Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
www.plusferdir.is
N E T
Hlí›asmára 15 • 201 Kópavogur • Sími 535 2100 • www.plusferdir.is
á Elimar í 7 nætur.á Pil Lari Playa í 7 nætur.
Verð frá 35.800 kr.*
Portúgal 13. júní, 11. júlí og 1. ágúst
48.200 kr. ef 2 ferðast saman.
Verð frá 34.930 kr.*
Mallorca 1. júní, 13. júlí og 10. ágúst
46.730 kr. ef 2 ferðast saman.
á Santa Clara í 7 nætur.
Verð frá 39.560 kr.*
Costa del Sol
9. júní, 7. júlí og 18. ágúst
49.830 kr. ef 2 ferðast saman.
á Res Madrid í 7 nætur.
Verð frá 46.620 kr.*
Feneyska Rivieran
1. júní, 6. júlí og 17. ágúst
63.620 kr. ef 2 ferðast saman.
Innifalið er flug, gisting, fararstjórn erlendis og flugvallarskattar.
*Verðdæmi miðast við að 2 fullorðnir og 2 börn, 2ja - 11 ára, ferðist saman.
29 ÁRA HERNÁMI LOKIÐ
Sýrlenskar hersveitir fóru frá
Líbanon í gær eftir 29 ára hernám
og var ákaft fagnað við heimkom-
una. Einnig ríkti víða gleði í Líbanon
þótt þar beri sumir ugg í brjósti um
að átök blossi upp milli samfélags-
hópa í landinu.
Söguleg Kínaferð
Lien Chan, leiðtogi stjórnarand-
stöðunnar á Taívan, kom í sögulega
heimsókn til Kína í gær. Er hann
fyrsti leiðtogi Kuomintang-
flokksins, sem kemur til meg-
inlandsins síðan kommúnistar kom-
ust til valda í Kína 1949.
Fjölgun örorkuumsókna
Mikil fjölgun hefur orðið á um-
sóknum um örorkumat á seinustu
árum. Þannig fjölgaði umsóknum úr
944 árið 2002 í 1.622 í fyrra, eða um
rúm 70%.
Unnu stærðfræðikeppni
Fulltrúar 9. bekkjar B í Lunda-
skóla á Akureyri unnu norrænu
KappAbel-stærðfræðikeppnina í ár.
Fundað um sjávarútveg
Sjávarútvegsráðherra átti fund
með sjávarútvegsstjóra ESB í gær
þar sem fram kom vilji um svæð-
isbundna fiskveiðistjórn.
Y f i r l i t
Í dag
Sigmund 8 Forystugrein 24
Fréttaskýring 8 Viðhorf 26
Viðskipti 12/13 Bréf 30
Erlent 14/15 Minningar 31/32
Minn staður 16 Myndasögur 36
Höfuðborgin 17 Dagbók 36/39
Suðurnes 18 Staður og stund 38
Landið 18 Leikhús 40
Akureyri 19 Bíó 42/45
Daglegt líf 20/21 Ljósvakamiðlar 46
Menning 22 Veður 47
Umræðan 23/30 Staksteinar 47
* * *
Kynningar – Morgunblaðinu í dag
fylgir kynningarblaðið Maskínan frá
Skólafélagi Iðnskólans í Reykjavík.
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Agnes Bragadóttir, fréttastjóri, agnes@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Guðlaug Sigurðardóttir, gudlaug@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkju-
starf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Auður Jónsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
!
"
#
$
%&' (
)***
LJÓST er að frumvarp um breyting-
ar á kjörum æðstu handhafa fram-
kvæmdavalds, löggjafarvalds og
dómsvalds, svonefndt eftirlaunafrum-
varp, verður ekki lagt fram á yfir-
standandi vorþingi. Um síðastliðna
helgi fékk forsætisnefnd Alþingis í
hendur lögfræðiálit um mögulegar
breytingar á frumvarpinu, sem Hall-
dór Ásgrímsson forsætisráðherra
hafði frumkvæði að að láta vinna í
samráði við fjármálaráðuneytið og
forseta Alþingis. Halldór var sem
kunnugt er mjög áfram um að breyta
frumvarpinu á þann veg að ekki yrði
sú staða uppi að fyrrverandi ráð-
herrar tækju eftirlaun á sama tíma og
þeir væru í launuðum störfum á veg-
um ríkisins.
Ekki nauðsynlegt að breyta
málinu á þessu þingi
Í niðurstöðu lögfræðiálitsins kem-
ur fram m.a. að breytingar séu mögu-
legar en á hinn bóginn sé varhugavert
að hreyfa við lífeyrisréttindum sem
þegar hafa öðlast gildi vegna eigna-
réttarákvæða stjórnarskrárinnar.
Jafnframt að rétt og varlegt sé að
gefa ákveðinn aðlögunartíma að því
er varðar lífeyrisréttindi sem ekki
hafa tekið gildi.
Halldór Ásgrímsson sagðist í sam-
tali við Morgun-
blaðið í gærkvöld
telja rétt að for-
sætisnefnd fjallaði
um málið á grund-
velli lögfræðiálits-
ins. „Ég tel ekki
nauðsynlegt að
breyta málinu á
þessu vori,“ sagði
Halldór. „En ég
er þeirrar skoðun-
ar að það eigi að vera hin almenna
regla að þeir fái aðeins eftirlaun sem
ekki eru í fullu starfi. Þetta mál var
flutt af fulltrúum allra flokka og ég tel
nauðsynlegt að breytingar á því séu
jafnframt gerðar með samþykki ann-
aðhvort þessara sömu fulltrúa eða
annarra fulltrúa flokkanna.“
Spurður hvort hann hafi orðið fyrir
vonbrigðum með að ekki skyldi vera
unnt að breyta frumvarpinu strax á
þessu þingi sagði Halldór að víst hefði
verið betra að ganga sem fyrst frá
málinu. „En miðað við þetta lögfræði-
álit er málið heldur vandasamara en
ég hafði gert mér grein fyrir. Ég tel
að það sé rétt að nota tímann fram á
haustið til þess að flokkarnir fari yfir
málið og geti myndað sér skoðun á því
hvað gera skuli.“
Halldór og Davíð Oddsson utanrík-
isráðherra ræddu málið í gær og
sagði Halldór að samstaða væri meðal
þeirra um að fara betur yfir málið.
Forsætisráðherra segir óraunhæft að breyta eftirlaunafrumvarpinu á þessu þingi
„Málið heldur vandasamara en
ég hafði gert mér grein fyrir“
Halldór
Ásgrímsson
Eftir Örlyg Stein Sigurjónsson
orsi@mbl.is
HÚSINU Stakkahlíð, sem byggt var 1909 og staðið hef-
ur við Bræðraborgarstíg nálægt Holtsgötu, var á
mánudagskvöld lyft af steyptum kjallaragrunni og flutt
austur í Vík þar sem það fær að standa til frambúðar.
Víkur gamla húsið fyrir fjölbýlishúsi sem ætlunin er að
reisa á lóðinni. Vafalítið þykir ýmsum eftirsjá í gamla
gula húsinu sem sett hefur svip sinn á götumynd
Bræðraborgarstígs, en gömlu húsin sem standa innan
um nýrri hús við götuna gera götumyndina vitanlega
mun fjölbreyttari en annars.
Ljósmynd/Þórdís Jóhannesdóttir
Hús flutt af Bræðraborgarstíg
VETNISVAGNAVERKEFNI Ís-
lenskrar NýOrku og fleiri aðila er nú
að ljúka, en vagnarnir hafa verið í
umferð frá því í október 2003.
Strætisvagnarnir munu aka út
ágúst, en Jón Björn Skúlason, fram-
kvæmdastjóri NýOrku, segir að verið
sé að skoða hvort hægt sé að fram-
lengja verkefnið um eitt ár. Alls hafa
vetnisvagnarnir ekið rúmlega 65.000
kílómetra. Jón Björn segir að verk-
efnið hafi gengið vel og skilað athygl-
isverðum niðurstöðum og fátt hafi
komið verulega á óvart. Talsverðar
bilanir urðu þó í vögnunum í upphafi,
m.a. í viðkvæmum tæknibúnaði en
sams konar bilanir komu einnig upp í
öðrum borgum þar sem tilraunaakst-
ur svipaðra vagna fer fram.
Öllu viðameiri vandamál komu upp
varðandi rekstur vetnisstöðvarinnar
við Vesturlandsveg. Tvisvar varð að
hætta framleiðslu í stöðinni vegna
tæknivandamála og í annað skiptið lá
vetnisframleiðsla niðri í þrjá mánuði.
Að sögn Jóns er ástæða bilananna sú
að þekking í heiminum á efnisvali í
framleiðslutæknina var ófullnægj-
andi, þessi vandamál hafi verið leyst
og eftir sitji verðmæt reynsla. Alls
hafa 12 tonn af vetni verið framleidd í
stöðinni og með því að nota vetni í
stað dísilolíu hefur sparast bruni á
30.000 lítrum af olíu á vögnunum
þremur, eða sem svarar 95 tonnum af
koltvísýringi.
Ítarlegar niðurstöður verkefnisins
verða kynntar á alþjóðlegri ráðstefnu
sem fram fer í dag og á morgun á
Nordica hóteli.
Vetnisvagnaverkefni NýOrku senn að ljúka
Talsverðar bilanir
í vetnisvögnunum
GEIR H. Haarde fjármálaráðherra
hefur staðfest samkomulag við stétt-
arfélög innan BHM um kjarasamn-
ing félaganna en samkomulagið var
gert í febrúarlok. Öll aðildarfélög
BHM, sem að samkomulaginu stóðu,
utan eitt, samþykktu það.
Við gerð samkomulagsins gerði
fjármálaráðherra það að skilyrði
fyrir samþykki sínu að allir aðilar að
því staðfestu það. Fram kemur í
fréttatilkynningu, að í ljósi þess hag-
ræðis, sem af samkomulaginu leiði,
sé það eigi að síður mat ráðherra að
rétt sé að staðfesta samkomulagið.
Fjármálaráð-
herra staðfesti
samninga BHM
ESB vill stærri
hlut í síldinni
ÝMISLEGT þykir benda til þess að
framkvæmdastjórn Evrópusam-
bandsins muni krefjast stærri kvóta
til handa sambandinu af norsk-
íslenska síldarstofninum í kjölfar yf-
irlýsinga fyrst Norðmanna og síðan
Íslendinga um að þeir ætli hvorir
fyrir sig að auka kvóta sinn um 14%.
Þetta kemur fram á skoska fiski-
fréttavefnum fishupdate.com.
Þar segir að Norðmenn hafi orðið
fyrstir til að rjúfa alþjóðlegt sam-
þykki um síldarkvótann, en vís-
indamenn hafi lagt til að heildar-
aflamark á norsk-íslensku síldinni
verði óbreytt 890.000 tonn.
Þá segir fishupdate.com, að
vangaveltur séu um að ESB muni
krefjast 15% af heildaraflamarkinu.