Morgunblaðið - 09.03.2004, Blaðsíða 1
Í fremstu röð
sundkvenna
Lára Hrund í fótspor Ragnheiðar
Runólfsdóttur Íþróttir 51
Áhrif þöglu
myndanna
Með stjörnur í augum á tískusýn-
ingunni í París Fólk í fréttum 54
Efling sér-
sveitarinnar
Björn Bjarnason svarar spurn-
ingum um öryggismál 30
VEGIR hafa skemmst á Suður- og
Vesturlandi í miklum vatnavöxtum
vegna úrhellisins og þíðunnar und-
anfarna daga og mikil flóð í Hvítá í
Árnessýslu settu um 800 hektara af
ræktuðu landi á kaf og fólk varð
innlyksa á bæjum á Auðsholts-
torfunni svonefndu í Hrunamanna-
hreppi. Vegurinn um Breiðabólstað
í Dölum fór í sundur vegna vatna-
vaxta og var honum lokað um tíma í
gær en vegasamband var komið á
að nýju um sjöleytið í gærkvöldi. Þá
skemmdist vegurinn um Svínadal í
Dölum, en ekki þurfti að loka hon-
um, og vegurinn í Vatnsnesi í
Grímsnesi lokaðist vegna flóðanna.
Spáð er áframhaldandi hlýindum
og úrkomu næstu daga.
Morgunblaðið/RAX
Gullfoss var í miklum ham í gær eftir vatnsveðrið undanfarna daga og hafði flætt yfir göngustíga.
Vegaskemmdir í miklum vatnavöxtum
800 hektarar/4
FULLTRÚAR í íraska
framkvæmdaráðinu
skrifuðu í gær undir
bráðabirgðastjórnar-
skrá fyrir Írak við hátíð-
lega athöfn í Bagdad.
Undirskrift stjórnar-
skrárinnar var víðast
hvar fagnað en eftir at-
höfnina lýsti Ayatollah
Ali al-Sistani, helsti
trúarleiðtogi sjíta í Írak,
því hins vegar yfir að
hann hefði „efasemdir“
um hana. Kom gagnrýni
hans mörgum í opna
skjöldu, talið var að hann
hefði lagt blessun sína
yfir plaggið á sunnudag.
Tvívegis áður hafði undirritun
stjórnarskrárinnar verið frestað
vegna ágreinings um efni hennar,
síðast á föstudag, en þá neituðu
þrettán sjítar í íraska framkvæmda-
ráðinu að skrifa undir hana og báru
fyrir sig óánægju Sistanis. Í fyrra-
dag töldu menn hins vegar að sam-
komulag hefði náðst um efni hennar
og allir tuttugu og fimm fulltrúar
framkvæmdaráðsins íraska undirrit-
uðu skjalið í gær.
Sagði núverandi forseti ráðsins,
Mohammed Bahr al-Uloum, við það
tækifæri að um sögulegan atburð
væri að ræða.
Stjórnarskráin mun taka gildi
þegar Bandaríkjamenn framselja
völd sín í Írak í hendur heimamönn-
um 1. júlí nk. Kveðið er á um það í
stjórnarskránni hvernig landinu
verður stjórnað uns búið er að kjósa
nýja ríkisstjórn, en stefnt er að því
að haldnar verði þingkosningar í
Írak snemma á næsta ári.
Sistani ekki sáttur
Í yfirlýsingu Sistanis erkiklerks í
gær sagði að stjórnarskráin myndi
„hamla“ gerð varanlegrar stjórnar-
skrár í framtíðinni. „Lög sem sam-
þykkt eru vegna þess umbreytinga-
tímabils sem framundan er njóta
ekki lögmætis fyrr en þjóðkjörið
þing hefur fjallað um þau,“ sagði
Sistani m.a. í yfirlýsingu sinni.
Stjórnarskrá
undirrituð í Írak
Sistani erkiklerkur segist hafa
„efasemdir“ um skjalið
Reuters
Meðlimir íraska framkvæmdaráðsins eftir að
bráðabirgðastjórnarskráin var undirrituð í gær.
Bagdad. AP.
AÐ MATI sérfræðinga Starfs-
greinasambandsins mun nýundirrit-
aður kjarasamningur skila félags-
mönnum 1–2% kaupmáttaraukningu
á samningstímanum, sem er fjögur
ár.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði við umræður á Alþingi í gær
að með samningum SGS, Flóa-
bandalagsins og SA hefðu skapast
skilyrði til að ná fram áformum rík-
isstjórnarinnar um skattalækkanir
sem yrðu mótandi fyrir aðra kjara-
samninga.
Átta aðildarfélög Starfsgreina-
sambandsins greiddu atkvæði gegn
samningnum þegar hann var borinn
undir stóru samninganefndina í
fyrrakvöld um hvort farið skyldi
með hann í atkvæðagreiðslu í félög-
unum. Tólf greiddu atkvæði með
honum og einn sat hjá. 21 formaður
af 27 sat fundinn. Að sögn Aðal-
steins Á. Baldurssonar, formanns
Verkalýðsfélags Húsavíkur, sem sat
hjá við atkvæðagreiðsluna, var fyrst
og fremst óánægja með launahækk-
anir í samningnum auk aðildar rík-
isstjórnarinnar, einkum er varðar
lífeyrissjóðsmálin. Lagt hefði verið
upp með að ríkisstjórnin lækkaði
tryggingagjald um 1,5% í stað
0,45% og framlag atvinnurekenda
undir lok samningstímabilsins yrði
níu prósent í stað átta.
Samkvæmt heimildum Morgun-
blaðsins eru Stjarnan á Grundar-
firði, Báran á Selfossi og verkalýðs-
félögin á Akranesi, Höfn og
Kópaskeri í hópi þeirra sem greiddu
atkvæði gegn samningnum.
Stjórnarandstaðan fagnar
yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar
Formenn Samfylkingar og
Frjálslynda flokksins fögnuðu yfir-
lýsingu ríkisstjórnarinnar vegna
kjarasamninga við umræður á Al-
þingi í gær en formaður Vinstri
grænna sagði hlut ríkisstjórnarinn-
ar minni en reiknað hafði verið með.
Forsætisráðherra segir útgjöld
ríkisins nema 2,7 til 2,8 milljörðum á
ári þegar allir þættir ríkisstjórnar-
innar vegna kjarasamninganna eru
að fullu komnir til framkvæmda.
Skilyrði fyrir skattalækkanir að mati forsætisráðherra
Samningur talinn auka
kaupmátt um 1–2% á ári
Átta félög innan SGS greiddu atkvæði gegn nýgerðum kjarasamningi
GREININGARDEILD Landsbank-
ans telur að kjarasamningar Starfs-
greinasambandsins og Flóabanda-
lagsins séu viðunandi og ógni ekki
efnahagslegum stöðugleika á næstu
árum.
Þá segir bankinn að gæta verði
að því að stefna ekki fjármálum
hins opinbera í hættu á næstu ár-
um. „Lækkun tryggingargjalds og
aukin útgjöld til tryggingarmála
hafa neikvæð áhrif á stöðu rík-
issjóðs, auk þess sem fyrir liggur að
gripið verður til stórtækra skatta-
lækkana á næsta ári. Að mati grein-
ingardeildar er mikilvægt að
tryggja að fjármálum hins opinbera
verði ekki stefnt í hættu á næstu ár-
um til þess að stöðugleikanum verði
ekki ógnað með þeim hætti, nú þeg-
ar viðunandi lausn er komin á
vinnumarkaði.“
Aðgæslu þörf í ríkisfjármálum
NORSK stjórnvöld eru vel á
veg komin með að ná fram því
markmiði að a.m.k. 40%
stjórnenda í opinbera geiran-
um verði konur. Náist það yrði
Noregur fyrsta landið til að
tryggja svo hátt hlutfall
kvenna í opinberum
stjórnunarstöðum.
Kjell Magne Bondevik, for-
sætisráðherra Noregs, rifjaði
upp í ræðu sem hann hélt í
gær í tilefni alþjóðlegs bar-
áttudags kvenna að ríkisstjórn
hans hefði fyrir tveimur árum
gert kröfur um kynjakvóta
vegna starfa hjá hinu opin-
bera. „Hlutfall kvenna í stjórn-
unarstöðum hefur hækkað um
meira en 6% á tveimur árum,“
sagði Bondevik í gær. „Fyrir
sumar 2006 munum við hafa
náð markmiði okkar um 40%.“
33,9% af þeim um það bil
9.000 stjórnendum hjá hinu
opinbera í Noregi eru konur.
Hlutfall kvenna í stjórnum fyr-
irtækja er enn lágt, aðeins 9%.
33,9%
stjórnenda
eru konur
Ósló. AFP.
Kjarasamningar/10–12
STOFNAÐ 1913 68. TBL. 92. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is