Morgunblaðið - 27.04.2005, Blaðsíða 4
4 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
Veldu náttúruliti
frá Íslandsmálningu
Allar Teknos vörur framleiddar
skv. ISO 9001 gæðastaðli.
ÍSLANDS MÁLNING
akrýlHágæða
málning
Íslandsmálning
Sætúni 4
Sími 517 1500
Útimálning
Viðarvörn
Lakkmálning
Þakmálning
Gólfmálning
Gluggamálning
Innimálning Gljástig 3, 7, 20
Verð frá kr. 298 pr.ltr.
Gæða málning á frábæru verði
Woodex löngu landsþekkt fyrir endingu og gæði
FORELDRAR ættu að eiga val um
vistun fyrir börn sín þegar fæðing-
arorlofi lýkur og geta valið á milli
borgarrekinna eða einkarekinna
leikskóla eða þá vistunar hjá dag-
foreldrum, að mati Hönnu Birnu
Kristjánsdóttur, borgarfulltrúa
D-lista. Katrín Jakobsdóttir, borg-
arfulltrúi R-lista, segir að gjald-
frjáls leikskóli sé jafnréttismál,
kjarabót og viðurkenning á leikskól-
anum sem fyrsta skólastiginu.
Tillaga borgarstjóra um gjald-
frjálsan leikskóla var rædd á hádeg-
isverðarfundi á vegum sjálfstæð-
iskvenna og ungra sjálfstæðis-
manna í Iðnó í gær. Frummælendur
voru þær Hanna Birna Kristjáns-
dóttir og Katrín Jakobsdóttir, sem
báðar sitja í menntaráði Reykja-
víkur.
Snýst um jafnréttismál
og skólapólitík
Katrín Jakobsdóttir rakti tillög-
una um gjaldfrjálsan leikskóla í sjö
stundir á dag. Gert væri ráð fyrir að
foreldrar greiði fyrir mat og um-
framvistun. Borgarstjóri hafi kynnt
að þessu yrði komið á í áföngum.
Nú fái fimm ára börn þrjár gjald-
frjálsar stundir og á næsta ári fái öll
leikskólabörn tvær gjaldfrjálsar
stundir.
Katrín sagði að gjaldfrjáls leik-
skóli væri jafnréttismál. Öll börn
hefðu þá jafnt aðgengi óháð efnahag
fjölskyldna þeirra. Þá væri þetta
kjarabót fyrir barnafjölskyldur,
sem næmi 246 þúsund kr. á ári þeg-
ar sjö stunda vistun væri komin á. Í
þriðja lagi væri þetta skólapólitískt
mál. Nú sé gjarnan litið svo á að
skólaganga hefjist með grunnskóla
en horft framhjá því mikla starfi
sem fram fer í leikskólum. Gjald-
frjáls leikskóli sé eðlilegt skref í
skólastefnu og viðurkenning á því
að hann sé fyrsta skólastigið.
Katrín taldi að niðurfelling leik-
skólagjalda upp á 840 milljónir kr.
væri ekki mjög dýr aðgerð. Kostaði
svipað og ríkið ver til íslensku frið-
argæslunnar og hergagnaflutninga
Atlantshafsbandalagsins á ári.
Hanna Birna Kristjánsdóttir
sagði að gjaldfrjáls leikskóli væri
ekki til. Hvert leikskólapláss kosti
að meðaltali um 600 þúsund kr. á
ári og skattgreiðendur borgi að
jafnaði um 70% af því. Hún benti á
að markmið R-listans um gjald-
frjálsan leikskóla sé ekki tímasett
og spurði hvers vegna ekki væri
strax gengið í málið. Taldi Hanna
Birna að um drög að kosningalof-
orði væri að ræða. R-listinn hafi
hækkað skatta vegna 800 milljóna
kr. kostnaðarauka í kjölfar kjara-
samnings við kennara. Nú segi
Katrín Jakobsdóttir að það kosti um
840 milljónir að hafa gjaldfrjálsan
leikskóla. Því megi spyrja hvort enn
þurfi að hækka skatta?
Skoða þyrfti, í samvinnu við dag-
foreldra, hvernig hægt væri að taka
við börnunum yngri á leikskóla en
nú er gert og benti á að dagfor-
eldrum hafi fækkað um helming frá
árinu 2000. Nú kosti 40–50 þúsund
kr. á mánuði að vera með barn hjá
dagforeldri. Það sé brýnna að bæta
úr þessu en að bjóða upp á gjald-
frjálsan leikskóla. Endurskoða
mætti gjaldskrár vegna foreldra
með bágan efnahag. Fyrst og
fremst þyrfti þó að tryggja að kerf-
ið rúmaði öll börn sem þyrftu á vist-
un að halda.
Hanna Birna Kristjánsdóttir borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokks á fundi um gjaldfrjálsan leikskóla
Foreldrar ættu að eiga meira val
Morgunblaðið/Eyþór
Katrín Jakobsdóttir (lengst til vinstri), Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir fundarstjóri og Hanna Birna Kristjánsdóttir.
Eftir Guðna Einarsson
gudni@mbl.is
NOKKRIR tugir manna hafa hringt
á skrifstofu Samfylkingarinnar síðan
kosningaseðlar vegna formanns-
kjörs tóku að berast í hús á mánudag
og tilkynnt að þeir séu alls ekki fé-
lagar í flokknum. Formaður kjör-
stjórnar segir að þeir verði teknir af
flokksskrá og hafi verið beðnir um að
henda kjörseðlunum.
Um 20.000 kjörseðlar voru sendir
af stað á föstudag. Flosi Eiríksson,
formaður kjörstjórnar, segir að
kosningin hafi hingað til gengið vel,
eftir því sem hann viti best. Ein-
hverjir hafi þó kvartað yfir að hafa
ekki fengið kjörseðla og farið verði
yfir mál þeirra. Geti viðkomandi sýnt
fram á að hafa verið félagi í flokkn-
um áður en kjörskrá var lokað 15.
apríl verði gefnir út aukakjörseðlar.
Þá geti verið að einhverjir seðlar
hafa týnst í pósti.
Aðspurður hvenær hinir ófúsu
Samfylkingarfélagar voru skráðir í
flokkinn segir Flosi að svo virðist
sem flestir hafi einhvern tímann ver-
ið skráðir í Alþýðuflokkinn, Alþýðu-
bandalagið eða Kvennalistann. Þetta
hafi þó ekki verið skráð sérstaklega
þegar fólkið hafi hringt. Dæmi eru
um að fólk sem sótti fund hjá
Grósku, samtökum ungliðahreyfinga
á vinstri vængnum, hafi óafvitandi
verið skráð í flokkinn. Flosi segir að
slíkt eigi að sjálfsögðu ekki að gerast
og farið sé að taka mun strangar á
skráningum. „Auðvitað var þetta
miklu frjálsara meðan Samfylkingin
var að komast á koppinn,“ segir
hann.
Nokkrir tugir kann-
ast ekki við aðild
Formannskjör Samfylkingarinnar
KÁRI Sölmundarson, flokksbund-
inn sjálfstæðismaður til 19 ára og
stjórnarmaður í hverfafélagi í
Reykjavík, varð undrandi þegar
kjörseðill vegna formannskosn-
ingar Samfylkingarinnar barst inn
um lúguna hjá honum enda hafði
hann aldrei gengið í flokkinn.
Umslagið beið Kára þegar hann
kom heim frá útlöndum í gær. Kári
hringdi þegar í skrifstofu Samfylk-
ingarinnar og lét skrá sig úr
flokknum og aðspurður sagðist
hann að sjálfsögðu ekki ætla að
taka þátt í kosningunum.
Hann kveðst ekki hafa hugmynd
um hvers vegna nafn hans hafi
komist á flokksskrá Samfylking-
arinnar. Hugsanlega hafi einhver
ætlað að gera honum grikk í góðu
eða ætlað að hrekkja frambjóðend-
urna. Það væri sömuleiðis hugs-
anlegt að þeir sem skráðu nú fólk í
Samfylkinguna væru þeir sömu og
skráðu fólk á undirskriftalista
vegna fjölmiðlafrumvarpsins.
Sjálfstæðismaður
í Samfylkingunni
ÞRJÁR stúlkur á bíl slösuðust í
árekstri við strætisvagn á Lista-
braut rétt við Verslunarskóla Ís-
lands um klukkan 10 í gærmorgun.
Þær voru fluttar á slysadeild Land-
spítalans og var ein þeirra lögð inn
á barnadeild til eftirlits að sögn
læknis. Engin þeirra var þó alvar-
lega slösuð. Tvær þeirra sem voru
farþegar í bílnum skárust þó tals-
vert í andliti. Að auki slösuðust þrír
farþegar strætisvagnsins lítillega.
Morgunblaðið/Júlíus
Slösuðust í árekstri við strætisvagn
HÆSTIRÉTTUR staðfesti í gær
gæsluvarðhaldsúrskurð héraðs-
dóms yfir karlmanni sem á föstu-
dag réðst á lækni sem unnið hefur
að rannsóknum fyrir lögreglu í
ýmsum sakamálum. Í dómi Hæsta-
réttar kemur fram að sakborning-
urinn hafi hótað lækninum ofbeldi
og hafa hótanirnar beinst að því að
fá hann til að breyta rannsókn-
arskýrslu í máli sem varðar sak-
borninginn.
Í skýrslutöku hjá lögreglunni
játaði hann að hafa hótað lækn-
inum frekari líkamsmeiðingum til
þess að leggja meiri áherslu á
skilaboð sín til hans. Þá voru með-
al gagna í málinu upplýsingar um
að sakborningurinn hefði montað
sig af árásinni í tölvupósti sem
hann sendi skömmu eftir árásina
og hótað frekara ofbeldi.
Í árásinni hlaut læknirinn glóð-
arauga báðum megin, verulega
bólgu á kinnar, rispu í andliti og
eymsli í framtönnum auk eymsla í
rifi.
Málið dæmdu hæstaréttardóm-
ararnir Gunnlaugur Claessen, Jón
Steinar Gunnlaugsson og Ólafur
Börkur Þorvaldsson. Verjandi var
Sveinn Andri Sveinsson hrl. og
sækjandi Egill Stephensen frá lög-
reglustjóranum í Reykjavík.
Árásarmaðurinn
áfram í varðhaldi