Morgunblaðið - 27.02.2004, Page 53
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 53
Sími 533 1100
broadway@broadway.is
Öll laugardagskvöld!
Le’Sing (Syngjandi þjónar) alla laugardaga. Sýning sem hefur
slegið rækilega í gegn. Yfir 70 sýningar stutt í 10.000 gestinn
sem verður leystur út með veglegum gjöfum.
Frábær skemmtun fyrir alla aldurshópa.
Stórsýning
frá leikhúsborginni London. 2. og 3. apríl.
Forsala miða hafin á Broadway.
Þessari sýningu má enginn missa af.
Matseðill:
Indversk sjávarréttasúpa m/kúmen og kókostónuð .
Kjöttvenna; balsamickryddaður lambavöðvi
og púrtvínslegin svínalund
með camembert-grapesósu og karamellueplum .
Súkkulaðiturn m/engifertónaðri kirsuberjasósu.
Verð: sýning 2.500 krónur
Verð: matur og sýning 6.400 krónur
í forsölu á Broadway
Veisluþjónusta; ferminga- og brúðkaupsveislur.
Funda- og ráðstefnusalir af öllum stærðum.
St
af
ræ
na
hu
gm
yn
da
sm
ið
ja
n
/4
23
4
Matseðill
Indversk
sjávar-
réttasúpa.
Balsamic
lambafille
með kara-
melluepli.
Eftirrétta
fantasía.
Matur og skemmtun: 5.900 krónur
Skemmtun: 2.500 krónur - Ball: 1.500 krónur
Þar koma fram margir snjöllustu meistarar Hróksins.
Landsfrægir skemmtikraftar og vinsælir tónlistarmenn.
Nú leitar Hrókurinn liðsmanna, svo hægt verði
að halda áfram að byggja upp skáklíf á Íslandi.
Hefst á morgun kl. 13 á Broadway.
skráning í fjöltefli hefst kl. 12:30
Fjölskylduhátíð
Sýningin sem er að gera allt vitlaust á Hornafirði
Hljómsveitin Fjörmenn og Glærurnar slá í gegn.
„Með allt á hreinu”
Föstudaginn 19. mars
Húsið opnað kl. 19.00 - Borðhald hefst kl. 20.00
Skemmtidagskrá hefst kl. 22.00
Kynnir Gísli Einarsson grínari með meiru.
Snorri Hjálmarsson Syðstu-Fossum syngur lög af nýjum diski.
Atriði úr Bifróvison.
Nemendur úr Viðskiptaháskólanum Bifröst skemmta.
Jóhann Sigurðarson leikari og Þorsteinn Gauti píanóleikari.
Freyjukórinn syngur lög úr söngleikjum,
stjórnandi Margrét Pálmadóttir.
Þorvaldur Jónsson skemmtir. - Danshópur úr Reykholtsdal.
Karlakórinn Söngbræður. Sigurlag Dægurlagakeppni Borgarfjarðar.
Gospelband Akraness.
Hljómsveitin Stuðbandalagið á ekta sveitaballi fram á nótt.
5.mars
SÉRSTÖK „Powersýning“ verður
haldin á Draugalestinni, leikriti Jóns
Atla Jónassonar í leikstjórn Stefáns
Jónssonar, í Borgarleikhúsinu í
kvöld. Ekki er þó um að ræða að
hljóðið sé skrúfað í botn eins og gert
er í samnefndum kvikmyndasýning-
um heldur spilar hljómsveitin Ghost-
igital eftir sýninguna. Höfundur tón-
listar í verkinu er einmitt
Ghostigital, Einar Örn Benediktsson
og Birgir Örn Thoroddsen, en með
þeim spila á tónleikunum að venju
Frosti Logason og Elís Pétursson,
sem báðir spila á gítar og á trompet
spilar Hrafnkell, sonur Einars Arn-
ar. Athygli er vakin á því að í Fólk-
inu, aukablaði Morgunblaðsins í dag,
er ítarlegt viðtal við Elís.
Ekkert hlé er venjulega í sýning-
unni en að þessu sinni verður hlé að
sýningu lokinni, áður en Ghostigital
tekur við. „Leikstjórann langaði að
hafa einhvers konar „powersýn-
ingu“, sýningu sem væri eitthvað
meira í. Við troðum upp eftir hlé með
lög af plötunni okkar. Í bónus fær
fólk Ghostigital-tónleika en við spil-
um í 40 mínútur. Við spilum þetta
sett sem við erum búnir að vera
með,“ segir Birgir Örn.
„Þetta er tilraun til að fá tónlist-
arfólk í leikhús og bjóða leikhúsfólk-
inu á tónleika og hafa smástemn-
ingu,“ segir hann.
„Þetta var rosalega gaman,“ segir
hann um gerð tónlistarinnar. „Ég
hafði áður hljóðsett bíómynd og Ein-
ar hefur auðvitað gert tónlist við 101
Reykjavík. En að vinna saman sem
Ghostigital í þessu var alveg frá-
bært. Við unnum þetta líka með leik-
ritinu og þetta er stundum á mörk-
um þess að vera hálfgerð
hljóðsetning og umhverfishljóð. Það
var gaman að sjá hvernig leikritið
breyttist og tónlistin á þessum
tíma,“ segir hann en líka eru þrjú
fullgild lög í sýningunni.
„Það var gaman að sjá persónurn-
ar verða skýrari. Það hafði mikið að
segja fyrir okkur. Það eru fjórir kar-
akterar í þessu leikriti og við reynum
að miða þessar stemningar við þá.“
Draugalestin í Borgarleikhúsinu
Morgunblaðið/Golli
Leiksýning og tónleikar
„Powersýning“ á Draugalestinni
á Nýja sviði Borgarleikhússins
kl. 20 í kvöld.
ingarun@mbl.is
■ Fátt eins/Fólkið 8
Ársalir- fasteignamiðlun Ársalir- fasteignamiðlun
Nýttu þér áratuga reynslu
okkar og traust í
fasteignaviðskiptum
Björgvin Björgvinsson, lögg. fasteignasali.
Ársalir
FASTEIGNAMIÐLUN
Engjateigi 5 105 Rvk
533 4200
Fréttasíminn
904 1100