Morgunblaðið - 27.02.2004, Síða 60
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 27. FEBRÚAR 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 190 KR. MEÐ VSK.
Nýtt
EINSTAKLINGUM sem veitt er
leyfi til að afplána refsingu með sam-
félagsþjónustu hefur fjölgað umtals-
vert á seinustu árum. Í árslok 2001
voru 26 dómþolar að afplána refsingu
með samfélagsþjónustu hér á landi en
ári síðar voru þeir þrefalt fleiri eða
samtals 78. Þessar upplýsingar koma
fram í ársskýrslu Fangelsismála-
stofnunar ríkisins fyrir árið 2002.
118 fengu reynslulausn
Mikil aukning hefur orðið á sam-
félagsþjónustu sem kemur í stað
vararefsingar fésekta. Alls hófu 738
einstaklingar samfélagsþjónustu á
árinu 2002 í stað óskilorðsbundinnar
refsingar eða vararefsingar fésekta.
Fram kemur í skýrslunni að á árun-
um frá 1995 rufu tæp 13% þeirra sem
hófu samfélagsþjónustu í stað óskil-
unni. Á árinu 2002 var 37 föngum veitt
samtals 130 dagsleyfi úr fangelsi án
fylgdar og hafa þau aldrei verið fleiri.
Fram kemur í skýrslunni að lítið hefur
verið um að fangar misnoti leyfi þessi
og var engin misnotkun skráð á árinu
2002.
Sektarrefsingum fjölgar
Dómþolum sem dæmdir voru í sekt-
arrefsingar á árinu 2002 fjölgaði veru-
lega og hafa Fangelsismálastofnun
ekki borist fleiri slíkar refsingar á við-
miðunartímabili sem nær aftur til árs-
ins 1995. Alls bárust Fangelsismála-
stofnun 1.637 dómar til fullnustu og
vistunar á árinu frá ríkissaksóknara og
Hæstarétti Íslands. Þá bárust stofnun-
inni 483 svonefndar viðurlagaákvarð-
anir og 6.743 árituð sektarboð og hafði
þeim fjölgað úr 5.148 árið á undan.
orðsbundins fangelsis þau skilyrði
sem sett eru fyrir samfélagsþjónustu.
Föngum sem afplána refsingu í ís-
lenskum fangelsum fyrir fíkniefna-
brot fjölgar ár frá ári skv. yfirliti
Fangelsismálastofnunar og voru þeir
32% af heildarfjölda fanga um ára-
mótin 2002/2003. Til samanburðar
var hlutfall þeirra af heildarfjölda
fanga um 13% árið 1996.
Fleiri föngum var veitt reynslu-
lausn á árinu 2002 en árin á undan,
eða 118. Þar af var 72 föngum veitt
reynslulausn eftir helming afplánaðs
refsitíma. „Skýringuna má aðallega
rekja til breyttrar samsetningar á
fangahópnum en útlendingum sem
losnuðu á árinu 2002 fjölgaði milli ár-
anna 2001 og 2002 en þeim er yfirleitt
veitt reynslulausn eftir helming refsi-
tíma og vísað úr landi,“ segir í skýrsl-
78 tóku út refsingu
í samfélagsþjónustu
Fangelsismálastofnun bárust 1.637 dómar til fullnustu 2002
Föngum sem afplána fíkniefnadóma fjölgar ár frá ári
KB BANKI hefur keypt norska verð-
bréfafyrirtækið A. Sundvall ASA með
það fyrir augum að efla starfsemi
bankans í Noregi. Kaupin eru jafn-
framt hluti af þeirri stefnu bankans að
komast í hóp leiðandi fjárfestingar-
banka á Norðurlöndum, að því er fram
kemur í tilkynningu frá KB banka.
A. Sundvall ASA var stofnað árið
1976, hefur sérhæft sig í fjármálaþjón-
ustu frá árinu 1983 og er eitt elsta fyr-
irtæki af sínu tagi í Noregi. Miðlun
hlutabréfa og skuldabréf, fyrirtækja-
ráðgjöf og greining eru helsta starf-
semi fyrirtækisins, sem hefur 25
manna starfslið.
Hreinar rekstrartekjur Sundvall
ASA árið 2003 námu 30 milljónum
norskra króna og eigið fé félagsins í
árslok 2003 nam 25 milljónum norskra
króna.
Eftir kaupin á KB banki tvö fjár-
málafyrirtæki í Noregi en fyrir átti
bankinn Kaupthing Norge A.S. sem
áður hét Tyren Group en það fyrirtæki
starfar helst á sviði eignastýringar.
Kaupverð A. Sundvall ASA er ekki
gefið upp, að því er fram kemur í til-
kynningu frá KB banka.
Haft er eftir Sigurði Einarssyni
stjórnarformanni í tilkynningu að
kaupin séu mikilvægt skref í sókn KB
banka inn á norskan markað.
Kaupir
norskt
verðbréfa-
fyrirtæki
KB banki
GUÐNI Ágústsson landbúnaðarráð-
herra segist ætla að fara fram á það
við Samkeppnisstofnun, öðru hvor-
um megin við helgina, að hún skoði
ofan í kjölinn hvernig verðlagningu á
grænmeti sé háttað, nú þegar könn-
un stofnunarinnar leiði í ljós meira
en 50% verðhækkun undanfarið ár á
mörgum tegundum grænmetis.
Guðni segir að ein mikilvægasta
ákvörðun sín sem landbúnaðarráð-
herra hafi verið breytingar á tolla-
lögum fyrir tveimur árum. Í kjölfarið
hafi lækkun á grænmeti gengið hratt
fyrir sig. Nú sé verðið aftur orðið
hátt og því sé mikilvægt að Sam-
keppnisstofnun svari því hvar þessi
hækkun liggi og hvers vegna. „Þetta
verð á grænmeti núna er háð einu
lögmáli, það er sveiflum á heims-
markaði. Framboð og eftirspurn
ræður verði. Ég vil að Samkeppn-
isstofnun kanni hvort það er heims-
markaðsverðið sem hefur af ein-
hverjum ástæðum hækkað. Er þetta
hækkun í hafi eða hefur eitthvað það
gerst hér innanlands sem ekki er
hægt að sætta sig við?“ spyr Guðni.
Vill að Samkeppnisstofnun
skoði grænmetisverðið
Hitar og haustrigning/4
LÍTIÐ hefur verið um
strok úr íslenskum fang-
elsum eða tilraunir til
slíks á seinustu árum.
Engin tilraun var gerð til
þess að strjúka úr fangelsi
hér á landi á árinu 2002
og aðeins ein tilraun til
stroks var skráð á ár-
unum 2000 og 2001. Til
samanburðar voru skráð
tólf strok eða stroktil-
raunir úr fangelsum 1986,
tíu tilvik árið 1990 og tutt-
ugu tilvik á árinu 1991.
Hættir
að flýja?
".
$
""
$ //0
$/
(+-'
%**)
1(
1+
&
(
LJ
J
J
J
LISTAVERK eftir Finnboga Pét-
ursson, geometríuviti, var híft upp á
þak Listasafnsins á Akureyri í gær og
verður þar til frambúðar. Um er að
ræða glerbúr sem í verður tölvustýrð-
ur ljóskastari er varpa mun teikn-
ingum eftir listamanninn út í myrkrið
– svokölluðum umhverfisteikningum
– enda vitinn aðeins í gangi eftir að
rökkva tekur, eins og nærri má geta.
Fyrsta grunnteikningin verður spír-
all.
„Þetta er sjálfstætt listaverk en
jafnframt hluti af byggingunni,“
sagði Hannes Sigurðsson, sem rekur
Listasafnið á Akureyri, í samtali við
Morgunblaðið í gær. Hugmynd Hann-
esar að „menningarvitanum“ var
samþykkt í umhverfisráði Akureyrar
árið 2000 „en svo var enginn tilbúinn
að borga; enginn vildi baka brauðið
með litlu gulu hænunni,“ sagði Hann-
es í gær. Eftir að honum tókst að fjár-
magna listaverkið er draumurinn nú
að verða að veruleika, ljóskastarinn
verður stilltur annað kvöld og verður
svo formlega ræstur með sýningu á
sunnudagskvöldið.
„Menning-
arviti“ á
þak Lista-
safnsins
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Akureyri. Morgunblaðið.
SYSTKININ Karl Wernersson, Steingrím-
ur Wernersson og Ingunn Wernersdóttir
hafa aukið hlut sinn í Íslandsbanka úr 5,4% í
8,4% eftir kaup á 3% hlut í bankanum í gær
og fyrradag. Kaupin eru gerð í gegnum fyr-
irtækið Milestone og segir Karl Werners-
son um ástæðu kaupanna að þau telji sig
vera að gera góð kaup. Hann segir óákveðið
hvort systkinin muni sækjast eftir manni í
bankaráð Íslandsbanka.
Kaupverðið er ekki gefið upp, en bréfin
munu hafa verið keypt á markaðsverði.
Lokagengi dagsins var 7,7 og hækkaði það
um 1,3% frá fyrra degi. Markaðsverð 3%
hlutar í bankanum er nú 2,4 milljarðar
króna.
Aðrir stærstu hluthafar í bankanum eru
Helgi Magnússon sem keypti 8,8% á þriðju-
dag, Lífeyrissjóður verslunarmanna sem á
8,1%, Straumur sem á 6,2% og Orri Vigfús-
son sem keypti í fyrradag 5,2% hlut.
Wernersbörn
með 8,4% í
Íslandsbanka
Wernersbörn/12