Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 12

Morgunblaðið - 01.04.2004, Side 12
MIKILL hraði er fyrst og fremst ástæða þess að flest banaslys í um- ferðinni verða í dreifbýli, auk þess sem umhverfi vega er víða hættulegt, úfin hraun eða þverhnípt björg. Þá er talið mikilvægt að aðgreina betur um- ferð úr gagnstæðum áttum, en hafa Svíar á þann hátt náð að draga úr banaslysum um 90%. Vegagerðin hef- ur 140 milljónir á þessu ári til að lag- færa svokallaða svarta bletti, hættu- lega bletti í vegakerfinu þar sem slys hafa orðið, en þyrfti að hafa meira fé til þess málaflokks. Vátryggingafélag Íslands stóð í gær fyrir ráðstefnu sem bar yfir- skriftina „Úti að aka“. Þar var m.a. fjallað um umferðaröryggi út frá um- hverfi veganna. Í erindi Ágústs Mogensen, fram- kvæmdastjóra Rannsóknarnefndar umferðarslysa, kom fram að milli 80 og 90% banaslysa í umferðinni sem nefndin rannsakar ár hvert eiga sér stað í dreifbýli. Aftur á móti eiga flest- ir árekstrar sér stað í þéttbýli, þannig verða 86% umferðarslysa þar sem eingöngu verður tjón á eignum í þétt- býli, en 14% í drefibýli. Eftir því sem slysin eru alvarlegri rís hlutur dreif- býlisins og hlutur þéttbýlis minnkar. Umhverfi vega víða óblítt „Umferð á þjóðvegunum úr gagn- stæðum áttum er víðast óaðgreind. Ef við tökum framanákeyrslur og árekstra sem dæmi, þá erum við með tvo bíla sem eru kannski á 90 km hraða og sameiginlegur árekstrar- hraði er þá um180 km hraði. Þessi staða getur eiginlega ekki komið upp hérna í þéttbýlinu vegna þess að um- ferðin er víða aðgreind,“ segir Ágúst í samtali við Morgunblaðið, en í fyrir- lestri sínum fjallaði hann um ástæður þess hversu hátt hlutfall banaslysa á sér stað í dreifbýli. „Staðreyndin er bara sú að hvorki bílarnir né manns- líkaminn þola svona árekstra,“ segir Ágúst. Á stærsta hluta hringvegarins sé umferð úr gagnstæðum áttum óað- greind. „Það verður alvarlegt umferð- arslys eða banaslys ef það verður árekstur á þessum hraða,“ segir hann. Um helmingur þeirra slysa sem Rannsóknarnefnd umferðarslysa rannsakar er útafakstur og segir Ágúst umhverfi hafa áhrif á hversu alvarlegar afleiðingarnar verða. „Umhverfið er víða óblítt, hraun, grjót og skurðir, og stundum fara bílar hreinlega af björgum fram. Þetta er náttúrulega staða sem kem- ur ekki upp í þéttbýlinu,“ segir Ágúst. Vegagerðin hefur um 140 milljónir króna til lagfæringar á svokölluðum svörtum blettum, þ.e. hættulegum stöðum þar sem slys hafa orðið, eða vitað er af hættunni. „Við gerum út- tekt á landinu öllu á þessum slysa- stöðum og forgangsröðum þeim eftir því hvað við náum miklum árangri miðað við kostnað og fækkun slysa,“ segir Rögnvaldur Jónsson, fram- Aðgreining umferðaræða getur fækkað alvarlegum umferðarslysum um 90% Mikill hraði og óöruggt umhverfi vega hættulegast kvæmdastjóri framkvæmdasviðs Vegagerðarinnar, í samtali við Morg- unblaðið, en hann flutti einnig erindi á ráðstefnunni. Aðspurður segir hann að 140 millj- ónir séu í sjálfu sér ekki nóg í mála- flokkinn á ári, því að af nógu sé að taka. Bygging nýrra umferðarmann- virkja stuðli þó einnig að bættu um- ferðaröryggi, t.d. bygging mislægra gatnamóta og bygging nýrrar brúar yfir Þjórsá. Vegagerðin hafi nýtt þessa fjárhæð til að stefnugreina gatnamót, þ.e. setja eyjur eða hringtorg á gatnamót og þá hafi verið sett upp viðvörunar- ljós við einbreiðar brýr. „Það má ekki gleyma að við höfum fækkað ein- breiðum brúm mikið á síðustu árum. Á leiðinni milli Kirkjubæjarklausturs og Akureyrar eru í dag sex einbreiðar brýr. Þetta er mikill áfangi og við stefnum að því að útrýma einbreiðum brúm alveg á næstu árum.“ Æskilegt að aðskilja akbrautir í ríkari mæli Þá nefnir Rögnvaldur að hvert hringtorg sem sé sett inn í vegakerfi landsins dragi úr slysum. „Það verða yfirleitt ekki alvarleg umferðarslys á hringtorgum. Það var t.d. nokkuð mikið af alvarlegum slysum og dauða- slysum á gatnamótunum við Rauða- vatn, en eftir að hringtorgið kom hef- ur gerst þar sáralítið,“ segir hann. Hvað varðar að aðskilja umferð úr gagnstæðum áttum segir Rögnvaldur að í raun séu framkvæmdirnar á Reykjanesbraut þær einu sem farið hafi verið út í hér á landi í þeim til- gangi. „En við höfum fylgst vel með t.d. því sem Svíar eru að gera. Þeir eru búnir að gera ansi mikið, það er komið þó nokkuð yfir 1.000 km sem þeir eru búnir að aðskilja. Við fylgj- umst með því en það er ekki á fram- kvæmdastigi enn hjá okkur,“ segir Rögnvaldur og bætir við að í Svíþjóð hafi þessar aðgerðir dregið úr alvar- legum slysum og dauðaslysum um 90%, þar sem farið hefur verið út í slíkar framkvæmdir. Hann segist telja æskilegt að unnið verði frekar að því að aðskilja akbrautir hér á landi, sérstaklega á umferðarmestu vegun- um. Rögnvaldur segir að Vegagerðin sé nú að taka út umhverfi veganna með það fyrir augum að skoða kostnað þess að gera umhverfi þeirra örugg- ara. „Stundum þarf ekki mikið, fjar- lægja einstaka stein, moka í skurði og ýmislegt sem má gera til að lagfæra.“ Fram kom á ráð- stefnu um umferðar- mál að æskilegt væri Vegagerðin fengi meira fé til að laga varasama staði. VÁTRYGGINGAFÉLAG Íslands stóð fyrir ráðstefnunni „Úti að aka“ sem haldin var á Nordica hóteli í gær, en á síðustu fjórum árum hef- ur VÍS lagt tæplega 200 milljónir í forvarnastarf, m.a. í forvarnastarf í umferðinni. „Við trúum því að forvarnarstarf sé besta leiðin til að draga úr ið- gjöldum og auka öryggi í umferð- inni. Við viljum hafa iðgjöldin sem lægst og auka öryggi okkar um- bjóðenda og allra sem eru í umferð- inni. Við teljum að tryggingafélög hafi mikilvægu hlutverki að gegna í að auka öryggi og gera umhverfið öruggara,“ segir Ásgeir Baldurs, yfirmaður viðskiptaþróunar og kynningarmála hjá VÍS. Hann segir að þessum fjármunum hafi aðallega verið varið í fræðslu- og kynningarmál. VÍS hafi m.a. staðið fyrir kynningarfundum á tveggja vikna fresti í höfuðstöðvum VÍS, en að auki í framhaldsskólum á landsbyggðinni, þar sem fjallað hef- ur verið um umferðarmál. „Við skráum alla sem koma á um- ferðarfundi hjá okkur og meðal ungra ökumanna hefur komið í ljós að tjónatíðni þeirra sem höfðu kom- ið á fundi var 26% lægri en þeirra sem höfðu ekki komið á fundi.“ Ás- geir segir að einnig hafi lögreglan látið í ljós ánægju með áróður sem VÍS hafi rekið um lækkun umferð- arhraða. Umferðarhraðinn hafi lækkað á vegum landsins und- anfarin ár og það sé m.a. talið góðu forvarnarstarfi að þakka. 200 milljónir í forvarna- starf á fjórum árum FRÉTTIR 12 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ VÍS kynnti í tengslum við málþingið bílbeltasleða en hann er nýtt umferðarörygg- istæki sem félagið hefur eignast og hyggst nota til forvarnarstarfs um land allt. Í honum er hægt að upplifa þá óþægindatilfinningu sem fylgir því að aka í bíl á vegg á 20 km hraða en um leið að skynja það öryggi sem bíl- beltin veita við slíkan árekst- ur. Á bílbeltasleðanum eru tvö bílsæti sem rennt er nið- ur hallandi braut og stöðvast með höggi. Þótti nóg um höggið Á meðal þeirra fullhuga sem reyndu sleðann voru þeir Kjartan Magnússon, borgarfulltrúi og Geir Jón Þórisson, yfirlögregluþjónn í Reykjavík og þótti þeim nóg um höggið þótt sleðinn líti sakleysislega út. Greinilegt var að Geir Jóni fannst höggið meira en hann átti von á og hafði hann á orði að „innyflin hefðu farið af stað“ við höggið. Á bílbeltasleðanum eru tvö bílsæti sem rennt eru niður hallandi braut og stöðvast hann með höggi. Sleðinn er á átta metra langri kerru sem unnt er að draga hvert sem er aftan í bíl. Bílbeltasleðinn var þróað- ur á vegum Öryggissjóðs Formula 1 og er framleiddur í Tékklandi. Einungis hafa verið fram- leiddir tíu sleðar og einn þeirra er sem sagt kominn til Íslands. Morgunblaðið/Sverrir Mörgum kom á óvart hversu mikið höggið í sleðanum reyndist vera. „Innyflin fóru af stað“ VÍÐA spilla merkingar fyrir í um- ferðinni og ekki er nægilega vel gætt að því að þær trufli ekki útsýn ökumanna. Þetta kom fram í fyrirlestri Ólafs K. Guðmundssonar, stjórnarmanns í Landssambandi íslenskra aksturs- íþróttafélaga um merkingar og vegrið í umferðinni. Ólafur segir fyrst og fremst um að kenna hugs- unarleysi. Hann segir vanta sam- ræmingu í merkingum, þær geti verið breytilegar frá einu sveitarfé- lagi til annars. Þá vanti bersýnilega að menn fari og taki út og skoði hvernig til tekst með merkingar. Þegar ný gatnamannvirki séu reist séu merkingarnar yfirleitt bara teiknaðar en þær ekki hannaðar eða teiknaðar eftir því hvaða áhrif þær hafi á útsýn ökumanna. Þá vanti nokkuð upp á að tilgangurinn með merkingum sé skýr. Oft séu það vegvísar en ekki umferðarmerki sem trufli útsýnina. Erlendis séu vegvísar settir áður en komið er að gatnamótum en umferðarmerki séu við þau til þess að stjórna umferð- inni. Hérna séu öllum skiltunum oft dengt saman á gatnamót og ekki hugsað um hvort þau skyggi á eða hvað áhrif þau hafi á ökumennina. Ólafur segir að víða á höfuðborg- arsvæðinu sé útsýn ökumanna ekki nógu góð. Boðmerki á umferð- areyjum séu mjög oft í vitlausri hæð þannig að þau lendi í sjónlínu öku- mannanna. Hann tekur þó fram að oft sé lítið mál að laga þetta og varla spurning um mikla fjármuni. Ólafur segir það flóknara og kannski pólitískara mál með veg- riðin. Hann bendir á Reykjanes- braut í því sambandi. Alls staðar í Evrópu sé sett vegrið á tvíbreiða vegi og hafi verið gert í mörg ár. Reykjanesbrautin hafi kostað 60 mannslíf, í mörgum tilvikum vegna þess að bílar hafi skollið saman og ekkert geti komið í veg fyrir það nema vegrið. Umferðarmerki trufla víða útsýn ökumanna Hér hafa ökumenn ekki beint góða yfirsýn yfir aðvífandi umferð á hringtorginu við Rauðvatn. Morgunblaðið/Ómar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.