Morgunblaðið - 07.05.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 23
Garðabær | Leikskólar í Garðabæ
bjóða bæjarbúum á opið hús á morg-
un, laugardag. Gefst þá fjölskyldum,
og öllum þeim sem áhuga hafa, gott
tækifæri til að kynna sér leikskólana
og starf þeirra. Börnin hafa einnig
mjög gaman af því að bjóða vinum
og vandamönnum í heimsókn í leik-
skólann sinn og sýna þeim það sem
þau hafa verið að gera yfir veturinn.
Foreldrar væntanlegra leikskóla-
barna eru sérstaklega boðnir vel-
komnir og fá þarna gott tækifæri til
að kynna sér það sem hver og einn
leikskóli hefur upp á að bjóða.
Opið hús á sér oft langan aðdrag-
anda. Starfsfólk hefur geymt verk
barnanna yfir veturinn. Þau eru nú
tekin fram og hengd upp eða höfð til
sýnis á annan hátt. Bækur, ljós-
myndir og leikföng eru látin liggja
frammi og einnig er hægt að leika
sér á útileiksvæði leikskólans, ef
veður leyfir.
Bæjarbúar eru hvattir til að heim-
sækja leikskólana, en þar verður vel
tekið á móti og starfsfólk verður
með
hressingu fyrir stóra jafnt sem
smáa. Leikskólarnir verða opnir
sem hér segir: Ásar, Sunnuhvoll og
Bæjarból kl.10:30 – 12:30, Hæðaból,
Kirkjuból, Lundaból og Kjarrið kl.
11:00–13:00.
Opnir leikskólar
í Garðabæ
Neshlaup | Á morgun, laugardag,
verður hið árlega Neshlaup Trimm-
klúbbs Seltjarnarness, frá sund-
lauginni á Seltjarnarnesi. Hlaupið
hefst klukkan ellefu, en skráning
hefst klukkan níu. Boðið verður
upp á þrjár hlaupaleiðir: 3,25 km.,
7,5 km. og 15 km. Einnig er keppt í
flokki hjólastóla 3,25 km.
Keppt er í öllum flokkum karla
og kvenna með tímatöku í 7,5 og 15
km. en engin tímataka eða flokka-
skipting er í flokki hjólastóla og
3,25 km. hlaupi en veitt verðlaun
fyrir fyrstu þrjú sæti karla og
kvenna í hvoru tveggja. Veittir eru
verðlaunapeningar fyrir fyrstu
þrjú sæti í öllum aldursflokkum í
vegalengdum þar sem tímataka fer
fram. Allir sem ljúka hlaupinu fá
markpening og fjölmargir útdrátt-
arvinningar verða dregnir út.
Skráningargjald er 600 krónur
fyrir fullorðna en 300 krónur fyrir
16 ára og yngri. Hámarksgjald fyr-
ir fjölskyldu er 1.200 krónur.
Að hlaupi loknu verður boðið upp
á hressingu og þátttakendur kom-
ast frítt í Sundlaug Seltjarnarness í
boði Seltjarnarnesbæjar, þar sem
þeir geta slappað af í heitu pott-
unum eða gufubaði.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
KONAN
TÍSKUVÖRUVERSLUN SKÓLAVÖRÐUSTÍG 10 – SÍMI 544 4035
TAX-FREE laugardagur
15% afsláttur
af öllum vörum
Stærðir 34-56
Ný sending af
sundbolum frá
Tax Free
dagur
laugardaginn 8. maí
15% afsláttur
af öllum vörum
Laugavegi 80,
sími 561 1330.
Str. 38-58
Gott úrval
15% afsláttur
af öllum vörum föstudag og laugardag
Fjöldi verslana í miðborginni
selur vörur sínar með sérstökum
TAX FREE afslætti
til kl. 18 í dag, föstudag og
á morgun, laugardag til kl. 17.