Morgunblaðið - 09.05.2004, Side 35
sitthvað sé skylt með ljósmynd og
málverki, þá er eitt að fanga andrána
og núverundina með linsuopinu, ann-
að að hantéra málaragræjurnar.
Þannig blasa náttúruleg litbrigði við-
fanganna við ljósmyndaranum en
vinnuferli málarans er að nálgast
þau með skynjunum sínum og/eða
vitsmunum.
Föngin sem Björg Atla hefur helst
valið í farteskið, er að nálgast hverju
sinni viðföng sín með skynfærunum,
nefnir sjálf grunnstefið réttilega;
bergmál tilfinninga og skynjunar.
Vinnuferlið svo að mála á strigann
flatan og gljúpan á gólfinu, strekkir
hann svo á blindrammann, heldur
loks áfram átökunum, nú á lokaðan
og rétt afmarkaðan grunnflötinn.
Þannig bæði um þróaðar og meðvit-
aðar tilviljanir að ræða, óformleg og
þarnæst formleg átök við línu form
og liti. Á stundum gefur Björg sköp-
unargleðinni lausan tauminn í þá
veru að úr verða eins konar spreng-
ingar á litfletinum, en í annan tíma
virðist hún nálgast viðfangið hægt og
hljótt, fara varfærnislega að lag-
skiptum gagnsæjum litunum og
skýrt mörkuðum formunum. Eins og
gefur að skilja er útkoman lausari á
reipunum í fyrra fallinu, litirnir ná
ekki jafnaðarlega að samasamast
öðrum þáttum útfærslunnar, heitir
að fanga dýpri lífæðar myndflatar-
ins. Hins vegar verður útkoman
snöggtum heillegri þegar hinn hægi
stígandi, náttúrulegi og gagnsæi
bylgjutitringur breiðir óhindrað úr
sér yfir allan flötinn með áherslu á
efniskennd og ljósmagn litanna. Vísa
hér einkum til mynda nr. 2, 6, 13, 32
og 33, en sleppi löngum og skáldleg-
um nöfnum, þótt þau kunni að fara
vel við hverju sinni. Hér allt í senn
málað blautt í blautt á grunnflötinn,
yfirborð sem sogar litinn til sín,
flæðir um það þvert og endilangt og
skilur eftir sig fjölþætt brigði meira
og minna tilviljunarkenndra forma
sem gerandinn þó beislar á einn og
annan hátt. Björg Atla hefur þegar
mótað sér persónuleg stílbrögð en
virðist stundum fara nokkuð hratt
yfir þegar hún málar, slík vinnu-
brögð eru þó ekki með öllu forkast-
anleg svo vísað til helstu nýbylgj-
umálara níunda áratugsins, en sumir
þeirra rubbuðu upp heilu sýningun-
um á nokkrum dögum þá eftirspurn-
in var mest. Held þó að styrkur
Bjargar liggi í samfelldum og yfir-
veguðum vinnubrögðum og að bein-
ast liggi við að beisla birtuna og létt-
leikann enn frekar og samsama
markaðri útfærslu. Að öllu saman-
lögðu er þó óhætt að slá föstu að
þetta sé langsterkasta framlag lista-
konunnar á sýningavettvangi til
þessa.
Bragi Ásgeirsson
Rafn Hafnfjörð: Af smáheimi íslenzkra náttúruskapa.
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 35
Frá Læknadeild Háskóla Íslands
Inntökupróf í læknadeild Háskóla Íslands fyrir nám í læknisfræði
og sjúkraþjálfun verður haldið í Reykjavík dagana 21. og 22.
júní 2004. Staður og stund verða tilkynnt próftakendum eftir
að skráningu er lokið.
Þátttakendur þurfa að skrá sig til inntökuprófsins fyrir 5. júní
2004. Skráning er undir umsjón Nemendaskrá Háskóla Íslands
og er skráningareyðublað að finna á netinu www.hi.is/stjorn/
nemskra/umsoknareydublod.html og á skrifstofu Nemendaskrár.
Inntökuprófið er eitt próf sem tekur tvo daga, með þremur
tveggja tíma próflotum hvorn daginn, eða 12 klst. alls.
Niðurstaða prófsins birtist í einni einkunn sem verður reiknuð
með tveimur aukastöfum. Reiknað er með að niðurstaða liggi
fyrir ekki síðar en um miðjan júlí.
Árið 2004 fá 48 nemendur í læknisfræði og 20 í sjúkraþjálfun
rétt til náms í læknadeild Háskóla Íslands og skulu þeir hafa
skráð sig hjá Nemendaskrá fyrir 20. ágúst. Þeir sem ekki öðlast
rétt til náms í læknadeild, eiga þess kost að skrásetja sig, innan
sömu tímamarka, í aðrar deildir gegn greiðslu
skrásetningargjalds skv. reglum Háskóla Íslands.
Nánari upplýsingar um inntökuprófið og dæmi um
prófspurningar má finna á heimasíðu læknadeildar Háskóla
Íslands www.hi.is/nam/laek.
INNTÖKUPRÓF Í LÆKNADEILD HÍ
SJÚKRAÞJÁLFUNARSKOR OG LÆKNISFRÆÐISKOR
w
w
w
.d
es
ig
n.
is
@
2
00
4
Fákafeni 11 • 562 9120
Munum
mæ›radaginn
Blóm og konfekt
Dalía