Morgunblaðið - 06.06.2004, Qupperneq 33

Morgunblaðið - 06.06.2004, Qupperneq 33
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 33 getur vel verið að það geti verið fagnaðarefni fyrir Össur Skarphéðinsson, Steingrím J. Sig- fússon og Guðjón Arnar Kristjánsson, að forseti Íslands gangi til liðs við þá á þessari stundu í baráttu þeirra gegn núverandi ríkisstjórn. En það er hægt að ætlast til þess af forystumönn- um stjórnmálaflokka, að þeir geri sér grein fyrir því að það kemur dagur eftir þennan dag og það kemur forseti eftir Ólaf Ragnar Grímsson. Þeir geta átt eftir að komast í ríkisstjórn og þeir geta átt eftir að upplifa að annar forseti, sem hefur aðrar stjórnmálaskoðanir en þeir – því að Ólafur Ragnar er skoðanabróðir þeirra Össurar og Steingríms J. í stjórnmálum og fyrrverandi samherji og flokksbróðir – nýti sér það for- dæmi, sem Ólafur Ragnar hefur skapað og blandi sér í stjórnmáladeilur líðandi stundar á þann veg, sem þeim fellur ekki. Þess vegna er óhjákvæmilegt að þingmenn komi sér saman um endurskoðun stjórnarskrár- innar. Meginverkefni í slíkri endurskoðun er að fella niður tvö stjórnarskrárákvæði. Annað er 26. greinin og hitt er ákvæðið, sem heimilar rík- isstjórnum að setja bráðabirgðalög. Síðarnefnda ákvæðið gat átt við, þegar samgöngur voru erf- iðar en ekki lengur. Nú er hægt að kalla þing saman með örfárra daga fyrirvara. Inn í nýja stjórnarskrá þurfa að koma ákvæði um að sam- eiginlegar auðlindir þjóðarinnar séu sameign hennar. Slíkt ákvæði er nú í lögum varðandi fiskimiðin en sjálfsagt er að stjórnarskrárbinda það lagaákvæði og þá á þann veg, að það nái til allra sameiginlegra auðlinda. Að öðru leyti þarf að skýra stöðu forseta Ís- lands í stjórnarskránni og taka af allan vafa um hvert hlutverk hans er. Slíkar stjórnarskrár- breytingar þurfa ekki að verða neitt sérstakt deiluefni. Það hefur aldrei verið uppi sú skoðun á Íslandi, að forseti Íslands eigi að hafa eitt- hvert sérstakt vald umfram það, sem í því felst að vera þjóðkjörinn þjóðhöfðingi, sem gegnir því hlutverki að vera sameiningartákn þjóðarinnar og koma fram fyrir hennar hönd inn á við og út á við. Vonandi tekst stjórnmálamönnunum að hefja sig upp yfir dægurþras og sameinast um þessar breytingar. Um hvað snúast þessar deilur Það er svo alvarlegt umhugsunarefni um hvað þær deilur snú- ast, sem hafa staðið hér undanfarnar vikur og mánuði. Tilefni þeirra er að ríkisstjórnin leggur fram frumvarp sem á að koma í veg fyrir að allir einkareknir fjöl- miðlar á Íslandi fyrir utan Morgunblaðið verði á einni hendi. Morgunblaðið trúir því ekki að það sé vilji þingmanna stjórnarandstöðuflokkanna, sem hafa snúizt gegn þessum lögum, að hér skapist sams konar ástand og er að verða á Ítal- íu, þar sem Berlusconi á nánast alla einkarekna fjölmiðla. Raunar er óhugsandi að það sé vilji al- mennings í landinu. Því hefur verið haldið fram, að með fjölmiðla- lögunum sé stefnt að því að hefta tjáningarfrels- ið á Íslandi. Hvernig stendur á því, að stjórn- málamenn og fjölmiðlamenn láta sér svona orð um munn fara? Er ekki alveg ljóst, að þá fyrst er tjáningarfrelsið í hættu, ef eignarhald á fjöl- miðlum verður of þröngt? Enn og aftur trufla stundarhagsmunir og pólitísk tækifærismennska dómgreind forystu- manna stjórnarandstöðuflokkanna. Afstaða þeirra byggist á barnalegri ánægju yfir því, að fjölmiðlum Norðurljósa er augljóslega beint gegn ríkisstjórninni. En hvað mundi gerast ef skyndilega yrðu eigendaskipti á fjölmiðlum Norðurljósa og þeim yrði beitt gegn stjórn- arandstöðunni? Annað eins hefur gerzt. Frétta- blaðið, DV og Stöð 2 eru allt fjölmiðlar, sem hafa skipt um eigendur og hið sama getur gerzt aftur. Það getur líka gerzt að hagsmunir Norð- urljósa breytist og að fyrirtækið eigi meiri sam- leið með núverandi stjórnarflokkum en hingað til.Um skeið var það yfirlýst markmið forráða- manna Norðurljósa að setja fyrirtækið á mark- að. Allir vita hvað getur gerzt þegar fyrirtæki eru komin á markað. Eigendaskipti geta orðið á einum sólarhring. Það er svo önnur saga, að það er ekki allt fengið með því að setja fjölmiðlafyr- irtæki á markað. Kröfurnar um arðsemi verða svo miklar að það getur hæglega komið niður á gæðum fjölmiðlanna. Á Norðurlöndum er mikið rætt um ritstjórnarleg gæði fjölmiðla ekki sízt eftir að stórar viðskiptasamsteypur fóru að sækjast eftir því að eiga fjölmiðlafyrirtækin, samsteypur, sem skila inn á markaðinn upp- gjörum á þriggja mánaða fresti. Og eiga mikið undir því, að þau uppgjör líti vel út. Í viðskiptalífinu segja menn gjarnan, að allt geti verið til sölu fyrir rétt verð og það getur vel komið til þess, að einhverjir bjóði eigendum Norðurljósa „rétt“ verð og forystumenn stjórn- arandstöðunnar standi frammi fyrir nýjum veruleika. Stjórnmálamennirnir verða að vera menn til þess að ræða mál af þessu tagi út frá „prinsipp- um“. Það er grundvallaratriði í lýðræðislegu þjóðfélagi, að eignarhald á fjölmiðlum sé ekki á of fárra höndum. Og vegna þeirrar þróunar, sem orðið hefur á vettvangi fjölmiðlanna hér var óhjákvæmilegt að setja þau lög, sem Alþingi samþykkti. Sé þetta mál lagt fyrir þjóðina með réttum hætti er engin ástæða til að óttast um niðurstöð- una í þjóðaratkvæðagreiðslu. Íslendingar hafa aldrei viljað að einn eða tveir einstaklingar eða fámennir hópar manna eigi landið allt eins og nú stefnir í. Það sama á við um fjölmiðlana í þessum efnum og viðskiptalífið allt. Þróunin á vettvangi þess er komin úr bönd- um. Samsteypurnar eru orðnar of stórar. Það verður að setja þeim starfsreglur, sem koma í veg fyrir það jafnvægisleysi, sem nú ríkir. Þeg- ar sú ánægjulega staðreynd liggur fyrir að stjórnarflokkarnir eru tilbúnir til að standa að slíkri löggjöf á það ekki að vera og getur ekki verið ágreiningsefni við flokkana á vinstri vængnum. Þeir eiga eftir að setjast í ríkisstjórn á ný. Þeir eiga eftir að kljást við þann vanda, sem leiðir af því jafnvægisleysi, sem hér ríkir í atvinnulífinu. Þeir eiga eftir að kljást við þann vanda, sem af því leiðir, að fámennir hópar eru að eignast Ísland allt. Það er ótrúleg skammsýni af þeirra hálfu að grípa ekki tækifærið nú og standa með stjórnarflokkunum að löggjöf um stóru viðskiptasamsteypurnar og löggjöfinni um eignarhald á fjölmiðlum. Það er ekki endilega víst að það tækifæri gefist aftur. Tími er til kominn, að flokksmenn Samfylk- ingar og Vinstri grænna taki þessi málefni til nýrrar umræðu á sínum vettvangi, umræðu, sem snýst um grundvallaratriði málsins, en ekki pólitíska stundarhagsmuni, umræðu, sem bygg- ist á framtíðarsýn en ekki skammsýni. Það er augljóst, að sú staðreynd að Sjálfstæð- isflokkurinn hefur setið í ríkisstjórn í rúmlega 13 ár samfellt þvælist mjög fyrir forystumönn- um stjórnarandstöðuflokkanna og birgir þeim sýn í þessum stóru málum. Það er hins vegar gert út um valdastöðu bæði Sjálfstæðisflokksins og annarra flokka í lýðræðislegum kosningum. Það er ekki gert með því að mynda eitthvert skammtímabandalag milli stjórnmálamanna og kaupsýslumanna, sem í raun og veru eiga sér engar sameiginlegar hugsjónir. Morgunblaðið/RAX Þess vegna er óhjá- kvæmilegt að þing- menn komi sér sam- an um endurskoðun stjórnarskrárinnar. Meginverkefni í slíkri endurskoðun er að fella niður tvö stjórnarskrárákvæði. Annað er 26. greinin og hitt er ákvæðið, sem heimilar rík- isstjórnum að setja bráðabirgðalög. Síð- arnefnda ákvæðið gat átt við, þegar samgöngur voru erf- iðar en ekki lengur. Nú er hægt að kalla þing saman með ör- fárra daga fyrirvara. Inn í nýja stjórn- arskrá þurfa að koma ákvæði um að sameiginlegar auð- lindir þjóðarinnar séu sameign hennar. Slíkt ákvæði er nú í lögum varðandi fiski- miðin en sjálfsagt er að stjórnarskrár- binda það laga- ákvæði og þá á þann veg, að það nái til allra sameiginlegra auðlinda. Laugardagur 5. júní
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.