Eintak - 01.12.1993, Side 84

Eintak - 01.12.1993, Side 84
ungfrú Alís Lag og texti: Megas mér var hálfnauðugum falið að setja saman einhver sæmileg orð og tóna þar við um þig ágæta vera sem ég þekki þó hvorki að illu né heldur öðru góðu og hef aldrei séð sem lifandi veruleik - hvað þá bera jú ég veit hvað þú heitir - til hálfs að minnsta kosti en helminginn fékk ég hvorki numið né þá heldur munað og ég hef séð þig í mynd bæði sætindin þín og brosið er þú seldir eitthvað djönk sem dýrðlega himneskan unað viðlag: það er varla þörf á að nefna þig en þér er það lífsnauðsyn að nafnið dugi þér nú vel og fráleitt er líka fyrir það að synja að ég er fullkomlega viss um gæði þeirrar vöru sem ég sel tíminn svo slóttugur hefur fátt gert þér gagnlegt eða gott en hann ofsækir jú flesta svo það er ekkert spes við það flárátt almætti bankans reyndi sitt til að rústa þig en hvern reynir það ekki að leggja í eyði og draga oní svað? viðlag: það er síst nokkur þörf á að nefna þig en þér er það algjört möst að nafnið svíki þig ekki og fráleitt væri enda fyrir það að synja að mér er fyllilega kunnugt um alla þessa áleitnu hlekki þér eruð - fyrirgefðu - kynlegt úrval með andlit sem gengur upp þessa stundina ríflega víst línur og víbra sem gæla blíðlega við augu og hlustir allra þeirra sem ekkert eiga til að hugga sig við - þú ert þeirra kvöl og sæla en við skulum helst forðast að skaða hvort annað - við tvö með skeytingarleysi eða afskiptasemi og vera sem best kvitt ég mun reyna af megni eftir sem áður að lifa af lífið þú lætur þér nægja alla upphefðina og svo auðvitað þitt viðlag: það væri of augljóst að nefha nafh þitt veistu'en það nægir ekki eitt það sem helst þarftu er sveðja en samtsemáður líkt og set ég það hér til minja og sem sönnun þess hverjum hún er ætluð þessi kalda kveðja ef þú stendur óbuguð mennsk og upprétt að afstöðnu þvílíku fári eru þau vel sterk beinin sem halda þessu ómetanlega holdi á ferli og heillandi flagarann fláa sem bona fide hannar þér meinin viðlag: að nefna nafn þitt er einum of banalt en veistu ég bæti einatt gráu oná svart enda fæddur án allra siða bara mundu þó að vart munu himnarnir hrynja þó heimurinn þinn sem þú kýst hann muni synja þér griða ég skil ekki að nokkrum skuli í rauninni geðjast að slíku skólabókardæmi um fánýtan blindan og marklausan veg en hver og einn hefur vandlega trúi ég valið sinn smekk og varla skyldi ég ofmeta minn jafnvel þó ég sé ég viðlag: það réttlætir ekkert að nefhi ég þig blondínan ég býst við því að einmitt þess vegna geti ég ekki hamið mig þú ættir að vita orðið að allt mun á þér dynja sem aldrei átti að ske samkvæmt því sem um var hélstu í byrjun samið en ég kemst seint að neinni niðurstöðu um það hver nautn það er að skipta um ham hverfast - ekki í bjöllu heldur blöðru en hitt er jafnvíst að það drepur sérhver sínar flær með sínu eigin lagi - hverju sem það er - og ekki öðru viðlag: það er heldur heimskulega obvíus að nefna nafn þitt og ég neita mér um eitthvað annað líka bara í staðinn en kannski muntu skyndilega skynja að skotmarkið ert þú og sérhver byssa á lofti og fúllhlaðin þetta er rímilegt held ég já og rúmlega það mín ókunna vina og rétt að láta þar eða hér við sitja - og í sátt mín ósk er þú sleppir frá þessu hyldýpi hremminganna að lokum heil ósködduð meðvituð um að þeir vilja allir brytja - þig í smátt viðlag: það er eins tilgangslaust og það er smekklaust að nýta nafhið þitt þó svo nauðsyn bjóði og heimili enda í húfi meir en lítið guðir sem hingað til geispuðu bara þeir stynja jafnvel - svo grátlega hláleg er þessi raun þín - sjálfskaparvítið 84 EINTAK DESEMBER
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140

x

Eintak

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.