Morgunblaðið - 27.04.2005, Side 16
Neskaupstaður | Kvennalið
Þróttar í Reykjavík í blaki varð
bikarmeistari um helgina er lið-
ið lagði Þrótt frá Neskaupstað
að velli í úrslitaleik á Akureyri.
Áður hafði liðið unnið sigur á Ís-
landsmótinu. Petrún Jónsdóttir
þjálfar og leikur með Þrótti
Reykjavík og einnig dóttir
hennar Hulda Elma Eysteins-
dóttir. Þær mægður hafa lengst
af leikið með Þrótti frá Nes-
kaupstað og unnið glæsta sigra
með liðinu. Það var móðir Pet-
rúnar og amma Huldu, Elma
Guðmundsdóttir, blakfrömuður
í Neskaupstað, sem afhenti liði
Þróttar bikarinn um helgina.
Með þeim á myndinni er Amelía
Ýr, dóttir Huldu, en sú stutta
fagnar eins árs afmæli í dag.
Morgunblaðið/Kristján
Sigursælar í blakinu
Blak-
mæðgur
Höfuðborgin | Suðurnes | Landið | Akureyri
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Brjánn Jónasson, brjann@mbl.is, sími 569-1100. Suðurnes Helgi
Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Margrét Þóra Þórsdóttir,
maggath@mbl.is og Kristján Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís
Haraldsdóttir, asdish@mbl.is, sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, aust-
urland@mbl.is, sími 669-1115. Árborgarsvæðið og Landið Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is,
sími 569-1310 og 669-1310 og Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Starfsmenntunarmál | Samþykkt var
á aðalfundi Verkalýðsfélags Húsavíkur
að stórhækka framlög til starfsmennt-
unarmála og auka rétt félagsmanna til
styrkja vegna starfstengdra námskeiða,
tómstundanámskeiða og meiraprófs um
100% frá og með næstu áramótum.
Samkvæmt þessari samþykkt eiga fé-
lagsmenn rétt á allt að 70.000 króna end-
urgreiðslu vegna starfstengdra nám-
skeiða, 20.000 króna endurgreiðslu vegna
tómstundanámskeiða og 85.000 króna
endurgreiðslu vegna meiraprófsnám-
skeiða.
Hér er átt við sameiginlegan rétt úr
Fræðslusjóðnum Landsmennt og
fræðslusjóði Verkalýðsfélags Húsavíkur.
Á síðasta ári fengu félagsmenn greidd-
ar um 2,3 milljónir króna í einstaklings-
styrki vegna námskeiða sem þeir fóru á.
Samtals fengu 151 einstaklingar greidda
styrki, það er 114 konur og 37 karlar.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Hákarlar | Fjölmenni var á bryggjunni
á Drangsnesi í fyrrakvöld í þeim tilgangi
að taka á móti Bjarna Elíassyni á Haf-
rúnu ST-44 með góðan afla, þrjá væna
hákarla er fengust djúpt út af Kaldbaks-
vík.
Bjarni hefur stundað þessar veiðar
undanfarin vor með góðum árangri og
beitti í þetta skiptið hnísu og sel. Há-
karlinn hans þykir með þeim betri á
landinu, segir á vefnum strandir.is.
Sinueldur | Töluverður sinueldur varð
rétt norðan við Kópasker síðdegis á mánu-
dag. Slökkviliðið mætti á staðinn og réð nið-
urlögum eldsins á skömmum tíma. Eld-
urinn kviknaði út frá sígarettustubb sem
hent var í ógáti segir á vefnum dettifoss.is
og þess jafnframt getið að nú sé alls staðar
mjög þurrt.
Ferðamálasetur Ís-lands og Við-skiptadeild Háskól-
ans á Akureyri halda
ráðstefnu um þjónustugæði
í stofu L 201 í Háskólanum
á Akureyri á morgun, 28.
apríl kl. 13.30. Dr. Ingjaldur
Hannibalsson, prófessor við
Háskóla Íslands og stjórn-
arformaður Ferðamálaset-
urs Íslands, setur ráðstefn-
una. Hafdís Björg
Hjálmarsdóttir, lektor við
Viðskiptadeild HA, fjallar
um mikilvægi þjónustu-
gæða í rekstri fyrirtækja en
síðan fjalla fyrirlesarar um
stjórnun þjónustugæða hjá
Garðabæ, SPRON spari-
sjóði, Bílaleigu Akureyrar
og Bláa lóninu. Jón Karl
Ólafsson, stjórnarformaður
SAF, flytur lokerindi ráð-
stefnunnar.
Þjónustugæði
Náttúra Flóans er heiti sýningar á ljósmyndumJóhanns Óla Hilmarssonar í Menningar-verstöðinni Hólmaröst á Stokkseyri. Sýningin
er opin um helgar, kl. 14 til 18, og lýkur 8. maí.
Eins og heiti sýningarinnar gefur til kynna eru
myndirnar úr náttúru svæðisins. Um helmingur er
fuglamyndir, enda er fuglalíf Flóans fjölskrúðugt og
fuglaljósmyndun aðalviðfangsefni ljósmyndarans.
Jóhann Óli er þekktur fyrir náttúruljósmyndir sínar,
sérstaklega fuglamyndir. Myndir hans hafa birst í bók-
um, blöðum, tímaritum og á sýningum um allan heim.
Þekktasta verk hans er metsölubókin Íslenskur fugla-
vísir, sem þýdd hefur verið á ensku og þýsku.
Ljósmyndir úr Flóanum
Á hagyrðingakvöldiá Blönduósi sagðiséra Hjálmar
Jónsson að göngulag
Fischers við komuna til
Íslands hefði verið áþekkt
því sem sést þegar Borg-
firðingar smala heiða-
löndin:
Heim til Íslands fékk hann far
á fyrsta klassa þotunnar.
Bobby Fisher býsna var
borgfirðingslegur tilsýndar.
En kominn í Húnaþing
áttaði Hjálmar sig á hvað-
an göngulagið var:
Þrjóskari en þorri manna
og þverskallast við sættinni.
Minnir helst á gamla granna
af Guðlaugsstaðaættinni.
Friðrik Steingrímsson
bætti við:
Ekkert þjóðar vænkast von
né vitkast almenningur,
þó að Fisher Sæmundsson
sé nú Íslendingur.
Fischer og
Blönduós
pebl@mbl.is
Stykkishólmur | Óli Jón Gunnarsson hef-
ur óskað eftir lausn frá starfi bæjarstjóra í
Stykkishólmi. Meirihlutinn stefnir að því
að ráða Erlu Friðriks-
dóttur í embætti bæjar-
stjóra.
Óli Jón mun láta af
störfum 1. ágúst næst-
komandi. Að sögn Rún-
ars Gíslasonar, forseta
bæjarstjórnar, hefur
Óla Jóni verið boðið
starf annars staðar sem
hann hefur áhuga á að
þiggja.
Óli Jón Gunnarsson hefur starfað sem
bæjarstjóri í Stykkishólmi í sex ár, en áður
var hann bæjarstjóri í Borgarnesi.
Erla Friðriksdóttir verður fyrsta konan
til að gegna bæjarstjórastarfi í Stykkis-
hólmi. Hún ólst upp í Stykkishólmi og
starfar nú sem markaðsstjóri Smáralindar.
Óli Jón
Gunnarsson
hættir sem
bæjarstjóri
Óli Jón Gunnarsson
Flúðir | Þórhallur Bjarnason, garðyrkju-
bóndi á Laugalandi í Borgarfirði, var kos-
inn formaður Sambands garðyrkjubænda í
stað Helga Jó-
hannessonar á
aðalfundi sam-
bandsins sem
haldinn var á
Flúðum. Auk
hans var Berg-
vin Jóhannsson,
kartöflubóndi á
Áshóli í Eyja-
firði, kosinn nýr
í stjórnina. Fyr-
ir eru í stjórn-
inni Gísli Jó-
hannsson
blómaframleið-
andi, Friðrik
Rúnar Friðriks-
son grænmetis-
framleiðandi og Vernharður Gunnarsson
garðplöntuframleiðandi.
Fram kemur í Bændablaðinu að stjórnin
er að ganga frá samningum við Helgu
Hauksdóttur garðyrkjufræðing sem fram-
kvæmdastjóra sambandsins og hefur hún
störf á skrifstofu SG á Reykjum í þessari
viku.
Nýr formaður
garðyrkju-
bænda
♦♦♦
Á Bifröst | Dr. Grétar Þór Eyþórsson
forstöðumaður RHA og Byggðarannsókna-
stofnunar hefur sagt starfi sínu lausu og
tekur við stöðu forstöðumanns Rann-
sóknamiðstöðvar Viðskiptaháskólans á Bif-
röst þann 1. ágúst næstkomandi, auk þess
sem hann verður fastráðinn kennari við
Félagsvísinda- og hagfræðideild við skól-
ann.
Grétar hefur starfað sem forstöðumaður
síðan árið 2001 og var áður rannsóknastjóri
við RHA frá 1999. Hann lauk doktorsprófi í
stjórnmála- og stjórnsýslufræðum frá Há-
skólanum í Gautaborg í Svíþjóð árið 1999
og fjallaði doktorsritgerð hans um samein-
ingu sveitarfélaga á Íslandi.
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
Laugavegur 182 • 105 Rvík • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
70 fm falleg íbúð í kjallara með
sérinngangi. Íbúðin skiptist í
flísalagða forstofu, hol, eldhús,
flísalagt baðherbergi, parket-
lagða stofu og tvö parketlögð
herbergi. Sérgeymsla undir
tröppum. Sameiginlegt þvotta-
hús á hæð. V. 14,9 m.
Nökkvavogur
Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is
533 4800
Björn Þorri hdl., lögg. fastsali, Karl Georg hrl., lögg. fastsali.
La gavegur 182 • 105 Rvík • Fax 53 481 • i r idborg.is
Sérverslun með fatnað
Vegna sérstakra aðstæðna er ein allra þekktasta sérvöruverslun landsins með fatnað
til sölu. Sterk verslun með langa sögu og mjög mikla viðskiptavild. Góð velta og af-
koma, þekkt vörumerki. Miklir möguleikar. Uppl. aðeins gefnar á skrifst. Miðborgar.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111