Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 47
UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 47
BERGSTAÐASTRÆTI 37 • SÍMI: 552 5700
Þingholt
Veislusalur fyrir öll
tilefni
Spennandi matseðlar og
veitingar
Skoðið verðið á
www.holt.is
• • •
• • •
• • •
Er mamma þín amma?
Frábær gjöf handa
mömmu sem svar-
ar spurningunum í
bókinni og gefur
síðan börnum eða
barnabörnum
hana við gott tæki-
færi. Þannig breyt-
ir hún bókinni í
sína eigin ævisögu
og ljóstrar upp
leyndarmálum.
3.480 kr.
1.990 kr.
Handa mömmu
Stórglæsileg
íslensk bók eftir
Huldu Jensdóttur
um meðgöngu,
fæðingu og
umönnun barna.
Upphafið svarar
spurningum sem
brenna á verðandi
og núverandi mæðr-
um á skemmtilegan
og einlægan hátt.
4.990 kr.
3.990 kr.
Mæðradagstilboð
Mazda3er vel búinn og kraftmikill bíll sem flú ver›ur a› sko›a.
Opi› frá kl. 12-16 laugardaga
Aukahlutir á mynd: álfelgur og vindskei› á afturhlera
B
ÍL
L
ÁR
SIN
S Í EVRÓPU
200
4
H
im
in
n
o
g
h
a
f
Mazda3 T 1,6 l kostar a›eins1.795.000 kr.
Bíll ársins í Danmörku, Finnlandi og Tékklandi.
Anna› sæti› í vali á bíl ársins í Evrópu ásamt V W Golf.
Máta›u
ver›launasæti›!
HÚN kom eins og þruma úr
heiðskíru lofti á sínum tíma frétt-
in um að Ísland væri skráð á lista
hinna þrjátíu viljugu
ríkja. Sem þýddi á
mæltu máli að Ísland
styddi að Bandaríkin
gerðu innrás í Írak.
Það kom fljótlega í
ljós að það hafði ekki
verið haft samráð við
kóng eða prest áður
en ákvörðun um þann
stuðning var tekin.
Ekkert samráð við
utanríkismálanefnd
þingsins sem þó er
áskipað með lögum,
ekki við Alþingi, ekki
einu sinni við þing-
flokka stjórnarflokk-
anna að því er virðist
og stundum finnst
manni að utanrík-
isráðherra hafi held-
ur ekki vitað neitt
fyrirfram. Við vorum
gerð ábyrg fyrir inn-
rás og berum því
ábyrgð á öllum eft-
irleiknum.
Það hét að það ætti að ráðast
inn í Írak vegna gereyðing-
arvopnanna sem þar væri að
finna. Hans Blix hafði verið í Írak
á vegum Sameinuðu þjóðanna
með sendinefnd til að leita að
þessum vopnum. Hann fékk ekki
að ljúka verkefninu áður en ráðist
var inn í landið. Sameinuðu þjóð-
irnar vildu reyna til hlítar að
leysa málin og lögðust gegn inn-
rás en á það var ekki hlustað.
Þegar ljóst varð að gereyðing-
arvopn fundust ekki snéru menn
við blaðinu. Nú hét það að það
hafi þurft að fara inn
og taka einræðisherr-
ann Saddam Hussein.
Síðan þá hefur það
verið aðalvörnin. Að
ná Saddam. Það var
hins vegar ekki
ástæðan í upphafi.
Þetta höfum við feng-
ið að heyra á Alþingi
aftur og aftur. Hvort
við skiljum ekki að
það hafi orðið að fara
í stríð til að taka
Saddam Hussein.
Stjórnarmeirihluti
friðelskandi vopn-
lausu þjóðarinnar hef-
ur varið þessar gjörð-
ir út í æsar og líka
það að innrásin braut
í bága við vilja Sam-
einuðu þjóðanna.
Í lið með herfor-
ingjum Saddams
Hrikalegar fréttir
hafa borist frá Írak frá því inn-
rásin var gerð. Mannfall er orðið
mikið og svo komið að heimflutn-
ingur fallinna er feimnismál við-
komandi ríkisstjórna sem vilja
leyna því hve margir koma heim
úr stríðinu í kistu. Saklausir
borgarar hafa látið lífið og heimili
annarra jafnað við jörðu eins og
alltaf í stríði og afleiðingar þessa
hörmulega stríðs orðnar meiri en
við hér heima í allsnægtunum
getum numið gegnum fréttirnar.
Nýjustu fréttir eru af óhugnan-
legum pyndingum fanga í fanga-
búðum nærri Bagdad þar sem
Genfarsáttmálinn um meðferð
stríðsfanga virðist óþekktur og
hrottamennska viðgengst meðal
fangavarðanna vestrænu.
Mestu stríðsátökin hafa verið í
Fallujah og bardagar staðið mán-
uðum saman með öllu sem slíku
stríði fylgir. Þar kom í síðustu
viku að ákveðið var að innrás-
arliðið drægi sig út úr Fallujah.
En svona í lokin var varpað
sprengjum á borgina. Og nú ger-
ist það dæmalausa. Til að geta
loksins farið af vettvangi ákvað
innrásarliðið að fela vopnuðum
sveitum Íraka að taka við hlut-
verki öryggissveita í borginni.
Íröksku öryggissveitirnar voru að
mestu skipaðar liðsmönnum úr
her Saddams Hussein enda með
„þekkingu og reynslu“ af hernaði.
Það var samið við fyrrverandi
hershöfðingja Saddams. Hers-
höfðingjarnir mættu til Fallujah í
gömlu einkennisbúningunum sín-
um sem þeir klæddust sem her-
foringjar Saddams. Þeim var vel
fagnað við komuna til Fallujah.
Í einkennisbúningi
Saddams Hussein
Rannveig Guðmundsdóttir
skrifar um Íraksstríðið
Rannveig
Guðmundsdóttir
’Við vorumgerð ábyrg fyrir
innrás og berum
því ábyrgð á öll-
um eftirleikn-
um.‘
Höfundur er þingmaður Samfylk-
ingarinnar í Suðvesturkjördæmi
og fulltrúi flokksins í utanríkis-
málanefnd.