Morgunblaðið - 09.05.2004, Síða 39
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 9. MAÍ 2004 39
irgefið vinnustaðinn, án þess að
viðskiptavinur hefði fengið af-
greiðslu. Sálfræðihernaður skatt-
stjóra gekk ekki upp í þetta skipti,
þar sem hann hafði ekki við nein
rök að styðjast, auk þess sem hann
fór ekki eftir einföldum máls-
meðferðarreglum þegar svona mál
eiga sér stað. Jens formanni SFR
var tilkynnt um þetta samdægurs,
en hann sá ekki ástæðu til að
bregðast við þessu, þrátt fyrir að
svona mál séu undanfari brottvikn-
ingar úr starfi.
Fyrir hvað stendur
stéttarfélagið?
Á forsíðu á heimasíðu SFR kemur
fram:
,,Tilgangur félagsins er að vera í
forsvari fyrir einstaklinga við gerð
kjarasamninga og vinna að öðrum
hagsmunamálum, vernda réttindi
félaganna og beita sér gegn hvers
konar misrétti í launagreiðslum og
starfskjörum.“
Samkvæmt ofangreindum texta,
er yfirlýst markmið félagsins að
standa með sínum félagsmanni í
launa- og starfskjarabaráttu hans
við sinn atvinnurekanda, þ.e. ríkið.
Einhver hefði talið það misrétti að
verða fyrir 30% kjaraskerðingu á
einni nóttu.
Ég held ég getið slegið því
föstu, að meginþorri þeirra u.þ.b.
5.000 félagsmanna SFR, sem
greiða á milli 110 og 120 milljónir í
félagsgjöld á ári, vill ekki hafa
hlutina með þessum hætti.
Það hlýtur að teljast ámælisvert
þegar stjórn stéttarfélags stendur
ekki við samþykktir sínar. Maður
hélt í einfeldni sinni að stjórn fé-
lagsins væri bundin samþykktum
sínum.
Stéttarfélagið tók þá ákvörðun
að ekki var látið reyna á þennan
svokallaða stjórnunarrétt atvinnu-
rekandans skv. 19. gr. starfs-
mannalaganna þ.e. hvar sá réttur
byrjar og hvar hann endar. Um-
boðsmaður (og héraðsdómarinn
hefur tekið undir það) hefur að
vísu komið fram með þá heima-
tilbúnu reglu sem gengur út á það
að ef starf er starfsmanni sam-
boðið, þá sé í lagi að flytja hann til
í starfi án nokkurs samráðs við
hann. Hins vegar hefur enginn
getað sagt hvar eigi að draga
þessa línu. Enginn rökstuðningur
liggur fyrir hvar þessi viðmið-
unarmörk liggja. Stéttarfélagið
kærir sig kollótt um það, að fá úr
því skorið fyrir fjölskipuðum dómi
hver almennur vinnuréttur starfs-
manns er á vinnustað. Með því að
hafna áfrýjun er stéttarfélagið að
samþykkja það, að ríkið geti notað
þá aðferð að losa sig við starfs-
menn með því að færa þá til í
hvaða störf sem er og lækka við
þá launin. Með því að hafna áfrýj-
un, fæst heldur ekki úr því skorið
hvort stjórnunarréttur heldur í
þessu máli. Þegar lögin voru sett á
sínum tíma, var ætlunin að færa
þessi mál í það horf sem er á hin-
um almenna markaði.
Hallarbyltingin og
útskiptareglan
Það muna eflaust margir fé-
lagsmenn SFR vel eftir því hvern-
ig aðdragandinn var, þegar sitj-
andi stjórn Einars Ólafssonar,
þáverandi formanns SFR um 1990,
var velt og ný stjórn tók við undir
forystu Sigríðar Kristinsdóttur og
Jens Andréssonar sem varafor-
manns. Í þeirri stjórn sem tók við
var lögum breytt varðandi stjórn-
arsetu, og teknar upp s.k. út-
skiptareglur, þar sem þær tak-
mörkuðu setu manna í stjórn við
ákveðinn árafjölda. Ærið tilefni
þótti til breytinganna, þar sem
slæm reynsla var af þaulsetinni
stjórnarmennsku þeirra á undan.
En blekið var vart þornað, þegar
núverandi formaður, Jens Andr-
ésson, sá að hann átti ekki langt
eftir í formannssæti, að hann beitti
sér fyrir að breyta lögunum svo að
hann gæti setið lengur
Framtíð SFR
Í seinni tíð hafa stéttarfélög í rík-
isgeiranum átt á brattann að
sækja, þar sem núverandi stjórn-
völd hafa jafnt og þétt verið að
skerða áunnin réttindi þeirra.
Núna hyggjast stjórnvöld afnema
áminningarferlið. Það er því tíma-
bært nú að íhuga hver eiga að
vera helstu stefnumál stétt-
arfélagsins SFR. Ætlum við að
reka öflugt, lýðræðislegt stétt-
arfélag, sem beitir sér gegn hvers
konar misrétti félagsmanna sinna
og er reiðubúið að standa sem
traustur bakhjarl í réttindamálum
þeirra eða á félagið bara að vera
starfsmannafélag eins og á vinnu-
stað, sem skipuleggur árshátíðir
og sumarleyfisdvalir?
Höfundur er skrifstofustjóri
hjúkrunar á barnasviði LSH og
fyrrverandi stjórnarmaður í SFR.
Bankastræti 3
sími 551 3635
www.stella.is
eru
líka fyrir
karlmenn
SNYRTIVÖRUR
Grunnskólanemendur
NÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir vorprófin
Innritun í s. 557 9233 kl. 17-19 og á www.namsadstod.is
Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd