Morgunblaðið - 27.04.2005, Qupperneq 21
miklu máli gagnvart minni, úrvinnslu
og geymd upplýsinga.
„Það verður að vera hvíldarstund á
milli lestrarlotna,“ segir hún. „Og
ekki er gott að lesa út í eitt. Hreyfing
og slökun geta haft góð áhrif og
hjálpað til við að hvíla sig frá lestr-
inum og melta það sem verið er að
lesa.“
Slökun getur hjálpað
Sumir verða fyrir því að frjósa þegar
komið er í próf og hvað er þá til ráða?
„Æskilegast er að kunna einhverja
aðferð til að róa sig niður,“ segir Auð-
ur. „Slökun getur hjálpað til og eins
að nemandinn tali við sjálfan sig á
uppbyggilegan hátt og segi: „Hér er
ég komin(n) í þetta próf og auðvitað
kann ég eitthvað í þessu fagi og þó að
mér finnist í fyrstu að þetta séu
spurningar sem ég kann ekki svör við
þá get ég ýmislegt. Ég er búin(n) að
læra töluvert af þessu efni.“ Reyna
svo að róa sig niður. Gott er fyrir
nemendur með prófkvíða að kunna
slökunaraðferðir. Hægt er að læra
slökunaraðferðir á tiltölulega einfald-
an hátt. Það skiptir líka máli að rífa
sig ekki niður; „Nú er þetta búið spil,
ég get ekkert“. „Ég man ekki neitt.“
Heldur reyna þess í stað að hugsa;
„Jæja, nú fæ ég smákvíða og ég leyfi
honum að ganga yfir.“ Og hann gerir
það. Hann líður alltaf hjá. Kvíðinn
getur komið af og til í prófinu. Oft í
upphafi þegar litið er á spurning-
arnar og þegar nemandinn sér spurn-
ingu sem honum finnst erfitt eða er
ókunnug.
Mikilvægt er að festa sig ekki í
spurningunum heldur reyna að róa
sig niður og leysa þær spurningar
sem maður kann. Einnig er mik-
ilvægt að eyða ekki tíma í hugsanir
um hvað aðrir eru að gera í prófinu.
Kúnstin er að gleyma sjálfum sér og
umhverfinu og sökkva sér í prófverk-
efnin.“
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 21
DAGLEGT LÍF
Frábær tilboð fyrir 10 manns eða fl eiri
www.esja. is
Dugguvogi 8
Sími 567 6640
Sláttutraktor
Poulan Pro 17,5 Hö
Vökvaskiptur
Grassafnari
www.slattuvel.com
Síðumúli 34,Inngangur frá Fellsmúla Sími 5172010
Tilboð
299.000.-
SUMARIÐ & GARÐURINN
Í GÆR birtist í blaðinu frétt um verð-
könnun á lausasölulyfjum. Í töflu sem
fylgdi fréttinni kom fram að sum apó-
tek veita sérstakan afslátt til ellilíf-
eyrisþega og öryrkja. Þau voru
stjörnumerkt og í töflu blaðsins var
sagt að þau veittu 5% afslátt. Í gögn-
um frá Verðlagseftirliti ASÍ kom
hinsvegar fram að apótekið Nóatúni
og Lyf og heilsa Háteigsvegi veita ör-
yrkjum og ellilífeyrisþegum 5% af-
slátt, Ábæjarapótek veitir 15% afslátt
og Garðsapótek og Laugarnesapótek
veita 10% afslátt.
Beðist er velvirðingar á þessum
mistökum.
VERÐKÖNNUN | Lausasölulyf
Mismunandi afsláttur til
öryrkja og ellilífeyrisþega
Hér á landi hafa agúrkuraðallega verið notaðar of-an á brauð eða með mat, íhefðbundin salöt og svo
súrsaðar. Í útlöndum eru agúrkur oft
maukaðar og þeim blandað saman
við jógúrt ásamt kryddjurtum og
gerðar úr þeim súpur, sósur og ídýf-
ur. Einnig má nota þær í heita rétti.
Íslenskir garðyrkjubændur eiga
uppskriftir að réttum þar sem ís-
lenskar agúrkur koma við sögu. Hér
koma nokkrar .
Gúrkusósa með
hvítlauk og dilli
Köld sósa sem fer vel með fiski,
grænmeti og ýmsum grillmat.
1 agúrka
1 tsk salt
200 g hreint skyr eða sýrður rjómi
1 hvítlauksgeiri
safi úr 1⁄2 sítrónu
nýmalaður pipar
ferskt dill, saxað
Gúrkan rifin á grófu rifjárni og
sett í sigti. Salti stráð yfir og látið
standa í sigtinu í hálftíma en síðan er
safinn pressaður frá. Gúrku er svo
hrært saman við skyrið. Hvítlauks-
geirinn pressaður og settur út í
ásamt sítrónusafa. Smakkað til með
pipar og salti og að síðustu er söxuðu
dilli hrært saman við.
Gúrkur með beikoni
Ekki má elda gúrkurnar of lengi en
þær eiga þó að mýkjast og hitna í
gegn.
2 agúrkur
salt
150–200 g beikon, fremur magurt
1 laukur
2 msk olía
300 g forsoðnar kartöflur
2 msk sojasósa
1 msk worchestersósa
nýmalaður pipar
e.t.v. salt
söxuð steinselja
Gúrkurnar afhýddar og skornar í
tvennt eftir endilöngu og fræin skaf-
in úr með teskeið. Síðan eru þær
skornar í um 1 cm breiðar, hálf-
mánalaga sneiðar. Settar í sigti, salti
stráð yfir og látnar standa í a.m.k.
hálftíma. Þá eru þær skolaðar undir
köldu vatni og þerraðar á eldhús-
pappír. Beikonið skorið í bita og
laukur saxaður. Olía hituð á stórri
pönnu og beikon og laukur steikt þar
til beikonið er byrjað að verða
stökkt. Þá er gúrkum bætt á pönn-
una og þær steiktar í nokkrar mín-
útur. Hrært oft á meðan. Kartöflur
skornar í bita og settar á pönnuna,
ásamt soja- og worchestersósu. Lát-
ið malla þar til kartöflurnar eru heit-
ar í gegn. Smakkað til með pipar og
e.t.v. salti og steinselju stráð yfir.
Borið fram með brauði eða hrís-
grjónum.
Rækjusalat með gúrkum
og rauðlauk
Frísklegt og hollt rækjusalat sem
getur jafnvel verið aðalréttur með
grænu salati og góðu brauði.
1 agúrka
1 rauðlaukur
nokkrar svartar eða grænar ólífur
250 g rækjur
1 dós (200 g) kotasæla
1 dós (180 g) hrein jógúrt
1⁄2 tsk paprikuduft
nýmalaður pipar og salt
söxuð steinselja (má sleppa)
Gúrkan skorin í mjóa stauta eða í
teninga. Rauðlaukur saxaður og ólíf-
ur einnig. Rækjur settar í skál og
gúrku, rauðlauk og ólífum blandað
saman við. Síðan er kotasælu og jóg-
úrt hrært saman við, ásamt papr-
ikudufti, pipar, salti og steinselju.
Borið fram með brauði (t.d. rúg-
brauði) og smjöri, eða með kexi.
Það er gúrkutíð
Rækjusalat með agúrkum og rauðlauk.
MATUR