Eintak


Eintak - 01.12.1993, Qupperneq 91

Eintak - 01.12.1993, Qupperneq 91
Það er ef til vill einkennilegt en líkast til kemst Þorgeir Þorgeirsson næst því af öllum íslendingum að kallast reiður ungur maður. Hann er vissulega ekki ungur lengur. En á meðan ungu mennirnir láta næstum hvað sem er yfir sig ganga, nöldra kannski í fáein ár en verða svo þægir, heldur Þorgeir áfram ádeilu sinni á allt það óréttlæti sem hann sér, doðann og þægðina, sýndarmennskuna. Gérard Lemarquis, góðvinur Þorgeirs, ræðir hér við rithöfundinn og refsivöndinn Þorgeir Þorgeirsson. lágborðið fjærst afmælisbarninu og hlustar um stund á glamrið. Þangað til hann rís á fætur, slær í glasið sitt og segir: „Mig langar að greina hér frá draumi sem mig dreymdi í nótt.“ En Kristján var einmitt frægur draumamaður. Hann dreymdi fyrir daglátum og sá margoft atburði sem voru að gerast annars staðar á meðan hann svaf, enda uppalinn með huldu- fólki. Þess vegna varð dauðahljóð á með- an Kristján sagði draum sinn þarna í veislunni. Draumur hans var svona: „Mér þótti ég vera liggjandi hérna á kirkjutröppunum. Það var blindösku- bylur og frost. Gat mig engan veginn hreyft og fannst ég vera að verða þarna úti. Þá kviknar eins og vonarbjarmi úti í sortanum. Og þegar bjarminn nálg- ast sé ég að þetta eru tveir menn. Prest- urinn okkar hérna í svörtum yfir- frakka með hatt og honum fylgir annar rnaður, alskeggjaður og í hvítum kyrtli, fjarska góðlegur að sjá. Og bjarminn eins og stafaði frá honum og lýsti upp nætursortann og hríðina. Um leið og þeir fara hjá lítur Jesús upp á kirkju- tröppurnar og ég heyri að hann segir við séra Bjarna: „Það liggur maður þarna ósjálfbjarga á kirkjutröppunum þínum. Eigum við ekki að styðja hann á fætur?“. Þá lítur séra Bjarni til mín sem snöggvast utan út bjarmanum frá Jesú Kristi, og ég heyri að hann segir. „Nei, við skulum láta hann liggja. Þetta er bara fjósamaðurinn hans Helga Hafliðasonar. Áreiðanlega blindfullur." „Nújú,“ sagði þá Kristur bara, og þeir hurfu svo með vonar- bjarmann út í nóttina. En draumurinn var ekki lengri.“ Margir gamlir Siglfirðingar hafa sagt mér þessa sögu, en það fylgir aldrei með hver viðbrögð hinna tignu veislugesta voru. Sjálfsagt hafa menn bara hlegið og skemmt sér. Til þess er höfðingjadirfsk- an. Ég minni mig stundum á þennan karl sem var móðurafi minn, gekk mér í föðurstað líka. Og meira en það. 1 hálfan áratug fór hann ekkert í frí- tíma sínum nema ég fylgdi með. Hann var einlægt að þylja vel kveðnar ferskeytlur fyrir karla sem við hittum og þeir fóru þá með aðrar vel kveðnar fer- skeytlur á móti. Ekki vissi maður hvað af þessu þeir ortu sjálfir og hvað var eftir aðra landsfræga hag- yrðinga. En mér er nær að halda að ég hafi verið kominn með óbrigðult brageyra löngu áður en ég fór að draga til stafs. Það brageyra dugir mér enn. Höfðingjadirfska er líka mjög alþýðleg eigind. Hún virðist hafa fylgt mér til þessa dags. egar þau Vilborg voru hrakin burt úr Vonar- strætinu og keyptu húsið við Bókhlöðustíg fannst mér það út í hött. Ég hélt það væri frelsis- skerðing að eignast hús. Þá leigði ég í Grjótaþorp- inu. Seinna keyptum við María okkar hús. Þorgeir og Vilborg höfðu flutt sig til um 200 metra. Við María fluttum okkur til um 80 metra. Nú búum við Þorgeir báðir í eigin húsum, sinn hvoru megin við Kvosina og það er sams konar brekka upp að húsum okkar beggja. Báðir bíllausir og Miðbærinn er okkar heimur. „Þorgeir er svo neikvæður," segja þeir sem telja það jákvæðast að taka aldrei neina áhættu í þessum dásamlega heinti okkar. Oft hef ég staðið Þorgeir að því að spyrja sjálfan sig hvort hann væri nú ekki með ofsóknarbrjálæði. Þá finnst mér hann óþarflega mikill mannvinur. Var ákveðin nautn fólgin 1 því að vera hataður og láta menn skelfast gagnrýni þína? -Greind og skilningur eru fyrirliggjandi í tungumálinu. Orðin skilgreina alla hluti. Þú segist fá nasasjón af því sem þú hefur bara þefað af, álit á því sem þú lítur á sem snöggvast, en skoðun á hinu sem þú hefur skoðað í krók og kring. Hugur- inn er stöðugt að gera sér myndir úr þessu dóti. Þær hugmyndir köllum við líka sjónarmið. Höfúndur orðsins sjónarmið hefúr vitað að það skiptir öllu máli hvaðan við skoðum heiminn, hvert við horfum og hvaða þefir eru okkur framandi. Ég hef einhvern veginn alltaf kunnað best við náttúr- legan mannaþef, enda lætur mér best að horfa á samfélagið neðan ffá óæðri borðsendanum. Þaðan er mitt sjónarmið, þaðan eru mínar skoðanir gerðar. Þaðan blasir háborðið líka greinilegast við. Svokölluð þekking hefúr aldrei getað orðið mér að þrepum í neinum metorðastiga. Ég er próflaus- asti bóhem þessa lands. Ég er alþýðuhöfundur að því leytinu til. Mér hefur aldrei dottið í hug að flytja rasskinnarnar upp að háborðinu, því ég vil fá að hafa mitt álit á þessum merkilega selskap úr góðu sjónarmiði. Skoðun mín er þaðan. Og hún er frjáls svo lengi sem ég fæ að horfa beint frarnan í þá sem ég er að skoða. Óbundinn af sjónarmiðum háborðsgestanna. Ég er víst naív-heimspekingur, ef það hugtak skyldi vera til. ögn bernskur, einfaldur og fábrot- inn. Þannig verða sögumenn að vera, því þeir eru stöðugt að seðja trúgirninga - sem er hin hliðin á naívítetinu. Söguþjóðir eru öðruvísi en heimspekiþjóðir. Það kæmi mér satt að segja á óvart ef tekið væri rnark á skoðunum mínum sem einhverri brúklegri gagnrýni. Enda hef ég ekki orðið var við það. Fólk setur upp heimóttarlegt glott og ypptir öxlum við skoðunum mínum, ef það hefur andstæða hags- muni. Sem flestir náttúrlega hafa. Aðrir lofsyngja menn opinberlega, en hrækja svo í bakið á þeim. Þorgeir er með sjálfum sér að afsaka heigulshátt þeirra sem hann hefur verið að gagnrýna opinberlega, eða jafnvel rakka niður. Það er ekki vænlegt til félagslegs ábata og varla besta leiðin til vinsælda. Elskulegheitin slæva oft hugsunina. Mér hefur alltaf fundist vanta allt uppbyggilegt hatur í framgöngu íslenskra „intellektúala“. En það er ekki hægt að halda kjaftaþing á Is- landi án þess að bjóða Þorgeiri Þor- geirssyni að tala þar, til að tryggja að einhver þori að segja eitthvað. Finnst þér ekki verið að nota þig í þessu hlut- verki? -Ég er naív-heimspekingur. Það eru menntamannasamkomur sem bjóða mér að tala á kjaftaþingum sín- um. Ég tek þessu vel. Það hefur nú allt- af verið raffineraðasta menntafólkið sem metur okkur naívistana best. Það finnst manni gott. Ég veðraðist til að mynda allur hreint upp við undirtektir norrænna fjölmiðlasérfræðinga í Há- skólabíói hér um árið, þegar ég talaði um Eiffelturninn og nútímann við þetta hámenntaða fólk. Það skildi hvað ég var að fara og prentaði erindið meira að segja, sem eins konar leiðara, í Pressens Árbog, virtu fræðiriti sem Stokkhólmsháskóli gefur út. w Utlendingar hafa alltaf hópast á heimili þeirra Vilborgar og Þorgeirs. Rithöfundar, blaða- menn, kennarar. Á þessu „sveitó" heimili hafa þeir fundið andblæ úthafsins. Þar hefur þeim verið sagt umbúðalaust frá hlut- unurn. Þar er talað um ísland á gagnrýninn hátt. Jafnvel miskunnarlaust. En með þeim einum hætti sem alltaf skilur eftir hlýhug til lands og þjóðar hjá útlendingnum. Sumar spurningar koma eins og af sjálfu sér, til dæmis: Hvað þýðir Vínarborg í þínu lífi? -Vínarborg var fyrsta heimsborgin sem ég gisti. Fór þangað um haustið 1953, strax eftir stúd- entspróf. Borgin helltist yfir mann eins og per- sónulegt áfall. Þar sá ég fyrst stríðsrústir, fótalausa betlara á gangstéttunum og praktíserandi götu- drósir. En Vínarborg var þau árin hersetin af fjór- um heimsveldum: Rússum, Frökkum, Bretum og Bandaríkjamönnum. Henni var skipt í hernáms- svæði. Þetta var eins og sífelld áminning um hörmungar stríðsins. En þar kynntist ég jafnöldrum rnínurn, ungu fólki með óvæntar og dálítið harðneskjulegar hug- myndir. Við sóttum kjallaralókal sem hét „Ehe- maliger Artklub“. Þangað kom Friedrich Gulda og spilaði djass þegar hann var búinn að servera Beethovensónötur í prúðbúna góðborgarana hjá Konsertverein, tónlistarfélagi Vínarborgar. Löngu seinna frétti ég að þessi selskapur hefði verið exis- tensíalískur og fólkið sem einlægt kom og stóð á stigapallinum til að góna á okkur hefðu verið túrist- ar sem borguðu fýrir að sjá existensíalistana drekka rauðvín og bjór við kertaljós. Maður hefur semsé verið beggja vegna rimlanna í dýragarðinum, því seinna var uppáhaldsstaðurinn minn í París Jardin des Plantes þar sem villidýrin eru líka til sýnis. Þegar frá líður er Vín mér fyrst og fremst leik- húsborg. Burgtheater með sína klassík náttúrlega, en fyrst þó og fremst kjallaraleikhúsin, sem stóðu í núklum blóma á sjötta áratugnum. Þar voru til- raunirnar gerðar. Þar sá maður leikrit Ödöns von Horwaths, sem ég uppistend að hafi mótað jafn- „Það kæmi mér satt að segja á óvart ef tekið væri mark á skoðunum mínum sem einhverri brúklegri gagnrýni. Enda hef ég ekki orðið var við það. Fólk setur upp heimóttarlegt glott og ypptir öxlum við skoðunum mínum, ef það hefur andstæða hagsmuni. Sem flestir náttúrlega hafa.“ DESEMBER EINTAK 91
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100
Qupperneq 101
Qupperneq 102
Qupperneq 103
Qupperneq 104
Qupperneq 105
Qupperneq 106
Qupperneq 107
Qupperneq 108
Qupperneq 109
Qupperneq 110
Qupperneq 111
Qupperneq 112
Qupperneq 113
Qupperneq 114
Qupperneq 115
Qupperneq 116
Qupperneq 117
Qupperneq 118
Qupperneq 119
Qupperneq 120
Qupperneq 121
Qupperneq 122
Qupperneq 123
Qupperneq 124
Qupperneq 125
Qupperneq 126
Qupperneq 127
Qupperneq 128
Qupperneq 129
Qupperneq 130
Qupperneq 131
Qupperneq 132
Qupperneq 133
Qupperneq 134
Qupperneq 135
Qupperneq 136
Qupperneq 137
Qupperneq 138
Qupperneq 139
Qupperneq 140

x

Eintak

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eintak
https://timarit.is/publication/309

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.