Morgunblaðið - 07.05.2004, Blaðsíða 56
ÍÞRÓTTIR
56 FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRÍR Íslendingar taka þátt í Evr-
ópumótinu í taekwondo, sem hófst í
Lillehammer í Noregi í gærkvöldi.
Það eru Björn Þorleifsson úr Björk í
Hafnarfirði, Rut Sigurðardóttir úr
Þór á Akureyri og Auður Anna
Jónsdóttir úr Ármanni.
SAMKVÆMT venju er bandaríski
kylfingurinn Tiger Woods efstur á
heimslistanum í golfi sem er upp-
færður vikulega. Woods er með 12,96
stig. Fijibúinn Vijay Singh sækir
hart að Woods og er nú með 10,82
stig í öðru sæti. Ernie Els frá S-Afr-
íku er þriðji með 9,54 stig en Banda-
ríkjamaðurinn Davis Love III er í
fjórða sæti með 8,53 stig.
SIGURVEGARINN á Masters-
mótinu, Bandaríkjamaðurinn Phil
Mickelson er í fimmta sæti með 7,46
stig og Kanadamaðurinn Mike Weir
er í því sjötta. Næstu menn þar á eft-
ir eru: Jim Furyk, Bandaríkjunum,
6,21 stig, Padraig Harrington, Ír-
landi, 5,48 stig, Retief Goosen, S-Afr-
íku, 5,05 stig og Stuart Appleby,
Ástralíu, er tíundi með 5,02 stig.
WOODS verður í eldlínunni á golf-
móti sem fram fer í Wachovia í
Bandaríkjunum en mótið hófst í gær
og lýkur á sunnudag. Undanfarnar
þrjár vikur hefur Woods ekkert
keppt á PGA-mótaröðinni en hann
dvaldi m.a. í herstöð þar sem hann
stundaði heræfingar með föður sín-
um Earl Woods. Tiger segir við
bandaríska fjölmiðla að hann sé
ánægður með þær framfarir sem
hann hafi sýnt á æfingum að undan-
förnu en Woods hefur gert nokkrar
breytingar á sveiflunni. Á þessu móti
verða einnig Vijay Singh frá Fiji og
Bandaríkjamaðurinn Phil Mickelson.
ARSENE Wenger, knattspyrnu-
stjóri Arsenal, mun að öllum líkind-
um lána hinn unga sóknarleikmann
David Bentley til liðs í úrvalsdeild-
inni eða 1. deild næsta keppnistíma-
bil. Það mun hann gera til að Bentley
fái tækifæri til að leika meira og öðl-
ast reynslu.
COVENTRY hefur ráðið Peter
Reid sem knattspyrnustjóra. Reid
hefur verið atvinnulaus síðan hann
fór frá Leeds í nóvember en tekur nú
við af Eric Black.
SPÆNSK útvarpsstöð telur sig
hafa heimildir fyrir því að franski
landsliðsframherjinn David Treze-
guet muni leika með Barcelona í
spænsku deildinni á næstu leiktíð en
hann er samningsbundinn Juventus
á Ítalíu. Barcelona mun greiða um
1,1 milljarð kr. fyrir Trezeguet. Í
frétt útvarpsstöðvarinnar er sagt að
leikmaðurinn sé nú þegar búinn að
ganga frá samningi sínum.
Í MARS s.l. sagði AFP-fréttastofan
frá því að talsmaður Barcelona hefði
staðfest að félagið væri í viðræðum
við Juventus en á þeim tíma voru
launakröfur leikmannsins með þeim
hætti að Barcelona hafði ekki áhuga
á að semja.
FÓLK
Leikurinn var í járnum er sexmínútur voru eftir og staðan
80:78, heimamönnum í vil, en þá tók
Parker til sinna ráða og skoraði
fjögur stig í röð. „Það var engu lík-
ara en við hefðum ekki kraft til þess
að halda í við þá á lokakafla leiksins.
Síðustu fjórar mínútur leiksins voru
skelfilegar,“ sagði Phila Jackson.
Karl Malone var að vonum ekki
sáttur við leik sinna manna en hann
ásamt Gary Payton samdi við Lak-
ers sl. sumar í þeirri von að vinna
meistaratitil í fyrsta sinn á þeirra
ferli. „Okkur líður greinilega vel á
okkar heimavelli og vinnum næstu
tvo leiki þar, en það breytir því ekki
að við verðum að vinna einn leik í
San Antonio til þess að komast
áfram. Við gerum það ekki með
þessum hætti,“ sagði Malone sem er
rétt rúmlega fertugur að aldri. Tony
Parker sagði að hann hefði ákveðið
að reyna meira sjálfur í sókninni en
hann gaf 5 stoðsendingar í leiknum.
„Ég vil halda áfram að vinna leiki.
Félagar mínir í liðinu hvöttu mig til
þess að taka af skarið, hlutverka-
skiptingin er á hreinu í þessu liði og
ég hef áhuga á því að verja titilinn,
líkt og allir í þessu liði. Í þessum
leik var það mitt hlutverk að skora,
á morgun tekur einhver annar við
keflinu,“ sagði Parker. Tim Duncan
skoraði 24 stig fyrir Spurs en næsti
leikur liðanna fer fram á sunnudag í
Los Angeles.
Þar leika liðin tvívegis, en komi til
fimmta leiksins verður hann í San
Antonio, sá sjötti í Los Angeles og
oddaleikurinn fer fram í San Anton-
io.
Shaquille O’Neal skoraði 32 stig
en Kobe Bryant var með 15 stig og
hitti aðeins úr 7 af 17 skotum sínum
í leiknum. O’Neal sagði eftir leikinn
að Lakers þyrfti að finna leiðir til
þess að stöðva Parker sem virðist
geta farið framhjá hvaða varnar-
manni sem er þessa dagana. „Hann
er gríðarlega fljótur en við verðum
að tvídekka hann og láta hann gefa
boltann á aðra leikmenn. Fram til
þessa hefur hann gert það sem hann
hefur langað til að gera,“ sagði
O’Neal.
Reuters
Tony Parker, bakvörður San Antonio Spurs, er í miklum ham
gegn Los Angeles Lakers og Frakkinn virðist alltaf finna leiðir til
þess framhjá varnarmönnum Lakers sem eru að þessu sinni þrír
gegn einum, Shaquille O’Neal, Karl Malone og Gary Payton.
Parker er
óstöðvandi
MEISTARALIÐ NBA-deildarinnar, San Antonio Spurs, heldur sig-
urgöngu sinni áfram en í fyrrinótt lagði Spurs lið LA Lakers öðru
sinni í undanúrslitum Vesturstrandarinnar og hefur nú leikið 17
leiki í röð án þess að tapa. Franski bakvörðurinn Tony Parker fór á
kostum í liði Spurs en hann skoraði 30 stig í leiknum, þar af 8 í
fjórða og síðasta leikhluta.
STÓR hópur íslenskra handknatt-
leiksmanna verður í eldlínunni í
þýska handknattleiknum á næstu
leiktíð og ljóst að þeim fjölgar frá
því sem nú er. Eftirtaldir leika með
liðum þar á næsta keppnistímabili:
Guðjón Valur Sigurðsson leikur
áfram með Tusem Essen.
Jaliesky Garcia Padron hjá
Göppingen.
Snorri Steinn Guðjónsson verður
áfram hjá TV Grosswallstadt og
Einar Hólmgeirsson kemur til fé-
lagsins í sumar.
Guðmundur Hrafnkelsson verð-
ur áfram hjá Kronau/Östringen, á
eitt ár eftir af samningi sínum.
Logi Geirsson gengur til liðs við
Lemgo í sumar.
Alfreð Gíslason verður áfram
þjálfari SC Magdeburg, Sigfús Sig-
urðsson leikur áfram með því og
Arnór Atlason gengur til liðs við
það í sumar.
Patrekur Jóhannesson skrifaði
undir þriggja ára samning við
GWD Minden í gær og gengur til
liðs við félagið í sumar eftir eitt ár
hjá Bidasoa á Spáni. Patrekur var
áður í sex ár hjá Tusem Essen.
Einar Örn Jónsson verður áfram
í herbúðum Wallau Massenheim, á
eitt ár eftir af samningi sínum.
Gunnar Berg Viktorsson og Ró-
bert Sighvatsson leika áfram með
D/M Wetzlar.
Gylfi Gylfason hefur nýlega
framlengt samning sinn við Wil-
helmshavener HV til tveggja ára.
Alexander Petersson leikur
áfram með HSG Düsseldorf sem
verða nýliðar í 1. deild á næstu
leiktíð. Þá gengur Markús Máni
Michaelsson til liðs við félagið í
sumar.
Einar Logi Friðjónsson hefur
gert samning við TSG Friesenheim
í suðurhluta þýsku 2. deildarinnar
og gengur til liðs við félagið 1. júlí.
Arnar Geirsson leikur áfram
með TV Gelnhausen í suðurhluta 2.
deildar.
Aðalsteinn Eyjólfsson tekur við
þjálfun TuS Weibern sem leikur í 1.
deild kvenna í sumar. Líkur eru
fyrir því að Sólveig Lára Kjærne-
sted og Jóna Margrét Ragn-
arsdóttir gangi til liðs við félagið.
Samningaviðræður standa yfir.
Dagný Skúladóttir lék með TV
Lützellinden í vetur. Félagið er nú
gjaldþrota og leitar Dagný að
samningi við annað félag. Líklegt
er að hún leiki áfram í Þýskalandi.
Dagný er sambýliskona Gunnars
Berg hjá D/M Wetzlar.
Julian Róbert Duranona hefur
leikið 3. deildarliðinu TSV Burg-
dorf á keppnistímabilinu en fram-
haldið er óvíst.
Bætast fleiri í hópinn?
Svo kann að fara að fleiri bætist í
ofangreindan hóp. Lemgo og TuS
Nettelstedt-Lübbecke hafa borið ví-
urnar í Ásgeir Örn Hallgrímsson.
Þá hefur verið orðrómur í gangi
um að línumennirnir Fannar Þor-
björnsson og Vignir Svavarsson
séu undir smásjá forráðamanna
Nordhorn.
Stelmokas fer líka
Andrius Stelmokas sem leikið
hefur hér á landi undanfarin ár,
fyrst með Þór og síðan lengst af
með KA, gengur til liðs við Göpp-
ingen. Hann er hafður hér með þótt
hann sé ekki Íslendingur þar sem
hann hefur sett mikinn svip á hand-
knattleikinn hér heima síðustu ár.
Tveir á heimleið
Flest bendir til þess að Rúnar
Sigtryggsson flytji heim frá Þýska-
landi í sumar. Samningur hans við
Wallau Massenheim rennur út í lok
maí og Rúnar fær hann ekki end-
urnýjaðan og ekki heldur náð
samningi við annað félag ytra.
Halldór Jóhann Sigfússon virðist
líka vera á heimleið eftir tveggja
ára veru hjá TSG Friesenheim í
suðurhluta 2. deildarinnar.
Íslendingar í
Þýskalandi
næsta vetur
PIERRE Svara, forseti Mónakó, segir að
Didier Deschamps hafi unnið frábært starf
með liðið og það sé búið að bjóða honum
nýjan þriggja ára samning, en núverandi
samningur Deschamps rennur út sumarið
2005. Þessi fyrrverandi fyrirliði heims-
meistaraliðs Frakka 1998 og sigursæli
leikmaður, er mjög jarðbundinn eftir að
Mónakó tryggði sér rétt til að leika gegn
Portúgal í úrslitaleik Meistaradeildar Evr-
ópu í Gelsenkirken í Þýskalandi 26. maí.
Hann sagði í gær í viðtali við franska blað-
ið L’Equipe að auðvitað væru möguleikar
á sigri fyrir hendi, en Porto væri óneit-
anlega sigurstranglegra liðið. „Leikmenn
Porto hafa miklu meiri reynslu en mínir
menn og þeir fögnuðu sigri í UEFA-
bikarkeppninni í Sevilla í fyrra. En við eig-
um möguleika og reyndum hvað við get-
um til að nýta okkur þá og fagna sigri,“
sagði Deschamps.
Jose Mourinho, þjálfari Porto, var á
meðal áhorfenda á Stamford Bridge.
Hann sagði að lið Mónakó hefði verið
skipulagðara en Chelsea, haft yfir meiri
tækni að ráða og betri einstaklingum.
„Betra liðið komst áfram. Mónakó byrjaði
illa og allt leit út fyrir að Chelsea væri á
leið í úrslitaleikinn. En þá komust leik-
menn Mónakó inn í leikinn og Morientes
var frábær. Leikmenn Mónakó leika mjög
vel, án knattarins og með,“ sagði Mour-
inho, sem vildi frekar fá Chelsea í úrslita-
leikinn. „Ástæðan fyrir því er að stuðn-
ingsmenn Chelsea hefðu sett miklu meiri
svip á leikinn en stuðningsmenn Mónakó.“Deschamps
Didier Deschamps segir að
Porto sé sigurstranglegra liðið