Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 66

Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 66
FRÉTTIR 66 FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 MORGUNBLAÐIÐ RÁÐSTEFNA á vegum Blindra- félagsins, Félags aðstandenda Alz- heimersjúklinga, Geðhjálpar, Geð- verndarfélags Íslands, Gigtarfélags Íslands, Heyrnarhjálpar, Lands- samtakanna Þroskahjálpar og Um- sjónarfélags einhverfra í samstarfi við LSH, Landlæknisembætti og fé- lagsmálaráðuneytið verður haldin fimmtudaginn 1. apríl 2004, kl. 13.00 í Hringsal Landspítala – háskóla- sjúkrahúsi v/Hringbraut (gengið inn við Barnaspítalann). Yfirskrift ráð- stefnunnar er: Heilbrigðiskerfið – virkni, skilvirkni, jöfnuður, virðing. Jón Kristjánsson heilbrigðis- og tryggingamálaráðherra setur ráð- stefnuna. Frummælendur eru: Matt- hías Halldórsson frá Landlæknis- embættinu, Málfríður Gunnarsdóttir frá Heyrnarhjálp, Ásrún Hauksdótt- ir og Sigurjón Einarsson frá Blindrafélaginu, Gerður Aagot Árnadóttir frá Landssamtökin Þroskahjálp, Emil Thóroddsen frá Gigtarfélagi Íslands, María Ólafs- dóttir frá Félagi aðstandenda Alz- heimersjúklinga, Ingimundur K. Guðmundsson frá Geðhjálp, Eiríkur Þorláksson umsjónarfélagi ein- hverfra, Jóhannes Gunnarsson lækningaforstjóri LSH, Jónína Bjartmarz alþingismaður og Ásta R. Jóhannesdóttir alþingis- maður. Þátt í pallborðsumræðum taka Jónína Bjartmarz formaður heil- brigðisnefndar Alþingis, Jóhannes Gunnarsson lækningaforstjóri LSH, Þór Þórarinsson skrifstofustjóri fé- lagsmálaráðuneytis, Ásta R. Jó- hannesdóttir alþingismaður, Sveinn Magnússon skrifstofustjóri heil- brigðis-og tryggingamálaráðuneyt- is. Fundarstjóri verður Kristinn Tómasson yfirlæknir Vinnueftirlits ríkisins Ráðstefnan er öllum opin en heil- brigðsstarfsfólk er einkum hvatt til að koma, segir í fréttatilkynningu. Ef þörf er á sérþjónustu fyrir þátt- takendur eru viðkomandi beðnir að láta vita hjá Gigtarfélagi Íslands. Ráðstefna um heilbrigðiskerfið Eru fréttir skemmtiefni? Guð- mundur Andri Thorsson er aðalfyr- irlesari á málþingi sem Reykjavík- urAkademían stendur fyrir undir yfirskriftinni: Eru fréttir skemmti- efni? Málþingið fer fram í dag, fimmtudaginn 1. apríl kl. 16–18, í sal ReykjavíkurAkademíunnar, Hringbraut 121 (JL-húsinu). Guðmundur Andri mun í erindi sínu ræða um það sem kalla má „skemmtivæðingu“ þjóðmála- umræðunnar í íslenskum fjöl- miðlum. Að því loknu fara fram pallborðsumræður, en í pallborðinu sitja Elín Sveinsdóttir, útsending- arstjóri á Stöð 2, Illugi Jökulsson, ritstjóri DV, Óðinn Jónsson, frétta- maður á RÚV, og Sigurður Már Jónsson, blaðamaður á Viðskipta- blaðinu. Aðalfundur Menningarfélagsins Hispánica verður í dag, fimmtu- daginn 1. apríl kl. 20, í Alþjóðahús- inu við Hverfisgötu (gegnt Þjóðleik- húsinu), á 3. hæð. Venjuleg aðalfundarstörf og almennar um- ræður um starfsemina. Að því loknu verður boðið upp á kúbanskt kaffi og léttar veitingar við undir- leik hljómsveitarinnar Artesanos. Í DAG LANDSLIÐSNEFND í hesta- íþróttum fer eftir rúmar tvær vikur nýja leið í öflun fjár til þátttöku ís- lenska landsliðsins í heims- og norð- urlandameistaramótum. Býður nefndin upp á spennandi töltkeppni á skautasvellinu í hinni nýju Egils- höll laugardaginn 10. apríl. Til leiks er boðið fjölda heims- og Íslands- meistara og þátttakendum í heims- meistaramótum. Hæst ber að sjálf- sögðu núverandi heimsmeistarar Jóhann R. Skúlason, Sigurður Vign- ir Matthíasson og Berglind Ragn- arsdóttir. Þá er hjónunum Karly Zingsheim og Rúnu Einarsdóttur boðið til leiksins. Auk hinnar eiginlegu töltkeppni verður boðið upp á töltkeppni stóð- hesta og er ljóst að þar munu mæta margir sterkir tölthestar úr röðum stóðhesta. Og má þar nefna hesta eins og Tígul frá Gýgjarhóli sem Þórður Þorgeirsson mun sitja að venju. Lena Zielenski mun mæta með Svein Hervar frá Þúfu og Daní- el Jónsson mun mæta með Pegasus. Þá mun Styrmir Árnason, fyrrum heimsmeistari í fjórgangi, mæta með Nagla frá Þúfu sem er albróðir Sveins Hervars. Ekki liggur alveg ljóst fyrir hvaða hesta einstakir knapar munu endanlega velja því misjafn getur verið hvernig hestar bregðast við þegar komið er inn á ís- inn eins og vel er þekkt. Daginn fyr- ir sjálfa keppnina mun allur þessi skari hinna kunnu knapa mæta með fáka sína í Egilshöllina og kynna þeim svellið og þá liggur ljóst fyrir hvaða hestar verða endanlega fyrir valinu. Miðar á þennan viðburð verða seldir á Sportbitanum sem er nýr veitingastaður í Egilshöllinni og þar stendur á bak við borðið hestamað- urinn Ragnar Hilmarsson. Ætlar hann að opna fyrir gestum mjög tím- anlega og til að stytta þeim stundir verður hann með þrjá stóra skjái þar sem sýndir verða stórir viðburðir á sviði hestamennskunnar. Miðasala er hafin í Sportbitanum og verði mjög í hóf stillt að sögn Marteins. Sagði hann að miðar í stæði kostuðu 1.250 krónur en 1.800 krónur í sæti. Sagði Marteinn að endingu að allur ágóði af þessari samkomu rynni til landsliðsins í hestaíþróttum og gerði hann sér vonir um að hér væri kom- inn áhugaverður og gjöfull kostur í fjáröflun nefndarinnar. Skautasvell- ið er á annarri hæð og verður settur stór og langur rampur svo knapar geti riðið beint inn á svellið. Hestarnir stimpla sig inn í Egilshöllina Meistaraknapar munu kljást á svellinu Morgunblaðið/Vakri Ragnar Hilmarsson, hestamaður og vert í Sportbitanum, ásamt Marteini Magnússyni landsliðnefndarmanni við borðið á hinum glæsilega veitingastað.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.