Morgunblaðið - 26.03.2004, Blaðsíða 73
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 26. MARS 2004 73
HIPPAFLOKKURINN í Vest-
mannaeyjum ætlar að halda þriðju
hippahátíð sína í Vestmannaeyjum
dagana 26. og 27. mars undir yfir-
skriftinni Ást, friður og tónlist út í
Eyjum. Þetta er þriðja hátíðin sem
þessi ágæti söngflokkur heldur í
Eyjum. Nú er í fyrsta sinn verið að
markaðssetja hátíðina á fastalandinu
og vonast eftir gestum þaðan.
Um síðastliðna helgi dvaldi hippa-
flokkurinn í frístundahúsi á Flúðum
og æfði tónlist sína og lék einnig á
veitingahúsinu Útlaganum. Frétta-
ritari átti leið fram hjá verslun Sam-
kaupa á Flúðum en þá var hópurinn
að syngja fyrir Karlakór Selfoss sem
einnig var með sinn árlega æfinga-
dag á Flúðum.
Tóku hóparnir eitt lag saman fyrir
viðstadda. Þessi söngflokkur flytur
lög frá hippatímanum, þ.e. aðallega
frá 1967 til ’72. Söngurinn er fagur
og fjölbreyttur enda hafa Eyjamenn
löngum getað sungið. Ef einhverjir
vilja vita nánar um þennan ágæta
söngflokk er hægt að að fara inn á
slóðina hippinn.eyjar.is.
Morgunblaðið/Sigurður Sigmundsson
Þriðja hippahátíðin
í Vestmannaeyjum
Hrunamannahreppi. Morgunblaðið.
JON Andersen Gotteberg er Norðmaður sem
búsettur er á Íslandi. Hann hefur nú sett á
stofn fyrirtækið TROLL Productions og mun
á næstu vikum flytja inn fimm tónlistarmenn
frá Noregi, poppara og rokkara, sem allir
eiga það sameiginlegt að vera ungir og upp-
rennandi og hafa þeir þegar skapað sér nafn í
heimalandinu. Það er söngvaskáldið Heidi
Marie sem ríður á vaðið í kvöld en henni hef-
ur verið líkt við pönktrúbadúrinn Ani
DiFranco.
Jon segist hafa unnið við skipulagningu
tónleika í Noregi og þaðan hafi hann sam-
bönd. Tilgangurinn sé einfaldur; að kynna
það sem er að gerast í nýju norsku rokki og
poppi fyrir Íslendingum og um leið að veita
Norðmönnunum færi á að koma hingað og
spila.
„Mér hefur fundist sem samgangur á milli
Noregs og Íslands að þessu leytinu til sé
furðu lítill,“ segir Jon. „Það er ákveðin vaxt-
arbroddur í gangi núna úti í Noregi og um að
gera að hamra járnið á meðan það er heitt.“
Jon segir að áhugi Norðmannanna hafi
verið mikill og hann sé glaður að geta stuðlað
að því að Íslendingar kynnist góðri tónlist,
sem alla jafna færi fram hjá þeim.
Búið er að skipa næstu ferna tónleika.
Laugardaginn 10. apríl treður Karin Park
upp, sem mun vera upprennandi poppprins-
essa í Noregi. Föstudaginn 23. apríl leikur
svo St. Thomas en hann hefur vakið mikla at-
hygli undanfarin ár, leikur einskonar jaðar-
sveitatónlist í ætt við það sem Will Oldham og
Lambchop eru að gera. Föstudaginn 21. maí
spilar svo hljómsveitin Minor Majority sem á
nú að baki þrjár breiðskífur. Það er svo
Thomas Dybdahl sem lýkur törninni, en hann
er rísandi söngvaskáld og þykir minna á Ell-
iott Smith heitinn. Plötur hans tvær, That
Great October Sound og Stray Dogs hafa
fengið framúrskarandi góða dóma og mælir
Jon eindregið með því að fólk missi ekki af
Thomasi, tónleikar hans séu sannkölluð upp-
lifun.
TROLL flytur inn norska tónlistarmenn
Ungir
og heitir
Tónleikar Heidi Marie eru í kvöld á Jóni for-
seta og er aðgangseyrir 1.000 krónur.
Sama gildir um hina tónleikana.
Hin unga og efnilega Heidi Marie gengur
fram fyrir skjöldu í kvöld í innrás norskra
tónlistarmanna í landið.
Leikhópurinn
„ Á senunni “
flytur kabarettverkið:
Felix Bergsson& Jóhanna Vigdís Arnardóttir
í Borgarleikhúsinu
byggt á verkum
Næstu sýningar: 28., 31. mars og 4. apríl 2004
Miðasala: 568-8000 / midasala@borgarleikhus.is
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
E
H
F.
/S
IA
.I
S
-
IS
L
23
84
7
0
3/
20
04