Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 1
STOFNAÐ 1913 112. TBL. 93. ÁRG. MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS mbl.is
Samhentar
systur
Birna og Guðfinna semja dansinn
fyrir Selmu systur Menning
Úr verinu og Íþróttir
Úr verinu | Stakkaskipti hjá Stakkavík SÍF selur
Saltkaup Íþróttir | Haukar komnir í 2–0 gegn ÍBV
Eindhoven sótti en Mílanó sigraði
MIKIL fjölgun hefur orðið á umsókn-
um um örorkumat á síðustu árum.
Þannig fjölgaði umsóknum úr 944 ár-
ið 2002 í 1.317 ári síðar og á síðasta ári
bárust 1.622 umsóknir. Hefur þeim
því fjölgað um rúm 70% milli áranna
2002 og 2004. Á sama tíma hefur synj-
unum um örorkumat fækkað mjög.
1998 var 20% umsókna um örorkumat
synjað en eftir að nýr læknisfræðileg-
ur örorkumatsstuðull var tekinn upp
1999 snarfækkaði synjunum og 2004
var einungis um 7% umsókna synjað
eða vísað frá.
Þetta kemur fram í nýrri skýrslu
um mál öryrkja, sem Tryggvi Þór
Herbertsson, forstöðumaður Hag-
fræðistofnunar Háskóla Íslands,
vann fyrir heilbrigðis- og trygginga-
ráðherra.
Haldi hluta bóta þótt hefji störf
Hert krafa um arðsemi á vinnu-
markaði hefur leitt til aukins atvinnu-
leysis einstaklinga en sterkt samband
virðist vera á milli nýgengis örorku og
atvinnuleysis.
Tryggvi Þór setur fram tillögur um
aðgerðir til að halda fjölgun örorku-
bótaþega í skefjum. Leggur hann til
að reglur verði hertar um hvernig
örorka er metin, en í dag er nálgunin
eingöngu læknisfræðileg. Einnig að
möguleikar á endurmenntun og
starfsþjálfun verði auknir til að hjálpa
öryrkjum aftur út á vinnumarkað.
,,Sennilega er áhrifamesta aðgerðin
til að hvetja öryrkja til að fara út á
vinnumarkaðinn, og letja fólk til að
sækja um örorkumat, sú að draga úr
fjárhagslegum ávinningi af því að
vera á örorkubótum, nema þegar um
algjört neyðarbrauð er að ræða,“ seg-
ir í skýrslunni. Stingur Tryggvi Þór
upp á að þeir sem hverfa af örorku-
skrá fái að halda eftir hluta bóta þó
þeir hefji störf að nýju, líkt og tíðkast
í Bandaríkjunum og Bretlandi.
Jón Kristjánsson heilbrigðisráð-
herra sagði í gær ljóst að aðgerða
væri þörf. Hann kynnti skýrsluna á
fundi ríkisstjórnarinnar í gærmorgun
og var ákveðið að fulltrúar þriggja
ráðuneyta legðu fram álitsgerð um
aðgerðir fyrir miðjan júní.
Mun fleiri sækja um ör-
orkumat og færri synjað
Eftir Ómar Friðriksson
omfr@mbl.is
Fjölgun/miðopna
„VIÐ bjuggumst alls ekki við
þessu. Við höfðum einsett
okkur að vera jákvæð og ætl-
uðum bara að hafa gaman af
þessu, en það var náttúrlega
stór bónus að vinna keppn-
ina,“ sagði Sunna Þorsteins-
dóttir í samtali við Morg-
unblaðið í gærkvöldi, en hún
keppti ásamt Auðuni Skútu
Snæbjarnarsyni, Eyþóri
Gylfasyni og Kamillu Sól
Baldursdóttur til sigurs í
Norrænu KappAbel-
keppninni sem haldin var í
þriðja sinn í húsakynnum
Kennaraháskóla Íslands í
gær og fyrradag.
Voru þau fjórmenningar
fulltrúar 9. bekkjar B í
Lundaskóla á Akureyri, en
bekkur þeirra bar, undir
handleiðslu Sigurveigar Mar-
íu Kjartansdóttur kennara,
naumlega sigur úr býtum í ís-
lensku undankeppninni fyrr í
mánuðinum. Fékk íslenska
liðið 24 stig af 25 mögulegum.
Í öðru sæti urðu Norðmenn
með 21 stig, en Danir, Svíar
og Finnar fengu 17 og 16 stig.
Aðspurð segir Sunna
keppnina alls ekki hafa verið
erfiða. „Þetta var aðallega
bara mjög gaman. Auðvitað
voru sumar þrautirnar nokk-
uð snúnar, en við einbeittum
okkur og kláruðum þetta,“
segir Sunna og tekur fram að
miklu hafi skipt að fá góðan
stuðning bekkjarins sem
gerði sér ferð suður til að
maður vildi auðvitað vinna
þetta fyrir þau, fyrst þau
voru komin alla leið frá Ak-
ureyri til þess að styðja okk-
ur,“ segir Sunna og þakkar
sigurinn einnig góðri liðs-
heild.
Að sögn Önnu Kristjáns-
dóttur, prófessors við Kenn-
araháskóla Íslands og stjórn-
anda KappAbel-keppninnar á
Íslandi, á keppnin upptök sín
í Noregi og varð landskeppni
þar á stærðfræðiárinu 2000.
Segir hún tilganginn með
keppninni að efla áhuga ung-
linga á stærðfræði. Hérlendis
var keppnin fyrst haldin
skólaárið 2001–2002 og hefur
fjöldi þátttakenda aukist mik-
ið ár frá ári, og nú tekur um
þriðjungur allra 9. bekkja
þátt í keppninni.
styðja sína fulltrúa. „Það var
rosalega gaman hvað bekk-
urinn studdi okkur vel. Og
Íslendingar fögnuðu sigri í Norrænu KappAbel-stærðfræðikeppninni sem fram fór í gær
„Vildum vinna
þetta fyrir bekkinn“
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Kamilla Sól Baldursdóttir, Auðunn Skúta Snæbjarnarson,
Eyþór Gylfason og Sunna Þorsteinsdóttir, úr 9.B í Lunda-
skóla, unnu glæsilegan sigur í Norrænu KappAbel-keppninni.
Eftir Silju Björk Huldudóttur
silja@mbl.is
Nanjing. AFP. | Lien Chan, leiðtogi
stjórnarandstöðunnar á Taívan, kom
í sögulega heimsókn til Kína í gær.
Er hann fyrsti leiðtogi Kuomin-
tangs-flokksins, sem kemur til meg-
inlandsins síðan kommúnistar kom-
ust til valda í Kína 1949. Efnt var til
mótmæla er Lien lagði upp í ferðina
en þeir, sem krefjast fulls sjálfstæðis
Taívans, saka hann um að svíkja land
og þjóð með Kínaferðinni.
Tekið var á móti Lien með mikilli
viðhöfn við komuna til Nanjing en
Kínastjórn lítur á Taívan sem hluta
af Kína.
Lien sagði, að hann vonaðist til að
geta bætt samskipti Kínverja beggja
vegna Taívan-sunds en hann ætlar
að ræða við Hu Jintao, forseta Kína,
í Peking á föstudag. Verður það jafn-
framt fyrsti fundur leiðtoga Kuom-
intangs og kommúnista síðan þeir
Mao Zedong og Chiang Kai-Shek
reyndu að semja um lok borgara-
styrjaldarinnar í Kína árið 1945.
Lien varaður við
Chen Shui-bian, forseti Taívans,
sem er hallur undir sjálfstæði eyj-
arinnar, hefur dregið úr fyrri gagn-
rýni sinni á ferð Liens og að sögn
vegna þrýstings frá Bandaríkjunum.
Taívönsk stofnun, sem fer með mál-
efni meginlandsins, hefur hins vegar
varað Lien við að brjóta lög með því
að taka þátt í einhverjum samning-
um við Kínastjórn.
Reuters
Lien Chan, leiðtogi Kuomintangs á
Taívan, flytur ræðu við móttöku-
athöfn í Nanjing í Kína í gær.
Í sögu-
legri
Kínaferð
Masnaa, SÞ. AFP. | Sýrlenskar hersveitir fóru frá
Líbanon í gær eftir 29 ára hernám og var fagnað
ákaft við heimkomuna. Einnig ríkir víða gleði í
Líbanon þótt sumir beri ugg í brjósti um að átök
verði milli þeirra mörgu samfélagshópa sem í
landinu búa.
Sameinuðu þjóðirnar ætla að láta fulltrúa sinn
sannreyna hvort um algeran brottflutning sé að
ræða.
„Sum aðildarríki og talsmenn líbanskra
stjórnarandstæðinga hafa fullyrt við mig að liðs-
menn leyniþjónustu sýrlenska hersins hafi sett
upp nýjar bækistöðvar sunnan við Beirút og víð-
ar,“ sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sam-
einuðu þjóðanna, í gær. Sagði hann stjórnir Sýr-
lands og Líbanons hafa vísað þeim fullyrðingum
á bug.
Efnt var til hátíðlegrar kveðjuathafnar með
lúðrasveitum við landamæraborgina Masnaa í
Bekaa-dalnum í Líbanon og var liðsafli úr líb-
anska hernum á staðnum./15
Reuters
Sýrlendingar fagna heimkomu sýrlenskra hermanna við landamærin að Líbanon. Einn þeirra heldur á mynd af Bashar al-Assad, forseta Sýrlands.
Stjórnarandstaðan efast um brottflutning herja