Morgunblaðið - 06.06.2004, Síða 52
AUÐLESIÐ EFNI
52 SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Netfang: auefni@mbl.is
FORSETI Íslands, Ólafur
Ragnar Grímsson, skrifaði
ekki undir frumvarp um lög
um fjölmiðla. Þetta er í fyrsta
skipti sem forseti Íslands
neitar að skrifa undir
lagafrumvarp.
Í stjórnarskrá Íslands segir
að ef forseti skrifar ekki
undir frumvarp eigi þjóðin að
greiða atkvæði um það. Sú
atkvæðagreiðsla á að fara
fram eins fljótt og hægt er.
Forsetinn sagði að það
væri of mikið bil milli
Alþingis og þjóðarinnar.
Hann hefur enn ekki viljað
svara spurningum
fréttamanna.
Davíð Oddsson
forsætisráðherra sagði að
ekki yrði komist hjá
þjóðaratkvæðagreiðslu.
Hann lýsti yfir áhyggjum af
því að fjölmiðlarnir myndu
nota mikið af peningum í
áróður á móti lögunum.
Ríkisstjórnin gæti ekki tekið
þátt í því. Hann sagði líka að
forsetinn væri að ganga
erinda fyrirtækis með því að
neita að skrifa undir.
Halldór Ásgrímsson
utanríkisráðherra sagði að
það ætti að virða
stjórnarskrána og hafa
atkvæðagreiðsluna eins
fljótt og hægt væri. Hann
telur þó ekki mögulegt að
halda hana á sama tíma og
forsetakosningar, 26. júní.
Halldór og Davíð eru
sammála um að fá lögfróða
menn til að fara yfir stöðuna
og ráðleggja um framhaldið.
Samfylkingin og Vinstri
græn vilja að Alþingi verði
kallað saman. Allir flokkar
eigi að taka þátt í að
undirbúa
atkvæðagreiðsluna.
Forsetinn skrifaði
ekki undir fjöl-
miðlafrumvarp
Morgunblaðið/ÞÖK
Þjóðin fylgdist með forsetanum í sjónvarpinu þegar hann tilkynnti um ákvörðun sína.
Morgunblaðið/Júlíus
Stúlka lést af völd-
um stungusára
ÍSLENSKA kvennalandsliðið í
knattspyrnu stendur vel að
vígi í 2. riðli undankeppni
Evrópumótsins. Á það góða
möguleika á að tryggja sér
annað sæti riðilsins sem
gefur rétt á að leika í
umspili um sæti í
lokakeppninni.
Um síðustu helgi vann
landsliðið stórsigur á
Ungverjum, 5:0, ytra með
þremur mörkum frá Olgu
Færseth og tveimur frá
Margréti Láru Viðarsdóttur.
Á miðvikudaginn mætti
íslenska liðið efsta liði
riðilsins, Frökkum, á
Laugardalsvelli og varð að
sætta sig við ósigur, 3:0.
Íslenska liðið á einn leik
eftir í keppninni, við Rússa
á Laugardalsvelli 22. ágúst.
Frakkar eru með 18 stig í
riðlinum að loknum sex
leikjum. Ísland hefur 13 stig
þegar sjö leikir eru að baki
og Rússar eru með 8 stig
eftir 5 leiki. Ungverjar og
Pólverjar reka síðan lestina
og hafa misst af
möguleikanum á öðru sæti
riðilsins.
Um síðustu helgi léku
íslensku landsliðin í
boltaíþróttum alls sjö
landsleiki og hafa þeir vart
verið fleiri á einni helgi.
Karlalandsliðið í knattspyrnu
lék vináttulandsleik við
Japana í Manchester á
Englandi og tapaði, 3:2.
Kvennaliðið vann í
Ungverjalandi, eins og áður
er getið.
Þá vann karlalandsliðið í
handknattleik sigur á Ítölum
í fyrri leik þjóðanna um sæti
á heimsmeistaramótinu á
næsta ári, 37:31. Þjóðirnar
mætast á ný annað kvöld í
Kaplakrika kl. 19.45. Þá
tapaði kvennalandsliðið í
handknattleik fyrir Tékkum,
26:25, í fyrri leik þjóðanna
um sæti á Evrópumeist-
aramótinu. Loks vann
kvennalandsliðið í
körfuknattleik einn sigur á
Englendingum en tapaði í
tvígang í æfingaleikjum.
Kvennalandsliðið í vænlegri stöðu
Óskarsverðlauna-leikkonan
Julia Roberts er
barnshafandi og gengur með
tvíbura.
Julia, sem er 36 ára, er
komin tíu vikur á leið og á því
von á sér snemma á næsta
ári.
Faðir tvíburanna er
eiginmaður Juliu, Daniel
Moder, 35 ára gamall
kvikmyndatökumaður en þau
gengu í hjónaband á heimili
sínu í júlí árið 2002.
Roberts á engin börn fyrir
en ekki er lengra en tvö ár
síðan hún lýsti því yfir að hún
væri enn ekki tilbúin til að
verða móðir.
Sagt er að Roberts hafi allt
eins búist við því að koma til
með að eignast tvíbura því
það er töluvert um tvíbura í
fjölskyldu hennar. Langamma
hennar var tvíburi og hún á
frændur og frænkur sem eru
tvíburar.
Reuters
Julia Roberts
Julia Ro-
berts ófrísk
að tvíburum
Al-Yawar hefur gagnrýnt
Bandaríkjamenn vegna
hernámsins í Írak. Samt er
hann sagður í góðum
tengslum við Bandaríkja-
menn. Hann hefur krafist
þess að nýja stjórnin fái
algjört fullveldi og geti þannig
ráðið málum í Írak.
Sérstaklega vill hann að nýja
stjórnin geti ráðið því hvernig
erlenda hernum er beitt í
Írak.
Nýr forseti í Írak
Reuters
Ghazi al-Yawar.
NÝR forseti hefur verið valinn
í Írak. Hann heitir Ghazi
Mashal al-Yawar.
Hann er fæddur árið 1958.
Al-Yawar hlaut menntun sína í
Sádi-Arabíu og
Bandaríkjunum. Hann lærði
verkfræði. Forsetinn var lengi
í útlegð og andstæðingur
Saddams Husseins, fyrrver-
andi einræðisherra í Írak.
Al-Yawar kemur frá borginni
Mosul. Hún er í Norður-Írak.
Hann er höfðingi ættbálks en
sagt er að mjög margir Írakar
styðji hann.
Al-Yawar verður forseti
bráðabirgðastjórnar. Hún var
skipuð í síðustu viku. Nýja
stjórnin hefur tekið til starfa.
Formlega tekur hún við
völdum 30. júní.
Stúlkan hét Guðný Hödd
Hildardóttir og bjó að
Hagamel 46. Hún var í 6.
bekk í Melaskóla.
300 manns mættu í
bænastund í Neskirkju á
mándagskvöldið.
Prestar heimsóttu
Melaskóla og Hagaskóla.
Þeir töluðu við nemendur og
starfsfólk.
Bróðir stúlkunnar er í
Hagaskóla. Hann er nú með
réttargæslumann.
ELLEFU ára stúlka lést af
völdum stungusára í
vesturbæ á
mánudagsmorgun. Bróðir
hennar lét vita. Hann var líka
með mikla áverka. Móðir
barnanna var einnig með
stungusár. Þau voru bæði
flutt á gjörgæslu. Ekki er talið
að þau séu í lífshættu.
Lögreglan telur að móðirin
hafi stungið börnin og síðan
sjálfa sig. Hún er í
gæsluvarðhaldi til 14. júní. Lögreglan í Reykjavík rannsakar nú dauða stúlkunnar.