Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 19
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 19
MINNSTAÐUR
ÞORKELL Á. Jóhannsson flug-
stjóri, íbúi á Hofsárkoti í Svarfaðar-
dal, stendur nú fyrir undirskrifta-
söfnun meðal íbúa hins gamla
Svarfaðardalshrepps þar sem gerð
er krafa um endurnýjað sjálfstæði
hreppsins. Þrjú sveitarfélög, Ár-
skógshreppur, Dalvíkurbær og
Svarfaðardalshreppur, sameinuðust í
eitt, Dalvíkurbyggð, árið 1998.
„Ég stefni að því að ná til allra sem
eiga lögheimili í Svarfaðardal,“ segir
Þorkell sem þegar hefur safnað 50
nöfnum á listann, „fram til þessa hef-
ur aðeins einn neitað að skrifa undir,
þetta eru 98% heimtur, ég er ánægð-
ur með það.“ Þorkell, sem er flug-
stjóri hjá Atlanta, flutti í Hofsárkot
fyrir tveimur árum, hann á þrjú börn,
eitt í leikskóla og tvö ganga í Húsa-
bakkaskóla. Lokun skólans næsta
haust og flutningur barna í Dalvík-
urskóla er ástæða þess að Þorkell
hefur nú hafið undirskriftasöfnun
þar sem þess er krafist að sjálfstæði
hins gamla Svarfaðardalshrepps
verði endurnýjað.
Eindreginn vilji til að slíta
stjórnsýsluleg tengslin
Segir á listanum að gerð sé sú
krafa til Alþingis að aflétt verði þeim
hömlum sem 3. grein sveitarstjórn-
arlaga setur, gegn því að þau sveit-
arfélög sem áður hafa sameinast í
önnur og stærri, geti á ný endur-
heimt sjálfstæði sitt. „Þetta gerum
við vegna þess að það er eindregin
vilji okkar að slíta á stjórnsýsluleg
tengsl hins gamla Svarfaðardals-
hrepps við Dalvíkurbyggð og endur-
vekja þannig sjálfstæði hans. Ástæða
þess er sú að ekki verður lengur með
nokkru móti unað við þá framkomu
bæjaryfirvalda í Dalvíkurbyggð, sem
við höfum nú orðið þolendur að vegna
lokunar Húsabakkaskóla,“ segir í yf-
irskrift listans sem Þorkell fer nú
með á milli bæja í dalnum. Þá hefur
hann einnig í farteski sínu stuðnings-
yfirlýsingu sama efnis, sem íbúum
Dalvíkurbyggðar gefst kostur á að
rita nöfn sín undir, „en ég mun ekki
ganga með hann í hús í bænum, þeir
sem vilja styðja málefnið geta haft
samband við mig,“ segir hann. „Við
teljum nauðsynlegt að endurvakinn
Svarfaðardalshreppur fái tækifæri til
að reka grunnskóla sinn að Húsa-
bakka, nú þegar bæjaryfirvöld Dal-
víkurbyggðar hafa talið sig knúin til
að binda endi á þetta skólastarf,“
segir m.a. í stuðningsyfirlýsingunni.
Sveitaskólarnir látnir
fjúka fyrst
Þorkell vonast til að hægt verði að
fjalla um kröfu íbúa hreppsins um
endurnýjað sjálfstæði nú á vorþingi
og því geri menn þá kröfu að ákvörð-
un bæjarstjórnar um að leggja niður
skólahald á Húsabakka verði frestað
þannig að endurvakinn Svarfaðar-
dalshreppur geti tekið við óskertum
rekstri grunnskólans, verði ekki unnt
að fjalla um kröfugerð íbúanna fyrir
upphaf næsta skólaárs.
„Ég renni auðvitað alveg blint í
sjóinn varðandi viðtökur við þessu
erindi okkar, geri raunar ráð fyrir að
yfirvöld kæri sig ekki um að slíta í
sundur fyrri sameiningar,“ segir
Þorkell. Hann bendir á að reynsla lít-
illa sveitarfélaga af sameiningu sé
víða slæm, „sveitaskólarnir eru alltaf
látnir fjúka fyrst,“ segir hann. Hann
nefnir að þótt búum í rekstri hafi
fækkað í Svarfaðardal hafi íbúum
fjölgað og telur að þar eigi Húsa-
bakkaskóli stóran hlut að máli, metn-
aðarfullt skólastarf þar hafi aðdrátt-
arafl. „Með því að ráðast að
samfélagi okkar með þeim hætti sem
nú er orðin staðreynd, eru bæjaryfir-
völd að vinna gegn tilgangi samein-
ingarinnar og höggva stoðirnar und-
an því litríka samfélagi sem hér hefur
verið að festa rætur og stuðla þess í
stað að landauðn,“ segir í texta undir-
skriftalistans. Því séu forsendur
samneytis Svarfdælinga við Dalvík-
urbyggð algerlega brostnar og trún-
aðarbresturinn gagnvart bæjaryfir-
völdum alger. Fullreynt sé með
sættir, „og því er okkur nú nauðsyn
að fá tækifæri til að stjórna sam-
félaginu okkar á ný á eigin forsend-
um.“ Krafan sé því sú að gamla sveit-
arfélagið öðlist sjálfstæði á ný, með
öllum sínum gömlu landamerkjum og
með fylgi þær eignir sem áður til-
heyrðu Svarfaðardalshreppi.
Svarfdælingar vilja endurnýja sjálfstæði gamla hreppsins
Ekki lengur unað við
framkomu bæjaryfirvalda
Morgunblaðið/Kristján
Vill slíta tengslin Þorkell Á. Jóhannsson flugstjóri við flugvél Mýflugs á
Akureyrarflugvelli. Hann vill endurvekja gamla Svarfaðardalshreppinn.
Eftir Margréti Þóru Þórsdóttur
maggath@mbl.is
AKUREYRI
Stjórn Valsmanna hf.
AÐALFUNDUR
Í VALSMÖNNUM HF.
Aðalfundur í Valsmönnum hf. verður haldinn miðvikudaginn 11. maí
árið 2005 kl. 19:30 í Valsheimilinu að Hlíðarenda í Reykjavík.
DAGSKRÁ:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
INTRUM Justitia á Akureyri hefur
flutt starfsemi sína úr Geislagötu að
Hafnarstræti 91–95, í um tvöfalt
stærra húsnæði í kjölfar aukins um-
fangs starfsemi sinnar á Norðurlandi.
Framvegis verður boðið upp á al-
hliða þjónustu á sviði innheimtu og
markvissrar fjárstýringar undir
merkjum Intrum og Lögheimtunnar.
Lögheimtan mun jafnframt leggja
aukna áherslu á almenna lögmanns-
þjónustu við fyrirtæki og stofnanir á
svæðinu.
Starfsmannafjöldinn hefur tvöfald-
ast frá áramótum eða úr sex í tólf
manns vegna aukinna verkefna.
Starfandi eru tveir lögmenn á skrif-
stofunni, þau Elísabet Sigurðardóttir
og Ólafur Rúnar Ólafsson, sem jafn-
framt er svæðisstjóri fyrir Norður-
land, en stefnt er að því að ekki færri
en þrír lögmenn starfi á skrifstofunni
innan tíðar. Erla Árnadóttir er þjón-
ustustjóri og stýrir hópi þjónustufull-
trúa sem sérhæfa sig í ýmsum verk-
efnum, allt frá úthringingum, gerð
greiðsluáætlana til kennslu og ráð-
gjafar.
Fjölmörg verkefni hafa að undan-
förnu verið færð frá Reykjavík til Ak-
ureyrar og hefur Intrum meðal ann-
ars tekið að sér að hringja út fyrir
bæði fyrirtæki á Norðurlandi ásamt
því að sinna sérverkefnum fyrir fyr-
irtæki á Reyjavíkursvæðinu. Aukin
áhersla hefur verið lögð á innheimtu-
tengda ráðgjöf og ferlavinnu sem er í
samræmi við sívaxandi framboð á inn-
heimtutengdri þjónustu fyrirtækisins
segir í frétt frá Intrum.
Starfsmannafjöldi
hefur tvöfaldast
Intrum Justitia flytur í stærra húsnæði
SAMNINGUR um notkun grunn-
skóla Akureyrar á hugbúnaðinum
Matartorgi hefur verið undirritaður.
Matartorg er hannað og smíðað af
Stefnu ehf. og hefur nú þegar hafið
samstarf við fjölda skóla og fyrir-
tækja sem vilja á auðveldan hátt
halda utan um skráningu barna í
mötuneytum sínum. „Sú reynsla sem
fengist hefur af þessum hugbúnaði er
mjög góð og stjórnendur hafa fagnað
því að losna við allt það umstang sem
fylgir skráningu barnanna í mötu-
neytum vítt og breitt um landið,“ seg-
ir í frétt um samninginn.
Kerfið hefur verið í notkun hjá sex
grunnskólum Akureyrarbæjar frá
áramótum.
Matartorg er vefbókunarkerfi sem
auðveldar forráðamönnum og skólum
að halda utan um skráningar og bók-
anir barna í mötuneytum skóla. Mat-
artorg gerir foreldrum og skólum
kleift að skrá nemendur í einstakar
máltíðir og reikna út dagafjölda og
kostnað í hverjum mánuði.
Grunnskólarnir ætla
að nota Matartorg