Eintak - 01.12.1993, Page 134
JOLAMYNDIR
OLD SAKLEYSISINS
THE AGE OFINNOCENCE
Stjömubíó
Stjörnubíó skartar nýjasta verki meistarans Martins Scorseses
sem núorðið er óefað virtasti leikstjóri í Bandaríkjunum. Þótt
bófar af ýmsu tagi, litlir og stórir og misjafnlega vondir, hafi
einatt verið Scorsese hugleiknastir raer hann á önnur mið í
þessari mynd. Þetta er búningadrama, períódumynd eins og
það heitir á fagmáli, sem byggir á frægri bók eftir rithöfundinn
Edith Wharton. Wharton var alin upp í betri borgarastétt New
York-borgar og meðal slíks fólks gerist sagan árið 1870. Þetta
er sígildur ástarþríhyrningur sem gerist í skugga ægivalds ríkra
og voldugra fjölskyldna þar sem er ekki heiglum hent að brjóta gegn
óskráðum lögum um makaval og mægðir. Það eru engir smáleikarar sem fara
með aðalhlutverk: Daniel Day-Lewis, Michelle Pfeiffer og Wynona Ryder,
stúlkan með stóru og björtu augun, sem er að verða einhver mest stjarna í
kvikmyndaheiminum þrátt fyrir ungan aldur.
YS OG ÞYS ÚT AF ENGU
MUCH ADO ABOUT NOTHING
Háskólabíó
Háskólabíó sýnir nýjustu afurð Kenneth Branagh, gulldrengs-
ins í ensku leikhúsi. Hér er hann aftur kominn á kunnuglegar
slóðir eftir að hafa beygt ögn af leið í glæpamyndinni dulrænu
Dead Again og vinahópsmyndinni Peter's Friends. Því vissu-
lega er skáldið Shakespeare heimavöllur Branaghs, rétt eins
og fyrirrennara hans Laurence Olivier sem hann er oft borinn
saman við - með réttu eða röngu. Ys og þys út af engu er einn
af glöðustu gamanleikjum Shakespeares, ástarsaga með
endalausum flækjum, góðu fólki, vondu fólki og hlægilegu fólki. Og auðvitað
endar allt vel að lokum, hvað annað? Branagh hefur valið sögunni svið í hinu
gróðursæla Túskaníuhéraði á ftalíu þar sem allt ólgar af frjósemi. í þessu
yndislega umhverfi leika ýmsir stórleikarar listir sínar, Branagh sjálfur, kona
hans Emma Thompson óskarsverðlaunahafi, blökkumaðurinn Denzel
Washington, kvennagullið Keanu Reeves og Michael Keaton sem náttúrlega
leikur helsta illmennið.
ALLADÍN
Sambíóunum
Það er runnin upp ný gullöld teiknimynda. Sem er gott. Ástæð-
an er auðvitað tölvutæknin sem hefur blásið nýju lífi í þessa
grein kvikmyndanna sem er svo bráðskemmtileg og þekkileg
þegar þest lætur. í marga áratugi var varla gerð teiknimynd af
viti, en nú er Disney-fyrirtækið aftur tekið til við að búa til
teiknimyndir sem eru eins og þær voru þegar þær gerðust
þestar - myndir sem ungir og aldnir geta haft gaman af. í fyrra
kom meistaraverkið Fríða og dýrið og nú kemur Alladín sem
ekki þykir síðri. Hér er þeitt öllum brellum sem nútímatæknin
býður upp á, en samt haldið í hugljúfan ævintýraanda gömlu teiknimyndanna.
Sagan er náttúrlega alþekkt úr Þúsund og einni nótt, um strákstaulann Alladín
sem finnur töfralampa.
í VESTURÁTT
INTO THE WEST
Regnboginn
Þetta er skrítin lítil saga um ira, um hest, um forn ættarbönd
sem hafa trosnað og eru bundin aftur. Hún byrjar í Ijótu blokka-
hverfi í Dublin, en svo berst sagan lengra og lengra vestur, þar
sem eru gróðursnauð heiðalönd og fólk sem enn hefur ekki
sagt skilið við gamla háttu. Þetta er ævintýramynd um tvö börn
og föður þeirra í leikstjórn Mike Newell sem öðlaðist heims-
frægð þegar hann gerði meistarastykkið My Left Foot. Það er
virtur leikari, Gabriel Byrne, sem fer með aðalhlutverkið, en
hann er þekktastur fyrir að hafa leikið í mynd Cohen-bræðra
Miller's Crossing. Á móti honum leikur meðal annarra kona hans, bandaríska
leikkonan Ellen Barkin.
SKYTTURNAR ÞRJÁR
THE THREE MUSKETEERS
Sambíóin
Saga Alexandre Dumas um skytturnar þrjár plús vin þeirra
D'Artagnan ætlar seint að ganga sér til húðar. Það sést best á
því að hún hefur verið kvikmynduð oftar en tölu verði'komið á,
alveg frá árdögum kvikmyndanna þegar Douglas Fairbanks
brá brandi. Og nú er komin enn ein kvikmyndin sem byggir á
þessari sígildu sögu; þessi þykir reyndar mjög í betri kantinum.
Myndin er reyndar ekki tekin í Frakklandi heldur í gömlum
þorpum og köstulum í Austurríki og keisarahöllin Hofburg fer
með hlutverk Louvre-hallarinnar í París. Með aðalhlutverkin fara ungir leikarar
sem hafa átt erfitt uppdráttar að undanförnu, en þykja hér ná sér vel á strik,
enda lögðu þeir á sig mikla líkamsþjálfun til að ná tökum á skylmingum.
Charlie Sheen leikur Aramis, Kiefer Sutherland leikur Athos, en í hlutverki
D'Artagnan er Chris O'Donnell sem lék á móti Al Pacino í Konuilmi. Hina
útsmognu Mylady leikur Rebecca De Mornay, en Tim Curry leikur fúlmennið
Richelieu kardínála.
Gagnrýnendur
þessa manaðar eru
þula oa
þingmaour
Steingrímur Sigfússon
alþingismaður, varaformaður
Alþýðubandalagsins
og nú krítiker:
Ferðalok
Þjóðleikhúsið
Leikritið er fallegt verk og að flestu
leyti heilsteypt. Lipur og oft kíminn
textinn kom þægilega á óvart og féll
enda í góðan jarðveg hjá unga fólkinu
sem var uppistaðan í áhorf-
endahópnum þetta sunnudags-
kvöld. Verkið leið Ijúflega áfram,
borið á höndum prýðisleikara, ekki
síst þeirra Halldóru Björnsdóttur
og Sigurðar Sigurjóns. Þegar leið að
lokum og dýpið fór að vaxa,
endalokin, það er að segja ferðalokin
fóru að nálgast, setti að undirrituðum
nokkurn kvíða. Hvernig á þetta
semsagt að enda, því fjandakornið
elcki fer hún Steinunn
Jóhannesdóttir að látaþau Þóru og
Jónas hlaða niður börnum og búa
saman í Kaupmannahöfn „happily
ever after“ upp á ameríska vísu.
Auðvitað ekki og þetta reyndust
svosem óþarfar áhyggjur, endirinn
var auðvitað sá eini sem hann gat
orðið, því skáldskapurinn, ástin og
mannlífið hvorki byrjar né endar.
Tregahorn
Gyrðir Elíasson
Það er væntanlega ekkert frum-
Iegt og enn síður skáldlegt að líkja
bók við konfekt, en það var nú samt
það sem kom í huga minn eftir lestur
Tregahorns Gyrðis Elíassonar; „kon-
fektmolar“. Ekki þessir stóru, dísætu
og groddalegu, heldur nettir og
bragðmiklir, sumir ofurlítið yfir í
beiskt. Molar eins og maður fékk
ungur hjá aldraðri ffænku í nálægð
við hafsjó minninga og sjálfan dauð-
ann. Tréristurnar falla mjúklega að
efninu. Þegar ég gríp aftur niður í
bókinni kemst ég að því mér til
mikillar gleði að í kassanum eru fleiri
lög.
Píanó
Regnboginn
Kvikmyndin sem
við hjónakornin lét-
um loks verða af að
sjá fýrir nokkrum
kvöldum, eftir að
hafa talað um það
síðastliðnar vikur, var
þess virði og rúmlega
það, nýsjálenska
myndin Píanó.
Píanóið hefur flest
það til að bera sem
prýða má eina
kvikmynd. Hún er
falleg, vel leikin, vel
tekin, og þrátt fyrir
einfaldan söguþráð
og sviðsmynd heldur
hún manni föngn-
um frá upphafi til
enda, krydduð
notalegri spennu.
Síðast en ekki síst er
myndin nýsjálensk í
orðsins fylistu merk-
ingu. Hún er góður
fulltrúi þess besta I
kvikmyndagerð
„kiwianna“ og dreg-
ur með sterkum
hætti fram hrjúfleika landslagsins á
vesturströnd suðureyjarinnar og
endalausar rigningar áveðurs í skógi
vöxnum hlíðum nýsjálensku Alp-
anna, ógleymanlegar þeim sem þær
hafa upplifað. Næstu myndar Jane
Campion verður beðið með óþreyju á
okkar heimili.0
Margrét
Steingrímur var hrífinn af kvikmyndagerð
„kiwianna", hann vill fá fleiri mola afGyrði og
áhyggjur hans af Ferðalokum voru óþarfar.
134
EINTAK DESEMBER