Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 MORGUNBLAÐIÐ
MENNING
„KJARNI málsins er sá, að á elleftu
stundu ákvað ég að draga umsókn
mína til baka, vegna þess að bæj-
aryfirvöld á Akureyri gerðu mér til-
boð sem ég tel mig ekki geta hafn-
að,“ segir Hannes Sigurðsson
listfræðingur, en í gær ákvað hann
að draga til baka umsókn sína um
starf forstöðumanns Listasafns
Reykjavíkur. Á liðnum árum hefur
Hannes gegnt stöðu forstöðumanns
Listasafnsins á Akureyri, en þótti
meðal sterkustu umsækjenda um
stöðuna í Listasafni Reykjavíkur.
Síðasta viðtalið við Hannes um starf-
ið í Listasafni Reykjavíkur var í gær-
morgun.
„Ég leit svo á að tíma mínum á Ak-
ureyri væri lokið. Ég hef alltaf haft
áhuga á Listasafni Reykjavíkur, og
sótti um forstöðumannsstarfið þar af
miklum þunga. Ég eyddi mikilli
vinnu í umsókn mína.“
Hannes segist hafa litið svo á að
ekki væri annað í stöðunni fyrir
hann, en að flytja aftur suður. „Þá
kom þetta gagntilboð að norðan, eins
og þruma úr heiðskíru lofti og í gær-
kvöld [fyrrakvöld], komst ég að sam-
komulagi við bæjarstjórnarmeiri-
hlutann um að halda áfram fyrir
norðan. Á sama tíma var ljóst að ég
var kominn í úrslit í ráðningarferlinu
hjá Reykjavíkurborg, og aðeins örfá-
ir umsækjendur enn inni í mynd-
inni.“
Útskýrði málið fyrir nefndinni
Í gærmorgun gekk Hannes svo á
fund nefndarinnar sem vinnur að
ráðningu forstöðumanns Listasafns
Reykjavíkur, en í nefndinni eru
Svanhildur Konráðsdóttir sviðsstjóri
menningar- og ferðamálasviðs
Reykjavíkurborgar, Gunnar Kvaran
fráfarandi forstöðumaður safnsins,
Helga Jónsdóttir borgarritari og
Ólafur Gíslason listheimspekingur.
„Ég vildi gera hreint fyrir mínum
dyrum. Á síðasta snúningi gekk ég
því fyrir nefndina og dró umsókn
mína til baka og útskýrði fyrir henni
hvernig í pottinn var búið. Ég er bú-
inn að vera í þessu fagi lengi, og hef
að sjálfsögðu ákveðnar skoðanir á
Listasafni Reykjavíkur. Þær skipta
engu máli nú þegar ég er ekki lengur
inni í myndinni.“
Hannes segir sér þykja mjög vænt
um það traust og þann hlýhug sem
Akureyrarbær sýnir honum með til-
boði sínu. „Þetta er eins og það ger-
ist best í boltanum. Akureyrarbær
kom brunandi eldsnöggt upp hægri
kantinn og stal mér úr myndinni, ef
svo mætti segja.“
Hannes segir að ef til vill hafi
hvorki hann né Akureyrarbær hug-
leitt það nægilega fyrr að hann héldi
áfram að reka safnið nyrðra. „Ég leit
svo á að þetta væri búið, en það
renna greinilega ekki öll vötn til
Dýrafjarðar. Starf mitt fyrir norðan
var aldrei hugsað sem einhver stökk-
pallur fyrir annað og ef til vill betra
starf í Reykjavík. Ég hef einfaldlega
áhuga á starfinu fyrir norðan, í því
felst síst minni áskorun en fyrir
sunnan.
Þótti þetta gjöfult starf
Ég fór á fund Þórgnýs Dýrfjörð
menningarfulltrúa Akureyrarbæjar
til að ræða við hann um hugsanleg
starfslok mín þar. Í framhaldi af
þeim fundi fór ég á fund bæjarstjóra,
Kristjáns Þórs Júlíussonar og tjáði
honum að svo gæti farið að ég myndi
hætta og fara suður. Ég sagði honum
að mér hefði þótt þetta gjöfult sam-
starf og myndi fara þaðan með sökn-
uði. En þá bauð Kristján allt í einu
upp á hugsanlega kúvendingu. Þetta
var gríðarlega erfið staða og ég tók
mér dágóðan tíma til að tala við mitt
fólk og velta málinu fyrir mér. Það
var svo í gærkvöldi [fyrrakvöld], að
lokahnykkurinn var rekinn leiftur-
snöggt á þetta samkomulag á þann
hátt að ég taldi mig ekki geta annað
en að gengið á fund nefndarinnar í
Reykjavík til að útskýra alla mála-
vexti. Nefndin sýndi þessari nið-
urstöðu mjög góðan skilning enda
var þetta ekki auðveld ákvörðun fyr-
ir mig og algjörlega ófyrirséð. Helst
hefði ég kosið að geta haldið í hvort
tveggja, en maður þjónar víst ekki
tveimur herrum — a.m.k. ekki eins
og sakir standa. Það eru plúsar
og mínusar alls staðar og þá þarf
að vega og meta.
Fyrir norðan er um að ræða mjög
nýstárlega tilraun um rekstur
opinberrar menningarstofnunar,
sem er mjög spennandi, en þegar
öllu er á botninn hvolft snýst þetta
aðeins um eitt, þ.e. hvernig best
megi þjóna listinni. Ég óska Lista-
safni Reykjavíkur velfarnaðar og
vonast eftir áframhaldandi góðu
samstarfi við næsta forstöðumann
þess og það ágæta fólk sem á þeim
bæ starfar. Nú er ekki annað fyrir
mig að gera en að lygna aftur augum
og láta mig falla afturábak í faðm
Akureyrarbæjar,“ segir Hannes
grínaktugur.
Myndlist | Hannes Sigurðsson dró umsókn sína um forstöðumannsstarf Listasafns
Reykjavíkur til baka – fékk tilboð frá Akureyrarbæ um áframhaldandi störf
Þykir vænt um það traust og hlý-
hug sem Akureyrarbær sýnir mér
Eftir Bergþóru Jónsdóttur
begga@mbl.is
Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson
Biðröð við opnun sýningar á Kenjunum eftir Goya í Listasafni Akureyrar.
„Þetta var ekki auðveld ákvörðun,“
segir Hannes Sigurðsson, forstöðu-
maður Listasafns Akureyrar.
SVANHILDUR Konráðsdóttir,
sviðsstjóri menningar- og ferða-
málasviðs Reykjavíkurborgar og
formaður ráðgjafarnefndar vegna
ráðningar safnstjóra Listasafns
Reykjavíkur, segir að ráðningarferli
fyrir starf forstöðumannsins sé í
fullum gangi.
„Þetta gengur
mjög vel. Ég geri
ráð fyrir því að
gera tillögu til
menningar- og
ferðamálaráðs í
næstu viku og
það er samkvæmt
þeirri áætlun sem
við gerðum í upp-
hafi. Við höfum
tekið viðtöl við alla þá sem sendu inn
umsókn og uppfylltu skilyrði, og
höfum verið að hitta aftur tiltekinn
hóp, bæði Íslendinga og erlenda um-
sækjendur. Það eru mjög fínir og
spennandi umsækjendur. Hannes
var einn af þeim sem boðaðir voru í
þau viðtöl. Nú erum við að nálgast
ákvörðun, og ákveðnir umsækj-
endur hafa verið settir í stjórnanda-
próf og frekari viðtöl verða tekin á
næstu dögum. Ég óska Akureyr-
ingum til hamingju með Hannes og
óska Hannesi velfarnaðar í starfi.“
Óska Akureyri
til hamingju
Svanhildur
Konráðsdóttir
ÞÓRGNÝR Dýrfjörð, menningar-
fulltrúi Akureyrarbæjar, segir mál
hafa þróast hratt í myndlistinni á
Akureyri síðustu daga. „Við vorum
að ræða hvernig við myndum ljúka
samningnum við Hannes Sigurðs-
son ef til þess kæmi að hann færi
suður, þegar
bæjarstjórinn,
Kristján Þór Júl-
íusson, velti upp
þeim möguleika
að við reyndum
að halda sam-
starfi við Hannes
áfram. Þá kom í
ljós að Hannes
var að minnsta
kosti jafn áhuga-
samur um að vera áfram hér, þann-
ig að við vildum láta reyna á þetta.
Mat okkar var það að hagsmunir
bæjarins færu saman við hagsmuni
Hannesar og fyrirtækis hans art.is,
sem hefur rekið listasafnið fyrir
hönd bæjarins.“
Þórgnýr segir að reynslan sé góð
í það eina og hálfa ár sem Hannes
og fyrirtæki hans hafi rekið safnið
og mikill vilji sé til að halda áfram
þeirri tilraun. Hann segir að drög
að endurnýjuðum samningi verði
tekin fyrir á fundi menningarmála-
nefndar á fimmtudag.
Hagsmunirnir
fara saman
Þórgnýr Dýrfjörð
JPV-útgáfa hefur tekið við íslenska útgáfu-
réttinum á verkum Milans Kundera af Máli og
menningu. Samningar þessa efnis tókust fyrr í
þessum mánuði milli JPV-
útgáfu og höfundarins. Í
framhaldi af því mun ein
vinsælasta skáldsaga hans
á heimsvísu, Lífið er annars
staðar, koma út hjá JPV í
haust. Sagan fjallar um
ungskáldið Jaromil og ein-
læga en fremur grát-
broslega leit hans að ást og
fullkomnun.
„Milan Kundera einn vin-
sælasti skáldsagnahöfundur samtímans, en
sennilega er hann þekktastur fyrir skáldsög-
una Óbærilegur léttleiki tilverunnar. Bækur
hans hafa nú verið þýddar á um fimmtíu
tungumál og margar þeirra hafa verið þaul-
setnar á vinsældalistum víða um heim. Nýjasta
bók hans, ritgerðasafnið Tjaldið, kom út í Par-
ís nú í byrjun apríl og hefur hlotið afar lofsam-
lega dóma í Frakklandi, en hún er líka nýkom-
in út í Þýskalandi, á Ítalíu og víðar,“ segir
Jóhann Páll Valdimarsson, útgáfustjóri JPV.
Friðrik Rafnsson þýðir þessa bók eins og
aðrar bækur Kundera hérlendis.
Kundera til
JPV-útgáfu
Milan Kundera
AF NÓGU virðist enn vera að
taka ef metnaðurinn hneigist að
Íslandsfrumflutningi klassískra
kórverka, og kannski varla við
öðru að búast í kornungu tón-
menntalandi þar sem helztu meg-
indjásn tónsögunnar tóku fyrst að
heyrast eftir miðja síðustu öld.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju
hefur áður lagt í þann sarpinn, og
bætti enn við s.l. sunnudag, því
hversu ótrúlega sem það hljómar
þá kvað ekki til þess vitað að Te
Deum Charpentiers í D-dúr hafi
áður verið flutt hérlendis. Samt
ætti fagnandi upphafsstef þess að
vera flestum kunnugt þegar frá
fyrstu árum Sjónvarpsins sem
einkennisfanfara evrópskra sjón-
ast prýðilega,
þó að við-
kvæmustu
staðir væru
stundum frek-
ar loðnir.
Þakkar-
hymninn Te
Deum laud-
amus er talinn
ortur af
Ambrósíusi Mílanóbiskupi á 4. öld.
Latneski kirkjutextinn hefur oft
tengzt hernaðarsigri, einkum þó á
17. og 18. öld, þegar einvöldum
herkonungum þótti hlýða að
þakka almættinu fyrir hvern
meiriháttar vígvallargreiða á
kostnað óvinarins. Aðalfrið-
arspillir Norðurálfu á ofanverðri
17. öld, sólkonungurinn Loðvík
XIV er iðkaði harðvítuga út-
þenslustefnu (furðukeimlíka „líf-
rýmis“-hyggju Hitlers 250 árum
síðar), átti sér eldkláran mar-
skálk, Luxembourg að nafni, er
vann ágætan sigur á Vilhjálmi III
í Hollandi 1692. Mun verk Marc-
Antoine Charpentiers (1643–1704)
rakið til fagnaðar af því tilefni.
Stíllinn í Te Deum var hrífandi
ferskur og slagaði víða upp í sam-
tímasnillinginn handan Erm-
arsunds, Henry Purcell. Verkið
hófst á sérkennilegum en vel út-
færðum ketilbumbueinleik, burt-
séð frá smá stirðleika í trillum.
Annars bar hvað mest á glæstum
trompetblæstri er reyndist í beztu
höndum, og annar hljóðfæraflutn-
ingur var í góðu samræmi. Mátti
sömuleiðis merkilegt heita að
kammerkórinn skyldi hafa í fullu
tré við oft vígreifa hljómsveitina,
og söng hann sitt af glansmiklum
þrótti.
Frágangur tónleikaskrár hefði
á hinn bóginn mátt vera betri, því
ekki aðeins vantaði söngtexta,
heldur líka allar upplýsingar um
niðurskiptingu þátta meðal kórs
og stakra einsöngvara. Fyrir vikið
tjóir lítið að reifa túlkun mismun-
andi einsöngvara, en í heild má þó
óhikað fullyrða að betur hafi verið
af stað farið en heima setið.
varpsstöðva, löngu áður en Gleði-
bankinn knúði dyra í Evróvisjón-
keppninni.
Fyrri helmingur dagskrár átti
fátt skylt við miðbarokkverk
Charpentiers frá 1692, enda virt-
ust 100–200 árum yngri óperu-
aríurnar eftir Mozart o.fl. aðallega
hafðar til að gefa einsöngvurunum
innan kórsins sólótækifæri. Af
þeim framlögum stóðu helzt upp
úr þroskuð túlkun Guðrúnar
Helgu Stefánsdóttur í Je dis úr
Carmen og hljómmikil mezzo-
altrödd Jóhönnu Óskar Vals-
dóttur í Parto, parto úr La Clem-
enza di Tito. Átakamestar voru þó
tvímælalaust aríurnar O zittre
nicht og Der Hölle Rache úr
Töfraflautunni, enda háflúrað
hlutverk Næturdrottningar að-
eins á örfárra færi. Viera Man-
ásek fór í mörgu ágætlega með
barkabrjóta Mozarts, en virtist
samt ekki vera nógu vel fyr-
irkölluð ef marka má undarlega
lokaðan tón og framburð er gæti
hafa stafað af einhverri hálskvillu.
Sinfóníusveit áhugamanna lék oft-
Vígreifar guðsþakkir
TÓNLIST
Seltjarnarneskirkja
Ýmsar einsöngsaríur eftir Mozart, Pucc-
ini og Bizet. Charpentier: Te deum í D.
Kammerkór Seltjarnarneskirkju og Sin-
fóníuhljómsveit áhugamanna. Stjórn-
andi: Pavel Manásek. Sunnudaginn 24.
apríl kl. 17.
Kórtónleikar
Pavel Manásek
Ríkarður Ö. Pálsson