Morgunblaðið - 01.04.2004, Síða 57
Macbeth í fyrra og náðu jákvæðri
gagnrýni eins helsta óperugagnrýn-
anda í heimi, og þeim Snorra Wium
og Þorgeiri Andréssyni, sem hafa
ekki haft sönginn að aðalstarfi. Við
skulum heldur ekki gleyma öllum
fyrrverandi nemendum Söngskól-
ans, sem hefja til vegs ímynd lands
okkar sem menningarþjóðar og eru
um þessar mundir fulltrúar okkar
víða um heim. Hin færeyska Eivor
Pálsdóttir hefur stundað nám við
Söngskólann í skamman tíma, en ef
hún heldur áfram og af áhuga, er
ég viss um að hún mun koma sjálfri
sér og öðrum á óvart.
Ég tel mér ekki fært að ljúka
þessum þakklætisvotti nema minn-
ast á Óperukórinn, sem fáar þjóðir
geta státað svo vel af, og alls ekki
miðað við höfðatölu. Garðar Cortes
hefur haft einstaklega gott lag á að
ná fram sérstökum, yndislegum og
öguðum tóni Óperukórsins, tóni,
sem er einkennandi fyrir þennan
kór og hefur verið rómaður hvar
sem kórinn hefur sungið, jafnt inn-
an- sem utanlands.
Því vil ég ekki einungis þakka
boðið, heldur þakka ykkur, sem
hafið haft kraftinn og þorið, agann
og skilninginn, og staðið í mun heit-
ari eldlínu en margir átta sig á, enn
í dag.
Ég hlakka til fyrirhugaðrar út-
sendingar frá afmælistónleikunum
um páskana.
Innilegar kveðjur og þakklæti.
Megi framtíð Söngskólans, Ís-
lenskrar óperu og sönglistar þróast
jafnvel í framtíðinni og hún hefur
gert undanfarna áratugi.
Höfundur er fv. alþingismaður.
Morgunblaðið/Jim Smart
Tugir söngvara stóðu saman á svið-
inu í Háskólabíói og hófu upp raust
sína í tilefni af þrjátíu ára afmæli
Söngskólans í Reykjavík.
í reynd ruglað þau í ríminu gagn-
vart henni. Þrátt fyrir mikla
ígrundun gat dómstóllinn því ekki
tekið vitnisburð barnanna trúan-
legan.
Á Íslandi virðast barnavernd-
aryfirvöld, sýslumenn og önnur yf-
irvöld fyrst og fremst huga að því
hvað börnin segja, án tillits til að-
stæðna, sambands barnanna við
foreldrana, eða umgengnistálmana,
eða þess hvort vitnisburður þeirra
er trúverðugur eða hefur jafnvel
verið lesinn fyrir þeim. Þannig ríkir
algert ófremdarástand í þessum
málum hér á landi og forsjárfor-
eldrar komast upp með margvísleg
mannréttindabrot gagnvart börn-
um sínum og fyrrverandi mökum.
Hér er, því miður, margt líkt með
framferði íslenskra yfirvalda gagn-
vart þúsundum íslenskra feðra og
tyrkneskra yfirvalda gagnvart
Sophiu Hansen.
Réttur til fjölskyldulífs er ský-
laus
Túlkun Mannréttindadómstóls
Evrópu á ákvæðinu um að sýna beri
fjölskyldulífi annarra virðingu er
alveg afdráttarlaus: Rétturinn til
fjölskyldulífs nær ekki aðeins til
forsjárforeldra heldur til allra
manna, hvort heldur þeir eru börn,
forsjárforeldrar eða forsjárlausir
foreldrar. Það eru ekki bara tyrk-
nesk yfirvöld sem þurfa að taka til-
lit þessa dóms, heldur einnig ís-
lensk.
Höfundur er formaður Félags
ábyrgra feðra.
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 57
Sorginklæ›ir Elektru
Magna›ur nútímaharmleikur! Frums‡ning anna› kvöld
kl. 19:00 á Smí›averkstæ›inu
b
11
Strandgötu 33 - Hafnarfirði - Sími 565 4533 - www.albatros.is
Elsta sérverslun kylfinga fagnar 14 ára
starfsafmæli um þessar mundir
og í tilefni þess bjóðum við
20% afmælisafslátt af öllum
vörum og sérpöntunum.
Afslátturinn er í boði fram til páska
Albatros 14 ára!
20% afmælisafsláttur