Morgunblaðið - 26.03.2004, Síða 67
ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 67
ELLEFU af átján leikmönnum enska
drengjalandsliðsins í knattspyrnu sem
mætir því íslenska í Doncaster í kvöld
koma frá félögum í ensku úrvalsdeildinni.
Hinir sjö eru allir frá félögum í 1. deild.
Englendingar sigruðu Armena, 2:0, í
fyrrakvöld þar sem Mark Noble frá West
Ham og Shane Paul frá Aston Villa skor-
uðu mörkin. Ísland sigraði Noreg, 2:1, og
leikurinn við England er því nánast úr-
slitaleikur riðilsins en sigurliðið fer áfram
í úrslitakeppnina um Evrópumeistaratit-
ilinn.
Enska liðið skartar meðal annars
strákum frá Arsenal, Chelsea, Manchester
United, Charlton og Fulham. West Ham á
flesta leikmenn í hópnum, þrjá talsins, en
aðrir koma frá Wolves, Leicester, Leeds,
Norwich, Sunderland, Derby og Crewe.
Öflugt enskt lið
gegn Íslandi
Knattspyrnusamband Evrópu, UEFA, hefur
ákveðið breytingar á UEFA-keppninni í
knattspyrnu á næstu leiktíð en FH-ingar og
Skagamenn verða fulltrúar Íslendinga í
keppninni í ár. Forsvarsmenn UEFA vilja
auka vægi UEFA-keppninnar og færa hann
nær Meistaradeildinni með því að taka upp
riðlakeppni eftir forkeppni. Þetta nýja fyr-
irkomulag er tilraun sem gilda á í tvö ár en
það verður með því sniði að eftir tvær um-
ferðir í forkeppni tekur við 1. umferð keppn-
innar. Að henni lokinni standa eftir 40 lið og
verður þeim skipt upp í átta fimm liða riðla.
Leikin verður einföld umferð í riðlakeppni og
komast þrjú efstu liðin áfram, samtals 24 lið.
Til viðbótar þessum 24 liðum bætast við 8 lið
úr Meistaradeildinni. Eftir standa því 32 lið
og verður dregið eins og tíðkast hefur hvaða
lið mætast.
Breytingar á
UEFA-keppninni
FIMM ungir íþróttamenn frá Íslandi voru viðstaddir
tendrun ólympíueldsins í Ólympíu í Grikklandi í gær-
morgun – ásamt ungmennum frá 24 öðrum Evr-
ópuþjóðum. Ungmennin taka einnig þátt í keppni við
fulltrúa hinna þjóðanna í frjálsíþróttum og sundi. Far-
ið verður með eldinn um heimsálfurnar fimm, 78.000
km leið. Íþrótta- og Ólympíusambandi Íslands (ÍSÍ)
var boðið að senda hóp til Grikklands til að taka þátt í
viðburðinum á vegum Alþjóðlegu skólaíþróttasamtak-
anna. Íslensku ungmennin eru Þorsteinn Ingvarsson,
nemandi í Stórutjarnaskóla í Þingeyjarsveit, og Þóra
Guðfinnsdóttir, Menntaskólanum í Reykjavík, sem
keppa í frjálsum íþróttum, Þórunn Kjartansdóttir,
Hagaskóla, og Hinrik Þór Guðbjartsson, Grundaskóla
á Akranesi, sem keppa í sundi og frá Íþróttasambandi
fatlaðra er Jóna Dagbjört Pétursdóttir, nemandi í
Menntaskólanum við Sund.
Fararstjóri er Andri Stefánsson, starfsmaður ÍSÍ,
og Fríða Rún Þórðardóttir, unglingaþjálfari FRÍ.
Viðstödd tendrun
Ólympíueldsins
FÓLK
RÓBERT Gunnarsson, landsliðs-
maður í handknattleik, skoraði 5
mörk fyrir Århus GF og Þorvarður
Tjörvi Ólafsson 3 þegar lið þeirra
lagði Snejberg, 31:25, í sjöttu umferð
dönsku bikarkeppninnar í hand-
knattleik í fyrrakvöld.
STEFAN Kretzschmar, leikur
ekki með Evrópumeisturum Þjóð-
verja á æfingamóti í handknattleik í
Aþenu um helgina. Kretzschmar á
við meiðsli að stríða og ætlar að nota
þann tíma sem nú gefst frá leikjum í
þýsku 1. deildinni til þess að leita sér
lækninga svo hann verði klár í loka-
slaginn með Magdeburg. Auk Þjóð-
verja leika Grikkir, Ungverjar og
Egyptar á mótinu í Aþenu.
NICOLAS Anelka, hinn litríki
miðherji Manchester City, fékk ekki
náð fyrir augum hjá Jacques Sant-
ini, landsliðsþjálfara Frakka, sem
valdi lið sitt sem mætir Hollending-
um í vináttulandsleik í næstu viku.
Anelka snerist hugur á dögunum og
sagðist reiðbúinn að gefa kost á sér
að nýju í liðið en hann greindi frá því
opinberlega í fyrra að hann ætlaði
aldrei aftur að spila með franska
landsliðinu.
SANTINI ákvað hins vegar að
skilja Anelka úti í kuldanum en
framherjarnir sem hann valdi í hóp
sinn eru: Thierry Henry (Arsenal),
David Trezeguet (Juventus), Steve
Marlet (Marseille) og Peguy
Luyindula (Lyon).
ÖYVIND Leonhardsen, norski
landsliðsmaðurinn í knattspyrnu, er
kominn á heimaslóðir og genginn til
liðs við úrvalsdeildarfélagið Lyn í
Ósló. Leonhardsen lék síðast með
Aston Villa en áður með Tottenham,
Liverpool og Wimbledon í ensku
knattspyrnunni.
MATT Vieri, bróðir Christians
Vieris, leikmanns Inter og ítalska
landsliðsins í knattspyrnu, hefur
verið valinn í landsliðshóp Ástralíu
sem mætir Suður-Afríku í næstu
viku. Matt Vieri er fæddur í Sydney
og er bæði með ástralskt og ítalskt
ríkisfang en hann spilar með Napoli í
ítölsku 2. deildinni.
WILLI Reimann, þjálfari þýska
knattspyrnuliðsins Eintracht
Frankfurt, hefur verið dæmdur í
fimm leikja bann auk þess sem hann
þarf að greiða 2,2 milljarða króna í
sekt. Reimann stuggaði við aðstoð-
ardóma í leik Frankfurt gegn Dort-
mund um síðustu helgi og var um-
svifalaust rekinn af
varamannabekknum.
ENSKA dagblaðið The Daily Ex-
press sagði frá því í gær að áhugi
væri fyrir því hjá enska knatt-
spyrnusambandinu að frá Arsene
Wenger, knattspyrnustjóra Arsen-
al, til að taka við enska landsliðinu í
hlutastarfi, ef Svíinn Sven-Göran
Eriksson hættir sem landsliðsþjálf-
ari eftir Evrópukeppnina í Portúgal
í sumar.
SEX leikmenn frá enskum liðum
eru í landsliðshóp Svía í knatt-
spyrnu fyrir vináttuleik gegn Eng-
landi sem fram fer í Gautaborg 31.
mars. Svíar eru í riðli með Íslend-
ingum í undankeppni HM og eru
jafnframt að búa sig undir loka-
keppni EM í Portúgal í sumar, eins
og Englendingar.
Hópurinn er þannig skipaður:
Markverðir: Andreas Isaksson
(Djurgården), Magnus Hedman
(Ancona, Ítalíu), Magnus Kihlstedt
(FC Köbenhavn, Danmörku)
Varnarmenn: Christoffer And-
ersson (Lilleström, Noregi), Mikael
Dorsin (Strasbourg, Frakklandi),
Erik Edman (Heerenveen, Hol-
landi), Andreas Jakobsson
(Bröndby, Danmörku), Teddy Lucic
(Leverkusen, Þýskalandi), Olof
Mellberg (Aston Villa, Englandi),
Johan Mjällby (Celtic, Skotlandi),
Michael Svensson (Southampton,
Englandi)
Miðjumenn: Anders Andersson
(Belenenses, Portúgal), Johan Elm-
ander (Breda, Hollandi), Pontus
Farnerud (Strasbourg, Frakk-
landi), Kim Kallstrom (Rennes,
Frakklandi), Tobias Linderoth
(Everton, Englandi), Fredrik
Ljungberg (Arsenal, Englandi),
Anders Svensson (Southampton,
Englandi), Mikael Nilsson (Halm-
stad)
Sóknarmenn: Marcus Allbäck
(Aston Villa, Englandi), Zlatan
Ibrahimovic (Ajax, Hollandi), Matti-
as Jonson (Brondby, Danmörku),
Christian Wilhelmsson (Anderlecht,
Belgíu)
Sex frá enskum liðum
Eina sem ákveðið hefur verið erað taka þátt í æfingamóti í
Belgíu 21.–23. maí áður en að leikj-
unum við Ítala í undankeppni heims-
meistaramótsins kemur. Þetta verð-
ur í fjórða sinn sem íslenska
landsliðið tekur þátt í mótinu í Belg-
íu sem nefnt er Flanders Cup. „Það
er ljóst að við verðum ekki með okk-
ar sterkasta lið í Belgíu þar sem
leikmenn okkar í Þýskalandi verða
ekki með. Þýsku deildinni lýkur ekki
fyrr en 24. maí og því verða þeir
ekki með. Líklegt að landsliðið verði
skipað leikmönnum sem spila hér
heima auk þeirra leikmanna sem
leika á Spáni, í Frakklandi og í Dan-
mörku þar sem deildarkeppni verð-
ur lokið á þessum tíma,“ segir Guð-
mundur.
Leikið við Grikki og Slóvaka
Strax að loknu mótinu í Belgíu fer
hluti liðsins til Grikklands og þá
koma leikmenn frá Þýskalandi til
móts við landsliðið þegar það býr sig
undir fyrri leikinn við Ítalíu í und-
ankeppni HM sem ráðgert er að fari
fram á Ítalíu 29. maí. Í Grikklands-
ferðinni æfir íslenska landsliðið
saman auk þess sem það leikur tvo
vináttuleiki, við Grikki og að öllum
líkindum við Slóvaka, en báðar þjóð-
ir verða þá einnig að búa sig undir
undankeppni HM. Síðari leikurinn
við Ítala verður háður hér á landi
sunnudaginn 6. júní og verður að öll-
um líkindum leikið í Laugardalshöll.
Eftir seinni leikinn við Ítali fá ís-
lensku landsliðsmennirnir tveggja
vikna sumarleyfi áður en undirbún-
ingur Ólympíuleikanna hefst 22.
júní. Guðmundur reiknar með að
undirbúningurinn standi sleitulaust
til 9. ágúst en til stendur að lands-
liðið haldi til Grikklands 10. ágúst.
„Ég reikna ekki með að gefa margra
daga frí eftir að við förum í gang 22.
júní,“ segir Guðmundur sem þegar
er farinn leita eftir landsleikjum fyr-
ir Ólympíuleikana.
„Við höfum víða leitað eftir lands-
leikjum á undirbúningstíma Ólymp-
íuleikanna og höfum fengið nokkur
vilyrði fyrir leikjum, meðal við Þjóð-
verja og Spánverja, en við ætlum
ekki að ákveða neitt fyrr en ljóst
verður með hvaða þjóðum við lend-
um í riðli á Ólympíuleikunum,“ segir
Guðmundur sem reiknar með að
leika níu landsleiki á undirbúnings-
tímanum frá 22. júní til 9. ágúst.
Reiknar ekki með árekstrum
við félagslið í Þýskalandi
Vegna undirbúnings Ólympíuleik-
anna og síðan þátttöku í þeim er
ljóst að leikmenn verða ekkert hjá
félagsliðum sínum fyrr en í byrjun
september og taka því lítinn þátt í
undirbúningi næstu leiktíðar sem
alla jafna fer fram í júlí og ágúst.
Ekki síst á þetta við um atvinnu-
mennina sem þiggja laun frá fé-
lögum sínum en verða síðan í vinnu
hjá allt öðrum aðila í um tveggja
mánaða skeið. Guðmundur telur að
ekki eigi að verða neinir árekstrar á
milli landsliðsins og félagsliðanna
þrátt fyrir þessa löngu fjarveru. „Ég
reikna ekki með að það verði eitt-
hvað vandamál í kringum þetta.
Þýska landsliðið hefur sinn undir-
búning um líkt leyti og við, það er í
lok júní. Það æfir síðan saman fram
að leikum og þar með tel ég að það
eigi ekki að verða neinir árekstrar
hjá okkur við þýsku liðin til að
mynda eða þau spænsku því Spán-
verjar verða einnig í Aþenu,“ segir
Guðmundur Þórður Guðmundsson,
landsliðsþjálfari í handknattleik sem
þegar hefur sett niður ítarlega æf-
ingaáætlun fyrir landsliðið vegna
leikanna.
Strangur undirbúningur hjá íslenska landsliðinu í
handknattleik í undanfara Ólympíuleikanna
Til boða að
leika við Spán
og Þýskaland
ÍSLENSKA landsliðinu í handknattleik stendur til boða að leika vin-
áttuleiki m.a. við Evrópumeistara Þjóðverja og Spánverja þegar það
býr sig undir þátttöku á Ólympíuleikunum í sumar. Guðmundur
Þórður Guðmundsson, landsliðsþjálfari í handknattleik, segir að
ekkert verði farið í að negla niður landsleiki á undirbúningstím-
anum fyrr en dregið hefur verið í riðla fyrir Ólympíuleikana. Dregið
verður í Aþenu árdegis á morgun.
REIKNA má með að leikmenn
Bayern München verði að taka á
sig 15 til 20% launalækkun þegar
þeir framlengja
samninga sína
við félagið, en
tekjur félagsins
standa ekki und-
ir útgjöldum.
Þetta er sama
staða og fleiri
þýsk knatt-
spyrnufélög
glíma við og
skemmst er að
minnast þess að leikmenn Bor-
ussia Dortmund samþykktu
launalækkun í vetur til þess að
létta á útgjöldum félagsins í kjöl-
far þess að ljóst var að þeir kæm-
ust ekki í Meistaradeild Evrópu.
„Þeir samningar sem eru að
renna út verða ekki endurnýjaðir,
forsendur þeirra hafa breyst og
ljóst að laun leikmanna verða að
lækka,“ segir Karl-Heinz Rumme-
nigge, framkvæmdastjóri Bayern
München í viðtali við tímaritið
Sport Bild.
Rummenigge segir ennfremur
að ekki sé ljóst hver framtíð
þjálfara Bayern, Ottmar Hitzfeld,
verður, en samningur hans við fé-
lagið rennur út eftir rúmt ár. Lið-
ið er fallið úr keppni í Meist-
aradeildinni og þá séu hverfandi
líkur á því að það verði þýskur
meistari í vor. Rummenigge segir
það ekki sjálfsagt að Hitzfeld
haldi áfram verði Bayern í öðru
eða þriðja sæti í þýsku deildinni,
heldur sé það ekkert víst að sá
árangur þýði endilega að þjálf-
arinn verði að taka hatt sinn og
staf.
Launa-
lækkun
hjá Bayern
München
Hitzfeld