Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 27 - SPENNANDI VALKOSTUR Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000 www.terranova.is Akureyri, sími 461 1099 París Helgarferð 24. júní frá kr. 39.960 Ein rómantískasta borg Evrópu, áfangastaður elskenda á öllum aldri. París er líka borg nýjunga, einstakra listviðburða og skemmtana. París höfðar til listunnenda og allra þeirra sem hafa áhuga á tísku, hönnun byggingarlist og góðum mat. Frá kr. 39.960 4 dagar/3 nætur. M.v. tvo í herb. á Villa du Maine, flug og flugvallarskattar. Terra Nova bíður upp á úrval hótela í París, meðal annara: Villa du Maine** í 14. hverfinu, Hotel Jardin d´Eiffel*** í 7. hverfinu, Hotel Villa Lutéce**** í 13. hverfinu og Íbúðarhótelið Champs de Mars í 15. hverfinu. kvarða, þótt það ætti enn fyrir sér að vaxa. Upp úr styrjaldarlokum áttum við 11 skip, togarana „Egil Skalla- grímsson“, „Skallagrím“, „Snorra goða“ og „Snorra Sturluson“, fimm vélbáta allstóra, „Gissura hvíta“, „Geir goða“, „Þóri“, „Högna“ og „Ölvi“. Þá voru flutningaskipin „Hug- inn“ og „Muninn“. Kveldúlfur var um tíma áreiðan- lega stærsta fiskútflutningsfirma í heimi, af þeim sem ráku verzlun fyrir eigin reikning.“ Ólafur Ingvar Guðmundsson Torvelt reynist að fá traustar og haldgóðar upplýsingar um áhafnir seglskipanna sem hér koma við sögu, „mótorskonnortur“ eru skipin kölluð. Í siglingu þeirri sem hér er nefnd er ekki ljóst hvort Ólafur Ingvar Guð- mundsson er skipstjóri eða stýrimað- ur. Í sumum heimildum er Sigurður Jónsson skráður skipstjóri. Skips- hafnaskrár eru misvísandi og ber ekki saman. Úr því má þó bæta síðar með upplýsingum ættmenna. - - - - - Ólafur Ingvar Guðmundsson var einn af mörgum vöskum Vesturbæ- ingum, sem stunduðu sjóinn og lögðu í langför, og leitaði fjarlægra voga. Hann vann húsbændum sínum af trú- mennsku. Bjó með Guðrúnu konu sinni og mannvænlegum börnum á Framnesvegi í reisulegu steinhúsi þar. Ljósmynd sú sem hér birtist af skipshöfn Hugins er fengin að láni hjá Fjólu, dóttur Ólafs, en hún er tengda- dóttir Péturs Halldórssonar borgar- stjóra Hún er ekkja Björns bóksala Péturssonar. Huginn flutti saltfarm frá Spáni til Reykjavíkur. Mér er ekki kunnugt hvort Ólafur hefir haft með sér appelsínur frá Spáni þegar hann kom heim eftir langa útivist. Víst væri það fróðlegt rannsóknarefni fyrir unga fræðimenn að hyggja að því hvort þess hefði ver- ið nokkur kostur að semja um ávaxta- innflutning í skiptum fyrir saltfiskinn, sem Íslendingar seldu fyrir „sher- ryræfil“ eins og Thorolf Smith hefði sagt. Þau urðu örlög Ólafs að hann hlaut vota gröf. Drukknaði er hann var að starfi í þjónustu vinnuveitanda síns, Kveldúlfs. Meðal skipsfélaga Ólafs Ingvars í Spánarferðinni voru meðal annarra Ragnar Guðlaugsson bryti. Hann var mágur Vilhjálms frá Skáholti og Sig- urðar blómasala, afi Ástu Ragnheiðar alþingiskonu. Ragnar var um skeið bryti á Gullfossi. Hann rak einnig Hressingarskálann við Austurstræti. Var fulltrúi í nefndum veitingamanna. Högni Högnason háseti, síðar vita- vörður um langt skeið. Synir hans voru Anton, Kristján og Högni, allir leigubílstjórar í Reykjavík. Högni var sókndjarfur baráttumaður í flokki sjómanna. Guðmundur Hallvarðsson, forvígismaður sjómanna, heiðraði Högna og félaga hans fyrir vasklega framgöngu í Blöndahls-slagnum svo- nefnda. Heill sjómönnum á sjómannadegi. Minnumst einnig framtaksmanna. Skipshöfnin á seglskipinu Hugin í höfn á Spáni. Ólafur Ingvar Guðmundsson skipstjóri, Ragnar Guðlaugsson bryti. Hann var um tíma bryti á Gullfossi. Rak lengi ýmsa veitingastaði í Reykjavík. Högni Högnason, síðar vita- vörður. Ættingjar ættu að þekkja aðra skipverja. Óðinn ríður Sleipni hinum áttfætta. Með honum fljúga hrafnar hans, Huginn og Muninn. Málverk norska málarans Gerhard Munthe. Thor Jensen dáði íslenskar fornsögur. Hann vottaði þeim virðingu sína með því að nefna skip sín flest sögufrægum nöfnum. Hrafnarnir Huginn og Muninn fluttu Óðni fréttir. Þeir voru vísdómsfuglar hans og einkennistákn. Huginn. Kveldúlfur keypti skipið í ársbyrjun 1917 í Banda- ríkjunum. Skipið flutti saltfisk til Spánar og annarra Mið- jarðarhafslanda. Skipstjóri í ferðinni sem frá er sagt var Ólafur Ingvar Guðmundsson. Hugin rak upp í Rauðarárvík í Reykjavík og eyðilagðist þar árið 1923. Muninn. Kveldúlfur keypti skipið um leið og það eignaðist Hugin. Muninn var hraðskreitt skip. Var aðallega í saltfisk- flutningum til Spánar. Gísli Eyland var skipstjóri um skeið. Hann var einnig skipstjóri á seglskipinu Hugin stuttan tíma. Höfundur er þulur. Fréttir í tölvupósti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.