Morgunblaðið - 07.05.2004, Page 57

Morgunblaðið - 07.05.2004, Page 57
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 7. MAÍ 2004 57 Snorri hefur stimplað sig meðglæsibrag inn í þýsku 1. deild- ina en hann gekk í raðir Grosswall- stadt frá Val síðast- liðið sumar og hefur staðið sig afar vel í hlutverki leikstjórn- anda í sterkustu deild í heimi. Snorri hefur byrjað inná í öllum leikjum Grosswallstadt á leiktíðinni og er næst markahæsti leikmaður liðsins með 118 mörk í 32 leikjum og aðeins þýski landsliðs- maðurinn Heiko Grimm hefur skor- að fleiri, 143. En nú þegar fyrsta tímabili Snorra í Þýskalandi er að ljúka leikur manni forvitni á að vita hvernig honum hafi líkað og breyt- inguna að spila í þessari sterku deild? „Mér hefur líkað mjög vel og þetta er nánast allt annar heimur ef ég ber þetta saman við heima. Tíma- bilið hefur verið mér gríðarlega lær- dómsríkt. Maður hleypur nánast á vegg um hverja helgi og ég er að upplifa, þegar ég spila með Gross- wallstadt, svipað og þegar ég spilaði með Val hérna um árið á móti KA í úrslitaleikjunum um Íslandsmeist- aratitilinn. Í hverjum leik þarf ég að að ná fram mínu besta ef ég ætla að standa mig. Ég get ekki leyft mér að ætla að leika á hálfum hraða. Ef ég legg mig ekki 100% fram allan tím- ann þá er ég bara lélegur.“ Spilað meira en ég bjóst við Snorri segist ekki hafa reiknað með að fá að spila jafnmikið og hann hefur gert á tímabilinu? „Ég er bú- inn að spila miklu meira heldur en ég átti von á enda á fyrsta árinu mínu hérna úti. Ég hef byrjað inná í hverjum einasta leik og svo fram- arlega sem ég stend mig þá er mér ekki skipt út af. Ég get því alveg verið sáttur við tímabilið þó svo að maður vilji alltaf gera betur.“ Grosswallstadt er í áttunda sæti og kemst ekki ofar en Snorri segir að árangur liðsins á tímabilinu sé betri en margir reiknuðu með. „Það reiknuðu sumir með að við yrðum í fallbaráttu. Við fengum marga nýja menn fyrir tímabilið og fyrir vikið vorum við töluvert óskrif- að blað en þetta hefur bara gengið ágætlega hjá okkur og það er umtal- að að við höfum komið á óvart.“ Snorri segist hlakka til að fá Ein- ar Hólmgeirsson til liðs við Gross- wallstadt í sumar en stórskyttan unga úr ÍR gerði í vetur tveggja ára samning við lið Snorra. „Það er mikill hugur í forráða- mönnum Grosswallstadt og þeir vilja komast ofar á næsta tímabili og berjast um að komast í Evrópu- keppnina. Grosswallstadt er forn- frægt lið og maður finnur fyrir mikl- um metnaði í röðum félagsins. Það verður gaman að fá Einar hingað og einn Íslendinginn til viðbótar í deild- ina.“ Snorri fær lítið sem ekkert frí eft- ir tímabilið í Þýskalandi. Þá tekur landsliðið við en það keppir við Ítali síðar í mánuðinum um sæti í á HM í Túnis á næsta ári og í kjölfarið hefst undirbúningur fyrir Ólympíuleik- ana. „Það eru annir fram undan hjá landsliðinu og það er bara mjög gaman. Það er alltaf mikið stuð að æfa og spila með landsliðinu og auð- vitað er mikill hugur í okkur enda stór verkefni fram undan.“ Morgunblaðið/Günter Schröder Snorri Steinn Guðjónsson er hér í leik með TV Grosswallstadt. Guðmundur Hilmarsson skrifar Snorri Steinn Guðjónsson, landsliðsmaður í handknattleik, ánægður með fyrsta tímabil sitt með Grosswallstadt í Þýskalandi „Ég hleyp á vegg um hverja helgi“ „ÞETTA eru sem betur fer ekki alvarleg meiðsli. Ég kom illa niður á mjöðmina og þetta leit, satt best að segja, ekki vel út. Ég er mjög aumur í mjöðminni en það eru tíu dagar í næsta leik svo ég fæ góð- an tíma til að jafna mig,“ sagði landsliðsmaðurinn Snorri Steinn Guðjónsson, leikmaður þýska liðsins Grosswallstadt, við Morg- unblaðið. Snorri meiddist undir lok leiksins gegn Wallau Massen- heim í fyrrakvöld, eftir viðskipti við félaga sinn í landsliðinu, Rúnar Sigtryggsson. SASA Komlenic, bosníski knattspyrnumarkvörðurinn sem hefur verið í herbúðum Keflvíkinga síðustu þrjár vik- urnar, verður að öllu óbreyttu ekki með liðinu í sumar. „Þetta er ágætismarkvörður og við hefðum vel getað notað hann. Ólafur Gottskálksson hefur hins vegar staðið sig mjög vel og verður að öllu óbreyttu í markinu hjá okk- ur í sumar. Auk þess hefur Magnús Þormar leikið vel með okkur þannig að við erum vel settir hvað markverði varð- ar. Ef önnur íslensk lið hafa áhuga á Komlenic er þeim velkomið að setja sig í samband við okkur,“ sagði Rúnar Arnarson, formaður knattspyrnudeildar Keflavíkur, við Morgunblaðið í gær. Rúnar sagði ennfremur að ekki hefði borist formlegt tilboð frá Zürich í Sviss í Harald Frey Guðmundsson, að- eins munnlegt, og á meðan svo væri yrði því ekki svarað. „Haraldur er væntanlegur heim í lokaundirbúninginn með okkur fyrir Íslandsmótið og svo kemur framhaldið í ljós hjá honum,“ sagði Rúnar. Komlenic ekki í marki Keflavíkur ÞÓRA B. Helgadóttir, landsliðsmarkvörður í knatt- spyrnu, hefur ákveðið að taka boði norska félagsins Kolbotn og fara þangað síðar í þessum mánuði – eftir landsleik Englands og Íslands í Peterborough hinn 14. maí. Kolbotn bauð Þóru til sín fyrir nokkru en hún hefur ákveðið að reyna fyrir sér erlendis, eins og áður hefur komið fram. „Ég reikna með því að koma heim í nokkra daga eftir landsleikinn í Englandi en fara síðan til Kolbotn og líta þar á aðstæður. Annars hef ég lítinn tíma haft til að vinna í öllum þessum málum að undanförnu,“ sagði Þóra við Morgunblaðið í gær en hún útskrifast frá háskóla í Bandaríkjunum um næstu helgi og er þá á heimleið. Þóra hefur leikið með KR undanfarin tvö ár. KR hefur fengið til sín tvo markverði í staðinn fyrir hana, Maríu B. Ágústsdóttur, varamarkvörð landsliðsins, frá Stjörnunni og Petru F. Bragadóttur frá ÍBV. Þóra til Kolbotn eftir landsleikinn Þrjár þjóðir keppa um EM 2006 og 2008 ÞRJÁR þjóðir keppast um að fá að halda Evrópumeistaramótið í handknattleik karla árið 2006 og 2008. Þetta eru Danir, Norðmenn og Svisslendingar. Ákveðið verður hvar þessi mót verða haldin á þingi Handknatt- leikssambands Evrópu sem fram fer á Nikósíu á Kýpur um helgina. Til stóð að Þjóðverjar yrðu gestgjafar EM 2006 en eftir að þeim var úthlutað HM 2007 ákváðu Þjóðverjar að gefa mótshald EM 2006 upp á bátinn. Auk þess að sækja um að halda EM karla 2006 og 2008 stefna Dan- ir einnig á að fá annað EM kvenna annað hvort árið, en gríðarlegur áhugi er fyrir kvennahandknattleik í Danmörku auk þess sem móta- hald og framkvæmd EM 2002 í kvennahandknattleik tókst vel hjá Dönum. Til stendur að EM 2006 fari fram frá 26. janúar til 5. febrúar. Dan- ir bjóða eftirtalda keppnisstaði; Árósar, Álaborg, Farum, Kolding og Herning. Norðmenn bjóða upp á Þrándheim, Drammen, Stavangur, Bergen og Lillehammer og Sviss uppá Basel, Bern, St. Gallen, Sursee og Zürich. Ráðgert er að EM 2008 í karlahandknattleik standi yfir frá 17. til 27. janúar.  DANÍEL Þór Midgeley, sem er á sextánda ári, varð á dögunum meist- ari í körfuknattleik með skóla sínum í Kanada þar sem hann býr. Daníel Þór er frá Ísafirði og varð Ný- fundnalands- og Labradormeistari með Booth Memorial skólanum sem hann gengur í. Drengirnir sem keppa í þessari deild eru 17 ára og eldri og keppir pilturinn því upp fyr- ir sig í aldursflokki.  STEFÁN Logi Magnússon knatt- spyrnumarkvörður er genginn til liðs við 1. deildar lið Þróttar í Reykjavík. Stefán Logi var í herbúð- um Víkinga um skeið í fyrra en hætti. Áður var hann víða erlendis, lék m.a. með unglingaliði Bayern München og var síðan hjá Öster í Svíþjóð, Farum í Danmörku og Bradford í Englandi.  HOLLENSKUR umboðsmaður Hen Van Ginkel segir við netmið- ilinn calciomercato.com að hollenski landsliðsmaðurinn Jaap Stam verði leikmaður ítalska meistaraliðsins AC Milan á næstu leiktíð.  STAM er í herbúðum Lazio og hef- ur verið þar frá því að hann var keyptur frá enska liðinu Manchester United. „Það er búið að ganga frá tveggja ára samingi við leikmanninn og félögin hafa komist að samkomu- lagi,“segir Ginkel en Lazio hefur átt í gríðarlegum fjárhagserfiðleikum undanfarin ár og félagið hefur ákveðið að selja Stam í stað þess að hann fari frá félaginu á næsta ári án þess að Lazio fái greitt fyrir leik- manninn.  STAM vakti fyrst athygli sem leik- maður PSV í heimalandi sínu en hann fór til Manchester United árið 1998 þar sem hann vann m.a. Meist- aradeildina árið 1999 en hann átti síðan í útistöðum við Alex Ferguson knattspyrnustjóra liðsins og var seldur til Lazio árið 2001.  JACKSON Ricdardson, hand- knattleiksmaður kunni, verður fána- beri Frakka við setningarathöfn Ól- ympíuleikana í Aþenu í sumar. Ridhardson á að baki 383 landsleiki fyrir Frakka og er orðinn 35 ára gamall. Hann hyggst hætta að leika með franska landsliðinu eftir Ólymp- íuleikanna.  JERMAIN Defoe, miðherji Tott- enham, segir að forráðamenn liðsins eigi að ræða við Claudio Ranieri, knattspyrnustjóra Chelsea, ef þeir vilja fá góðan starfskraft á White Hart Lane. Þetta sagði hann í gær í útvarpsviðtali við BBC í London. „Það er hreint ótrúlegt að hann sé á förum frá Chelsea, hann er góður knattspyrnustjóri, sem hefur gert góða hluti hjá Chelsea, en þar hafa menn á bæ vegið ódrengilega að hon- um. Ef Tottenham fengi Ranieri yrði það frábært fyrir liðið þar sem hann er frábær knattspyrnustjóri,“ sagði Defoe sem er framtíðarleikmaður með enska landsliðinu. FÓLK GUÐJÓN Valur Sigurðsson, lands- liðsmaður í handknattleik, þarf að gangast undir aðgerð á fæti en hef- ur frestað henni um óákveðinn tíma. Essen, félag hans í Þýska- landi, vildi ekki að hann færi í hana strax og sleppti þremur síðustu um- ferðunum í þýsku 1. deildinni, eins og hann óskaði eftir. Í framhaldi af því ákvað Guðjón Valur að fara ekki í hana fyrr en í fyrsta lagi í haust, eftir Ólympíuleikana í Aþenu. „Þetta er ekki stórmál og truflar mig ekkert, og læknarnir segja að aðgerðin megi bíða. Æð í fætinum tútnar út við álag, æðalokurnar stöðva ekki blóðflæðið eins og þær eiga að gera, en þetta skiptir engu máli varðandi mín hlaup, stökk eða hraða. Ég vildi ekki missa af leikj- unum við Ítalíu í undankeppni HM í vor, og ekki fórna mínu stutta sumarfríi í þetta, en svona aðgerð kallar á 10-14 daga hvíld,“ sagði Guðjón Valur við Morgunblaðið í gær. Guðjón frestaði aðgerð

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.