Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 54
54 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Sýnd kl. 8 og 10.
Sýnd kl. 6. B.i. 16 ára.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Þau eiga 12 börn og mamman er
fjarverandi - þetta endar með ósköpum!
Frábær skemmtun!
Frábær gamanmynd
frá höfundi Meet the Parents
Vinsælasta fjölskyldumynd ársins
í USA!
Fleiri börn...meiri vandræði!
H A L L E B E R R Y
FRUMSÝNING
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.30
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
Sýnd kl. 8 og 10.20.
11 Tilnefningar til
óskarsverðlauna
kl. 5 og 9.
Yfir 93.000 gestir
Sýnd kl. 4 og 8. B.i. 12.
Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10. B.i. 16 ára.Sýnd kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 4 og 6. Með íslenskum texta
Sálfræðitryllir í anda The Sixth Sense með hinni frábæru Halle
Berry. Hún vaknar upp á hæli og man ekki eftir hræðilegum
glæp sem hún á að hafa framið! Ekki er allt sem sýnist.
Mynd sem fær hárin til að rísa.
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
Besta mynd, besti leikstjóri, besta
handrit og besti leikari í aðalhlutverki
4
Allir þurfa félagsskap
„Dýrmætt
hnossgæti“
EPÓ Kvikmyndir.com
ÓHT Rás2
SV MBL
FRUMSÝNING
Fleiri börn...meiri vandræði!
Þau eiga 12
börn og
mamman er
fjarverandi
- þetta
endar með
ósköpum!
Frábær
skemmtun!
Vinsælasta
fjölskyldumynd
ársins í USA!
STRÁKARNIR í Mínus eru
nýkomnir aftur til Íslands eft-
ir vel heppnaða utanför. Þeir
eru búnir að vera langdvölum
í Bretlandi þar sem mikill
áhugi er að skapast fyrir
sveitinni og tónlist hennar.
Þurftu þeir reyndar að fram-
lengja dvöl sína og lék Mínus
á síðustu tónleikunum sínum
þar hinn 16. febrúar í Carl-
ington Academy þar sem þeir
hituðu upp fyrir Auf der
Maur (ný sveit Melissu Auf
der Maur, fyrrum bassaleik-
ara Hole og Smashing
Pumpkins). Og áður en þeir
komu aftur til langþráða
Fróns léku þeir svo með
pönkrokksveitinni The
Distillers á þrennum tón-
leikum í Þýskalandi.
Greinar eru farnar að birt-
ast um Mínus reglulega í
breskum blöðum en fyrir
stuttu kom Halldór Laxness,
þriðja plata sveitarinnar út
undir merkjum Sony þar í landi og einnig annars
staðar í Evrópu.
Music Week birtir t.d. stuttan dóm um plötuna og
gefur henni mjög góða einkunn og segir að platan
gæti hæglega orðið mest umtalaða rokkplata ársins
(„word of mouth“ rock album of the year).
Teletext í Bretlandi, sem er til muna öflugri mið-
ill en þekkist hérlendis, birtir tvo dóma, bæði um
smáskífuna, „Angel In Disguise“, og stóru plötuna,
Halldór Laxness. Smáskífunni er líkt við Queens of
the Stone Age og í dómi um plötuna er talað um
„frosna túndru-epík“. Rýnir segir að brjálæðið sé
nokk úthugsað hjá Mínus-liðum og enn er þeim líkt
við Q.O.T.S.A.
Peel og Presley
Skemmtilegasta greinin er þó í febrúarhefti Kerr-
ang! sem hefur hampað Mínus allar götur síðan önn-
ur plata sveitarinnar, Jesus Christ Bobby, kom út.
Þar er lögð heilsíða undir
skondið spjall við Krumma
söngvara í þættinum
„Hanging with...“. Flenni-
stór mynd er af kappanum
þar sem hann er ber að of-
an, með kúrekahatt, að
setja í þvottavél í almenn-
ings-þvottastöð í Kens-
ingtonhverfi Lundúna.
Spjallið er í galgopalegri
kantinum og segir
Krummi meðal annars
kinnroðalaust að pabbi
hans sé „Elvis Presley Ís-
lands“ (faðir Krumma er
Björgvin Halldórsson,
söngvari). Krummi hælir
foreldrum sínum og segir
þau hafa stutt sig með
ráðum og dáð í gegnum
tíðina. Blaðamaður bullar í
honum og Krummi gefur
því svör af þeim toga, eitt-
hvert grín um reikistjörn-
una Mars, risaeðlur og
þvottaskap.
Þá spilaði einn virtasti plötusnúður heims, John
Peel, lag með sveitinni í þætti sínum á BBC1 og það
þykir mikil upphefð í rokkbransanum.
Það er mikið sprikl á strákunum um þessar
mundir. Í fyrradag spiluðu þeir á Ísafirði, í gær
léku þeir í Verkmenntaskólanum á Akureyri og
næsta föstudag mun Kerrang standa fyrir sérstöku
kvöldi á Gauknum þar sem Mínus troða upp ásamt
velska rokkbandinu Jarcrew. Sveitirnar ætla meira
að segja að taka forskot á sæluna og verða með tón-
leika í Reykjanesbæ kvöldið á undan ásamt heima-
mönnunum í Lenu.
Tónlist Mínuss heillar
„Pabbi minn er Elvis
Presley Íslands“
arnart@mbl.is
www.noisyboys.net
BRESKI rithöfundurinn JK Rowl-
ing, sem samið hefur bækurnar um
Harry Potter, er orðin milljarðamær-
ingur í dölum talið, samkvæmt nýjum
lista sem tímaritið Forbes hefur birt
um ríkustu menn heims. Er Rowling í
552. sæti á listanum yfir ríkasta fólk
heims og eru eignir hennar metnar á
1 milljarð dala, um 70 milljarða
króna.
Talið er að um 250 milljónir eintaka
hafi selst af bókunum fimm og tekjur
af tveimur myndum, sem gerðar hafa
verið eftir bókunum, nema um 130
milljörðum króna. Von er á þriðju
kvikmyndinni síðar á þessu ári.
Bill Gates, stofnandi og stjórnar-
formaður Microsoft, er efstur á lista
Forbes að vanda en eignir hans eru
metnar á jafnvirði um 3.200 milljarða
króna.
Rowling er millj-
arðamæringur
Reuters
„Þetta gerir 2.999 kr. væni minn.“
J.K. Rowling selur og selur af
Harry Potter-bókum sínum.
RAEKWON The
Chef úr Wu-Tang
Clan hefur boðað
komu sína á klakann
fimmtudagskvöldið
18. mars á Gauk á
Stöng.
Það er hipp-hopp-
þátturinn Kronik sem
stendur fyrir þessari
uppákomu. Raekwon
gaf nýlega út plötuna
The Lex Diamond
Story og er hann nú á
stuttum Evróputúr í
tilefni þess.
Raekwon á að baki fjórar plötur
með Wu-Tang Clan og þrjár sóló-
plötur. Fyrsta platan hans, Only
Built For Cuban Linx, vakti verð-
skuldaða athygli á sínum tíma. Einn-
ig gaf hann út plötuna Immortability
1999 og svo í desember
2003 The Lex Diamond
Story og hefur hún feng-
ið lof gagnrýnenda.
Raekown kemur hing-
að ásamt tveimur gesta-
röppurum og plötusnúð.
Ekki er enn komið í ljós
hvaða íslensk bönd sjá
um upphitun en það
skýrist fljótlega. Þetta
mun vera í fyrsta skiptið
sem einhver úr Wu-
Tang sækir Ísland heim
og má því búast því að
margir hafi áhuga á að
sjá ljóslifandi liðsmann svo goðsagn-
arkenndrar sveitar.
Verð inn á tónleikana er 2.000 kr.
og aldurstakmark 18 ára. Húsið er
opnað kl. 21:00 og standa tónleikarn-
ir til kl. 1:00.
Liðsmaður Wu-Tang
Clan til Íslands
Vígalegur Raekwon úr
Wu-Tang-genginu.