Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 2
FRÉTTIR
2 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞUNGASKATTUR BURT
Í frumvarpi fjármálaráðherra er
lagt til að þungaskattskerfið verði
aflagt og tekið upp olíugjald ásamt
sérstöku kílómetragjaldi á ökutæki
sem eru yfir tíu tonn að þyngd. Gert
er ráð fyrir að dísilolían muni verða
um fjórum krónum ódýrari en bens-
ín. Fjármálaráðherra segir þunga-
skattskerfið vera meingallað og
þetta sé því þjóðþrifamál sem geti
ekki beðið lengur.
Kjósa um sameiningu
Kofi Annan, framkvæmdastjóri
SÞ, lagði í gærkvöld fram end-
anlega áætlun sína um sameiningu
Kýpur eftir að lokafrestur, sem
fulltrúum þjóðarbrotanna tveggja
hafði verið gefinn til að ná saman
um slíka áætlun, rann út. Sagði
Annan áætlunina verða borna undir
þjóðaratkvæði bæði á tyrkneska og
gríska hlutanum 24. apríl nk., en
felli annað hvort þjóðarbrotið hana
verður það aðeins gríski hlutinn
sem gengur í ESB 1. maí.
Undirbúa málsókn
Afkomendur Halldórs Kiljans
Laxness undirbúa málsókn gegn
Hannes Hólmsteini Gissurarsyni
vegna vinnubragða hans við ritun
bókar hans um skáldið. Þeir hafa
einnig ákveðið að vísa málinu til
siðanefndar Háskóla Íslands og ósk-
að eftir að hún fjalli um vinnubrögð
Hannesar.
Fólskulegar árásir í Írak
Fjórir bandarískir verktakar létu
lífið er ráðizt var á bíla þeirra úr
fyrirsát í íraska bænum Fallujah í
gær. Var líkum þeirra misþyrmt við
fagnaðarlæti múgs sem safnaðist að
vettvangi. Bandaríkjastjórn for-
dæmdi ódæðið, sem og sprengju-
árás sem gerð var nærri Bagdad í
gærmorgun og kostaði fimm banda-
ríska hermenn lífið.
Fjöldauppsagnir í Hrísey
Öllum starfsmönnum Íslensks
sjávarfangs í Hrísey hefur verið
sagt upp störfum. Íslenskt sjáv-
arfang er annar stærsti vinnustað-
urinn í Hrísey ásamt Hvammi.
Sveitarstjórinn í Hrísey segir þetta
vera gríðarlega blóðtöku fyrir eyna
ef rétt reynist. Íbúar í Hrísey eru
nú 175 og hefur fækkað um hundrað
á örfáum árum.
Y f i r l i t
Þútekur flugið
frá BSÍ
frá og með 1. apríl
til og frá BSÍ
www.re.is
flybus
Í dag
Sigmund 8 Þjónusta 45
Erlent 13/18 Viðhorf 46
Minn staður 22 Minningar 46/53
Höfuðborgin 24/25 Umræðan 53/60
Akureyri 28/29 Kirkjustarf 65
Suðurnes 31 Bréf 68
Austurland 32 Dagbók 70/71
Landið 33 Íþróttir 72/75
Listir 34/36 Fólk 77/81
Neytendur 38/39 Bíó 78/81
Daglegt líf 40 Ljósvakamiðlar 82
Forystugrein 42 Veður 83
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
INDRIÐI H. Þorláksson ríkisskatt-
stjóri segir fátt standast skoðun í
skýringum Impregilo í Morgun-
blaðinu í gær á því af hverju opinber
gjöld þess hafi ekki skilað sér til ríkis
og sveitarfélaga. Í raun sé við enga
aðra að sakast en fyrirtækið sjálft um
það hvernig skattamálum þess er
komið.
Indriði segir að Impregilo geti haft
þá skoðun að svo og svo margir
starfsmenn séu ekki skyldugir til að
greiða skatta eða önnur gjöld. Það
leysi hins vegar fyrirtækið ekki und-
an þeim skyldum að fara að gildandi
lögum í landinu.
„Ef þeir telja að framkvæmd
skattamála sé ekki með þeim hætti
sem lög kveða á um þá eiga þeir þau
úrræði, eins og hver annar, að gera
um það ágreining og koma því til úr-
skurðaraðila. Meginreglan er sú að ef
aðila greinir á um þetta þá verður
skattaðili að hlíta löglegum ákvörðun-
um skattyfirvalda þar til úr ágrein-
ingnum verður leyst,“ segir Indriði.
Indriði segir að þegar starfsmaður
sé skráður til sveitarfélags vegna út-
svars gildi þær reglur að aðila sem
ekki kemur til landsins sem ferða-
maður beri að tilkynna aðsetur sitt
innan viku. Hvort viðkomandi starfs-
maður uppfylli skilyrði til að fara inn
á þjóðskrá eða fá skráð lögheimili sé
annað mál og tengist ekki skattskyldu
eða skyldu til að skrá heimili sitt.
Ríkisskattstjóri segir að á meðan
fyrirtækið skili ekki skilagreinum og
öðrum gögnum sé erfitt að greina í
sundur hlut einstakra sveitarfélaga í
staðgreiðslu starfsmanna, líkt og tals-
maður Impregilo hélt fram í Morg-
unblaðinu í gær. Ekki sé hægt að
rekja ástæður út fyrir fyrirtækið.
Haft var eftir talsmanni Impregilo í
gær að samkvæmt tvísköttunarsamn-
ingi Íslands og Portúgals þyrftu
menn að dvelja í sex mánuði í hvoru
landi til að heimilisfesti gagnvart
skatti færðist yfir. Fyrstu sex mánuði
í starfi á Íslandi greiddu portúgalskir
starfsmenn við Kárahnjúkavirkjun
því skatta og útsvar í sínu heimalandi.
Indriði segir að þessi skýring sé „út í
bláinn“. Tvísköttunarsamningar
kveði á um hvort landið hafi ótak-
markaða skattskyldu. „Hins vegar
gildir sú meginregla að hvort land um
sig hefur rétt til þess að skattleggja
laun fyrir alla þá vinnu sem er innt af
hendi í landinu. Engu skiptir hvort
starfsmaður er hér sex mánuði eða
lengur,“ segir Indriði.
Segir skýringar Impregilo í skattamálum ekki standast
Leysa sig ekki undan
því að fara að lögum
ÖLLUM starfsmönnum sláturhúss
Vestur-Húnvetninga og kjötvinnsl-
unnar Norðan heiða ehf. hefur verið
sagt upp störfum. Eru það 34 starfs-
menn, tólf starfsmenn Norðan heiða
og 22 starfsmenn sláturhússins.
Að sögn Valgerðar Kristjánsdótt-
ur, kaupfélagsstjóra Kaupfélags
Vestur-Húnvetninga, er ástæða upp-
sagnanna taprekstur fyrirtækjanna,
sem rekja má til verðfalls á lamba-
kjöti, sem ekki sér fyrir endann á.
„Markmið okkar er að endurskipu-
leggja fyrirtækin og fara yfir rekst-
urinn til þess að ná viðunandi rekstr-
arárangri,“ segir Valgerður og bætir
við að meirihluti starfsfólksins verði
ráðinn aftur. „Við ætlum ekki að gef-
ast upp, heldur að spýta í lófana og
finna lausnir á þessum vanda.“
Hólmfríður Bjarnadóttir, starfs-
maður stéttarfélagsins Samstöðu,
segir hópuppsagnir alltaf snerta
byggðarlög og ekki síst í litlu sam-
félagi, en þar séu þrjátíu og fjórar
uppsagnir stór tala. „Það er engum
ljúft að standa í hópuppsögnum, en
eftir því sem stjórnendur Kaup-
félagsins segja er verið að gera þetta
af nauðsyn, þetta sé gert til að end-
urskipuleggja reksturinn og þess er
vænst að meirihluti starfsmanna
verði endurráðinn. Við vitum að það
hafa verið miklir erfiðleikar í kjöt-
geiranum um allt land undanfarin
ár,“ segir Hólmfríður. „Hér á þessu
svæði er mikil verkkunnátta á sviði
sauðfjárræktar, slátrunar og kjöt-
vinnslu og mjög brýnt að halda
áfram að nýta hana.“
Uppsagnir í kjötvinnslu og sláturhúsi
Markmiðið að endur-
skipuleggja fyrirtækin
SKÁKÞING Íslands 2004 var
sett í gær í húsi Orkuveitu
Reykjavíkur að Bæjarhálsi 1.
Guðfríður Lilja Grétarsdóttir,
varaforseti Skáksambands Ís-
lands, setti mótið og því næst
var dregið um liti í 1. umferð í
landsliðsflokki.
Stórmeistararnir Jóhann
Hjartarson og Hannes Hlífar
Stefánsson tefldu fjölskák,
atskákeinvígi, fjórar skákir í
einu, á sama tíma. Þetta er í
fyrsta skiptið, sem slík keppni
fer fram á Íslandi og skildu
kapparnir jafnir, unnu hvor sína
skákina, en tvær urðu jafntefli.
Skákþingið í ár er sannkölluð
skákhátíð, því að nú tefla í
fyrsta sinn allir flokkar ein-
staklinga undir einu og sama
þakinu, landsliðs-, kvenna-,
áskorenda-, öldunga- og ung-
lingaflokkar. Keppnin hefst í
landsliðsflokki í dag, 1. apríl, en
í öðrum flokkum n.k. laugardag,
3. apríl.
Í landsliðsflokki tefla 16 kepp-
endur með útsláttarfyr-
irkomulagi tveggja skáka ein-
vígi og bráðabana, ef þeir verða
jafnir. Í fyrstu umferð, sem
hefst kl. 17 í dag, tefla Hannes
Hlífar Stefánsson – Sigurður
Daði Sigfússon; Helgi Áss Grét-
arsson – Sigurbjörn Björnsson;
Ingvar Þór Jóhannesson –
Þröstur Þórhallsson; Bragi Þor-
finnsson – Ingvar Ásmundsson;
Stefán Kristjánsson – Davíð
Kjartansson; Snorri Guðjón
Bergsson – Jón Garðar Við-
arsson; Þorsteinn Þorsteinsson –
Sævar J. Bjarnason; Kristján
Eðvarðsson – Björn Þorfinns-
son.
Þeir fyrrnefndu hafa hvítt í
fyrri skákinni í dag.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson tefldu djarft þegar
þeir tóku fjórar atskákir í einu. Keppni Skákþingsins hefst í dag.
Jafnt í
fjölskák í
upphafi
skákþings
HJÓNIN sem drukknuðu í Akraneshöfn á
þriðjudag hétu Guðmundur Einar Sveins-
son og Margrét Guðmundsdóttir til heimilis
að Furugrund 42, Akranesi. Guðmundur
Einar var fæddur 17. janúar 1928 og Mar-
grét 13. september 1929.
Guðmundur Einar var skipstjóri til
margra ára og gegndi síðan starfi hafnar-
varðar. Þau hjónin tóku virkan þátt í fé-
lagsmálum á Akranesi, m.a. með Félagi
eldri borgara og með Lionshreyfingunni.
Þá tók Margrét virkan þátt í starfi Slysa-
varnafélags Íslands.
Þau láta eftir sig fjögur börn saman og
Margrét það fimmta.
Lögreglan á Akranesi rannsakar tildrög
slyssins í samvinnu við rannsóknanefnd um-
ferðarslysa.
Létust í
Akraneshöfn
UM 25 þúsund tillögur bárust
í samkeppni Iceland Express
um nöfn á þotur sem annast
flug til Kaupmannahafnar og
Lundúna fyrir félagið. Í dag
fjölgar ferðum á hvorn áfanga-
stað úr einni í tvær á degi
hverjum. Flogið er til beggja
áfangastaðanna frá Keflavík
að morgni og aftur um kaffi-
leytið.
Á bak við þessar 25 þúsund
tillögur eru kringum 12.500
manns og má geta þess að um
eitt þúsund tillögur voru að
sama nafninu sem var algeng-
ast og um 700 að því næst-
algengasta. Sjö áttu hugmynd-
ina að þeim nöfnum sem valin
voru til verðlauna og hlýtur
einn þeirra verðlaunin.
Um 25
þúsund
tillögur
um nöfn