Eintak - 01.12.1993, Page 99
alls konar;
hrásilki, siffon .
eða organsa.
Einfalt.
Þannig eru fötin sem Vala, Valgerð-
ur Helga Schopka, fékk verðlaun fyrir
á sýningu fjórða árs nema í skólanum
sínum í Róm. Og það þóttu fréttir. Sýn-
ingin var haldin um sama leyti og há-
tískuhúsin tjölduðu sínu fegursta og
þessi tískuóða þjóð, ítalir, voru óvenju-
viðkvæmir fyrir öllu sem hét tíska. Vala
lenti í sjónvarpinu, bæði því ríkisrekna
og eins nokkrum af hundruðum frjálsra
sjónvarpsstöðva á Ítalíu. Og svo auð-
vitað blöðunum.
„Ég hafði þriðja áratuginn í huga;
tennis, charleston og léttleika," segir
Vala. Það má sjá. Fötin minna á “the
roaring twenties", hin ofsakátu miili-
stríðsár.
Vala er nýútskrifuð úr skólanum
sem tísku- og búningahönnuður. Með
fyrstu einkunn. Lokaritgerð hennar
fjallaði um hártísku og höfuðbúnað í
lok rokókó-tímabilsins og í upphafi
frönsku byltingarinnar. Þegar enginn
var almennilegur til hársins nema hann
skreytti það gulli, gimsteinum, fjöðrum
og öðru prjáli. Dálítið umbúðameiri
tíska en sú sem Vala teiknar sjálf.
Það var Svava Rán Guðmundsdótt-
ir sem tók myndirnar af fötunum henn-
ar Völu. Svava Rán er að læra Ijós-
myndun í Róm. Og þriðja íslenska
stúlkan er fyrirsætan, Snæfríður Bald-
vinsdóttir.