Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 06.06.2004, Blaðsíða 56
FÓLK Í FRÉTTUM 56 SUNNUDAGUR 6. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ EIN af svakalegri myndum sumars- ins er hamfaramyndin Ekki á morgun heldur hinn (The Day After Tomorr- ow) eftir þýska leikstjórann Roland Emmerich. Þar fylgjast áhorfendur með því er jörðina þrýtur svo gott sem örendi eftir áratuga vanrækslu, með tilheyrandi hörmungum. Borgir sökkva í sæ, veðurofsi grandar fólki og fénaði og heimurinn eins og við þekkj- um hann er á algerri heljarþröm. Emmerich er síst viðvaningur í gerð svona mynda en hann vakti fyrst verulega á sér athygli fyrir tíu árum síðan með myndinni Stjörnuhliðið (Stargate). Í kjölfarið komu svo Dag- ur sjálfstæðis (Independence Day) og Godzilla en með þeim innsiglaði Emmerich orðspor sitt sem hinn al- gera stórmyndasmiður. Myndin sem út kom á undan Ekki á morgun… er Föðurlandsvinurinn (Patriot) þar sem Mel Gibson leikur bandaríska frelsis- hetju. Roland Emmerich hefur ekki kom- ið til Íslands en útskýrir fyrir blaða- manni að hann sé með ákveðið verk- efni í vinnslu sem myndi fella sig ágætlega að landinu. „Ég er að spá í að kíkja á tökustaði hér,“ segir hann glaðbeittur. „Myndin heitir 10.000 B.C. og fjallar um Neanderdalsmenn. Heldur þú ekki að það væri hægt að nýta Ísland eitthvað í það?“. Ég jánka og hann hlær við. Emmerich er léttlyndur náungi, sem ég átti ekkert sérstaklega von á. Hann svarar spurningunum af áhuga og reynist hinn ljúfmannlegasti viðmæl- andi Höfuðverkur Til hamingju með myndina. Bara að sjá stikluna („trailer-inn“) var nóg til að hjartað á manni færi í buxurnar! „Ha ha ha, já jafnvel fólkið á Íslandi er hrætt þannig að þetta hlýtur að vera að virka!“ Var erfitt að landa þessari mynd? „Púff …já það var það…þetta var ansi langt ferðalag. Við vorum í tvö ár að þessu. Handritagerð og myndataka fylgdu nokkuð hefðbundnu sniði en tölvubrellur, það er svolítið annað. Maður hefur ekki eins góða yfirsýn yf- ir þau mál og það getur verið dálítið snúið að láta þetta allt saman passa. Það var eiginlega mjög erfitt! Vana- lega fá Hollywood-myndir fremur skamman meðgöngutíma en við þrýstum á að fá að gera þetta almenni- lega. Annað er ekki fólki bjóðandi finnst mér. Á tímabili voru tólf mis- munandi tölvufyrirtæki að vinna fyrir okkur og þar var enn einn höfuðverk- urinn kominn!“ Þetta er hin endanlega hamfara- mynd. Það þarf ekki að gera fleiri eftir þetta… „Ha ha ha. Ég verð reyndar að við- urkenna að eftir Godzilla þá fannst mér ég vera búinn með þennan pakka. Ég vildi ekki vera að endurtaka mig. En það var sagan, þessi umhverfis- pæling, sem heillaði mig við Ekki á morgun heldur hinn. Myndin býr yfir fremur harðri gagnrýni á umhverfis- menningu jarðarbúa í dag, sem er heldur döpur. Mér fannst þetta mjög áhugaverður vinkill og ákvað því að láta slag standa.“ Peningar grenjaðir út Útskriftarmyndin þín, Arkarlög- málið (The Arc Principle, 1984), var fokdýr en var svo sýnd í fjölda landa og gerði það bara gott. Er þér lífsins ómögulegt að gera annað en risastór- ar myndir!? „Þetta var víst dýrasta útskriftar- mynd sem gerð hafði verið (hlær). Ég veit ekki hvað þetta er…ég hlýt bara að vera masókisti. En ég hef alltaf haft stórar hgmyndir og þegar ég var í kvikmyndaskólanum einfaldlega lang- aði mig ekki til að gera hefðbundna stuttmynd. Þannig að ég skrifaði handrit að tveggja tíma mynd og fór svo að grenja út peninga í hana. Ég var staðráðinn í að gera þessa mynd og lét gagnrýni sem vind um eyru þjóta. Hún fór svo auðvitað langt fram úr kostnaðaráætlun og ég var í tómum vandræðum (hlær).“ Ég las viðtal við þig þar sem þú lagðir ríka áherslu á að myndir eins og t.d. Independence Day ætti að nálgast á þeirra forsendum og alls ekki að taka þær of alvarlega. „Það sem ég var að meina er að mynd sem fjallar um geimverur ætti ekki að taka of alvarlega – eðlilega. Mynd eins og Independence Day er í raun b-mynd, gerð að a-mynd. Ég hef hins vegar áhyggjur af Hollywood í dag sannast sagna, það er verið að ryðja út öruggum sölumyndum til hægri og vinstri. Ég fæ fullt af hand- ritum til aflestrar sem eru algert drasl! En eins og ég sagði áðan þá vildi ég gera Ekki á morgun heldur hinn al- mennilega og ennfremur langaði mig til að stríða Hollywood smávegis og læða inn boðskap í myndina. Flestir áttu von á Independence Day 2 en svo er alls ekki. Ég er harla ánægður með að hafa búið þannig um hnútana.“ Rætt við Roland Emmerich, leikstjóra Ekki á morgun heldur hinn Stærra – ennþá stærra Honum virðist vera fyrirmunað að gera annað en risastórar myndir, og þá erum við að tala um RISASTÓRAR myndir. Arnar Eggert Thorodd- sen ræddi við þýska stórleikstjórann Roland Emmerich um nýjustu rennireið hans, hamfara- myndina Ekki á morgun heldur hinn. „Mig langaði til að stríða Hollywood smá,“ segir Roland Emmerich um nýjustu mynd sína, hamfaramyndina Ekki á morgun heldur hinn. Ekki á morgun heldur hinn er í kvikmyndahúsum núna. arnart@mbl.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.