Morgunblaðið - 27.04.2005, Side 14
Róm. AFP. | Silvio Berlusconi, forsætisráðherra
Ítalíu, bar til baka þær fréttir í gær að rannsókn
Bandaríkjahers á dauða ítalsks leyniþjónustu-
manns í Írak 4. mars sl. væri lokið. Lekið hafði
út að niðurstaða rannsóknarinnar væri sú að
bandarískir hermenn er voru valdir að dauða
Ítalans, Nicola Calipari, hefðu ekkert rangt að-
hafst og vöktu þær fréttir þegar mikla reiði á
Ítalíu.
Berlusconi sagði í ræðu á ítalska þinginu, eft-
ir að hann hafði kallað sendiherra Bandaríkj-
anna á sinn fund, að hann harmaði lekann í
þessu máli. Ótímabært væri að kveða upp úr um
niðurstöðu rannsóknar Bandaríkjahers, hún
lægi ekki fyrir. Sagðist hann myndu ávarpa
ítalska þingið á ný um þetta mál þegar nið-
urstaðan lægi fyrir.
Hafði AFP-fréttastofan eftir bandarískum
embættismanni að ítölsk og bandarísk stjórn-
völd gætu enn komist að sameiginlegri niður-
stöðu í rannsókn sinni á málinu.
Virðist ljóst að allt er nú gert til að afstýra
frekari erfiðleikum í samskiptum Ítalíu og
Bandaríkjanna, en Berlusconi hefur sem kunn-
ugt er verið einn af dyggustu stuðningsmönn-
um George W. Bush Bandaríkjaforseta og inn-
rásar Bandaríkjamanna í Írak.
Calipari hafði rétt nýlokið við að bjarga
ítölsku blaðakonunni Giuliana Sgrena úr haldi
mannræningja í Írak þegar bandarískir her-
menn hófu skothríð á bifreið þeirra á þjóðveg-
inum út á Bagdad-flugvöll. Bárust þær fréttir á
mánudagskvöld að niðurstaða Bandaríkjahers
væri sú að hermennirnir hefðu ekki brugðist
skyldum sínum eða gerst brotlegir við þær
vinnureglur [e. rules of engagement] sem þeim
er gert að fylgja í Írak.
Löðrungur Bandaríkjamanna
Sgrena, sem særðist í skothríð Bandaríkja-
mannanna, brást hart við þessum fréttum í
grein í blaði sínu, Il Manifesto, í gær. „Eftir all-
ar afsökunarbeiðnirnar kemur þessi löðrung-
ur,“ skrifaði hún. „Mestu vonbrigðin yrðu ef
ríkisstjórn Ítalíu samþykkti þessa móðgun at-
hugasemdalaust,“ bætti hún við.
„Þeir segja að mennirnir hafi aðeins fylgt
vinnureglunum. En ef þú byrjar að skjóta á bif-
reið á ferð sem búið var að segja þér að væri
væntanleg, og þetta er skilgreint sem eðlilegar
vinnureglur, þá hlýtur maður að spyrja hvers
konar vinnureglur þetta séu eiginlega.“
Sagði Sgrena að bandarísk yfirvöld hefðu
greinilega ekkert mark tekið á framburði henn-
ar eða annars ítalsks leyniþjónustumanns, sem
einnig var í bifreiðinni en þau fullyrða að bifreið
þeirra hafi verið ekið hægt að varðstöð Banda-
ríkjamannanna. Bandaríkjamenn segja hins
vegar að bílnum hafi verið ekið mjög hratt og
ógn því staðið af honum.
Mikil reiði á Ítalíu vegna frétta um að banda-
rískir hermenn hafi verið hreinsaðir af áburði
vegna dauða ítalsks leyniþjónustumanns í Írak
Berlusconi ber til baka að
niðurstaða liggi fyrir
Giuliana Sgrena hitti fréttamenn í Róm í gær.
14 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
ÞAÐ leikur lítill vafi á því að alger
vatnaskil munu eiga sér stað í norð-
ur-írskum stjórnmálum þegar kjós-
endur þar, eins og annars staðar á
Bretlandi, ganga að kjörborðinu 5.
maí nk. Hófsömu flokkarnir sem
léku lykilhlutverk í gerð frið-
arsamkomulagsins 1998 eiga á
hættu að þurrkast nánast út í þess-
um kosningum og verulegar líkur
eru taldar á því m.a. að David
Trimble, handhafi friðarverðlauna
Nóbels og leiðtogi Sambandsflokks
Ulsters (UUP), falli út af þingi.
Stóru flokkarnir í Bretlandi –
Íhaldsflokkurinn, Verkamanna-
flokkurinn og Frjálslyndir demó-
kratar – bjóða vart fram á Norður-
Írlandi, þar markast öll stjórnmál af
deilum kaþólikka og mótmælenda
og því sérstaka flokkakerfi sem hef-
ur verið við lýði í héraðinu. Norður-
írskt samfélag er hins vegar ekki
bara klofið í tvennt; í samfélög kaþ-
ólikka og mótmælenda. Þegar betur
er að gáð eru þessi samfélög jafn-
framt klofin innbyrðis.
Hjá mótmælendum berjast tveir
flokkar um hituna, UUP-flokkur
Trimbles og Lýðræðislegi sam-
bandsflokkurinn (DUP) hans Ians
Paisley. Hjá kaþólikkum eru það
hins vegar Sinn Féin, stjórn-
málaarmur Írska lýðveldishersins
(IRA), og SDLP, hófsamur flokkur
kaþólikka (og systurflokkur breska
Verkamannaflokksins), sem keppa
um atkvæðin.
SDLP og UUP hafa alltaf verið
stærstu flokkarnir á Norður-Írlandi
og Trimble deildi einmitt Nób-
elsverðlaununum 1998 með John
Hume, þáverandi leiðtoga SDLP.
Síðustu misserin hefur hins vegar
verið að eiga sér stað þróun sem lík-
leg er til að ná hámarki í bresku
þingkosningunum nú; þ.e. að Sinn
Féin tryggi stöðu sína sem stærsti
flokkur kaþólikka og DUP sem
stærsti flokkur mótmælenda.
„Það leikur enginn vafi á því að
það verða algjör endaskipti á styrk
stjórnmálaflokkanna í þessum kosn-
ingum,“ segir Paul Bew, prófessor í
stjórnmálafræði við Queen’s-
háskóla í Belfast, í samtali við
Morgunblaðið.
Er nú rætt um það í fullri alvöru
að UUP, gamli valdaflokkurinn á
Norður-Írlandi, þurrkist út, fái
hugsanlega ekki nema einn mann
kjörinn. „Og þá er spurning hvort
UUP heyrir ekki einfaldlega sög-
unni til,“ segir hann. Segir Bew að
veðbankar telji m.a. líklegra en ekki
að David Trimble, leiðtogi UUP,
tapi þingsæti sínu í Upper Bann til
frambjóðanda DUP.
Semja Sinn Féin og DUP?
Í bresku þingkosningunum 2001
fékk UUP sex þingmenn kjörna,
DUP fimm, Sinn Féin fjóra og
SDLP þrjá. En sem fyrr segir er
því jafnvel spáð að Sinn Féin og
DUP muni einfaldlega skipta þing-
sætum héraðsins á milli sín að þessu
sinni. Paul Bew segir spurninguna
þá hvort UUP og SDLP takist að
halda tveimur til þremur þingsæt-
um hvor flokkur um sig.
Rétt eins og hjá UUP séu veru-
legar líkur á því að leiðtogi SDLP,
Mark Durkan, falli út af þingi.
Bew tekur fram að líkleg úrslit í
þessum kosningum þýði ekki endi-
lega að róttæku flokkarnir tveir,
Sinn Féin og DUP, geti ekki samið
um endurreisn heimastjórnar á
Norður-Írlandi. Það sé alveg hugs-
anlegt, menn bendi til að mynda á í
því sambandi að lítið hafi vantað
upp á að slíkt samkomulag næðist í
nóvember á síðasta ári.
„En stóra spursmálið er hvort
samkomulag milli þessara flokka sé
einhvers virði,“ segir Bew. Með hóf-
samari flokkana við völd hafi verið
um að ræða tilraun til að brúa bilið
milli stríðandi fylkinga, eyða því
hatri og ósætti sem hefur einkennt
sambúð mótmælenda og kaþólikka á
Norður-Írlandi. Samstjórn Sinn
Féin og DUP væri einfaldlega ólík-
leg til að ráðast að rótum vandamál-
anna sem þjaki Norður-Írland, fjar-
lægja forsendur og efnislegar
ástæður illdeilnanna í héraðinu, það
ginnungagap sem skilur mótmæl-
endur og kaþólikka.
Hófsömu flokkarnir gætu þurrkast út
Mark Durkan Gerry Adams David Trimble Ian Paisley
Eftir Davíð Loga Sigurðsson
david@mbl.is
Talið líklegt að David Trimble missi
þingsæti sitt í bresku kosningunum
Amagasaki. AP, AFP. | Að minnsta kosti 89
menn létu lífið í lestarslysinu í Japan í fyrra-
dag. Rúmlega 440 manns slösuðust, sumir
mjög alvarlega. Tveimur mönnum var bjarg-
að úr flakinu í fyrrinótt og voru þá ekki taldar
miklar líkur á, að fleiri fyndust á lífi.
Rannsókn á slysinu er hafin og í gær fór
lögreglan inn á skrifstofur fyrirtækisins, sem
á og rekur lestina, sem fór út af teinunum í
fyrradag. Er búist við, að æðstu stjórnendur
þess segi af sér en hugsanlegt er, að þeir
verði sakaðir um vanrækslu og um að bera
ábyrgð á því, að lítt reyndum, 23 ára gömlum
manni var treyst fyrir lestinni. Hafði hann
áður verið áminntur fyrir mistök í starfi.
Talið er nú, að lestin hafi verið á 100 km
hraða þar sem hámarkshraðinn var 70 km.
Lestarstjórinn ungi, Ryujiro Takami, var
ekki fundinn um miðjan dag í gær og voru
einhverjar getgátur um, að hann hefði kom-
ist lífs af og farið í felur. Líklegra var þó talið,
að hann væri undir brakinu og þá sennilega
látinn.
Minnst 89
létust í
lestarslysi
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, hvatti íbúa
Afríkuríkisins Tógó til að sýna still-
ingu í gær en þar var barist á götum
úti í höfuðborginni Lome eftir að úr-
skurður var kveðinn upp um að
Faure Gnassingbe, sonur Gnass-
ingbe Eyadema, fyrrverandi forseta
landsins, hefði hlotið 60% atkvæða í
forsetakjöri sl. sunnudag.
Má á myndinni sjá hvar liðsmaður
stjórnarhersins í Tógó lemur á ein-
um óeirðaseggja en ungmenni í
Lome köstuðu grjóti og komu upp
vegtálmum eftir að úrslitin voru til-
kynnt. Fullyrtu útlægir stjórnarand-
stæðingar að „svakalegt svindl“
hefði einkennt kosninguna. Gnass-
ingbe eldri lést í febrúar en hann
hafði ráðið ríkjum í Tógó í 37 ár. Reuters
Ófriður
í Tógó
Chicago. AP. | Ellefu kunnir menn í undir-
heimum Chicago-borgar voru ákærðir í
fyrradag fyrir að hafa lagt á ráðin um að
myrða eða myrt 18 menn að minnsta kosti,
þar á meðal á mafíuforingjanum Tony
Spilotro í Las Vegas 1986.
Saksóknarar segja ákærurnar einhverja
mestu atlögu, sem gerð hefur verið að glæpa-
samtökum í Chicago, en meðal hinna ákærðu
eru James Marcello, æðsti mafíuforinginn í
borginni, og Joey Lombardo, sem kallaður
er „Trúðurinn“. Hefur Marcello verið hand-
tekinn en mikil leit stendur yfir að Lomb-
ardo.
Tony Spilotro, sem kallaður var „Maur-
inn“, var glæpaforingi í Chicago en var síðan
hæstráðandi í glæpaheimi Las Vegas á átt-
unda áratugnum og fram á þann níunda. Fór
leikarinn Joe Pesci með hlutverk hans í
„Casino“, mynd Martins Scorseses frá 1995.
Lík Spilotros og Michaels, bróður hans,
fundust grafin á kornakri í Indiana 1986. Var
lengi talið, að þeir hefðu verið grafnir lifandi
en Patrick J. Fitzgerald, saksóknari í
Chicago, segir, að þeir hafi verið myrtir áður.
Flestir hinna ákærðu voru handteknir í
fyrradag en tveir fara huldu höfði, þeir
Lombardo og Frank Schweihs. Þá var komið
að einum, Frank Saladino, tæplega sextug-
um, látnum í rúmi sínu á hóteli í Illinois. Lá
dánarorsök ekki fyrir en svo virtist sem um
eðlilegan dauðdaga hefði verið að ræða.
Atlaga að
mafíunni í
Chicago
♦♦♦