Eintak - 01.12.1993, Page 88

Eintak - 01.12.1993, Page 88
úr öllu valdi - til að gera skólakerfið betra, að því hún hélt. Ég fór því að líta betur í kringum mig og fann Ír- land. Ég lærði svo ensku í Dyflinni og írskar bókmenntir í stað aimennra. Ég sé alls ekki eftir þessum skiptum og að hafa ekki farið til Bretlands. Ég hefði ekki viljað missa af kynnum mínum við íra.“ Guðrún Guðlaugsdóttir Blaðakona og rithöfundur „Það sem ég er fegnust yfir að hafa hætt við að gera í lífinu er að hafa ekki látið taka kirtlana úr dóttur minni á sínum tíma. Dóttir mín, Móeiður Júníusdóttir, var með stóra og bólgna kirtla sem barn og það var ákveðið að taka þá. Hún átti að leggjast inn snemma morguns og fara undir hnífinn seinna urn daginn. Kvöldið áður segir maðurinn minn að það sé alveg óþarfi að taka kirtlana strax. Mér fannst þetta hálf skrítið þar sem hann var ekki vanur að tala svona. En á endanum varð það úr og við til- kynntum spítalanum að Móeiður kæmi ekki. Seinnipartinn þennan sama dag varð hún fárveik af mis- lingum, fékk 42 stiga hita og var mjög þungt haldin. Ég hugsa oft um þetta enn þann dag í dag, en get varla hugsað þá hugsun til enda hvað hefði gerst ef Móeiður hefði farið á spítalann og veikst af mislingum ný- komin úr uppskurði. Þetta eru tví- mælalaust þau áform sem ég er fegnust að hafa hætt við.“ Jón Axel Ólafsson Útvarpsmaður „Ég sé aldrei eftir neinu sem ég geri. Aidrei. Það er prinsipp hjá mér.“ Guðrún Arnardóttir Flugfreyja „Fyrir mörgum árum fór ég að læra nútímaballet úti í London. Ég var þar í eitt ár, gekk frábærlega en ák\'að samt að hætta því ég var ekki viss um að þetta væri það sem ég vildi gera. Þannig atvikaðist að ég kom aft- ur heim til Islands og gerðist flug- freyja. Fimm eða sex árum eftir að ég kom heim hitti ég vinkonur mínar sem höfðu haldið áfram að læra nú- tímaballett. Það kom í ljós að þær voru flestallar atvinnulausar. Sumar höfðu reyndar vinnu í stórmörkuð- um og vídeóleigum, en fæstar höfðu þær nokkurn tímann unnið sem balletdansarar.11 Jón H. Karlsson Aðstoðarmaður heilbrigðisráðherra „Ég er óskaplega feginn að ég hélt ekki áfram í læknisfræðinni á sínum tíma. Ef ég hefði ekki gert það væri ég núna sjálfsagt lokaður inni á ein- hverjum spítalanum. Það er ábyggi- lega erfitt að vera læknir í dag. Sér- staklega með okkur félagana, Guð- mund Árna og mig, vakandi yfir sér.“ . Guðrún Asmundsdóttir Leikkona „Fyrir þremur árum var ég að mála húsið mitt. Á meðan ég renndi penslinum eftir bárujárninu og mál- aði grænt yfir blátt var hugurinn uppfullur af bréfi sem ég ætlaði að senda til manneskju sem mér fannst að hefði gert mér illt. I huganum setti ég saman stórkostlega sálræna af- hjúpun þessarar manneskju þar sem ég lýsti viðbrögðum hennar við lífinu og barnalegum hlutum sem mér fannst að þessi manneskja hefði gert. Svo klifraði ég niður af vinnupallin- um og opnaði nýja málningardós. Þar sem ég stóð bograndi yfir dósinni með lokið í annarri hendinni og pensilinn í hinni kom upp í hugann þessi ritningargrein: „Látið ekkert skaðlegt orð líða yður af munni heldur það eitt sem er gott til Uppbyggingar þar sem þörf gerist til þess það verði til góðs þeim er heyra.“ Ég stóð upp með lokið í höndunum og áttaði mig á að þetta bréf væri ekki vel fallið til uppbyggingar þeirri manneskju sem það var ætlað. Ég man ekki til þess að hafa séð eða heyrt þessa ritningar- grein áður en um kvöldið fann ég hana í Bíblíunni og er þetta fjórði kapítuli, 29. vers, í bréfi Páls til Ef- esusmanna. Ég þakkaði guði fyrir að hafa sent mér þessi boð, því ég tel þau vera frá honum komin. Ég sendi aldrei þetta bréf og í dag er ég mjög fegin að guð skyldi hafa vit fyrir mér í þetta skipti.“ „Þegar ég var ungur maður fékk ég þá flugu í höfúðið að gerast loft- skeytamaður, enda með mikla rad- íódellu á þessum tíma. Ég komst hins vegar ekki inn í Loftskeytaskól- ann einhverra hluta vegna. Seinna bauðst mér að fara í skólann en vildi ekki. Stuttu síðar urðu miklar fram- farir og aukin sjálfvirkni í faginu og loftskeytamenn urðu nánast óþarfir. í staðinn fyrir að gerast loftskeyta- maður fór ég í blaðamennsku, hef starfað við hana í fjörutíu ár og líkað vel. Ef ég hefði farið í Loftskeytaskól- ann væri ég sjálfsagt einn af þessum radíóamatörum; sitjandi í þung- lyndiskasti fyrir framan tækin í kjall- aranum heima.“ Lilja Guðrún Þorvaldsdóttir Leikkona „Einn daginn í fyrrasumar þegar ég kom að bílnum mínum tók ég eft- ir miða á framrúðunni. Á honum voru skilaboð á vondri ensku um að einhver maður vildi hitta mig á ákveðnum stað og kaupa af mér bíl- inn. Ég ákvað að athuga málið því mig vantaði peninga. Þegar ég kom á stefnumótið hitti ég Rússa sem var á skipi sem lá við höfnina. Honum leist gífurlega vel á bílinn minn, strauk honum hátt og lágt og var ólmur í að fá að prufukeyra hann. Ég hafði ekki brjóst í mér að neita hon- um. Þegar hann settist undir stýri fílaði hann bílinn auðsjáanlega í botn, lét hendina hanga út um gluggann og flautaði oft og lengi í hvert sinn. Hann vildi endilega kaupa bílinn, sem er Lada Lux árgerð 1987, og gerði mér tilboð upp á tuttugu þúsund krónur og 110 vodkaflöskur. Ég var að hugsa um að samþykkja þetta úr því manninum leist svona vel á bíl- inn, en ákvað á endanum að hafna til- boðinu. Eftir á að hyggja er ég ánægð með það. Hvað hefði ég líka átt að gera við 110 flöskur af vodka? Ég drekk ekki einu sinni vodka. Fyrir nokkr- um dögum fékk ég nýjan miða frá þessum sama manni. Hann vildi hitta mig og bjóða aftur í bílinn. Eft- ir að hafa hugsað málið ákvað ég að hitta hann ekki aftur. Bílinn er orð- inn einu ári eldri og Rússinn mun sjálfsagt ekki vilja gefa meira en 50 vodkaflöskur fyrir hann í þetta skiptið.“ Guðrún Ágústsdóttir Varaborgarfulltrúi og kynningar- fulltrúi Kvennaathvarfsins „Þegar ég var 18 eða 19 ára var ég í Heimdalli og mikill stuðningsmaður Sjálfstæðisflokksins. Árið 1970 að ég gerðist einn af stofnendum Rauð- sokkahreyfmgarinnar. Þá var ég orð- in 23 ára og tveggja barna móðir. Skyndilega áttaði ég mig á að Sjálf- stæðisflokkurinn vann gegn öllu sem mér fannst heilagt og hætti í Heim- dalli. I dag er ég með góða pólitíska samvisku og er fegin að hafa ekki haldið áffarn í Sjálfstæðisflokknum.“0 Jón Birgir Pétursson Blaðamaður JÓN ÁRSÆLL Þórðarson Sálfræðingur og fréttamaður „Fyrir nokkrum árum stóð til að ég færi á þing samtaka norrænna kristilegra stúdenta sem þá var hald- ið í Laugardalshöllinni og á annað þúsund manns tóku þátt í. Ég hafði mikinn áhuga á að vera með; bæði af trúarlegum ástæðum og eins hef ég mikinn áhuga á öllum samskiptum við bræður okkar og systur á Norður- löndunum. En það var sama hvernig ég reyndi að hliðra til hlutum, ég hreinlega komst ekki á þingið - átti ekki heimangengt eins og sagt er. Það sem gerðist þarna á þinginu í Laug- ardalshöllinni var að upp kom heift- arlegur niðurgangur. Ástandið var slíkt og þvíumlíkt að kalla þurfti til Strætisvagna Reykjavíkur til að sel- flytja fólkið á sjúkrahús. Svo margir urðu veikir að málið kom til kasta Al- mannavarna ríkisins. Þegar farið var að rannsaka orskakir þess að á annað þúsund kristilegra stúdenta fengu pípandi niðurgangskveisu kom í ljós að varla kom annað til greina en kúk- að hefði verið í matinn. Það sannaðist þarna að þar sem ljósið skín skærast er skugginn dekkstur."
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140

x

Eintak

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.