Morgunblaðið - 27.04.2005, Page 9
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 9
FRÉTTIR
Opið virka daga frá kl. 10-18 laugardaga frá kl. 10-16
• Engjateigi 5
• Sími 581 2141
Hvítar sumarbuxur
iðunn
tískuverslun
Seltjarnarnesi
Lagersala
Lagersala
Lágmark
30%
afsláttur
Aðeins á
Seltjarnarnesi
Búdapest
5. maí - Uppstigningardag
frá kr. 39.990
Helgarferð í 4 nætur - Flug og gisting
Munið Mastercard
ferðaávísunina
Skógarhlíð 18, sími 595 1000 www.heimsferdir.is
Heimsferðir bjóða helgarferð til þessarar stórkostlegu borgar í hjarta
Evrópu 5. maí (Uppstigningardag). Búdapest býður einstakt mannlíf,
menningu og skemmtun að ógleymdri gestrisni Ungverja. Þú velur um
góð hótel í hjarta Búdapest og spennandi kynnisferðir með fararstjórum
Heimsferða.
Verð kr. 39.990
Flug, gisting, skattar og íslensk farar-
stjórn. M.v. 2 í herbergi í 4 nætur
á 3* hóteli með morgunmat. Netverð.
Rýmingarsala
Rýmum fyrir nýrri sendingu - Góður afsláttur
Skólavörðustíg 21
Réttu stærðirnar
Hlíðasmára 11 • Kópavogi
sími 517 6460
www.belladonna.is
Ný sending frá
Opið virka daga 11 - 18, laugard. 12-16
HÆSTIRÉTTUR hefur hafnað
kröfu lögreglustjórans í Reykjavík
um að IP fjarskiptum ehf. verði með
dómsúrskurði gert skylt að veita lög-
reglu upplýsingar um hver hafi verið
notandi tiltekinnar ip-tölu sem er
skráð hjá fyrirtækinu en lögregla
taldi sig þurfa að fá þær upplýsingar
til að upplýsa innbrot á vefsíðu tölvu-
verslunarinnar Task. Ip-tala er eins-
konar einkennismerki tölva og hefur
hver nettengd tölva sérstaka ip-tölu.
Þeir sem brutust inn á vefsíðuna
sendu um 1.300 manns á póstlista
verslunarinnar tölvupóst sem inni-
hélt grófa klámmynd og settu auk
þess klámmynd inn á heimasíðu
hennar. Í dómi Hæstaréttar kemur
fram að svo virðist sem tveir aðilar
tengist málinu og stafi ip-tölur
þeirra annars vegar frá Bandaríkj-
unum en hins vegar frá Íslandi.
Af hálfu lögreglu var bent á að
þýðing netsins í viðskiptalífinu hefði
stóraukist undanfarin ár, sérstak-
lega vegna vefsíðna fyrirtækja og
einstaklinga. Því yrði að telja að ríkir
almannahagsmunir væru fyrir því að
lögreglu tækist að upplýsa innbrot í
heimasíður. Héraðsdómur Reykja-
víkur féllst ekki á það og benti á að
rannsóknarúrræðum lögreglu væru
settar þröngar skorður vegna tillits
til friðhelgi einkalífs manna. Með til-
liti til gagna málsins yrði ekki talið
að brotið beindust gegn verulegum
hagsmunum. Hæstiréttur féllst
einnig á þetta sjónarmið.
Fær ekki upplýs-
ingar um ip-tölu
Ip-talan var notuð við að brjótast inn
á heimasíðu og senda klámmynd
HÆSTIRÉTTUR hefur staðfest
farbann yfir Litháa sem er eftirlýst-
ur af þýskum yfirvöldum og er talinn
tengjast skipulagðri glæpastarfsemi
í Þýskalandi og í Litháen. Farbannið
rennur út 18. maí nk.
Maðurinn kom til landsins með
ferjunni Norrænu hinn 7. mars og
var hann þá handtekinn af lögreglu.
Krafist var gæsluvarðhalds en því
var hafnað og var maðurinn þess í
stað úrskurðaður í farbann. Þýsk
dómsmálayfirvöld hafa krafist fram-
sals yfir manninum og er sú krafa nú
til meðferðar í dómsmálaráðuneyt-
inu. Samkvæmt upplýsingum frá
Þýskalandi er maðurinn eftirlýstur
vegna innflutnings á fíkniefnum og
fölsuðum peningum til Þýskalands
og fyrir innbrot og þjófnaði. Maður-
inn hefur mótmælt framsalskröfunni
og segir hana ekki á rökum reista.
Farbann
staðfest
BÆÐI Olís og Skeljungur hafa
fetað í fótspor Olíufélagsins
Esso og hækkað verð á bensíni
og olíu um 1,50 krónur hvern
lítra vegna hækkandi heims-
markaðsverðs á eldsneyti. Er
algengt verð í sjálfsafgreiðslu
nú 103,40 hver lítri af bensíni
og 50,20 hver lítri af dísilolíu.
Hjá Atlantsolíu kostar bens-
ínlítri 101,6 krónur og lítri af
dísilolíu 48,5 krónur. Hjá
Orkunni kostar bensínlítri
100,5 krónur og lítri af dísilolíu
kostar 47,3 krónur.
Fleiri olíu-
félög hækka
bensínverð
UM MIÐNÆTTI í fyrrakvöld
stöðvaði lögreglan í Kópavogi rúm-
lega tvítugan ökumann sem ók á
169 km hraða um Reykjanesbraut,
á móts við Smáralind. Þarna er
leyfilegur hámarkshraði 70 km á
klst. Einn farþegi var í bílnum.
Lögregla segir ljóst að viðkomandi
ökumaður hafi með þessum akstri
sýnt fullkomið ábyrgðarleysi.
Miðað við reglugerð má ökumað-
urinn búast við að þurfa að greiða
70.000 krónur í sekt og verða svipt-
ur ökuréttindum í þrjá mánuði sem
er þyngsta refsingin sem er til-
tekin fyrir hraðakstur skv. reglu-
gerðinni. Hafi hann áður gerst sek-
ur um alvarlegt umferðarlagabrot
má hann þó búast við þyngri refs-
ingu. Raunar er í reglugerðinni
ekki gert ráð fyrir að menn aki svo
miklu hraðar en hámarkshraði
kveður á um. Í þessu tilfelli mældi
lögregla bíl mannsins á 169 km
hraða, á um 100 km meiri hraða en
leyfilegt er.
Ók 100 km hraðar
en leyfilegt er
Fréttasíminn
904 1100
VINNUSKÓLI Reykjavíkur hefur
hafið skráningu unglinga í áttunda
til tíunda bekk Grunnskólanna í
sumarstörf. Þar er um að ræða störf
víðs vegar í borginni við hreinsun,
gróðurumhirðu og létt viðhald. Þá
verður einnig unnið við gróðursetn-
ingu, áburðargjöf og stígagerð á út-
mörkum borgarinnar, Heiðmörk og
Austurheiðum. Í Vinnuskólanum er
einnig boðið upp á fræðsludaga, þar
sem nemendur fara í fræðsluferðir
og læra um náttúru og umhverfi, list-
ir og menningu og lífsleikni og sjálfs-
styrkingu. Skráning í Vinnuskólann
fer fram á heimasíðu skólans
www.vinnuskoli.is og stendur hún til
30. apríl.
Skráning hafin í
Vinnuskólann