Morgunblaðið - 01.04.2005, Síða 17
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 1. APRÍL 2005 17
VIÐSKIPTI/ATHAFNALÍF
ins 200 milljónum króna og bókfært
eigið fé 270 milljónum. Í lok tímabils-
ins var veltufjárhlutfallið 1,65 og eig-
infjárhlutfallið 58%.
Í tilkynningu frá Fiskeldi Eyja-
fjarðar segir að ljóst sé að afkoma fé-
lagsins á yfirstandandi ári verði ekki
viðunandi þar sem hrognagæði eru
mun lakari en árin á undan, sem rak-
ið er til hás sjávarhita í Eyjafirði síð-
astliðið sumar. Endurskoðendur
segja í áritun sinni að forsendur um
rekstrarhæfi séu háðar því að um-
bætur verði á rekstrarafkomu og
fjármögnun félagsins.
FISKELDI Eyjafjarðar hf. tapaði
165 milljónum króna árið 2004 og
veltufé til rekstrar nam 69 milljón-
um. Endurskoðendur félagsins gera
fyrirvara um rekstrarhæfi þess í árs-
reikningi.
Velta félagsins var 185 milljónir
samanborið við 277 milljónir árið áð-
ur. Hagnaður fyrir afskriftir og fjár-
magnsliði, EBITDA, var neikvæður
um 53 milljónir króna en árið áður
var EBITDA jákvæð um rúmar 21
milljón króna. Heildareignir félags-
ins voru 470 milljónir króna um ára-
mót. Þá námu heildarskuldir félags-
Tap og fyrirvari
um rekstrarhæfi
KB banki og Landsbanki munu
hækka vexti óverðtryggðra inn-
og útlána í dag. Ástæðan er sögð
hækkun stýrivaxta Seðlabankans
um 0,25 prósentustig.
Vextir óverðtryggðra útlána
hækka um 0,25 prósentustig.
Þannig hækka kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa úr 10,95% í
11,2% hjá KB banka en hjá
Landsbanka verða þeir 10,7%.
Vextir óverðtryggðra innlána
hækka um allt að 0,35 prósentu-
stig, þó mismunandi eftir innláns-
formum. Þannig hækka vextir
Kostabókar og Markaðsreiknings
KB banka um 0,25 til 0,35 pró-
sentustig og verða þeir á bilinu
4,75% til 7,65%. Hjá Landsbanka
verða vextir Kjörbókar og Vaxta-
reiknings á bilinu 5,2% til 7,65%.
Landsbankinn hækkar jafnframt
vexti á innlendum gjaldeyris-
reikningum í dollurum um 0,25%.
Hjá KB banka hækka þriggja
mánaða kjörvextir á erlendri
myntkörfulánum bankans úr
2,79% í 2,95%, en sú hækkun er
aðallega til komin vegna hækkun-
ar á vöxtum bandaríkjadollars.
KB banki og Lands-
banki hækka vexti
FLAGA Group var eina úrvalsvísi-
tölufélagið sem lækkaði í verði á
fyrsta ársfjórðungi þessa árs sam-
kvæmt úttekt greiningardeildar KB
banka á félögum skráðum í Kauphöll
Íslands sem birtist í hálffimmfréttum
í gær.
Það var FL Group, áður Flugleiðir,
sem hækkaði mest í verði en hækk-
unin nam alls 44,8%. Bakkavör hækk-
aði næstmest, um 31,4% en Kögun
kom næst og hækkaði um 30,4%.
Þormóður rammi – Sæberg
hækkaði um 30%
Meðal fyrirtækja sem ekki eru í úr-
valsvísitölu var hækkunin mest hjá
Þormóði ramma – Sæberg, alls 30%
en Sölumiðstöð hraðfrystihúsanna
hækkaði um 26,8%. Landssíminn
hækkaði um 22,3%.
Einungis þrjú félög lækkuðu í
verði, auk Flögu voru það, SÍF um
1%, og Jarðboranir um 2,8%.
Úrvalsvísitalan sjálf hækkaði um
16,6% á fjórðungi þessa árs.
FL Group
hækkaði
mest á fyrsta
ársfjórðungi
!"#
$ %
%&
' ( )
#
$
%
&
!!"
'
% SAMKAUP hf. voru rekin með 282,5
milljóna króna hagnaði eftir skatta í
fyrra á móti 218,5 milljóna hagnaði
árið áður og jókst hagnaðurinn því
um nær 30%. Rekstrartekjur námu
9,8 milljörðum og jukust um 11% frá
árinu áður. Rekstrargjöld voru 9,5
milljarðar á móti 8,5 milljörðum árið
áður og jukust um 12% milli ára.
Handbært fé frá rekstri í fyrra var
369 milljónir á móti 360 milljónum ár-
ið 2003.
Um mitt ár í fyrra sameinaðist KB
Borgarnesi Samkaupum og á árinu
keyptu Samkaup verslunina Hornið á
Selfossi en seldu fyrrum byggingar-
vörudeild KB, kjötvinnsluna Kjötsel
og kostverslunina Valgarð á Akur-
eyri. Þá sameinuðust Sparkaup ehf.
Samkaupum en Sparkaup var eign-
arhaldsfélag um hlut í Samkaupum.
Eigið fé Samkaupa í lok árs 2004
nam liðlega 1,1 milljarði króna og eig-
infjárhlutfall var um 33%.
Samkaup reka matvöruverslanir á
höfuðborgarsvæðinu, Suðurnesjum,
Vesturlandi, Vestfjörðum, Norður-
landi og Suðurlandi undir nöfnunum
Samkaup úrval, Samkaup strax,
Nettó og Kaskó en félagið keypti nú í
febrúar verslanir á Blönduósi og á
Skagaströnd.
Stærstu einstöku eigendur Sam-
kaupa eru Kaupfélag Suðurnesja með
57,7% hlut og Kaupfélag Borgfirð-
inga með tæplega 15% hlut.
Samkaup
rekin með
meiri hagnaði
♦♦♦