Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 28

Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 28
LISTIR 28 SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ED Haymes, prófessor við Clevelandháskólann, flytur erindi sem hann nefnir „Hringirnir tveir: Niflunga- hringur Wagners og Hringa- dróttinssaga Tolkiens“ í Norræna húsinu í dag kl. 16. Haymes kemur hingað í boði Richard Wagner-félagsins á Íslandi, en hann hefur flutt fyrirlestra á vegum Richard Wagner-félaga víða um heim. Haymes, sem er prófessor í tungu- málum við Clevelandháskólann í Bandaríkjunum, hefur lagt sér- staka stund á þýsku og þýskar miðaldabókmenntir, auk þess að kenna forníslensku við skólann. Hann hefur mikið rannsakað þýska Niflungaljóðið og Eddu- kvæðin, auk þess að þýða Þiðreks- sögu á ensku. Að sögn Ed Haymes hefur hann löngum haft mikinn áhuga á tón- smíðum Wagners. „Fjölskylda mín var tónelsk og ég var tiltölulega ungur þegar ég fór fyrst að hlusta á upptökur af óperum Wagners. Ég hafði þá bæði nóturnar og text- ann við hendina, enda hafði ég ekki bara áhuga á óperunum sem tónlist heldur líka sem drama.“ Í fyrirlestri sínum segist Haym- es ætla að skoða tengslin milli hringanna tveggja, þ.e. Niflunga- hringsins og Hringadróttinssögu. „Markmiðið með fyrirlestri mínum er að kanna þessi tengsl og sýna á hve margvíslegan hátt þessi tvö meistaraverk varpa ljósi hvort á annað. Raunar harðneitaði Tolkien því ávallt að það væru nokkur tengsl milli hringsögu hans og Niflungahringsins. Hins vegar er of margt sameiginlegt með þessum tveimur hringrunum (Ring Cycles) til þess að hægt sé að segja að um einskæra tilviljun hafi verið að ræða. Auk þess er vitað að Tolkien þekkti vel til verka Wagners, enda var einn besti vinur hans í Oxford, skáldið C.S. Lewis, mikill aðdáandi Wagners og því óhjákvæmilegt annað en að Tolkien hafi þekkt vel til verka Wagners.“ Haymes bendir á að vissulega styðjist Wagner og Tolkien í ákveðnum skilningi við sömu heim- ildir í verkum sínum, þ.e. bæði ís- lenskar og aðrar germanskar fornbókmenntir. „Hins vegar má í verkum Wagners og Tolkiens finna ýmsa áþekka hluti sem ekki eiga sér neina fyrirmynd í heim- ildunum eða eru útfærðir á allt annan hátt en þar. Sem dæmi um þetta má nefna sjálfa bölvun hringsins. Í Eddukvæðunum og Völsunga sögu hvílir vissulega bölvun á hringnum, en þar hefur hringurinn samt eng- in völd. Hringurinn er reyndar valdur að dauða fjölda fólks, en það er ekki vegna þess að fólk þrái hringinn og drepi hvert annað út af því, líkt og sjá má í verkum Wagners og Tolkiens.“ Annað dæmi um líkindin milli Wagners og Tolkiens er hversu neikvæðir þeir báðir voru í garð nútímans og þeim tækni- framförum sem honum fylgir. „Lýsa má bæði Wagner og Tolkien sem náttúruverndarsinnum og birtist það skýrt í verkum þeirra. Þannig má nefna að í lok Hringadróttinssögu, þegar hobb- itarnir snúa heim í Héraðið þá er, þeim til mikillar gremju, búið að iðnvæða það og þurfa þeir því að byrja á því að reka þetta vonda fólk, sem ábyrgðina ber, burt úr Héraðinu. Hjá Wagner birtist þetta hins vegar í því t.d. þegar Óðinn fjarlægir töfraspjótið úr aski Yggdrasils, en það er upphaf- ið að ragnarökunum þar sem tréð deyr og þar með líður öll náttúran undir lok. Þessi náttúruverndar- hugsun á sér enda fyrirmynd í heimildunum sem Wagner og Tolkien studdust við.“ Eins og fyrr var getið hefst fyr- irlesturinn kl. 16 og tekur hann um klukkustund í flutningi. Fyr- irlesturinn er öllum opinn og er aðgangur ókeypis. Fyrirlestur um tengsl verka Wagners og Tolkiens Hringirnir tveir J.R.R. Tolkien Richard WagnerEd Haymes ÚRSLIT í samkeppni Grandrokks og Hins íslenska glæpafélags um glæpasmásögu voru tilkynnt á menningarhátíð Grandrokks á dög- unum. 1. verðlaun hlaut Jón Hallur Stefánsson fyrir söguna Enginn eng- ill. 2. verðlaun hlaut Sigurður Sig- urðarson fyrir Hvítt umslag. 3. verðlaun hlaut Viktor Arnar Ingólfsson fyrir Móðurmissi. Auk þess voru veitt ein innherja- verðlaun fyrir sögu sem gerist á Grandrokki og lýsir andrúmsloftinu þar vel. Þau hlaut Þorfinnur Guðna- son. Alls barst 41 saga. Í þriggja manna dómnefnd voru Bjarni Þorsteinsson, Brynhildur Björnsdóttir og Kristinn Kristjáns- son. Sögurnar verða gefnar út af Al- menna bókafélaginu. Úrslit í samkeppni um glæpasmásögu Íslensk tröll, Trolls Islandais, eftir Brian Pilkington komin út á frönsku hjá Mál og menningu í þýðingu Henry Pradin. Brian Pilkington er einn ástsælasti höfundur mynda í íslenskum barna- bókum og hefur skrifað og mynd- skreytt fjölda bóka fyrir innlendan og erlendan markað. Alfræði íslenskra trölla, Allt um tröll hlaut viðurkenningu ferðamálaráðs sem besta hugmynd að minjagrip frá Íslandi og hefur þegar komið út í Danmörku og á Ítalíu. Bókin er 32 bls. Verð: 1.990 kr. Börn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.