Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 20
STEFANÍA Valdís Stefáns-
dóttir aðjúnkt í heimilisfræðum
við Kennaraháskóla Íslands,
tók saman upplýsingar um
hollt og gott nasl fyrir nem-
endur í próflestri.
Pokar með blöndu af möndl-
um og þurrkuðum ávöxtum
(fást í stórmörkuðum).
Þurrkaðar mjúkar apríkósur
og ýmsar tegundir af þurrk-
uðum ávöxtum í litlum pok-
um og er ætlað sem nasl (og
fæst í stórmörkuðum).
Pokar með litlum harð-
fiskbitum sem eru mótaðir
eins og litlar töflur eða bitar
og fást með t.d. chili. Þetta
er nýkomið á markað og fæst
í stórmörkuðum.
Nýir íslenskir tómatar og
agúrkur og/eða vínber, gott
með ostabitum, ósætu kexi
og ídýfu úr 10% sýrðum
rjóma bragðbætt með púrru-
lauksúpudufti.
Litlu gulræturnar sem fást í
plastpokum og eru flysjaðar,
gott með ídýfunni.
Ferskir ávextir skornir í bita
(blanda saman mörgum teg-
undum – gott að eiga í ís-
skáp).
Íste gott til drykkjar og fæst
mismunandi bragðbætt.
Gott að eiga kalt vatn í
könnu í ísskápnum og brytja
út í vatnið lime, sítrónu,
appelsinu, jarðarber og
agúrku (eitthvað tvennt af
þessu saman). Það gefur
vatninu ferskt bragð.
PRÓFLESTUR
Hollt og
gott nasl
SÓFADAGAR
Seljum nokkra sýningasófa með allt að 25% afslætti.
15% afsláttur af öllum sérpöntuðum sófum.
Grensásvegi 8
108 Reykjavík
sími: 517 1020
Opið:
mán. - föstud. 11-18
laugard. 11-15
því hvar maður stendur í raun og
veru gagnvart þessu prófi. „Hvernig
hefur mér gengið að læra í vetur?“
„Hvaða einkunnir hef ég fengið?“
„Hversu vel skil ég?“ „Hvað kann ég
best núna?“ og reyna að meta mögu-
legan árangur sinn út frá því. Ekki að
vera upptekinn af einkunnum sem
slíkum. Viðhorf til prófa skiptir einn-
ig máli. Próf er ekki mælikvarði á
gáfur nemandans eða hann sem per-
sónu heldur er fyrst og fremst verið
að mæla eitthvert tiltekið efni sem
hann er að læra og hæfni hans í því.
Með öðrum orðum að aðgreina sjálf-
an sig og það viðfangsefni, sem verið
er að fást við og að hafa trú á því að
ráða við það.
Svo er það námstækni og próf-
tækni. Að geta greint aðalatriði frá
aukaatriðum og koma sér upp skyn-
samlegri minnistækni. Það er ekki
hægt að muna allt utan að. Betra er
að flokka upplýsingar í minnislista
eða búa til beinagrind að efni og
muna út frá því.“
Upprifjun
Auður segir að upprifjun á efni sem
verið er að lesa skipti gríðarlega
miklu máli.
„Oft leggja nemendur litla áherslu
á upprifjun en mikla áherslu á lest-
ur,“ segir hún. „Lesa kannski 100
sinnum yfir námsefnið en gleyma að
rifja það upp í huganum að lestri
loknum. Ekki er sama hvernig upp-
rifjunin fer fram. Prófið sjálft er eins-
konar upprifjun og það kann ekki
góðri lukku að stýra að láta reyna á
hvað maður raunverulega kann á
prófinu sjálfu. Upprifjun og umorðun
eru nátengd, nemandinn þarf að
segja hlutina með sínum eigin orðum
VORPRÓF | Mikilvægt að hafa rétt viðhorf
Gleyma
umhverfinu
og sökkva
sér í prófið
Morgunblaðið/Kristinn Ingvarsson
Morgunblaðið/Ásdís
árangri á þessu prófi,“ … „Ég kemst
aldrei yfir að lesa allt þetta efni,“
og … „Ég næ ekki prófinu.“ Óörygg-
ið og vanmetakenndin sem fylgir oft
prófkvíða endurspeglast einnig í
vinnubrögðum, „Nú verð ég að læra
allt þetta efni 100%. Ég get ekki farið
í prófið öðruvísi.“
Nemandinn festist í smáatriðum,
hættir að greina aðalatriði frá auka-
atriðum, fer að gera óraunhæfar
kröfur til sín. Eða hann bregst þannig
við að honum er ómögulegt að festa
hugann við próflestur og reynir að
komast undan honum. Prófstreita er
ekki óeðlileg í prófum, próf eru áskor-
un sem kosta ákveðna orku og vinnu
og jafnvel þó að margir þekki kvíða
tekst flestum að finna leið til að
bregðast við á uppbyggilegan hátt í
prófum.“
Óraunhæfar kröfur
Hvað er til ráða?
„Sá þáttur sem viðheldur prófkvíða
einna mest eru óraunhæfar kröfur.
Mikilvægt er að gera sér grein fyrir
P
rófkvíði er ótti við að
mistakast í aðstæðum
þar sem próf eða mat
fer fram og birtist í
sterkum tilfinninga-
legum, líkamlegum við-
brögðum, stöðugum áhyggjum
af frammistöðu og hegðun sem
einkennist af því að komast
undan þessu óþægilega
ástandi,“ segir Auður R. Gunn-
arsdóttir, sérfræðingur í klín-
ískri sálarfræði og fagstjóri við
Námsráðgjöf Háskóla Íslands. „Oft
myndast prófkvíði undir pressu, álagi
eða kröfum um árangur, sem nem-
andanum finnst hann ekki standa
undir.“
Auður segir að prófkvíði eigi ekki
eingöngu við um eldri nemendur.
„Jafnvel yngri nemendur í grunn-
skólum eru farnir að finna fyrir próf-
kvíða,“ segir hún. „Árangursmat sem
byggist fyrst og fremst á frammi-
stöðu á prófi oft undir mikilli pressu
eins og gjarnan þekkist t.d. á sam-
ræmdum prófum, mikilvægum próf-
um og lokaprófum getur ýtt undir
kvíðaviðbrögð hjá nemendum, sem
festast í sessi. Samhliða því að nota
próf við árangursmat er mikilvægt að
hafa áhrif á viðhorf nemenda til
prófa. Það er allt of algengt að nem-
endur líti á próf sem algildan mæli-
kvarða á námshæfni þeirra og getu í
námi. Ég tel því mikilvægt að ræða
um hver sé tilgangur prófa og hvað
þau í raun og veru mæli.“
Svitaköst, ógleði og spenna
Auður segir að prófkvíði geti birst í
líkamlegum einkennum svo sem
spennu, ógleði, svitaköstum, van-
máttarkennd og áhyggjum af
frammistöðu í prófunum. Nemandinn
óttast að hann muni ekki standa sig
nógu vel og hugsi sem svo, „Ég ræð
ekki við þetta,“ … „Ég mun ekki ná
Eftir Kristínu Gunnarsdóttur
krgu@mbl.is
eða setja þá niður fyrir sig á blað.
Upprifjun þarf því að vera munnleg
ef nemandinn ætlar að vera öruggur
um að hann kunni efnið. Svo er gott
að vera búinn að skipuleggja hvernig
maður ætlar að svara hugsanlegum
spurningum á prófinu. Helst áður en
sest er að prófborðinu.“
Halda daglegum venjum
Auður leggur áherslu á að nemendur
gæti þess að raska ekki um of dag-
legum venjum. Gæti þess að lesa ekki
um of, hætta að borða eða missa
svefn. „Það myndast streita um fram
venjulega streitu þegar maður hættir
að borða eða ef maður fer að vaka á
nóttunni og þar með er kominn upp
viðbótarþáttur, sem eykur á streitu
og kvíða,“ segir hún. „Ég mæli til
dæmis ekki með mikilli kaffidrykkju
eða notkun á einhverjum öðrum efn-
um til að halda sér vakandi eða at-
hyglinni gangandi. Oft hefur það
þveröfug áhrif þegar upp er staðið.
Best er að halda sínum daglegu venj-
um eins og hægt er.“
Auður segir að hreyfing skipti
Vorprófin eru að nálgast og margir nemendur
fyllast prófkvíða, sem getur birst í andlegum og
líkamlegum einkennum, svo sem vanmætti og
óöryggi og/eða svefn- og lystarleysi.
20 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
DAGLEGT LÍF