Morgunblaðið - 01.04.2004, Blaðsíða 67
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 1. APRÍL 2004 67
m tímarit um mat og vín kemur út átta sinnum á ári og er dreift án endurgjalds til allra áskrifenda
Morgunblaðsins - fæst einnig í öllum helstu bókaverslunum
GraskersfræolíaJarðhnetuolíaÓlífuolía
Pumpkinseed Oil
Organic Certified Product
Erdnuss Öl
Nativ
Crespi, Ramoscello
Olio Extra Vergine Di Oliva
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
M
BL
2
36
28
03
/2
00
4
Kemur næst 7. apríl
A-SVEIT Rimaskóla sigraði með
glæsibrag á Íslandsmóti grunn-
skólasveita stúlkna í skák um
helgina. Sveitin sýndi mikla yf-
irburði á mótinu og sigur skólans
var aldrei í hættu, þrátt fyrir góða
spretti hjá öðrum sveitum og harða
atlögu Mýrarhúsaskóla að gullinu.
A-sveit Rimaskóla hlaut 25,5 vinn-
inga Mýrarhúsaskóli varð í öðru
sæti með 20,5 vinninga og B-sveit
Rimaskóla varð í þriðja sæti með
15,5 vinninga. Fast á eftir B-sveit
Rimaskóla fylgdu Salaskóli og
Hamraskóli í 4.–5. sæti með 15
vinninga, Grunnskólinn í Borg-
arnesi varð í 6. sæti með 14 vinn-
inga og Flataskóli í Garðabæ í 7.
sæti með 6,5 vinninga. Sigursveit
Rimaskóla var skipuð þeim Júlíu
Rós Hafþórsdóttur á 1. borði, Júlíu
Guðmundsdóttur á 2. borði, Ingi-
björgu Ásbjörnsdóttur á 3. borði og
Hrund Hauksdóttur á 4. borði. Silf-
ursveit Mýrarhúsaskóla var skipuð
þeim Geirþrúði Önnu Guðmunds-
dóttur, Selmu Ramdani, Gyðu Katr-
ínu Guðnadóttur, Stefaníu Bergljót
Stefánsdóttur og Rose Alönu Frith.
Bronssveit Rimaskóla var skipuð
Elísabetu Ragnarsdóttur, Brynju
Vignisdóttur, Hrefnu Hlöðvers-
dóttur, Snædísi Bergmann og Anítu
Jóhannesdóttur.
Sigursveitir Rimaskóla og Mýrarhúsaskóla ásamt liðsstjórum. Fyrir miðju
eru sigurvegarar A-sveitar Rimaskóla með bikar í hönd.
Rimaskóli sigrar á Íslands-
móti grunnskólasveita stúlkna
MORGUNBLAÐINU hefur bor-
ist ályktun frá aðalfundi Póst-
mannafélags Íslands þar sem lýst
er furðu yfir þeirri tillögu sam-
gönguráðherra að hagnaður fyrir-
tækisins renni allur til ríkissjóðs í
stað þess að nýta hann til að bæta
launakjör starfsmanna fyrirtækis-
ins:
„Fundurinn lýsir ánægju sinni
með að rekstur Íslandspósts hf hafi
skilað hagnaði á síðasta ári. Þessi
hagnaður er að mati aðalfundar fé-
lagsins tilkominn vegna mikils að-
halds og sparnaðar í rekstri og
þeirrar dapurlegu staðreyndar að
störf hjá fyrirtækinu eru í flestum
tilfellum láglaunastörf. Því lýsir
aðalfundur Póstmannafélagsins
furðu sinni yfir þeirri tillögu full-
trúa eigenda fyrirtækisins þ.e.
samgönguráðherra, á aðalfundi Ís-
landspósts, að leggja til að sá hagn-
aður sem fyrirtækið sýnir og gott
betur eða samtals fimmhundruð
milljónir skuli greiddar til eiganda
fyrirtækisins, þ.e. ríkissjóðs.
Þar með er ríkissjóður að ná til
sín fjármunum sem að mati aðal-
fundar Póstmannafélagsins hefði
betur verið varið til að bæta kjör
starfsmanna í komandi kjarasamn-
ingum svo komist verði uppúr því
fari að um 70% starfsmanna taki
laun skv. launatöxtum sem eru rétt
um eitthundrað þúsund krónur á
mánuði.
Samkvæmt ársskýrslu Íslands-
pósts eru meðalárslaun allra
starfsmanna hjá fyrirtækinu, með
launatengdum gjöldum, tvær millj-
ónir tvöhundruð tuttugu og fimm
þúsund og því meðal mánaðarlaun
eitt hundrað áttatíu og fimm þús-
und. Póstþjónusta á Íslandi eins og
í öðrum siðmenntuðum löndum er
samfélagsþjónusta sem samfélagið
á að sjá sóma sinn í að hlúa að í stað
þess að byggja á vinnuframlagi
láglaunafólks,“ segir í ályktuninni.
Póstmannafélag Íslands
Bæta þarf kjör
starfsmanna
Íslandspósts
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn