðurstaðan
er sú að verkið hefur öðlast miklu
meira fjör og lífsgleði. Það var
orðið auðveldara að sjá léttu hlið-
arnar á tilverunni í sambandi við
ástina, þrána, vináttuna og barátt-
una.
Þetta endurspeglast í búning-
unum. Þegar Pars pro toto flutti
kafla úr verkinu voru allir í rauðu
– en núna eru búningarnir í vorlit-
um sem eru táknrænir fyrir það að
ný hringrás er að hefjast.“
Luna – tunglið. Vinnurðu mikið
með táknræn þemu?
„Já. Mér finnst tunglið fallegt
„symbol“ fyrir ástina. Það er róm-
antískt um leið og það boðar
hringrás. Það tengist líka tónlist-
inni, sem fer í hringi. Sama stefið
endurtekur sig í mörgum lögunum
– en í mismunandi útfærslum.
Samt er aldrei hægt að fá leið á
henni, því maður upplifir hana
stöðugt á nýjan hátt. Ég hef unnið
með hana í tvö ár og er enn ekki
byrjuð að fá leið á henni.“
Gaman að vinna með
svona stórum hópi
Dansarar í Lúnu eru Aðalheiður
Halldórsdóttir, Guðmundur Helga-
son, Hannes Þór Egilsson, Guð-
mundur Elías Knudsen, Hjördís
Örnólfsdóttir, Katrín Ingvadóttir,
Katrín Á. Johnson, María Lovísa
Ámundadóttir, Nadia Katrín Ban-
ine, Peter Anderson, Saga Sigurð-
ardóttir, Steve Lorenz, Tanja Mar-
ín Friðjónsdóttir, Unnur Elísabet
Gunnarsdóttir og Valgerður Rún-
arsdóttir, það er að segja; allir
dansarar dansflokksins, auk eins
dansara sem er á nemendasamn-
ingi, fjögurra sem eru á starfs-
samningi og eins sem útskrifast
frá Listdansskóla Íslands í vor.
Lára segir langt síðan svo marg-
ir dansarar hafi sést saman á sviði
hjá Íslenska dansflokknum og
óneitanlega hafi verið gaman að fá
tækifæri til þess að vinna með
svona stórum hópi – enda verkið
það viðamesta sem hún hefur sam-
ið til þessa – og virkileg veisla fyr-
ir augu og eyru, sem mátti nú
jafnvel búast við, þar sem Lára
hefur unnið til þó nokkurra verð-
launa fyrir verk sín. Árið 1998
hlaut hún fyrstu verðlaun í Dans-
höfundasamkeppni Íslenska dans-
flokksins fyrir verkið Minha maria
Bonita, í júní 2001 hlaut verk
hennar, Elsa, fyrstu verðlaun í al-
þjóðlegri danshöfundakeppni í
Helsinki í Finnlandi og í mars
2002 hlaut dansverkið Jói einnig
fyrstu verðlaun í sólódansleik-
húskeppni í Stuttgart í Þýskalandi.
Íslenski dansflokkurinn hefur sýnt
Elsu víða á undanförnum árum,
meðal annars í Danmörku, Þýska-
landi, Líbanon, Austurríki og
Frakklandi.
Tónlist Hjálmars H. Ragnars við
verkið er flutt af Rússíbönum – en
ekki af geisladiski, heldur tekur
hljómsveitin þátt í sýningunni og
eru hljóðfæraleikarar þeir Guðni
Franzson klarínetta, Jón Skuggi
kontrabassi, Kristinn H. Árnason
gítar, Matthías M.D. Hemstock
slagverk og Tatu Kantomaa harm-
ónika.
Maður, kona – hringrás lífsins
Íslenski dansflokk-
urinn frumflytur nýtt
verk, Lúnu, eftir Láru
Stefánsdóttur og
dansar í fyrsta sinn
verk eftir belgíska
dansahöfundinn Stijn
Celis. Súsanna
Svavarsdóttir leit inn
á æfingu hjá dans-
flokknum og spjallaði
við dansahöfundana.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Úr verki belgíska dansahöfundarins Stijns Celis, Æfing í Paradís, sem sýnt verður í Borgarleikhúsinu í kvöld.
Lára StefánsdóttirStijn Celis
BÓK Arnaldar Indriðasonar, Graf-
arþögn, er komin í 7. sæti þýska
kiljusölulistans. Engin íslensk
skáldsaga hefur
áður skotist jafn
hratt upp er-
lenda met-
sölulista, að sögn
Kristjáns B. Jón-
assonar hjá Eddu
útgáfu. Todes-
hauch, eins og
bókin heitir í
þýskri þýðingu
Colettu Bürling,
stökk þegar í
fyrstu söluviku í 15. sæti.
„Athygli vakti að þýskir útgef-
endur Arnaldar prentuðu 100.000
eintök í fyrstu atrennu sem sýndi
vel hve mikla trú þeir höfðu á sölu-
möguleikum hennar. Eftir aðeins
nokkra daga á markaði var bókin
svo endurprentuð vegna mikillar
eftirspurnar, enda hafa viðtök-
urnar farið fram úr björtustu von-
um. Nú í annarri söluviku er Graf-
arþögn komin í 7. sæti þessa lista
sem mælir bóksölu á kiljum á öllu
þýska málsvæðinu,“ segir Kristján.
Grafarþögn
í 7. sæti í
Þýskalandi
Arnaldur
Indriðason
♦♦♦
ÞRIÐJU tónleikar í tónleikaröð þeirri
sem Tónlistarskólinn í Reykjavík
stendur fyrir á þessum vetri verða í
Norræna húsinu
kl. 14 á laugardag.
Tónleikarnir eru
helgaðir minningu
Ragnars Jónsson-
ar í Smára, en
hann hefði orðið
eitthundrað ára
fyrr í þessum
mánuði. Ragnar
var eins og kunn-
ugt er einn af
stofnendum Tónlistarfélagsins í
Reykjavík og einn helsti forvígismað-
ur þess um langt árabil. Júlíus Vífill
Ingvarsson, formaður skólanefndar
skólans, flytur ávarp og minnist
Ragnars, en síðan flytja nemendur
skólans tónlist eftir Beethoven.
Ragnars í Smára
minnst í
Norræna húsinu
Ragnar í Smára
KÓR Glerárkirkju var stofnaður 12.
febrúar árið 1944 og fagnar því 60 ára
afmæli sínu um þessar mundir. Af til-
efninu kemur kórinn hingað til
Reykjavíkur um helgina og heldur
tvenna tónleika. Með í för eru ein-
söngvarar og hljóðfæraleikarar en
stjórnandi er Hjörtur Steinbergsson.
Fyrri tónleikarnir verða í Lang-
holtskirkju kl. 15 á morgun, en kl. 17 í
Hallgrímskirkju á sunnudag. Í Lang-
holtskirkju verður flutt suður-amer-
ísk messa, Misa Criolla, eftir Ariel
Ramirez. Einnig eru á efnisskrá ís-
lensk þjóðlög og sönglög, madrigalar
og afrísk-amerísk trúartónlist. Óskar
Pétursson tenór og Haukur Stein-
bergsson baritón syngja og Daníel
Þorsteinsson leikur með á píanó.
Hljómsveit skipuð tónlistarmönnum
á Akureyri leikur með í Misa Criolla.
Sálumessa eftir Fauré
Í Hallgrímskirkju verður flutt Re-
quiem op. 48 eftir Gabriel Fauré
ásamt tónlist eftir César Franck,
Charles Gounod og Camille Saint-
Saëns. Einsöngvarar eru Alda Ingi-
bergsdóttir sópran, Óskar Pétursson
tenór og Loftur Erlingsson baritón.
Douglas A. Brotchie leikur með á org-
elið. Einnig kemur fram sérstakur af-
mælishátíðarkór sem skipaður er
kórnum og söngvinum þeirra.
Tvennir tón-
leikar Kórs
Glerárkirkju
♦♦♦