Morgunblaðið - 09.03.2004, Side 43

Morgunblaðið - 09.03.2004, Side 43
ATVINNU- AUGLÝSINGAR I I Landverðir Þjóðgarðurinn á Þingvöllum óskar eftir að ráða landverði til starfa sumarið 2004. Um er að ræða umsjón og eftirlit í þjóðgarðinum, þátttöku í fræðslu ásamt vinnu í afgreiðslu þjóðgarðsins á Leirum og Fræðslumiðstöð á Haki. Umsækjend- ur skulu hafa lokið námskeiði í land- vörslu eða hafa reynslu af sambærileg- um störfum. Góð tungumálakunnátta og hæfni í mannlegum samskiptum eru kostir sem tekið verður tillit til við ráðn- ingu. Umsóknir sendist til framkvæmdastjóra Þingvallanefndar, Hverfisgötu 4a, 101 Rvík, eða með tölvupósti á netfangið thingvellir@thingvellir.is. Nánari upplýsingar eru veittar í síma 482 3609 frá kl. 9:00-12:00. Umsóknarfrestur er til 19. mars nk. R A Ð A U G L Ý S I N G A R ATVINNUHÚSNÆÐI Til leigu — Þingholtin Góð staðsetning Til leigu ca 90 fm skrifstofuhúsnæði á 2. hæð á horni Grundastígs og Hellusunds, gegnt breska og þýska sendiráðinu. Á sama stað 15 fm skrifstofuherb. með sérinng. og snyrtingu. Upplýsingar gefur Karl í síma 892 0160. FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR Aðalfundur Stjórn Kögunar hf. boðar til aðalfundar fél- agsins fyrir starfsárið 2003. Fundurinn verð- ur haldinn þriðjud. 23. mars nk. kl. 12.00 á Grand Hóteli, Reykjavík, Háteigi, 4. hæð. Fundargögn verða afhent við upphaf fundarins. Dagskrá: 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins sl. starfsár. 2. Reikningar félagsins fyrir liðið starfsár ásamt skýrslu endurskoðanda félagsins lögð fram til staðfestingar. 3. Ákvörðun um meðferð hagnaðar og greiðslu arðs. 4. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna fyrir liðið starfsár. 5. Kosning stjórnar. 6. Kosning endurskoðanda. 7. Eftirfarandi tillaga verður lögð fyrir fundinn: Heimild til kaupa á eigin hlutabréfum. „Aðalfundur Kögunar hf. haldinn 23. mars 2004 samþykkir með vísan til 55. gr. hlutafé- lagalaga nr. 2/1995 að heimila félagsstjórn að kaupa eigin hluti í félaginu eða taka þá að veði. Heimild þessi gildir í 18 mánuði og takmarkast við að samanlögð kaup og veð- setning hluta fari ekki yfir 10% af heildar- hlutafé félagsins á hverjum tíma. Kaupverð hluta skal vera lægst 10% lægra og hæst 10% hærra en í síðustu viðskiptum í Kaup- höll Íslands hf.“ 8. Önnur mál. Frá og með 16. mars nk. munu reikningar fé- lagsins og önnur aðalfundargögn liggja fram- mi á skrifstofu félagsins á Lynghálsi 9, 110 Reykjavík. 9. mars 2004, Stjórn Kögunar hf. FYRIRTÆKI Líkamsræktarstöð til sölu Meðeigandi óskast á líkamsræktarstöð á höfuðborgarsvæðinu. Góð stöð og gott verð í boði. Viðkomandi verður að geta starfað við stöðina. Áhugasamir sendi upplýsingar um nafn og síma til augldeildar Mbl. eða á augl@mbl.is merktar: „Líkamsrækt — 15064“. Menntamálaráðuneytið Styrkir til háskólanáms í Danmörku Stjórnvöld í Danmörku bjóða fram fjóra styrki til handa Íslendingum til háskólanáms í Dan- mörku skólaárið 2004—2005. Styrkirnir eru ætlaðir þeim, sem komnir eru nokkuð áleiðis í háskólanámi og eru miðaðir við 9 mánaða námsdvöl, en til greina kemur að skipta þeim ef henta þykir. Styrkfjárhæðin er 5.000 d.kr. á mánuði. Umsóknarfrestur er til 27. mars nk. Umsóknir um ofangreinda styrki, ásamt stað- festum afritum prófskírteina og meðmælum, skulu sendar menntamálaráðuneytinu, Sölv- hólsgötu 4, 150 Reykjavík, á sérstökum um- sóknareyðublöðum sem þar fást, ásamt nánari upplýsingum. Umsóknareyðublaðið er einnig hægt að nálgast á vef ráðuneytisins: menntamalaraduneyti.is Menntamálaráðuneytið, 5. mars 2004. menntamalaraduneyti.is  HLÍN 6004030919 IV/V  FJÖLNIR 6004030919 I Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur, Síðumúla 31, s. 588 6060. Miðlarnir, spámiðlarnir og hug- læknarnir Þórhallur Guð- mundsson, Ólafur Hraundal Thorarensen, Hrönn Frið- riksdóttir spámiðill, Ingi- björg Þengilsdóttir, Guðríður Hannesdóttir kristalsheilari, Ólafur Th. Bjarnason lækna- miðill, Erla Alexandersdóttir, Katrín Sveinbjörnsdóttir og Matthildur Sveinsdóttir tarr- ot- lesari, starfa hjá félaginu og bjóða félagsmönnum og öðrum upp á einkatíma. Upplýsingar um félagið, starf- semi þess, einkatíma og tíma- pantanir eru alla virka daga árs- ins frá kl. 13—18. Utan þess tíma er einnig hægt að skilja eftir skilaboð á símsvara félagsins. Sálarrannsóknarfélag Reykjavíkur starfar í nánum tengslum við Sál- arrannsóknarskólann á sama stað. SRFR.  Hamar 6004030919 III I.O.O.F. Rb. 1  153398-9.O* Hugleiðsla/ sjálfsuppbygg- ing.  Áruteiknun  Miðlun  Fræðsla Halla Sigurgeirsdóttir, andlegur læknir. Upplýsingar í síma 553 8260 fyrir hádegi. ⓦ í Seljahverfi, ekki yngri en 18 ára Upplýsingar í síma 569 1116 eða 569 1376 ATVINNA mbl.is hendur sem vildu halda í hendur hennar síðustu vikuna. Það eru margar minningar sem koma í hug- ann núna. Ein mín besta minning er þegar ég sat uppi á eldhúsborði og söng með henni. Hún elskaði að syngja og kenna okkur systrunum lög og ljóð. Það var stundum erfitt að búa í Eyjum, því þá var ég svo langt í burtu frá þér. Þú varst alltaf svo ánægð þegar við komum í heimsókn til þín og pabba. Þá fórum við í búðir, sem þú elskaðir að gera, og keyptum punt fyrir þitt fallega heimili. Þú varst ánægðust þegar við systurnar vorum allar með þér. Enda leið þér vel þegar við fórum allar saman í bú- stað og Anna Kristín frænka fékk að fara með því hún var komin yfir þrí- tugt. Þar föndruðum við og stríddum hver annarri og hlógum og hlógum. Nú er bara elsku Auður frænka í Ameríku eftir af þessum stóra systk- inahópi. Elsku pabbi minn, missir þinn er mikill eftir 52 ára hjónaband. En við munum passa hann pabba okkar fyrir mömmu. Elsku Auður mín gat ekki komið vegna veikinda sinna til að kveðja systur sína. Elsku pabbi, Auður frænka og systur mínar, okkar missir er mikill. Ég kveð elsku mömmu mína með þakklæti og við munum hittast aftur þótt síðar verði. Bless mamma mín. Ég vil koma innilegu þakklæti til starfsfólks 11-G Landspítala – há- skólasjúkrahúsi fyrir yndislega umönnun. Sestu hérna hjá mér, systir mín góð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Í kvöld skulum við vera kyrrlát af því, að mamma ætlar að reyna að sofna rökkrinu í. Mamma ætlar að sofna. Mamma er svo þreytt. – Og sumir eiga sorgir, sem svefninn getur eytt. Sumir eiga sorgir, og sumir eiga þrá, sem aðeins í draumaheimum uppfyllast má. Í kvöld skulum við vera kyrrlát og hljóð. Mamma ætlar að sofna, systir mín góð. (Davíð Stefánsson.) Jóhanna Kolbrún Þorbjörnsdóttir. Elsku fallegasta amma í heimi. Þau orð sagði ég alveg óspart við þig, og þú hristir alltaf höfuðið. En þau orð voru sko sönn, bara það að horfa á þig kom manni til að brosa og líða vel. Þú varst gædd ótrúlegum per- sónutöfrum, enda einstaklega lagin í því að láta fólki þykja vænt um þig. Alltaf var jafn skemmtilegt að heim- sækja þig og afa þegar ég var í Reykjavík, á Írabakkann og aldrei gerðist það að maður kæmi að tóm- um kofa. Það var alltaf allt iðandi af lífi í kringum þig. Um leið og maður opnaði dyrnar kom á móti manni þessi þvílíka hlýja, og þá meina ég hlýja. Enda var maður ekki í vand- ræðum þegar maður var að velja gjöf handa þér. Þá væri það ullar- sokkar, teppi eða eitthvað sem var nógu hlýtt, enda varstu ekki lengi að vippa þér í flíspeysuna sem ég og Soffía Marý gáfum þér síðustu jól. Það var alltaf svo auðvelt að tala við þig. Þú hafðir ótrúlegan húmor og áttir fullt af sögum. Þú passaðir okk- ur alltaf svo vel, alltaf að spyrja okk- ur hvort við værum svöng. Ég man ekki hvað ég var gömul þegar þú gafst mér fyrst brauð með smjöri og osti til að dýfa í kaffi. Ég verð því líka ævinlega þakklát fyrir að hafa getað eytt með þér síðustu jólunum, þegar þú og afi komu til Eyja, og í útskriftarveisluna hans Víkings. Hvað þú varst stolt af mér og Víkingi þegar við tókum lagið, varst með stórt bros á vör. Elsku amma mín, þú lifir áfram í hjarta mínu og aldrei mun ég gleyma hversu mjúkt faðmlag þitt var. Svo er ég svo ánægð að hann Þorbjörn Andri, strákurinn minn, skuli hafa fengið að finna hvernig það er að liggja í örmum þínum, þú ruggandi þér og syngjandi gamlar vísur. Ég elska þig, fallegasta amma mín og mun sakna þín alveg ótrúlega mikið. Hafdís.  Fleiri minningargreinar um Önnu Fjólu Jónsdóttur bíða birtingar og munu birtast í blaðinu næstu daga. MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 9. MARS 2004 43

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.