Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 37

Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 37
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 37 ✝ Helga Jóna Sig-urðardóttir fæddist í Folafæti við Ísafjarðardjúp 4. júní 1914. Hún lést á hjúkrunardeild Hrafnistu í Reykja- vík 19. febrúar síð- astliðinn. Foreldrar hennar voru Stein- unn Hjaltína Jóns- dóttir, f. 22.2. 1897, d. 20.8. 1974, og Sig- urður Salómonsson, f. 19.9. 1884, d. 16.7. 1964. Systkini Jónu voru: Fanney, f. 1903, d. 1989; Salmann, f. 1907, d. 1977; Elísabet, f. 1908, d. 1948; Þórey, f. 1911, d. 1979; Sigrún, f. 1915, d. 1990; Steinunn, f. 1916, d. 1976; Kristján, f. 1919, d. 1997; Bjarni, f. 1920, d. 1998. Eiginmaður Jónu var Ebeneser Erlendsson sjómaður, f. 27.4. 1907, d. 16.5. 1988. Jóna og Ebeneser eignuðust fimm börn. Þau eru: 1) Sigríður Steinunn, f. 31.12. 1931, maki Jón Þorbergs- son, f. 12.9. 1931, d. 11.10. 1997. Þeirra börn eru; a) Randver; b) Valgeir Ómar; c) Ebeneser Að- alsteinn; d) Guðmundur Páll; e) Elísabet María. 2) Hulda Elísa, f. 31.3. 1935. 3) Valgerður Sigur- borg, f. 25.6. 1941, maki Grímur Gríms- son, f. 5.4. 1940. Þeirra börn eru: a) Helga Jóna; b) Guð- rún; c) Jóhann Æv- ar. 4) Eygló Úlfhild- ur, f. 7.10. 1945, maki Eyjólfur Guð- mundsson, f. 21.10. 1944. Þeirra börn eru: a) Guðbjörg; b) Erna Jóna; c) Guð- mundur; d) Andri Þór. 5) Magnús Al- bert, f. 29.5. 1953, maki Brynja Jó- hannsdóttir, f. 1.12. 1956. Börn þeirra eru: a) Rúnar Már; b) Irma Ösp. Auk þess ólu Jóna og Eben- eser upp elsta barnabarn sitt, Randver, f. 25.9. 1952. Jóna á 24 langömmubörn og tvö langalang- ömmubörn. Fyrstu búskaparár sín bjuggu Jóna og Ebeneser í Folafæti, en 1935 flytja þau til Bolungarvíkur þar sem þau bjuggu til ársins 1959 að þau flytja til Reykjavík- ur. Síðustu árin hefur Jóna dvalið á hjúkrunardeild Hrafnistu. Útför Jónu verður gerð frá Frí- kirkjunni í Reykjavík í dag og hefst athöfnin klukkan 13.30. Helga Jóna Sigurðardóttir var fædd á Folafæti undir Hesti við Ísafjarðardjúp. Folafótur er það nes kallað sem liggur milli Hest- fjarðar og Seyðisfjarðar, lækkar nesið út frá Hestinum í ávalan háls út í bæinn Fót. Folafótur dregur nafn sitt af Hestinum, sem að marga mati þykir höfuðprýði fjall- garðsins við Ísafjarðardjúp. Frá vissu sjónarhorni má líkja honum við liggjandi hest, sem teygir frá sér annan framfótinn út í Djúpið og endar í Fótartá. Ysti hluti nessins nefnist eins og áður sagði Folafótur og var þar þegar hún amma mín var að alast upp nokkur byggð þurra- búðarfólks. Árið 1850 er íbúatala þar 36 og rúmum 50 árum seinna samkvæmt manntali 1901 eru íbú- arnir 81, samkvæmt manntali 1910 eru íbúar 101, en fækkar svo upp úr því og eru íbúar þar árið 1930 orðn- ir 52. Þetta þurrabúðarfólk sem þarna lifði byggði líf sitt á nálægð við hin fengsælu mið sem kölluð voru Gullkistan. Hnignum búskap- ar á þessum stað liggur að mestu í því að þessi mið brugðust og svo kallaði vélbátaútgerðin við Djúpið til sín mikinn mannskap. Salahús var bær Seyðisfjarðar- megin við Fótinn, var bærinn nefndur eftir húsföðurnum, Salóm- on Rósinkranssyni. Sali gamli eins og hann var gjarnan nefndur var þrígiftur. Með fyrstu konu sinni Carlottu Jónsdóttur átti hann sex börn, en með seinni konum sínum Jónínu Guðmundsdóttur og Elísa- betu Jónsdóttur eignaðist hann ekki börn. Synir Sala gamla voru kenndir við föður sinn og kallaðir Gummi Sali, Helgi Sali og Siggi Sali til aðgreiningar frá nöfnum sínum í nágrenninu. Dætur Sala voru þrjár, Hólmfríður, Elín og Salóme. Sali var síðasti maður til að yfirgefa Fótinn eða árið 1945 er hann flutti yfir fjörðinn og settist að á Upp- sölum í Seyðisfirði. Austanmegin Fótarins, þ.e. Vig- urmegin, var Tjaldtanginn og Sigga Sala-hús. Í Sigga Sala-húsi var hús- bóndinn Sigurður Salómonsson, bjó hann þar ásamt konu sinni Stein- unni Jónsdóttur. Áttu þau átta börn, þau Salmann, Elísabetu, Helgu Jónu þá er við erum að kveðja í dag, Sigrúnu, Steinunni, Kristján, Bjarna og Þóreyju. Þórey var reyndar tekin í fóstur í Vigur á ellefta árinu og dvaldi hún þar til fullorðinsára. Steinunn átti fyrir eina dóttur, Fanneyju Gunnlaugs- dóttur. Á uppvaxtarárum ömmu minnar hefur nú ekki alltaf verið úr miklu að spila, enda heimilið stórt, það segir sig sjálft að heimili í þurrabúð með fullt hús barna hefur staðið höllum fæti hvað matföng snerti. Það var náttúrlega fiskur og annað sjófang sem treyst var á, langafi var dágóð skytta og var byssan al- laf höfð í bátnum þegar haldið var í róðra. Vel spikaður selur og sjófugl var ósvikin búbót og mikil tilbreyt- ing frá hinu frábrotna fæði soðning- unni. Þótt barnahópurinn Sigga Sala og Steinunnar hafi verið stór komst hann allur á legg og spjöruðu þau sig öll vel í lífbaráttunni. Börnin byrjuðu á unga aldri að vinna við heimilisstörfin eins og al- gengt var á þessum árum, allir sem vettlingi gátu valdið hjálpuðu til heima fyrir. Menntun var af skorn- um skammti eins og svo víða, en samt voru allir læsir og skrifandi, svo og var reikningur kenndur. Farkennari kenndi að jafnaði í þrjá mánuði árlega, og ekki var alltaf öruggt að kennarinn hefði kennara- menntun. Ekki voru fjárráð til framhaldsmenntunar. Í Tjaldtanganum bjuggu síðast Jóna amma og afi minn Ebeneser Erlendsson maður hennar. Hann var ættaður úr Grunnavík, fæddur á Flæðareyri í Gunnuvík á Jökul- fjörðum. Þau eignuðust fimm börn. Tjaldtanginn brann til kaldra kola árið 1935, og var þeim móðurfor- eldrum mínum um megn að byggja hann upp aftur, enda sýnt að um deyjandi byggð var að ræða. Þau eignuðust sín fyrstu börn í Tjaldt- anganum, þær Sigríði og Huldu. Til Bolungarvíkur flytja þau frá þess- um merka stað Folafæti. Í Bolungarvík bjuggu þau við fjörukambinn, með útsýnið yfir Djúpið, Jökulfirðina og Snæfjalla- ströndina. Þarna fór afi að vinna við sjósókn, þá á þeim bátum og tog- urum sem pláss bauðst á, þó var hann einnig með sinn eigin bát lengst af. Þarna fæðast svo næstu börn, þ.e. Valgerður, Eygló og Magnús. Um 1959 flytja þau svo til Reykjavíkur, fyrst á Baldursgöt- una, síðan á Lindargötu þar sem þau bjuggu lengst af og svo á Grett- isgötu uns þau fara á elliheimilið Hrafnistu í Reykjavík. Það er á Baldursgötunni sem ég fer fyrst að muna eftir heimsókn- unum til hennar ömmu minnar. Á Lindargötuna var alltaf gott að koma þegar maður hafði verið á skautum niðri á Tjörn, dregist þangað á kassabíl frá Kleppsholt- inu, farið í bófahasar við strákana, til að spila fótbolta við Lindargötu- skólann eða bara til að fá kaffi og meðlæti, enda amma alltaf með nýtt bakkelsi. Alltaf tekið á móti manni sem prins. Á jólunum var alltaf far- ið í súkkulaði til ömmu, heimsins besta súkkulaði. Á þessum árum sem maður var að alast upp á var ætíð gott veður, enda vil ég trúa að svo hafi verið. Við krakkarnir vor- um því oftast úti við leiki og ekki vorum við alltaf hrein og fín þegar við komum inn til hennar ömmu, en við fórum þaðan aftur hrein og fín. Þau sátu aldrei auðum höndum gömlu hjónin, enda af þessari kyn- slóð sem vissi ekki hvað það var. Það var verið að prjóna eða sauma allan daginn sem ekki var verið að sinna heimilisstörfum, það voru ekki svo fáar lopapeysurnar sem hún amma prjónaði og seldi í versl- anir í Reykjavík. Yfir sjónvarpinu eftir að það kom til sögunnar var prjónað og gamli maðurinn sat og hnýtti á öngla, alltaf að skapa eitt- hvað. Þetta er sú kynslóð sem kom Íslendingum endanlega á þann stall sem þeir eru í dag, með elju sinni og nýtni. Amma mín, ég get náttúrulega aldrei fullþakkað þér fyrir þá ást og umhyggju sem þú hefur sýnt mér í gegnum árin, minninguna um þig geymi ég ávallt í hjarta mínu, bless- uð sé minning þín. Ég kveð þig með tveimur erindum, úr vísunum frá Fæti, svokölluðum Folabrag. Um höfund er ekki vitað: Ég fæddist upp til fjalla í fornfálegum bæ. Á vetrum sást hann varla, þá var hann hulinn snæ. Þá gróf hann pabbi göng í skaflinn, þegar hrundi á þakið hríðin ströng. Við bæinn þar und barði er bundin minning trygg. Þar fyrst í föðurgarði mér fiskur óx um hrygg. Þar fékk ég þrek og þrótt, við barning harðan hef ég þar happadrætti sótt. Ómar. Í dag er ég kveð ömmu Jónu er mér þakklæti í huga fyrir góðar minningar. Minningar frá þeim tíma er hún var frísk og lét að sér kveða. Fyrir mig var það ómetanlegt að eiga svona ömmu sem hafði enda- lausan tíma fyrir mig og endalausa væntumþykju. Hún sýndi áhuga á því sem ég var að gera, fylgdist með mér og samfagnaði öllum nýj- um áföngum í mínu lífi. Það var eitthvað svo gott að koma til ömmu og afa á Lindargötu. Maður var svo innilega velkominn, breitt faðmlag og hlýja. Það var líka eitthvað sérstakt andrúmsloft, eng- inn asi, samt var setið við vinnu. amma að prjóna og afi að hnýta. Það var nostrað og stjanað við mann, gefinn tími til að spjalla. Þessir hversdagslegu hlutir verða ógleymanlegir í minningunni, enda var gefið af öllu hjarta og alúð lögð í hlutina. Kærleikur, umhyggja og gjaf- mildi eru orð sem upp koma í hug- ann er ég hugsa til ömmu. Hún var alltaf gefandi, bæði af sjálfum sér og því sem hún átti. Hún bar hag barna og barna- barna mjög fyrir brjósti sér og vildi að öllum liði vel og vegnaði vel, og sýndi það í orðum og athöfnum. Amma var mikil hannyrðakona og var alltaf að meðan heilsa henn- ar leyfði. Til eru margir fallegir hlutir og flíkur eftir hana sem margir hafa fengið að njóta Eftir löng og erfið veikindi er gott að fá hvíldina. Þannig var kom- ið fyrir ömmu. Minningarnar lifa þó áfram í hjörtum okkar. Blómin falla, fölskva slær á flestan ljóma.– Aldrei hverfur angan sumra blóma. Þannig varstu vinur, mér sem vorið bjarta. Það sem gafstu geymist mér í hjarta. Ilma sprotar, anga lauf, sem aldrei falla. Drottinn launi elskuna þína alla. (Sigurbjörn Ein.) Helga Jóna. Elsku amma mín, nú er komið að kveðjustund og ég veit að þú ert hvíldinni fegin, orðin þreytt og lúin eftir langa legu. Amma á Lindargötu, eins og við krakkarnir kölluðum hana alltaf, hafði mikil áhrif á okkur krakkana og sérstaklega mig. Alltaf átti ég athvarf hjá þeim ömmu og afa og allt það besta tínt fram þegar ég kom. Sérstaklega eru minnisstæðar heimsóknirnar þegar ég fékk að gista. Þá fórum við afi í labbitúr niður á bryggju að skoða skipin og á meðan útbjó amma eitthvað gott að borða eða bakaði eitthvað og afi var send- ur út í Lallabúð að kaupa mix að drekka með. Amma var mikil húsmóðir og allt- af nýbakað hjá henni með kaffinu þannig að borðið svignaði og henni féll aldrei verk úr hendi, annað- hvort að prjóna, hekla eða sauma út. Þó að ég gerði mér ekki grein fyrir því í uppvextinum þá skil ég það núna hversu mikils virði það er að eiga ömmu og afa sem alltaf er hægt að leita til. Elsku amma mín, takk fyrir allt og allt. Ég veit að vel verður tekið á móti þér og nú líður þér vel. Ég enda þessa kveðju á vísunni sem alltaf var sungin þegar ég gekk upp tröppurnar á Lindargötunni og þú komst með útbreiddan faðminn á móti mér. Þú komst í hlaðið á hvítum hesti, þú komst með vor í augum þér. Ég söng og fagnaði góðum gesti og gaf þér hjartað í brjósti mér. Ég heyri álengdar hófadyninn, ég horfi langt á eftir þér. Og bjart er alltaf um bezta vininn og blítt er nafn hans á vörum mér. Þó líði dagar og líði nætur, má lengi rekja gömul spor. Þó kuldinn næði um daladætur, þá dreymir alla um sól og vor. (Davíð Stef.) Þín Guðbjörg. HELGA JÓNA SIGURÐARDÓTTIR Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, INGVELDUR SIGURÐARDÓTTIR, Sogavegi 182, Reykjavík, sem andaðist á líknardeild Landspítala Landa- koti fimmtudaginn 19. febrúar, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju í dag, föstudaginn 27. febrúar, kl. 13.30. Áslaug Jóhannesdóttir, Þorfinnur Þórarinsson, Thelma Jóhannesdóttir, Ólafur Guðnason, Ásrún Jóhannesdóttir, Böðvar Þorsteinsson, Ingveldur Björk Jóhannesdóttir, Ingi Þórðarson, barnabörn og barnabarnabörn. Faðir okkar og sambýlismaður, SIGURJÓN AUÐUNSSON, sem lést á Heilbrigðisstofnun Vestmannaeyja föstudaginn 20. febrúar, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn 1. mars kl. 13.30. Jóhanna Einarsdóttir, Gylfi Sigurjónsson, Aðalsteinn Sigurjónsson, Ingibjörg Sigurjónsdóttir. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ BERGSVEINSDÓTTIR, Hornbrekku, Ólafsfirði, lést miðvikudaginn 25. febrúar. Jarðarförin auglýst síðar. Björk Arngrímsdóttir, Guðbjörn Arngrímsson, Guðbjörg Þorsteinsdóttir, Reynir Arngrímsson, Þorbjörg Hólmgeirsdóttir, ömmubörn og langömmubörn. Faðir okkar, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, GESTUR SÆMUNDSSON, Ægisgötu 31, Akureyri, lést á Fjórðungssjúkrahúsinu á Akureyri mið- vikudaginn 25. febrúar. Jarðarförin verður auglýst síðar. Eyþór Gestsson, Anna Lilja Gestsdóttir, Ólafur R. Jóhannsson, Snjólaug Gestsdóttir, Guðmundur Árnason, Þórunn J. Pálmadóttir, Þorvaldur H. Jónsson, Jón S. R. Pálmason, Magnea G. Gunnarsdóttir, Garðar Pálmason, barnabörn og langafabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.