Morgunblaðið - 27.02.2004, Side 56
56 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Frábær gamanmynd frá höfundi
Meet the Parents
EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 6, 8 OG 10.10.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 3.50, 6, 8 og 10.10.
Sýnd kl. 9.15. B.i. 16. Sýnd kl. 6 og 10.20.Sýnd kl. 8. B.i. 14 ára.
Sýnd kl. 8 og 10.30.
Sýnd kl. 6 og 9. B.i. 16.
Sýnd kl. 6.
Stórbrotin
ogmargverðlaunað
stórmynd með
Óskarsverðlaunahafanum,
Nicole Kidman, Golden
Globe og BAFTA
verðlaunahafanum Renée
Zellweger og Jude Law.
FRUMSÝNING
Sýnd kl. 8.10
Kynnir
SV MBL
ÓHT Rás2
VG DV
Kvikmyndir.com
HJ. MBL
Kvikmyndir.com
HJ MBL
„Fínasta
skemmtun“
B.Ö.S.
Fréttablaðið
6
Tilnefningar til
óskarsverðlauna
m.a. besta mynd ársins
Sprenhlægilegt
meistarastykki sem
hefur farið sigurför
um heiminn
og enginn
má missa af!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
„Yndislegt kraftaverk;
sönn, djúp og fyndin
kvikmynd!“
Roger EbertKvikmyndir.com
SV MBL
Heimur farfuglanna
DV
KLIKKAÐRI helmingur dúettsins
rómaða OutKast Andre 3000 hef-
ur samþykkt að leika Jimi Hend-
rix í mynd sem stendur til að
gera um ævi þessa mikla gítar-
goðs.
Um þessar mundir er Andre
við tökur á Be Cool, framhaldi
Get Shorty, þar sem hann fer
með lítið hlutverk íburðarmikillar
rokkstjörnu.
Nýverið lýstu OutKast líka yfir
að þeir hygðust gera sína eigin
kvikmynd og að næsta plata verði
tónlistin sem hljóma mun í henni.
Big Boi, hinn helmingur Out-
Kast, hefur sagt myndina eiga að
gerast í fortíðinni en ekki vera
einhver mynd um OutKast.
Andre 3000 úr OutKast
Leikur
Hendrix
Reuters
„Foxy Lady“: Andre 3000 er hreint
ekki svo galinn Hendrix.
ÍSLENDINGARNIR Róbert Viðar
Bjarnason og Þorsteinn Högni Gunn-
arsson voru í hópi sem fékk svonefnd
BAFTA-verðlaun fyrir besta farsíma-
tölvuleikinn á fyrstu bresku tölvu-
leikjaverðlaunahátíðinni, í London í
fyrrakvöld.
Róbert Viðar er framleiðslustjóri
verkefnisins hjá breska tölvuleikja-
fyrirtækinu Ideaworks3D og Þor-
steinn Högni markaðsstjóri þess.
„Þetta er gríðarleg viðurkenning fyr-
ir okkur og fyrirtækið,“ sagði Róbert
Viðar í samtali við fréttavef Morgun-
blaðsins í gær.
Róbert Viðar sagði að unnið hafi
verið að þessum leik í hálft ár hjá
Ideaworks3D. Tíu manna hópur kom
að verkefninu sem var undir hans
stjórn. Þetta er leikurinn Tony
Hawk’s Pro Skater, sem hefur verið
fáanlegur í PC og PlayStation.
„Verkefni okkar var að koma þess-
um leik, sem er í þrívídd, yfir á það
form að hægt er að nota hann í Nokia
GSM-síma. Það er okkur mikil við-
urkenning að vera tilnefndir til
BAFTA-verðlaunanna og hvað þá að
hljóta verðlaunin. Við höfum varla
gert annað en taka á móti hamingju-
óskum í dag,“ sagði Róbert Viðar sem
er staddur á farsímasýningu sem er
haldin í Cannes í Frakklandi ásamt
Þorsteini Högna, en þar eru þeir ein-
mitt að kynna þennan leik.
„Þessi verðlaun gera okkur aðveld-
ara að selja leikinn og fá ný verkefni í
framhaldinu. BAFTA-verðlaunin eru
þekktustu verðlaun í Evrópu og þau
hafa því mikla þýðingu fyrir okkur.
Fyrirtækið er tiltölulega lítið og þetta
er viðurkenning á því að við erum að
gera góða hluti,“ sagði Róbert Viðar,
sem hefur unnið hjá Ideaworks3D í
Bretlandi í tvö ár.
BAFTA-verðlaunin eru veitt af
bresku kvikmynda- og sjónvarps-
myndastofnuninni. Stofnunin veitir
árleg kvikmyndaverðlaun en þetta er
í fyrsta skipti sem sérstök verðlaun
eru veitt fyrir tölvuleiki. Tölvuleikur-
inn umdeildi, Grand Theft Auto: Vice
City, fékk fimm verðlaun á hátíðinni,
þar á meðal sem besti PlayStation 2
leikurinn og besti PC-leikurinn. Leik-
urinn Call of Duty, sem fjallar um síð-
ari heimsstyrjöldina, var samt valinn
tölvuleikur ársins 2003.
Íslendingar fá bresku
tölvuleikjaverðlaunin
Besti farsíma-
tölvuleikurinn
Róbert Viðar Bjarnason og Þorsteinn Högni Gunnarsson eru staddir á
farsímaráðstefnu í Cannes við kynningu á verðlaunaleik sínum.
Skjámynd af farsímaútgáfu
Róberts Viðars og félaga af Tony
Hawk’s Pro Skater.