Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 51

Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 51
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 51 MAGNÚS Aron Hallgrímsson, fremsti kringlukastari Íslands um þessar mundir, hefur slitið sam- starfi við Véstein Hafsteinsson, þjálfara sinn og Íslandsmethafa í kringlukasti. Magnús hafði þá æft undir stjórn Vésteins í tæp sjö ár. „Ég ákvað að nú væri rétti tíminn til að breyta til í þjálfuninni,“ sagði Magnús Aron. „Mér fannst ég þurfa að kynnast einhverju nýju eftir tæplega sjö ára samstarf við Vé- stein. Samstarfsslit okkar voru gerð í fullri sátt,“ sagði Magnús sem býr í Gautaborg og býr sig af kappi undir átök sumarsins en hann stefnir að þátttöku á Ólympíu- leikunum í sumar. Magnús hefur tekið upp samstarf við Svíann Anders Asklid en hann er félagsþjálfari í Svíþjóð og hefur víðtæka reynslu af þjálfun frjáls- íþróttamanna, var m.a. þjálfari hjá háskólaliði í Arizona í Bandaríkj- unum fyrir nokkrum árum. „Mér líst vel á Anders, hann býr yfir mik- illi reynslu sem ég vona að nýtist mér vel á næstu mánuðum,“ sagði Magnús Aron sem keppir undir merkjum Breiðabliks í Kópavogi. Magnús byrjar að keppa í maí og hefur stefnan verið sett á að ná lág- marki fyrir Ólympíuleikana sem fyrst, en til þess þarf hann að kasta a.m.k. 62,55 metra. Hann tók þátt í síðustu leikum sem fram fóru í Sydney og kastaði þá 60,95 sem er lengsta kast íslensks kringlukast- ara á Ólympíuleikum. Það nægði honum þó ekki til að komast í úrslit. Magnús Aron slítur samstarfi við Véstein BERGLIND Ósk Pétursdóttir verður meðal dómara í fim- leikum á Ólympíuleikunum í Aþenu í sumar, fyrst íslenskra kvenna. Boð um þetta barst henni í gær. „Mér líst vel á þetta,“ sagði Berglind í gær. Hún sagði regluna þá að þau lönd sem eiga keppendur eigi líka rétt á að senda dómara. Engar íslenskar stúlkur keppa á ÓL en henni er samt boðið að dæma í kvennakeppninni. Hún fær góða æfingu í vor þegar hún dæmir á EM, þar sem hún verður meðal annars yfirdómari í gólfæfingum. „Það er það versta við að búa hér að það kostar mikið að fara á mót erlendis og dæma,“ segir Berglind Ósk. Berglind Ósk á ÓL Nógu byrjuðu Keflvíkingar vel íVesturbænum þegar Nick Bradford og Derrick fóru á kostum með ábót frá Hirti Harðarsyni, sem skoraði fjórar þriggja stiga körfur í fyrsta leikhluta. Með 15 stiga forskot í upphafi annars leik- hluta fóru Derrick og Nick út af og ljóst að Keflvíkingar ætluðu sér ekki að hafa mikið fyrir stigunum. Það sáu leikmenn KR líka og voru ekki sáttir, brettu upp ermarnar og í leikhlé var staðan 54:48 fyrir gestina. Í upphafi þriðja leikhluta ætluðu Keflvíkingar sér aftur að slíta KR af sér og náðu 17 stiga forystu en sem fyrr gerðust þeir alltof værukærir svo að KR minnkaði muninn í 76:73. Heldur fór um Keflvíkinga og Nick og Bradford voru sendir í björgunarleiðangur, sem gekk upp á lokasprettinum. „Ég var ánægður með hvað menn lögðu mikið á sig og við vorum í raun klauf- ar að ná ekki yfirhöndinni,“ sagði Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari KR. „Það vantaði okkar helsta stigaskor- ara en fimm leikmenn skoruðu meira en tíu stig og við áttum meira inni.“ Þegar KR-ingar tóku við sér voru margir leikmenn virkir og sýndu hvað í þeim býr. Þriggja stiga hittni KR var ekki beysin þegar 2 af 17 fóru ofan í. Derrick og Nick drógu vagninn fyrir Keflavík með flest stig og frá- köst. Hjörtur var drjúgur með 7 af 10 þriggja stiga skotum ofan í en alls skoraði Keflavík úr 13 af 25 þriggja stiga skotum. „Við sigruðum en vor- um værukærir og klaufar að vinna ekki stærra,“ sagði Hjörtur eftir leik- inn. „Við tókum góðar rispur en hættum þá að berjast og gáfum eftir svo að KR-ingar fengu að gera það sem þeir vildu svo að við vorum næst- um búnir að klúðra þessum leik.“ Naumur sigur Hauka Haukar sigruðu Þór, Þorlákshöfn,naumlega, 80:76, á Ásvöllum. Heimamenn höfðu frumkvæðið nán- ast allan leikinn en gestirnir voru aldrei langt undan og tókst að hleypa spennu í leikinn á lokamínút- unum. Haukar höfðu sjö stiga forystu í leikhléi eftir góðan kafla undir lok fyrri háfleiks og sá munur hélst nokkurn veginn fram á lokakafla leiksins. Þá tókst gestunum að minnka muninn í tvö stig, 78:76, og hefðu hæglega getað hirt bæði stigin enda vel studdir af stuðningsmönn- um sínum. En það átti ekki fyrir þeim að liggja að þessu sinni og Haukar höfðu sigur án þess að frammistaða þeirra hefði verið neitt til þess að hrópa húrra fyrir. Michael Manciel skoraði grimmt fyrir heimamenn í fyrri hálfleik en hvarf nánast í þeim síðari þar til í lokin er hann innsiglaði sigurinn með tveimur vítaskotum. Sævar Haraldsson lék einnig vel, sér- staklega í síðari hálfleik. Hjá gest- unum var hinn eldfljóti Nati Brown bestur í sókninni og Róbert Hodgson var drjúgur í vörninni. Dramatískur leikur í Jakanum Ísfirðingar höfðu betur gegnBreiðabliki í sannkölluðum fallbaráttuslag því bæði lið voru með 8 stig fyrir leikinn en Ísfirðinar með 10 eft- ir 95:88 sigur í fram- lengdum leik. Ísfirð- ingar þurftu að sigra með 7 stigum eða meira til þess að standa betur í innbyrðisviðreignum liðanna sem skiptir máli verði liðin jöfn að stigum. Fyrsti leikhluti var mjög jafn og var það Bethuel Fletcher sem var maður fyrsta leikhluta en hann stýrði Ísfirðingum af mikilli ákveðni í leikn- um. Blikar áttu frábæran annan leik- hluta en þar var Mirko Virijevic fremstur í flokki. Í þriðja leikhluta rönkuðu Ísfirðingar heldur betur við sér og skoruðu 14 stig á móti 4 stig- um gestanna á fjórum mínútum og náðu forystunni sem þeir héldu út leikhlutann. Blikar náðu svo fljótt undirtökun- um í leiknum á meðan heimamenn náðu ekki saman sem lið, léku sem einstaklingar. Loka sekúndurnar voru afar dramatískar en þegar 18 sekúndur voru eftir af leiknum var staðan 76:77 og Blikar voru í sókn, þeir fengu dæmda á sig sóknarvillu og Ísfirð- ingar fengu knöttinn. Þeir töpuðu boltanum en náðu honum aftur og Pétur Már Sigurðsson fiskaði villu á eigin vallarhelmingi og fékk tvö víta- skot. Hann klikkaði úr fyrra skotinu en hitti úr því síðara og var því gripið til framlengingar. Ísfirðingar byrjuðu framleng- inguna vel og náðu fljótt sex stiga forystu með tveimur góðum 3ja stiga körfum frá Baldri Inga Jónassyni og Bethuel Fletcher. Pétur Már Sigurðsson fiskaði svo frábærlega þrjú vítaskot og skoraði úr þeim öllum og tryggði Ísfirðingum góðan og jafnframt mjög mikilvægan sigur á Breiðabliki „Ég spurði strákana í hálfleik hvort þeir hefðu áhuga á að halda sér í deildinni. Við bara þurftum að vinna,“ sagði Hrafn Kristjánsson, þjálfari KFÍ. ,,Það einfaldlega klikk- aði allt hjá okkur, við höfum tapað mörgum leikjum naumt í vetur en þetta var sá allra dapursti sem ég hef orðið vitni að,“ sagði Jón Arnar Ingv- arsson, þjálfari Breiðabliks, í samtali við Morgunblaðið. Spurður hvað hon- um fyndist um dómara leiksins sagði hann ,,Þeir voru mjög slakir, eigin- lega hálfdapurlegt að sjá þá í kvöld.“ Morgunblaðið/Sverrir Keflvíkingurinn Arnar Freyr Jónsson reynir að komast frá KR-ingnum Magnúsi Helgasyni. Þriggja stiga skotin björguðu Keflavík KEFLVÍKINGAR héldu sínu striki í úrvalsdeildinni í körfuknattleik, lögðu KR-inga í Vesturbænum 80:76 í gærkvöldi þar sem þriggja stiga skotin riðu baggamuninn. Í botnbaráttunni hafði KFÍ betur gegn Breiðabliki í framlengdum leik og eru Ísfirðingar með tveimur stigum meira en Blikar og Þór þar sem Þorlákshafnarbúar töpuðu 80:76 fyrir Haukum sem færðust upp að hlið Njarðvíkinga. Stefán Stefánsson skrifar Kristján Jónsson skrifar Gunnar Atli Gunnarsson skrifar  UNGLINGALANDSLIÐ Íslands í knattspyrnu, skipað leikmönnum undir 19 ára aldri, leikur tvo vin- áttulandsleiki við Norður-Írland á útivelli 26. og 28. apríl. Íslenska liðið, undir stjórn Guðna Kjart- anssonar, býr sig undir undan- keppni EM sem fram fer í október en úrslitakeppnin verður einmitt á Norður-Írlandi sumarið 2005.  STOKE City hefur endurheimt norður-írska knattspyrnumanninn Gerry Taggart, sem mun leika með félaginu í ensku 1. deildinni út þetta tímabil. Taggart lék með Stoke sem lánsmaður frá Leicest- er í desember og janúar og þétti vörn liðsins með þeim árangri að það tapaði ekki í þeim tíu leikjum sem hann spilaði. Nú hefur Tagg- art verið leystur undan samningi sínum við Leicester og Stoke hef- ur samið við hann til vorsins.  JOHN Rudge, yfirmaður knatt- spyrnumála hjá Stoke, sagði að það væri afar ánægjulegt að fá Taggart aftur. „Það sáu allir hve mikil áhrif hann hafði á liðið með- an hann var hér fyrr í vetur. Hann var okkur gríðarlegur liðs- styrkur, bæði innan vallar og ut- an. Nú þurfum við ekki að hafa áhyggjur af því að missa hann aft- ur frá okkur,“ sagði Rudge.  JAMES Hayter setti met í ensku knattspyrnunni á þriðju- dagskvöldið þegar hann skoraði þrennu á aðeins 140 sekúndum fyrir Bournemouth gegn Wrex- ham. Foreldrar hans voru á leikn- um en misstu af mörkunum því þau yfirgáfu leikvanginn 10 mín- útum fyrir leikslok til að ná næstu ferju frá Bournemouth til eyjar- innar Isle of Wight þar sem þau búa.  HAYTER kom inn á sem vara- maður fjórum mínútum eftir að foreldrar hans héldu á brott og á leið sinni í ferjuna hlustuðu þau steini lostin á afrek hans í beinni útvarpslýsingu frá leiknum. „Ég vissi ekki hvort ég ætti að hlæja eða gráta þegar útvarpsþulurinn öskraði nafnið hans aftur og aft- ur,“ sagði Michael Hayter en son- ur hans snerti boltann fjórum sinnum í leiknum og nýtti því tækifærið vel.  Í JÚNÍ næstkomandi munu um þrjátíu kylfingar frá mismunandi þjóðlöndum leggja lið líknarmál- efni, sem nefnist Wooden Spoon, með því að leika golf í 24 tíma samfleytt. Einn af þessum kylf- ingum er Englendingur að nafni Paul Whittle. Hann mun spila 90 holur á 24 tímum og á fimm mis- munandi völlum á Íslandi. Whittle segir Ísland henta vel til þessa, vegna mikillar birtu allan sólar- hringinn um miðjan júní. FÓLK

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.