Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 46
DAGBÓK
46 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MORGUNBLAÐIÐ, Kringlunni 1, 103 Reykjavík. SÍM-
AR: Skiptiborð: 569 1100. Auglýsingar: 569 1111.
Áskriftir: 569 1122. SÍMBRÉF: Ritstjórn: 569 1329,
fréttir 569 1181, íþróttir 569 1156, sérblöð 569 1222, aug-
lýsingar 569 1110, skrifstofa 568 1811, gjaldkeri 569 1115.
NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, / Áskriftargjald 2.100
kr. á mánuði innanlands. Í lausasölu 190 kr. eintakið.
Skipin
Hafnarfjarðarhöfn:
Ludvig Andersen fer í
dag.
Mannamót
Aflagrandi 40. Kl. 9
vinnustofa, bað og jóga,
kl. 14 bingó. Hársnyrt-
ing, fótaaðgerð.
Árskógar 4. Kl. 9–12
handavinna, kl. 13–
16.30 smíðar. Bingó
spilað 2. og 4. föstudag í
mánuði.
Bólstaðarhlíð 43. Kl. 8–
16 hárgreiðsla, kl. 8.30–
12.30 bað, kl. 9–12 vefn-
aður, kl. 9–16 handa-
vinna, kl. 9–17 fótaað-
gerð, kl. 13–16
vefnaður, kl. 13.30 fé-
lagsvist.
Félagsstarfið, Dal-
braut 18–20. Kl. 9 bað
og hárgreiðslustofan
opin, kl. 14 söngstund.
Félagsstarfið Dalbraut
27. Kl. 8–16 handa-
vinnustofan opin, kl.
10–13 verslunin opin.
Félagsstarfið Hæð-
argarði 31. Opin vinnu-
stofa kl. 9–16.30,
gönguhópur kl. 9.30.
Félagsstarfið, Löngu-
hlíð 3. Kl. 8 bað, kl. 10
hárgreiðsla, kl. 10–12
verslunin opin, kl. 11
leikfimi, kl. 13 opið hús,
spilað á spil.
Félagsstarf aldraðra
Garðabæ. Ullarþæfing
kl. 13.30. Fræðsla í
Garðabergi kl. 14: Her-
dís Storgaard ræðir um
slys í heimahúsum.
Félag eldri borgara í
Kópavogi. Félagsvist
spiluð í Fannborg 8
(Gjábakka) kl. 20.30.
Skvettuball verður í fé-
lagsheimilinu Gull-
smára 13 laugardaginn
28. febrúar kl. 20– 23.
Þorvaldur Halldórsson
syngur og spilar.
Félag eldri borgara,
Hafnarfirði, Hraunseli,
Flatahrauni 3. Opnað
kl. 9, tréútskurður og
brids kl. 13, billjard kl.
13.30.
Félag eldri borgara,
Reykjavík, Ásgarði
Glæsibæ. Snúður og
Snælda sýna „Rapp og
rennilása“ í dag kl. 14.
Gerðuberg, félagsstarf.
Kl. 9–16.30 vinnustofur
opnar, gönguhópur kl.
10 fellur niður, frá há-
degi spilasalur opinn,
kóræfing fellur niður
vegna ferðalags sem
lagt er af stað í kl. 13,
sími 575 7720.
Gjábakki, Fannborg 8.
Kl. 9.05 myndvefnaður,
kl. 9.30 málm- og silf-
ursmíði, kl. 13 bókband.
Gullsmári, Gullsmára
13. Kl. 9 glerlist, kl. 10
ganga, kl. 13 brids-
kennsla. Kl. 14 bingó.
Hraunbær 105. Kl. 9
handavinna, útskurður,
baðþjónusta, fótaað-
gerð og hárgreiðsla, kl.
11 spurt og spjallað, kl.
14 bingó.
Hvassaleiti 58–60.
Fótaaðgerðir virka
daga, hársnyrting
þriðju- til föstudags.
Norðurbrún 1. Kl. 9–17
hárgreiðsla, kl. 10–11
boccia, kl. 14 leikfimi.
Vesturgata 7. Kl. 9–16
fótaaðgerð og hár-
greiðsla, kl. 9.15–14.30
handavinna, kl. 10–11
kántrýdans. Kl. 13.30
sungið við flygilinn við
undirleik Sigurgeirs,
kl. 14.30–16 dansað við
lagaval Sigvalda,
rjómapönnukökur með
kaffinu, allir velkomnir.
Vitatorg. Kl. 8.45
smíði, kl. 9 hárgreiðsla
og myndlist, kl. 9. 30
bókband og morg-
unstund, kl. 10 fótaað-
gerðir og leikfimi, kl.
12.30 leir, kl. 13.30
bingó.
Þjónustumiðstöðin,
Sléttuvegi 11. Opið frá
kl. 10–14.
Félag eldri borgara í
Gjábakka. Spilað brids
kl. 19 þriðjud. og kl.
13.15 föstud.
Hana-nú, Kópavogi.
Laugardagsgangan á
morgun. Lagt af stað
frá Gjábakka kl. 10.
Framsóknarfélag
Mosfellsbæjar.
Félagsvist í kvöld í
Framsóknarsalnum í
Mosfellsbæ í Háholti
14, 2. hæð, kl. 20.30.
Tekin verða saman
fimm efstu kvöldin af
átta (frá 13. feb. til 2.
apríl) og fyrir þau veitt-
ur ferðavinningur.
Minningarkort
Styrktarfélag krabba-
meinssjúkra barna.
Minningarkort eru af-
greidd í s. 588 7555 og
588 7559 á skrifstofu-
tíma. Gíró- og kred-
itkortaþjónusta.
Samtök lungnasjúk-
linga. Minningarkort
eru afgreidd á skrif-
stofunni í Suðurgötu 10
, 2. hæð, s. 552 2154.
Skrifstofan er opin
miðvikud. og föstud. kl.
16–18 . Einnig er hægt
að hringja í s. 861 6880
og 586 1088.
FAAS, Félag aðstand-
enda alzheim-
ersjúklinga. Minning-
arkort eru afgreidd alla
daga í s. 533 1088 eða í
bréfs. 533 1086.
Í dag er föstudagur 27. febrúar,
58. dagur ársins 2004. Orð
dagsins: En þeir sögðu: „Trú þú
á Drottin Jesú, og þú munt verða
hólpinn og heimili þitt.“ Og
þeir fluttu honum orð Drottins
og öllum á heimili hans.
(Post. 16, 31.–33.)
Það kemur engum áóvart að Guðni
Ágústsson skuli vilja að
„fjölskyldur“ sjái um mat-
vælaframleiðsluna í land-
inu frekar en „aðkeypt
vinnuafl“ og „vélmenni“,“
segir Guðmundur Svans-
son á Deiglunni og telur
landbúnaðarráðherra
vera fastan í fortíðinni.
Guðmundur segir aðfastur kostnaður í
landbúnaði hafi aukist
mjög, þ.e.a.s. kostnaður
við hús, jörð, vélar og
tæki. „Í staðinn fyrir [...]
gamlan hest og heima-
smíðaðan tréklakk úr
rekavið er kominn nýleg
dráttarvél og sturtuvagn
sem flytur heyrúllur. Ef
til vill 3–7 milljóna króna
farartæki. Í staðinn fyrir
heysátuna og tvö hraust-
menni sem lyfta henni á
klakkinn er komin rúllu-
vél sem rúllar heyinu upp
og pökkunarvél vefur
plasti utan um rúllurnar.
Hlutfallið af föstum
kostnaði er einfaldlega
miklu hærra í dag en þeg-
ar Guðni stundaði fjöl-
skyldubúskapinn. Við er-
um líka komin með
töluvert markaðsfrelsi og
frjáls markaður virkar
einfaldlega þannig að
framleiðendur eru hlut-
fallslega færri þegar fast-
ur kostnaður er hlutfalls-
lega hærri. Frjáls
markaður leitast við að
lágmarka kostnaðinn og
þegar fasti kostnaðurinn
er mikill þarf meiri
stærðarhagkvæmni í
framleiðslunni til að
borga upp fasta kostn-
aðinn.
Það er ekkert nýtt viðþað að stjórnvöld vilji
með einhverjum hætti há-
marka fjölda búa (eða
„fjölskyldna“). Bæði
vegna byggðasjónarmiða
og í einhverjum tilfellum
kann ástæðan að vera
snertur af gamalli sveita-
rómantík. Landbúnaður-
inn hefur verið meira og
minna fjármagnaður með
niðurgreiddum lánum
sem stjórnsýslan veitti og
það þóttu bara eðlilegar
vinnureglur að bóndinn
fengi ekki að byggja
stærra en hann þurfti.
Síðan þegar framleiðslan
varð of mikil var tekin
upp framleiðslustýring,
eða hámark. Hvert bú
fékk ákveðinn fram-
leiðslurétt eða kvóta. Með
því var skorið af öllum
bændum en reynt að
halda í fjölda búa. Þessi
kvóti er framseljanlegur
og hefur orðið sífellt
verðmætari. Reyndar svo
mjög að hann er orðinn
einn stærsti einstaki
kostnaðarliðurinn við
framleiðsluna.
Í stuttu máli: Þegarbændur fóru að fjár-
festa niðurgreiddi ríkið
lánið til að varðveita allar
fjölskyldurnar. Það gekk
ekki og á endanum var
settur kvóti til að varð-
veita allar fjölskyldurnar
en kvótinn varð svo dýr
að nú þarf að setja reglur
til að varðveita allar fjöl-
skyldurnar. Það mun að
sjálfsögðu ekki ganga
betur,“ segir Guðmundur.
STAKSTEINAR
Landbúnaðarráðherra
fastur í fortíðinni
Víkverji skrifar...
London er þekkt fyrir leikhús sínog öflugt leiklistarlíf. Sá sem
heimsækir borgina um þessar
mundir rekur reyndar augun í það
að leikhúslífið þar hefur oft verið
með líflegra móti. Það væri of langt
gengið að tala um líkhúslíf, en at-
hygli vekur að fátt er um ný leikrit
eða nýja höfunda. Reyndar er verið
að sýna leikrit eftir nokkur helstu
núlifandi leikritaskáld Breta á sviði í
London og má þar nefna Tom
Stoppard, David Hare og Harold
Pinter. Umrædd leikrit þeirra
standa vissulega fyrir sínu, en í öll-
um tilfellum er um að ræða gömul
verk.
x x x
Skömmu fyrir mánaðamótin varfrumsýnt í London nýtt leikrit
eftir Edward Albee, sem líklega er
þekktastur fyrir Hver er hræddur
við Virginíu Woolf? Leikritið nefnist
Geitin, eða hver er Sylvía? og sló í
gegn á Broadway. Jonathan Pryce
leikur aðalhlutverk í leikritinu og í
tímaritinu Theatregoer er stutt við-
tal við hann þar sem hann er spurð-
ur hvað hann hafi haft mest gaman
af að sjá á sviði nýlega: „Íslenska
uppfærslan á Rómeó og Júlíu í
Young Vic veitti bæði innblástur og
hreif mig,“ svaraði leikarinn, sem
hvað eftir annað hefur sýnt ótvíræða
hæfileika sína jafnt á sviði sem á
hvíta tjaldinu. Reyndar er ekki úti-
lokað að leiklistarunnendur muni
eiga þess kost að sjá íslensku upp-
færsluna á hinum klassíska ástarleik
Shakespeares á sviði í London á ný.
Víkverji hefur fengið athugasemdfrá Magga Jónssyni arkitekt
vegna skrifa hans um skort á les-
rými og lélegri hljóðeinangrun milli
kaffistofu og bókasafns í nýja nátt-
úrufræðahúsinu. Maggi skrifar:
„Svalir við miðrými eru ekki hann-
aðar sem hefðbundið bókasafn eða
lesrými.
Þær eru ætlaðar notendum fyrir
stundir milli kennslu- og vinnulota,
félagsleg samskipti nemenda, hóp-
vinnu og þess háttar. Þar eru einnig
ráðgerð nokkur borð með af-
skermun fyrir skammtímavinnu
nemenda með ferðatölvur.
Stærð bókasafns og ráðstöfun les-
rýma þar eru ekki á ákvörðunarsviði
arkitekts. Hins vegar var við hönnun
hússins miðað við þá forsendu að
bókasafnið yrði til almennra nota
allra í húsinu.
Bókasafnið er lokað af með þykku
samlímdu öryggisgleri í stálrömm-
um og því mjög vel hljóðeinangrað
frá kaffistofunni.
Framkvæmd lokunarinnar er ekki
í samræmi við hönnun, þar sem
ennþá er opið milli kaffistofu og
bókasafns við glerþakið, enda vantar
ennþá mikið á að smíði hússins sé
lokið.“
Morgunblaðið/Golli
Pryce hreifst af Rómeó og Júlíu.
Hvar er Sveinn
á tólffótunum?
Kvæðamannafélagið Iðunn
vinnur nú að útgáfu á
kvæðalögum sem tekin
voru upp á silfurplötur árið
1935. Á meðal kvæðamanna
sem þar koma við sögu er
Sveinn Jóhannesson á tólf-
fótunum eða tólffótungur.
Líkur eru á að hann sé
fæddur árið 1856, hafi alist
upp á bænum Núpsöxl á
Laxárdal fremri í A-Húna-
vatnssýslu og verið á
Kirkjubæ í Norðurárdal í
sömu sýslu eftir fermingu.
Við manntal árið 1880 er
hann talinn til heimilis í
Reykjavík en staddur á
Brimnesi í Ólafsfirði við
sjóróðra.
Þeir sem gætu sagt nán-
ari deili á þessum kvæða-
manni, hvar hann starfaði
og hvar og hvenær hann dó,
eru vinsamlegast beðnir
um að hafa samband við
Steindór Andersen í síma
565 2652 eða senda honum
tölvupóst á netfangið sand-
ersen@islandia.is.
Að gefnu
tilefni
ÁHUGAVERT var að lesa
suð Flugunnar í Tímariti
Morgunblaðsins frá 22.
febrúar (bls. 4) um hvað
skuli kalla þá sem eiga
heima á Reykjanesi.
Skrýtið þó að Flugan
skyldi ekki tylla sér á það
augljósasta: kalla þá ein-
faldlega Reyknesinga.
Þetta er alveg sami
vandræðagangurinn og
með okkur sem heima eig-
um í Mosfellsbæ. Það er
verið að hnoðast með óyrð-
ið „Mosfellsbæinga“. Með-
an við erum bara Mosfell-
ingar.
Sennilega er þetta til
komið vegna Garðbæinga.
Þeir áttu enga nafnhefð um
sjálfa sig nema Garðhrepp-
inga. Það gekk ekki upp
þegar hreppurinn varð
bær. Svo hvað ætti að kalla
þá annað en -bæinga?
Görðunga, kannski?
Hvað ætli þeir séu kall-
aðir sem á Álftanesi búa?
Eða Snæfellsnesi?
Kveðja,
Sigurður Hreiðar,
Mosfellsbæ.
Tapað/fundið
Úlpa með loðkraga
týndist
SVÖRT karlmannsúlpa
með loðkraga týndist í mið-
bænum aðfaranótt sl. laug-
ardags. Í vasanum var
Sony-Ericsson gsm-sími.
Skilvís finnandi hafi sam-
band í síma 695 1570.
Armband týndist
ARMBAND með perlum í
silfurumgjörð týndist í eða
við Hlégarð í Mosfellsbæ
21. febrúar sl. Skilvís finn-
andi hafi samband í síma
568 1715.
Dýrahald
Vantar nýtt
heimili
EINS árs gamall gulbrönd-
óttur fress, sérstaklega
vinalegur, þarf að eignast
nýtt heimili af óviðráðan-
legum ástæðum. Ýmsir
hlutir fylgja, þ.e.a.s. búr,
kattarlúga, karfa o.fl. Er
geltur, merktur og bólu-
settur. Upplýsingar í síma
551 4627 eftir kl. 17.
VELVAKANDI
Svarað í síma 569 1100 frá 10-12 og 13-15 Netfang velvakandi@mbl.is
LÁRÉTT
1 atyrtir, 8 fimur, 9 blíðu-
hót, 10 ílát, 11 sníkja, 13
sárum, 15 blýkúlu, 18
slagi, 21 glöð, 22 hanga,
23 svarar, 24 tónverkið.
LÓÐRÉTT
2 rykkja, 3 mæta, 4
hryggja, 5 reiðum, 6
ókjör, 7 ergileg, 12 skaut,
14 dveljast, 15 ógna, 16
ljóður, 17 þrjót, 18 fram-
endi, 19 næða, 20 sjá eft-
ir.
LAUSN SÍÐUSTU KROSSGÁTU
Lárétt: 1 skáld, 4 fávís, 7 gömul, 8 látið, 9 les, 11 sund,
13 erta, 14 ólgan, 15 þarm, 17 nekt, 20 krá, 22 kuldi, 23
sælar, 24 innan, 25 renni.
Lóðrétt: 1 seggs, 2 álman, 3 dall, 4 fals, 5 vitur, 6 síðla,
10 elgur, 12 dóm, 13 enn, 15 þokki, 16 rolan, 18 eklan, 19
tarfi, 20 kinn, 21 ásar.
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/folk/krossgata/index.html
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16