Morgunblaðið - 27.04.2005, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 11
FRÉTTIR
VARAFORMAÐUR þingflokks
Samfylkingarinnar, Kristján L.
Möller, sendi forsætisnefnd Alþing-
is í gær samþykkt þingflokks Sam-
fylkingarinnar þar sem óskað er
eftir að settar verði almennar regl-
ur um upplýsingagjöf þingmanna
um eignir og hagsmunatengsl.
Vísar þingflokkurinn í því efni til
fyrirliggjandi þingsályktunartil-
lögu Jóhönnu Sigurðardóttur o.fl.
um siðareglur fyrir alþingismenn.
„Þá hefur þingflokkurinn sam-
þykkt eftirfarandi hugmynd að
reglum sem forsætisnefnd gæti
haft til hliðsjónar í þessum störfum.
Þingflokkurinn beinir því til for-
sætisnefndar að haft verði samráð
við Persónuvernd um þetta mál,
einkum vegna þeirra upplýsinga
sem varða maka.
Beint verði til þingmanna að
birta á vef alþingis upplýsingar um:
1. Störf utan þings, t.d. setu í stjórn
fyrirtækis eða stofnunar, eða
nefndarstörf, hvort heldur er á op-
inberum vegum eða á almennum
markaði, og önnur föst launuð
störf, hjá hverjum og hvers eðlis.
2. Sjálfstæða atvinnustarfsemi, teg-
und starfseminnar, eðli og umfang.
3. Trúnaðarstörf fyrir félagasam-
tök, launuð og ólaunuð.
4. Gjafir sem tengjast þingmennsk-
unni og fara yfir 50.000 kr. að verð-
gildi, tegund gjafar, hver gefur og
hvenær.
5. Fjárhagslegan stuðning og
styrki að verðmæti yfir 100.000 kr.
sem tengjast þingmennskunni og
þingmaður tekur við frá stjórnvöld-
um (umfram venjuleg starfskjör),
samtökum, fyrirtækjum eða ein-
staklingum, heima eða erlendis; í
hverju stuðningurinn er fólginn og
frá hverjum hann er.
6. Ferðir og heimsóknir til útlanda
sem tengjast þingmennskunni og
íslensk stjórnvöld, alþingi, flokkur
þingmannsins, þingflokkur hans
eða hann sjálfur kosta ekki að fullu;
hvert farið er og hver greiðir.
7. Eign í félögum sem fer yfir
500.000 kr. að markaðsverðmæti
eða ætluðu verðmæti.
8. Aðrar upplýsingar sem þingmað-
urinn telur að skipt geti máli í þess-
um efnum og rétt sé að fram komi.
Varaþingmenn eru undanþegnir
þessum tilmælum nema þingseta
vari samfellt meira en þrjá mánuði.
Forsætisnefnd eða maður sem
hún tilnefnir er til ráðgjafar um
vafaatriði í þessu sambandi, meðal
annars hversu skuli farið með upp-
lýsingar sem einkum eiga við um
maka þingmanns.“
Þingflokkur Samfylkingarinnar
Vilja almennar
reglur um
upplýsingagjöf
Morgunblaðið/ÞÖK
Þingmenn Framsóknarflokksins, Jónína Bjartmarz, Hjálmar Árnason, Magnús Stefánsson og Dagný Jónsdóttir,
kynntu upplýsingar um eignir og tengsl þingmanna flokksins á blaðamannafundi í gær.
HJÁLMAR Árnason, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
segist hafa efasemdir um að rétt sé
að þingmenn og sveitarstjórn-
armenn safni fé til eigin próf-
kjörsbaráttu. Hann segir að það
hafi verið rætt innan Framsókn-
arflokksins hvort setja ætti ein-
hvers konar siðareglur í þeim efn-
um. Engar ákvarðanir hafi þó
verið teknar.
„Ég hef alltaf talið mjög vafa-
samt að þingmenn og sveitarstjórn-
armenn safni sjálfir fé í eigin
prófkjörsbaráttu eða fyrir flokka
sína. Aðrir eiga að annast það en
ekki þingmenn. Það er mín skoðun.
En ég skal viðurkenna að ég hef,
eins og flestir aðrir, neyðst til að
taka einhvern þátt í slíku í gegnum
tíðina.“
Stefán Jón Hafstein, formaður
framkvæmdastjórnar Samfylking-
arinnar, segir í pistli á heimasíðu
sinni að hann hafi látið í ljósi þá
skoðun sína að ekki nægi að upp-
lýsa eignatengsl eða hags-
munavensl þingmanna. „Ég tel að
kjörnir fulltrúar á þingi og sveit-
arstjórnum eigi ekki að safna fé til
eigin prófkjörsbaráttu eða flokka
sinna,“ segir Stefán Jón í pistl-
inum.
„Sú þakkarskuld sem þannig
getur skapast kann að valda miklu
alvarlegri ,,hagsmunatogstreitu en
hlutabréfaeign sem stofnað er til af
eigin tekjum á almennum mark-
aði,“ segir enn fremur á síðunni.
Bendir Stefán Jón í pistlinum á
að fyrir ári síðan hafi Samfylkingin
sent áskorun til annarra stjórn-
málaflokka um að hefja viðræður
um reglur er varða fjárreiður
stjórnmálaflokka. Vinstri grænir
og Frjálslyndir hafi tekið boðinu
og Framsóknarflokkurinn hafi tek-
ið því með því skilyrði að allir
flokkar yrðu með. Hafi þetta legið
fyrir um miðjan maí. „Seint og um
síðir hafnaði Sjálfstæðisflokkurinn,
það er Kjartan Gunnarsson fram-
kvæmdastjóri, þessum tilmælum,“
segir á vefsíðu Stefáns Jóns.
Kjörnir fulltrúar safni ekki fé
til eigin prófkjörsbaráttu
ANNAÐ kvöld verður haldinn
safnaðarfundur í Garðasókn
vegna þeirra deilumála sem
hafa verið uppi í sókninni.
Fundurinn verður haldinn í
safnaðarheimilinu Kirkjuhvoli
og hefst klukkan 20. Á fund-
inum muni Matthías Guð-
mundur Pétursson, formaður
sóknarnefndar Garðasóknar,
kynna niðurstöðu úrskurð-
arnefndar þjóðkirkjunnar í
deilumáli innan Garðasóknar.
Að því loknu verða heimilar
fyrirspurnir og umræður um
úrskurðinn.
Fulltrúar biskupsstofu og
dr. Gunnar Kristjánsson pró-
fastur, munu sitja fundinn.
Fundarstjóri á fundinum verð-
ur Gestur Jónsson, hæstarétt-
arlögmaður. Engar ályktanir
verða bornar undir fundinn,
segir í tilkynningu frá sókn-
arnefnd.
Safnaðar-
fundur vegna
deilumála
Í UMSÖGN Persónuverndar um
nýtt frumvarp samgönguráðherra
um breytingu á lögum um fjarskipti
segir að stofnunin hafi fullan skiln-
ing á því að endurskoða þurfi úrræði
lögreglu í ljósi nýrrar tækni en á
hinn bóginn sé mikilvægt, „þegar
um er að ræða svo almenna og um-
fangsmikla skráningu á persónu-
upplýsingum sem frumvarpið gerir
ráð fyrir“ að ekki verði gengið
lengra en brýna nauðsyn beri til. Í
þessu sambandi verði að hafa í huga
grundvallarréttindi einstaklinga til
friðhelgi einkalífs.
Athugasemdir Persónuverndar
við frumvarpið beinast sérstaklega
að þremur greinum þess.
Í 7. grein frumvarpsins er mælt
fyrir um að farskiptafyrirtækjum
verði skylt að varðveita upplýsingar
um hver af viðskiptavinum þess hafi
notað tiltekin símanúmer, ip-tölur og
notendanafn og að þau geti upplýst
lögreglu um allar tengingar notand-
ans, tímasetningar þeirra, lengd,
hverjum var tengst og hversu mikið
af gögnum var flutt á milli. „Per-
sónuvernd leggur mikla áherslu á
hér verði farið varlega í sakirnar og
þess gætt að skrá ekki meiri upplýs-
ingar en brýna nauðsyn ber til. Áður
en slík regla er sett er nauðsynlegt
að fram fari þarfagreining, þannig
að fyrir liggi hvaða tegundir upplýs-
inga sé nauðsynlegt að varðveita
með tilliti til einstakra brotaflokka.
Þannig getur t.d. verið misrík þörf
fyrir varðveislu gagna eftir því hvort
um er að ræða upplýsingar um hefð-
bundna símnotkun, smáskilaboð,
tölvupóst, netvafur o.s.frv.,“ segir í
umsögninni.
Í sömu grein frumvarpsins er
kveðið á um að fjarskiptafyrirtækj-
um verði gert skylt að varðveita
gögn um fjarskiptaumferð notenda í
eitt ár. Persónuvernd telur þennan
tíma of langan og að hann samrým-
ist ekki meðalhófssjónarmiðum sem
virða ber við meðferð persónuupp-
lýsinga. Bent er á að fyrir liggi út-
tekt evrópskra fjarskiptafyrirtæka
sem hafi leitt í ljós að þær fjarskipta-
uupplýsingar sem lögregla þarf eru
sjaldnast eldri en sex mánaða. Þá
kemur fram í umsögninni að frum-
varpið virðist byggt á tillögu fjög-
urra ríkja Evrópusambandsins sem
lögð var fram í ráðherraráði sam-
bandsins en hlaut þar slæmar við-
tökur og var m.a. dregið í efa að svo
langur varðveislutími samrýmdist
Mannréttindasáttmála Evrópu.
Nafnleynd getur verið eðlileg
Í 8. grein frumvarpsins er m.a.
lagt til að þeir sem kaupa símakort
verði framvegis að framvísa skilríkj-
um við kaupin. Persónuvernd segir
að með slíkri breytingu sé í raun ver-
ið að koma í veg fyrir síðustu mögu-
leika almennings á því að geta hringt
með leynd, þar sem aðgangur að al-
menningssímum sé hverfandi lítill
hér á landi. Þetta sé veigamikil
breyting. „Horfa verður til þess að
nafnleynd við notkun síma getur í
mörgum tilvikum verið eðlileg, jafn-
vel nauðsynleg. Í hugum margra er
t.d. nauðsynlegt að geta með leynd
komið ábendingum á framfæri s.s. til
fjölmiðla, þingmanna, lögreglu eða
barnaverndaryfirvalda og jafnvel við
að leita liðsinnis s.s. hjá vinalínu
Rauða krossins. Mikilvægt er að
virða þessi sjónarmið. Eins er aug-
ljóst að verði tekin upp skráning á
kaupendum símakorta munu þeir
sem stunda refsiverða hegðun í
skjóli nafnleyndar finna sér aðrar
leiðir, en eftir stendur að hér á landi
verða ekki lengur fyrir hendi mögu-
leikar á því að menn geti átt sam-
skipti símleiðis með leynd,“ segir í
umsögn Persónuverndar.
Að lokum gerir Persónuvernd at-
hugasemdir við 9. grein frumvarps-
ins þar sem lagt er til að fjarskipta-
fyrirtækjum verði gert skylt að veita
lögreglu upplýsingar um hver sé
skráður eigandi ákveðins símanúm-
ers og/eða eigandi eða notandi ip-
tölu. Þó að ekki sé það tekið fram
berum orðum í ákvæðinu er gert ráð
fyrir að um sé að ræða skyldu til að
afhenda upplýsingarnar án dómsúr-
skurðar. Verði ákvæðið að lögum
getur lögregla því m.a. fengið upp-
lýsingar um eigendur leyninúmera
án dómsúrskurðar.
Í athugasemdum segir að heim-
ildin nái þó ekki til innihalds fjar-
skiptanna, til þess þurfi áfram heim-
ild dómstóla. Persónuvernd telur að
þetta ákvæði samrýmist ekki sjón-
armiðum um meðalhóf í vinnslu per-
sónuupplýsinga og stríði gegn þeim
meginreglum sem gilda um rann-
sókn opinberra mála. Einkum sé
mikilvægt að kveða á um að eftirlit
lögreglu með síma- og fjarskipta-
tækjanotkun einstaklinga verði
áfram háð dómsúrskurði.
Persónuvernd gagnrýnir frumvarp samgönguráðherra um fjarskipti
Lögbrjótar
munu finna sér
aðrar leiðir
Eftir Rúnar Pálmason
runarp@mbl.is
Morgunblaðið/ÞÖK
Meira á mbl.is/ítarefni
GUÐMUNDUR Hallvarðsson, formaður
samgöngunefndar, tekur ekki undir gagn-
rýni Persónuverndar á frumvarp sam-
gönguráðherra til fjarskiptalaga en segir
þó að kanna verði betur ákvæði um að lög-
regla geti fengið upplýsingar um not-
endur ip-talna án dómsúrskurðar. Hann
segir að þó að tíminn sé knappur verði
frumvarpið væntanlega samþykkt sem lög
frá Alþingi í vor.
Varðandi varðveislutímann segir Guð-
mundur að allur gangur hafi verið á því
hvað fjarskiptafyrirtækin hafa varðveitt
gögn um fjarskipti lengi. Í Evrópu sé allur
gangur á þessu, í Þýskalandi séu gögnin
varðveitt í sex mánuði en þrjú ár í Frakk-
landi. Honum finnst ekki óeðlilegt að miða
við eitt ár, líkt og lagt er til í frumvarpinu.
Þá finnst Guðmundi þeir hagsmunir lög-
reglu að geta nálgast upplýsingar um eig-
endur leyninúmera vega þyngra en hags-
munir tengdir því að áfram verði hægt að
hafa órekjanleg leyninúmer. Lögregla
þurfi að geta rakið símanúmer til öfug-
ugga sem áreiti fólk í skjóli leyninúmers
og þá hafi komið í ljós að fíkniefnasalar
leiki gjarnan þann leik að skipta ótt og títt
um símakort til að erfiðara sé að hafa
hendur í hári þeirra.
Frumvarpið var rætt á fundi samgöngu-
nefndar í fyrradag og gerðu fulltrúar
samgönguráðuneytisins þá grein fyrir sín-
um sjónarmiðum og á mánudag munu sér-
fræðingar frá OgVodafone og Símanum
koma á fund nefndarinnar. Umsagn-
arfrestur um frumvarpið rennur út þann
dag.
Kanna þarf
betur ákvæði
um ip-tölur