Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 17
MINNSTAÐUR
Málþing
um reynslu af nýju kerfi
samkeppnissjóða vísinda-
og tæknirannsókna
28. apríl á Hótel Loftleiðum
Rannís
Rannsóknamiðstöð Íslands,
Laugavegi 13, 101 Reykjavík,
www.rannis.is
13:00 Setning málþings
Fundarstjóri er Vilhjálmur Lúðvíksson, skrifstofustjóri
vísindaskrifstofu menntamálaráðuneytis.
13:05 Úthlutunarstefna sjóðanna
Hafliði Pétur Gíslason, formaður stjórnar Rannsóknasjóðs
Sveinn Þorgrímsson, formaður stjórnar Tækniþróunarsjóðs
Anna Þóra Baldursdóttir, formaður stjórnar Rannsóknarnámssjóðs
Friðrik Friðriksson, formaður stjórnar AVS áætlunarinnar
13:45 Starfshættir fagráða
Helga Gunnlaugsdóttir í fagráði hjá Rannsóknasjóði
Emma Eyþórsdóttir í fagráði hjá Tækniþróunarsjóði
14:15 Árangur háskóla, rannsóknastofnana og fyrirtækja og
samstarf þeirra í nýju stoðkerfi
Kristján Kristjánsson, sviðsstjóri Rannís
Hans Kr. Guðmundsson, forstöðumaður Rannís
14:45 - 15:05 Kaffihlé
15:05 Hvernig virkar nýja kerfið?
Hákon Ólafsson, forstjóri Rannsóknastofnun byggingariðnaðarins
Guðjón Þorkelsson, deildarstjóri Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins
Björn Þór Jónsson, dósent Háskólinn í Reykjvík
Steinunn Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Skriðuklaustursrannsóknir
Jakob K. Kristjánsson, forstjóri Prokaria
Hilmar B. Janusson, þróunarstjóri Össur
15:40 Pallborð
Eiríkur Steingrímsson, rannsóknaprófessor við Háskóla Íslands
stýrir umræðum.
16:30 Móttaka í boði ráðuneyta menntamála og iðnaðar.
Málþingið er haldið í samvinnu Rannís,
starfsnefnda Vísinda- og tækniráðs,
menntamálaráðuneytis og iðnaðarráðuneytis
KJALNESINGAR kættust á sum-
ardaginn fyrsta þegar unglingar fé-
lagsmiðstöðvarinnar Flógyn á Kjal-
arnesi ásamt félagasamtökum stóðu
að mikilli hátíð í frístundamiðstöð-
inni og Fólkvangi. Ekki hefur verið
haldin svona hátíð á þessum degi í
mörg ár og tókst þátttaka mjög vel
að sögn aðstandenda, en áætla má að
um 300 manns hafi mætt.
Hátíðin hófst á skrúðgöngu frá
leikvelli Grundarhverfisins að frí-
stundamiðstöðinni, þar sem boðið
var upp á margvísleg skemmtiatriði.
Þar á meðal var kynning á sunnu-
dagaskólanum, hljómsveit unglinga
flutti nokkur lög, m.a. lagið sem þau
fluttu í undankeppni Samfés og
hrepptu 3. sæti með. Þá sýndi Hipp
hopp-hópur undir stjórn Natasha
frábær atriði. Einnig var í boði
hoppukastali, andlitsmálun, billjard,
söngkeppni, og leikir, auk þess sem
seldar voru pylsur, og kaffihúsa-
stemning að hætti kvenfélagsins Esju
sem nýlega hefur verið endurvakið.
Opið hús var í frístundaheimilinu
Kátakoti og félagsmiðstöðinni
Flógyn og hægt var að skrá sig í
Kátakot fyrir næsta skólaár.
Fríða Birna Þráinsdóttir, verk-
efnastjóri Flógyn og Kátakots, segist
afar ánægð með viðtökurnar, en þó
sé hún ennþá ánægðari með góða
þátttöku unglinganna í viðburðun-
um. „Unglingarnir tóku virkan þátt í
þessu öllu og sáu um allar stöðvarnar
eins og hoppukastalann, andlitsmáln-
inguna og pylsusöluna,“ segir Fríða.
„Þau voru rosalega dugleg og lögðu
hart að sér til að gera þessa fjöl-
skylduskemmtun sem best úr garði.“
Sumarskemmtun
á Kjalarnesi
Ungir Kjalnesingar kættust mjög á hátíðinni á sumardaginn fyrsta.
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
KÓPAVOGSBÆR verður fimmtíu
ára 11. maí næstkomandi, en sérstök
afmælishátíð verður haldin 8. maí í
Fífunni. Í tilefni af þessu stórafmæli
sveitarfélagsins var efnt til sam-
keppni um Kópavogslagið 2005 og
barst fjöldi laga. Hlutskarpast varð
lagið „Hér á ég heima“ eftir Þóru
Marteinsdóttur og Steinunni Önnu
Sigurjónsdóttur.
Um þetta var tilkynnt á blaða-
mannafundi í Gerðarsafni í gær. Þá
var einnig afhjúpað sérstakt merki af-
mælisins, hannað af Hauki Má
Haukssyni, grafískum hönnuði. Þar
koma saman boginn úr helsta kenni-
leiti Kópavogs, Kópavogskirkju, sem
myndar núllið í tölunni 50. Fyrir neð-
an er síðan líflegt pensilfar, tákn
grósku og fjörugs mannlífs.
Á fjölskylduhátíðinni í Fífunni 8.
maí verður mikið um dýrðir og er öll-
um Kópavogsbúum boðið í afmælis-
veislu. Skemmtiatriði verða á sviði og
koma þar m.a. fram Idol-stjörnurnar
Hildur Vala og Davíð Smári auk
stúlknahljómsveitarinnar Nylon. Þá
verða frumflutt verðlaunalögin úr
lagasamkeppninni „Kópavogslagið
2005“. Einnig mun hið gamalkunna
Kópavogsband Ríó Tríó stíga á svið,
barnakórar í Kópavogi leggja saman
krafta sína og mynda einn stóran
Kópavogskór, skólahljómsveitin leik-
ur, verðlaunahafar úr söngkeppni fé-
lagsmiðstöðva ÍTK syngja og Ávaxta-
karfan kemur í heimsókn.
Ljósmyndir af börnum í leik- og
grunnskólum Kópavogs munu einnig
prýða veggi Fífunnar auk þess sem
helmingur hússins verður fylltur með
leiktækjum og að sjálfsögðu verður
afmæliskaka í boði.
Fjölbreytt afmælisdagskrá
Afmælisdaginn sjálfan, þann 11.
maí, verður einnig margt á dag-
skránni, en dagurinn hefst á söng
1.200 barna úr leikskólum Kópavogs í
Vetrargarðinum í Smáralind. Þá verð-
ur hátíðarfundur bæjarstjórnar hald-
inn í félagsheimili Kópavogs. Seinni
hluta dags verður síðan hátíðardag-
skrá í Salnum þar sem meðal annars
er boðið upp á tónlist frá ýmsum lista-
mönnum í Kópavogi og valinn verður
heiðurslistamaður bæjarins.
Höfundur textans við verðlaunalag-
ið „Hér á ég heima,“ Steinunn Anna
Sigurjónsdóttir, segir þetta mikinn
heiður, en Þóra Marteinsdóttir, sem
samdi lagið, stundar nám í tónsmíðum
í Gautaborg. Steinunn segir lagið vera
dálítið angurvært og ljúft. „Lykillínan
í textanum fjallar um að hér eigum við
heima og gott sé að búa í Kópavogi,“
segir Steinunn, en í umsögn dóm-
nefndar segir að lagið sé óður til nátt-
úru, menningar og auðugs mannlífs í
bænum. „Við höfðum Borgir í huga og
líka hverfið okkar ,sem okkur þykir
vænt um.“ Auk vinningslagsins hlutu
tvö önnur lög viðurkenningu. Annars
vegar „Kópavogslagið,“ eftir hljóm-
sveitina Pylsa með öllu, sem skipuð er
ungum drengjum í sjötta og sjöunda
bekk Snælands- og Kópavogsskóla.
Hins vegar hlaut lagið „Vorið í bæn-
um“, eftir Jakob Viðar Guðmundsson
sérstaka viðurkenningu.
Fimmtíu ára afmælishátíð Kópavogs á næsta leiti
Morgunblaðið/Eyþór
Kópavogslagið Marteinn, bróðir Þóru Marteinsdóttur, og Steinunn Anna tóku
við viðurkenningu fyrir vinningslagið í keppninni um Kópavogslagið 2005.
Afmælislag hyllir mann-
líf, menningu og náttúru