Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 11

Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 11
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 11 Ráðstefna um þróun samstarfs kennara og foreldra haldin á vegum Skólaþróunarsviðs kennaradeildar laugardaginn 17. apríl 2004 í Háskólanum á Akureyri á Sólborg Dagskrá: 09.00 Skráning og afhending gagna - molakaffi. 09.45 Setning: Þorsteinn Gunnarsson, rektor Háskólans á Akureyri. 09.50 Ávarp: Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir. 10.00 The Parent as Prime Educator: Home, Community and School Working in Partnership. Dr. Concepta Conaty, Department of Education and Science, Dublin. 10.50 Kaffihlé. 11.00 Samstarf morgundagsins. Ingibjörg Auðunsdóttir, kennsluráðgjafi skólaþróunarsviðs HA. 11.50 Matarhlé - veggspjöld. 13.00 Málstofur I: „Manstu, þegar mamma mín eldaði matinn?“ Samstarf við foreldra af erlendum uppruna í leikskólum. Elsa Sigríður Jónsdóttir, lektor KHÍ og Anna Ingólfsdóttir, lektor KHÍ. Árangursmiðað foreldrasamstarf. Kennarar Oddeyrarskóla á Akureyri. Foreldrar og VMA. Hugleiðingar byggðar á niðurstöðum könnunar meðal foreldra haustið 2003. Hermann Jón Tómasson, áfangastjóri VMA. Höfum við gengið til góðs? Jónína Bjartmarz, alþingismaður og formaður Heimilis og skóla. Skólinn, Veraldarvefurinn og foreldrar. Jóna Björk Jónsdóttir, kennari við Barnaskólann á Eyrarbakka og Stokkseyri. 13.50 Málstofur II: Bifröst - brú milli heima. Verkefni um samstarf leikskóla og heimila. Anna Elísa Hreiðarsdóttir, deildarstjóri og Gerður Gísladóttir, aðstoðarleikskólastjóri á Iðavelli, Akureyri. Hagnýtar upplýsingar fyrir foreldra. Anh-Dao Tran, menntunar- og kennsluráðgjafi víetnamskra nemenda og foreldra þeirra. Samstarf heimila og framhaldsskóla. Elín Thorarensen, M.Ed., námsráðgjafi og kynningarfulltrúi KHÍ. Fjölskylduþátttaka í meðferð nemenda í vanda. Bryndís Símonardóttir, fjölskylduráðgjafi við Hlíðarskóla, Akureyri Eru foreldrar ónýt eða ónýtt auðlind í samstarfi heimilis og skóla? Harpa Jörundardóttir, kennari MA og María Jónsdóttir, foreldri. 14.30 Kaffihlé - veggspjöld 15.00 Ábyrgir foreldrar eru góðir foreldrar. Aðalsteinn Vestmann og Steinunn Guðný Ágústsdóttir, grunnskólanemendur í 10. bekk. 15.10 Kalt mat. Sigfús Karlsson, foreldri. 15.20 Árangursríkt samstarf. Hvað þarf til? Erna Björk Hjaltadóttir, deildarstjóri sérkennslu í Garðaskóla. Ráðstefnuslit: Guðmundur Heiðar Frímannsson, deildarforseti kennaradeildar HA. Ráðstefnustjórar: Ágúst Frímann Jakobsson, aðstoðarskólastjóri Brekkuskóla og Hugrún Sigmundsdóttir, deildarstjóri Pálmholti. Ráðstefnan er ætluð starfsmönnum skóla, foreldrum og öðrum áhugasömum um málefnið. Ráðstefnan er haldin í Háskólanum á Akureyri á Sólborg stofu L201. Gengið er inn um aðaldyr nýbyggingar. Frestur til skráningar er til 10. apríl. Skráning fer fram í síma 463 0929, með tölvupósti tberg@unak.is eða á heimasíðu: http://www.unak.is/vefir/samstarf Ráðstefnugjald er kr. 10.000. Hádegisverður, kaffiveitingar og ráðstefnugögn eru innifalin. Nánari upplýsingar eru á heimasíðunni: http://www.unak.is/vefir/samstarf Árangursrík samskipti „ÁFENGISAUGLÝSINGAR eru komnar langt út yfir þau mörk sem við, sem stöndum að uppeldis- og æskulýðsmálum, getum þolað,“ sagði Árni Einarsson, formaður Samvinnunefndar skólamanna um bindindisfræðslu, í kjölfar málþings Samstarfsráðs um forvarnir sem haldið var á Grand Hóteli á þriðju- dag. Umfjöllunarefnið var markaðs- setning áfengis og var í ráðstefnulok skorað á alla hlutaðeigandi að fram- fylgja skýru banni við áfengisauglýs- ingum. Fjórtán félagasamtök standa að áskoruninni og segir m.a. í yf- irlýsingu þeirra að áfengisauglýs- ingar stríði gegn markmiðum og áherslum í forvarnarstarfi sem miða að því að virkja og styrkja ungt fólk til heilbrigðra lífshátta. „Markaðssetning áfengis er orðin miklu beinskeyttari gagnvart börn- um og unglingum. Það er verið að vinna þessar auglýsingar á sömu for- sendum og gert er þegar sér- staklega á að ná til barna og ungs fólks með því að nýta sér þætti á borð við hraða og skemmtilegheit. Það hefur tíðkast um nokkurt skeið að sveigja gildandi reglur á þessu sviði af einhvers konar varúð, en því er ekki lengur til að dreifa núna og því erum við búin að fá nóg,“ sagði Árni. Hann sagði að erlendis væri verið að herða reglur um markaðs- setningu áfengis, ekki síst þar sem börn og unglingar eiga í hlut. „Okk- ur finnst því skjóta skökku við að Ís- lendingar séu að gefa eftir á sama tíma og andinn er annar í kringum okkur.“ Í áskorun félagasamtakanna er hvatt til samstöðu um að halda áfengi og hvatningu til neyslu þess sem mest frá börnum og unglingum og er skorað á framleiðendur og selj- endur áfengis, lögreglu, dómstóla, fjölmiðla og landsmenn alla að sýna ábyrgð og sjá til þess að lögum sé fylgt í þessu efni. Að áskoruninni standa: Barna- hreyfing IOGT, IOGT, SAMFOK, Heimili og skóli, ÍSÍ, Samtök skóla- manna um bindindisfræðslu, Ung- mennahreyfing IOGT, Samfés, Kvenfélagasambandið, Bandalag ís- lenskra skáta, Íslenskir ungtempl- arar, Bindindisfélag ökumanna, KFUM og K og Vímulaus æska. Fulltrúar félagasamtakanna sem skrifuðu undir áskorunina um að virða bann við áfengisauglýsingum. Áfengisauglýsingar komnar langt út yfir þolanleg mörk KONA á þrítugsaldri hefur í Hér- aðsdómi Reykjavíkur verið dæmd í ársfangelsi, þar af níu mánuði skil- orðsbundið, fyrir fjölda þjófnaða, eignaspjöll, fíkniefnabrot, skjalafals og vopnalagabrot. Konan, sem lengi hafði verið í óreglu, játaði brot sín skýlaust og segir í dómnum að hún telji sig „vera búna að ná tökum á lífinu og iðrast mjög gerða sinna“. Konan var ákærð fyrir þjófnað eða tilraun til þjófnaðar á fatnaði, snyrtivörum, matvælum o.fl. Þá var hún ákærð fyrir eignaspjöll þegar hún eyðilagði þrjár flíkur með því að fjarlægja úr þeim þjófavörn. Ennfremur fyrir vopnalagabrot með því að ota vasahnífi að starfs- manni verslunar sem reyndi að varna henni útgöngu eftir að þjófa- varnarkerfi fór í gang. Þá var hún dæmd fyrir að hafa í félagi við ann- an falsað tvo tékka, samtals að upp- hæð 210.000 krónur. Konan hafði áður hlotið fimm dóma fyrir rán, þjófnað og fíkniefnabrot. Málið dæmdi Valtýr Sigurðsson héraðsdómari. Verjandi ákærðu var Sigmundur Hannesson hrl. Málið sótti Dagmar Arnardóttir fulltrúi lögreglustjórans í Reykjavík Dæmd fyrir eignaspjöll og vopnalagabrot GUNNAR Eydal hefur verið ráð- inn í embætti borgarlögmanns til eins árs. Hann mun taka við starfinu af Vil- hjálmi H. Vil- hjálmssyni þann 1. maí næstkom- andi. Gunnar lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1971 og stundaði framhaldsnám við Kaupmannahafnarháskóla 1971 til 1972. Hann fékk réttindi til mál- flutnings fyrir héraðsdómi 1974 og fyrir Hæstarétti árið 1992. Gunnar tók við starfi skrifstofustjóra Borg- arstjórnar Reykjavíkurborgar árið 1979. Þá samþykkti borgarráð að ráða Ólaf Kr. Hjörleifsson í starf skrif- stofustjóra borgarstjórnar til sama tíma. Ólafur lauk embættisprófi frá lagadeild Háskóla Íslands árið 1998 og hefur verið fulltrúi skrifstofu- stjóra borgarstjórnar frá árinu 2000. Gunnar Eydal ráðinn borgarlögmaður Gunnar Eydal TILBOÐ voru á þriðjudag opnuð hjá Vegagerðinni vegna flutnings Hringbrautar í Reykjavík. Lægsta tilboð áttu í sameiningu Háfell og Eykt í Reykjavík. Tilboð þeirra nemur 90,5% af áætluðum verk- takakostnaði Vegagerðarinnar, sem er 1,3 milljarðar króna. Ístak átti hæsta tilboðið, sem er tæpum tíu prósentum yfir áætluðum kostnaði. Samkvæmt tilboðinu á að færa Hringbraut frá Rauðarárstíg að Tjörninni og aðlaga aðliggjandi götum ásamt því að breyta gömlu Hringbraut og tengingum við hana. Hin nýja Hringbraut mun verða sunnan við núverandi Hringbraut neðan við lóð Landspítalans og BSÍ. Hin nýja Hringbraut verður lögð undir núverandi Bústaðaveg- arbrú að austanverðu og tengd nýjum gatnamótum Njarðargötu vestanmegin. Verkinu á að vera lokið að fullu fyrir 15. október 2005. Útboðið var auglýst á Evr- ópska efnahagssvæðinu. Tilboð opnuð í færslu Hringbrautar Háfell og Eykt áttu lægsta tilboðið ÁTTATÍU og fimm ungmenni fermast borgaralegri fermingu í Háskólabíói sunnudaginn 4. apr- íl kl. 11. Þetta er í sextánda sinn sem borgaraleg ferming er haldin á Íslandi en síðan 1989 hafa vel á sjöunda hundrað ung- menna fermst borgaralega og um 8.000 manns verið viðstaddir athöfnina. Fermingarathöfnin er út- skriftarhátíð eftir þriggja mán- aða námskeið þar sem fjallað er um siðfræði, mannleg samskipti, gagnrýna hugsun, ábyrgð, frelsi og mannrétt. Tilgangur borg- aralegrar fermingar er að efla heilbrigð og farsæl viðhorf ung- menna til lífsins. Þátttakendur rækta meðal annars með sér já- kvæði og ábyrgðarkennd gagn- vart sjálfum sér og samborgur- um sínum, segir m.a. í fréttatilkynningu frá Siðmennt. Fermingarbörn taka virkan þátt í athöfninni þar sem þau flytja ljóð og tónlist. Í þetta sinn munu tvö fermingarbörn sýna nokkur skylmingaatriði með höggsverðum. Ræðumenn þetta árið eru Hörður Torfason, söngvaskáld og leikstjóri, og Sigurður Hólm Gunnarsson, blaðamaður og varaformaður Siðmenntar. Fermingarstjóri að þessu sinni er Sigurður Skúla- son leikari. 85 fermast borgara- legri ferm- ingu
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.