Morgunblaðið - 27.04.2005, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 27. APRÍL 2005 25
mu í fram-
að áfallnar
nemi um
ð við 3,5%
lega 145
öfu. „Aug-
þegar eru
ða til auk-
ni. Þannig
á líftíma
milljarða
hækkunar á áföllnum skuldbinding-
um,“ segir Tryggvi Þór.
Heildarútgjöld hins opinbera til
þessa málaflokks hafa vaxið stórlega
á undanförnum árum eða úr ríflega
3,8 milljörðum kr. árið 1990 í ríflega
12,7 milljarða kr. árið 2003. „Stærsta
hluta þessarar miklu og vaxandi út-
gjaldaaukningar má rekja til fjölg-
unar bótaþega (82%) en um 18% út-
gjaldaaukningarinnar stafa af
hækkun bótagreiðslna að raunvirði.
Ef útgjöld almenna lífeyrissjóða-
kerfisins eru talin með má ætla að
heildarbætur til öryrkja hafi numið
um 18 milljörðum kr. árið 2003. Að
sama skapi nam áætlaður kostnaður
samfélagsins vegna tapaðra vinnu-
stunda vegna örorku tæpum 4% af
landsframleiðslu árið 2003, sem var-
lega áætlað jafngildir tæplega 34
milljörðum kr. á föstu verðlagi.“
Tryggvi Þór sagði á fréttamanna-
fundi í gær, þar sem skýrslan var
kynnt, að það væri til mikils að vinna
að hamla gegn þessari þróun. „Ábat-
inn er ekki einungis hagfræðilegur
eða þjóðhagslegur heldur er mikil-
vægt fyrir velferð hvers manns að
hann geti fundið sér starf við hæfi.
Stjórnmálamenn hafa hér verk að
vinna,“ sagði hann.
Núverandi kerfi er
verulega vinnuletjandi
Í skýrslunni er sjónum einnig
beint að fjárhag öryrkja og samspili
afsláttar, styrkja og bóta sem þeim
standa til boða að viðbættum ör-
orkubótum Tryggingastofnunar og
lífeyrissjóða.
Tryggvi Þór kemst að þeirri nið-
urstöðu að mikill fjárhagslegur hvati
sé í núverandi kerfi fyrir láglauna-
fólk að leita eftir örorkumati, „enda
getur það hækkað laun sín umtals-
vert með því móti“, segir í skýrsl-
unni. „Að sama skapi er lítill hvati
fyrir fólk að hverfa af örorkubótum
nema þokkalega vel launuð vinna
bíði þess. Núverandi kerfi er veru-
lega vinnuletjandi og fullljóst að það
borgar sig ekki fyrir öryrkja að fara
út á vinnumarkað og hverfa af bót-
um fyrir lægri mánaðarlaun en 127
þúsund kr., eða jafnvel 165 þúsund
kr. ef afsláttur sem örorkuskírteini
veitir er nýttur og nokkrar vægar
forsendur eru uppfylltar. Þá ber á
það að líta að allir þeir sem hafa
greitt í lífeyrissjóð í þrjú ár áður en
þeir eru metnir öryrkjar fá örorku-
bætur úr lífeyrissjóði. Þannig getur
þrítugur einstaklingur með undir
160 þúsund kr. á mánuði í atvinnu-
tekjur fyrir örorku hækkað í ráðstöf-
unartekjum við það að vera metinn
öryrki.
Hið sama gildir um 62 ára einstak-
linga sem eru með undir 146 þúsund
kr. í mánaðarlaun,“ segir þar enn-
fremur.
Einnig er bent á að svonefnd jað-
aráhrif innan núverandi kerfis séu
umtalsverð og geti ráðstöfunar-
tekjur örorkulífeyrisþega í öfgatil-
fellum lækkað um ríflega 20 þúsund
kr. við það eitt að hækka í launum
um eitt þúsund kr., en það er sagt
gerast þegar mánaðartekjur hækka
úr 240 þús. í 241 þús. þar sem aldurs-
tengd örorkuuppbót fellur öll niður
við þetta tekjumark.
Fram kemur að útgjaldaaukningu
til barnalífeyrisþega megi að mestu
leyti rekja til fjölgunar bótaþega en
aðeins að litlu leyti til hækkunar
bótafjárhæða. Komist er að þeirri
niðurstöðu að arðsemi þess að
hverfa af bótum og fara aftur út á
vinnumarkaðinn sé mjög lítil, jafnvel
neikvæð, fyrir tekjulága einstak-
linga og einstæða foreldra. „Kjör ör-
orkulífeyrisþega eru mun betri en
kjör atvinnulausra og þeirra sem
ekki eru á vinnumarkaði og þiggja
félagslegar bætur og má einkum
rekja þennan mun til þriggja
ástæðna. Í fyrsta lagi eru örorku-
bætur mun hærri en bæði atvinnu-
leysisbætur og fjárhagsaðstoð sveit-
arfélaga. Þar munar ekki síst um
aldurstengdu örorkuuppbótina sem
nýlega var komið á. Í annan stað
kunna örorkulífeyrisþegar að eiga
rétt á umtalsverðum greiðslum úr
lífeyrissjóðum og í þriðja lagi leikur
barnalífeyririnn stórt hlutverk. Eftir
því sem börnin verða fleiri verður
munurinn á kjörum öryrkja og at-
vinnulausra meiri. Sem dæmi má
taka að eftir skatta og að meðtöldum
barna- og húsaleigubótum hefur
heilbrigður, barnlaus einhleypingur
sem er öryrki um 22% betri kjör en
sá sem treystir á félagslega aðstoð.
Ef við skoðum sömu einstaklinga en
gerum ráð fyrir að þeir eigi tvö börn
þá eru tekjur hins atvinnulausa
176.588 kr. á mánuði en örorkulíf-
eyrisþegans 224.190 kr. Hér eru kjör
örorkulífeyrisþegans um 27% betri.
Ef börnin eru þrjú er svo munurinn
29%,“ segir í skýrslunni.
Atvinnuleysisbætur 80%
af örorkulífeyri
Bent er á að atvinnuleysisbætur
og örorkulífeyrir voru nær sama
upphæð allt fram á miðjan tíunda
áratuginn. Eftir það hækkaði upp-
hæð örorkulífeyris og árið 2003 var
svo komið að atvinnuleysisbætur
voru um 80% af örorkulífeyri. Talið
er augljóst að hvatarnir fyrir þá sem
búið hafa við langtímaatvinnuleysi
að fá örorkumat hafi styrkst jafnt og
þétt frá því um miðjan síðasta ára-
tug. Sérstaklega eigi þetta við um
fólk sem metið er snemma á lífsleið-
inni til örorku. Þá var grunnfjárhæð
félagslegrar aðstoðar Reykjavíkur-
borgar um 5% hærri en örorkulíf-
eyrir TR um miðjan síðasta áratug
en nú er svo komið að aðstoðin er
komin niður í rétt rúmlega 65% fyrir
einhleyping sem metinn var snemma
til örorku en um 60% fyrir þann sem
metinn var seint. „Hér er þróunin
enn meira sláandi en í tilfelli at-
vinnuleysisbóta og hefur vafalítið
hvatt þá er njóta fjárhagslegrar að-
stoðar til að leita eftir örorkumati.
Með þeim hætti geta þeir bætt kjör
sín og öðlast þannig rétt til örorkulíf-
eyris. Þetta á eins og áður sérstak-
lega við um yngra fólk,“ segir þar
einnig. Tryggvi Þór segir í samtali
við Morgunblaðið að aldurstenging
bótanna sé einnig að einhverju leyti
skýring á fjölgun öryrkja í yngri ald-
urshópunum. Einnig skýri ríflegur
barnalífeyrir fólks frá tvítugsaldri og
fram undir fertugt að töluverðu leyti
þá fjölgun sem átt hefur sér stað.
í að öryrkjum hefur fjölgað verulega skv. nýrri skýrslu sem unnin var fyrir heilbrigðisráðherra
Morgunblaðið/Eyþór
kynnti öryrkjaskýrsluna á blaðamannafundi í gær. Við hlið hans eru Jón Kristjánsson
íð Á. Gunnarsson ráðuneytisstjóri og Sæunn Stefánsdóttir, aðstoðarmaður ráðherra.
5,
& &' ( $ )**+
+
,$ '( -'
.
= 4
4 * 4 3,$,!-6@!-, 5, '
1 1 1 1 1 1
1 omfr@mbl.is
SKIPTA má aðgerðum sem miða að því að
halda fjölgun örorkubótaþega í skefjum í
þrennt að mati höfundar skýrslunnar um
fjölgun öryrkja.
Lagðar eru fram eftirfarandi tillögur um
aðgerðir í skýrslunni:
1. Aðgerðir sem miða að því að minnka ný-
gengi örorku:
„Þetta geta verið aðgerðir eins og aðstoð
við þá sem hafa verið atvinnulausir í langan
tíma, en þær gætu t.d. falist í endurþjálfun,
aðstoð við atvinnuleit eða jafnvel niður-
greiðslu launatekna. Þá þyrfti að herða regl-
ur um hvernig örorka einstaklinga er metin,
en nú er eingöngu um læknisfræðilega nálg-
un að ræða og ekki er litið til starfsþreks
viðkomandi eins og gert var fyrir innleið-
ingu örorkumatsstaðals árið 1999. Banda-
rískar rannsóknir sýna fram á að hægt er að
koma fólki út á vinnumarkað á nýjan leik
með hertu eftirliti. Hægt væri að herða regl-
ur um endurmat og fylgja þannig betur eftir
þeim einstaklingum sem mögulega geta snú-
ið á nýjan leik út á vinnumarkað.“
2. Aðgerðir sem miða að því að koma ör-
yrkjum aftur út á vinnumarkað:
„Þessar aðgerðir gætu falist í mun meiri
eftirfylgni og endurmati en nú tíðkast, auk
þess sem fjölga mætti möguleikum til
endurmenntunar og starfsþjálfunar. Í því
sambandi mætti endurskoða reglur um
vinnusamninga með niðurgreiddum
launatekjum, auk þess sem nýta mætti
einkaaðila í mun meiri mæli en nú er gert.“
3. Aðgerðir sem miða að því að breyta
fjárhagslegum hvötum:
„Sennilega er áhrifamesta aðgerðin til að
hvetja öryrkja til að fara út á vinnumark-
aðinn, og letja fólk til að sækja um ör-
orkumat, sú að draga úr fjárhagslegum
ávinningi af því að vera á örorkubótum,
nema þegar um algjört neyðarbrauð er að
ræða. Fyrir fólk á lágum tekjum felst lítil
arðsemi í því að fara af örorkubótum í vinnu
og í mörgum tilfellum er hún jafnvel nei-
kvæð. Arðsemina má auka með ýmsum ráð-
um. Hægt væri að minnka jaðaráhrif þess að
hverfa af örorkuskrá með því að leyfa við-
komandi að halda eftir hluta bóta þrátt fyrir
að hann hefji störf að nýju, líkt og tíðkast í
Bandaríkjunum og í Bretlandi og Norðmenn
gera nú tilraunir með. Þá virðist fjárhags-
stuðningur við barnafólk hvetja það mjög til
að sækja um örorkumat.
Skilvirkasta leiðin til úrbóta væri að sam-
ræma fjárhagslegan stuðning við barnafólk
þannig að hann færi allur fram í gegnum al-
menna barnabótakerfið en ekki í gegnum
TR [Tryggingastofnun ríkisins], sveit-
arfélögin og verkalýðsfélögin eins og málum
er nú háttað. Þó að þessi breyting sé ef til
vill nokkuð róttæk hefði hún í för með sér
mun gagnsærra og einfaldara kerfi — fjár-
hagsstuðningi við hópa eins og öryrkja og
atvinnulausa yrði ekki blandað saman við
fjárhagsstuðning við barnafólk.“
Öryrkjar fari út á vinnumarkaðinn
þarf örorkumatsferlið
við,“ sagði Jón Kristjánsson heilbrigðis-
skýrslunnar um fjölgun öryrkja í gær. Hann
íkisstjórnarfundi í gærmorgun og var ákveðið
ráðuneyta fari yfir skýrsluna og skili áliti fyrir
gar aðgerðir.
ggjur af þessu máli og það er klárlega í þágu
rfa fyrst og fremst á aðstoð samfélagsins að
staklega innstreymið í kerfið. Einnig hvernig
em hafa verið greindir öryrkjar til að komast út
ef aðstæður þeirra breytast. Þetta tvennt er að
gði Jón.
a þeirra upplýsinga sem fram koma um fjölgun
oða þyrfti örorkumatsferlið. „Það er eitthvað
jum skuli fjölga svona mikið á þeim tíma sem
almennt að batna,“ sagði heilbrigðisráðherra.
Meira á mbl.is/itarefni
öryrkja hér á
að furðu sætir
N öryrkja að undanförnu má rekja til sex þátta
ryggva Þórs Herbertssonar:
rar aldurssamsetningar þjóðarinnar. Örorku-
ast með lífaldri og íslenska þjóðin er að eldast
eð fjölgar öryrkjum.
krafna um arðsemi á vinnumarkaði. Ein-
r sem skila minni framleiðni hafa misst störf
atvinnulausir um lengri tíma og að lokum orð-
ar.
mis á milli lægstu launa og þeirra bóta og
m örorkulífeyrisþegar eiga rétt á. Fyrir vikið
mati Tryggva Þórs skapast fjárhagslegur hvati
llra lægstlaunuðu að sækja um örorkumat, sér-
á þetta við um einstæða foreldra og barnmargt
mis á milli lægstu launa og bóta leiðir til þess að
ess að hverfa af örorkuskrá og út á vinnu-
r afar lítil og jafnvel neikvæð. Þetta leiðir til
lk hættir sjaldan að þiggja örorkulífeyri til að
til sín taka á vinnumarkaði.
unar örorkulífeyris umfram atvinnuleysis-
fjárhagsaðstoð sveitarfélaganna. Með þessu
ndast hvati fyrir fólk sem fær atvinnuleysis-
a fjárhagsaðstoð til að sækja um örorkumat til
árhagslega afkomu sína.
s örorkumatsstaðals. Þegar læknisfræðilegi ör-
staðallinn var tekinn upp árið 1999 var hætt að
til starfsþreks og afkomumöguleika öryrkja
gis litið til læknisfræðilegra þátta sem leiddi til
un auðveldara er nú að fá örorkumat en áður.
skýringar á
un öryrkja
Ýmsar forsendur þarfn-
ast nánari skoðunar
ÖRYRKJABANDALAG Íslands segist leggja áherslu á að
ráðist verði að rótum þess vanda sem fjallað er um í
skýrslu Tryggva Þórs Herbertssonar hagfræðings um
ástæður fjölgunar öryrkja á Íslandi. Lýsir Öryrkjabanda-
lagið sig reiðubúið til samstarfs við stjórnvöld og aðra þá
sem að því starfi þurfi að koma. Þetta kemur fram í til-
kynningu sem Öryrkjabandalagið sendi frá sér í gær.
Í samtali við Morgunblaðið sagði Emil Thoroddsen,
formaður Öryrkjabandalags Íslands, skýrsluna á margan
hátt vera athyglisvert innlegg í þarfa umræðu um þessi
málefni. „Skýrslan staðfestir þau tengsl sem Ör-
yrkjabandalagið hefur haldið fram að séu á milli atvinnu-
stigs og örorku. Að því leyti koma niðurstöður hennar
ekki á óvart,“ segir Emil, en tók fram að hjá Ör-
yrkjabandalaginu ættu menn þó eftir að kynna sér efni
hennar mun betur, en bandalagið fékk skýrsluna fyrst í
hendur í gærmorgun.
Benti Emil þó á að augljóst væri að ýmsar forsendur,
sem höfundur gefi sér, þarfnist nánari skoðunar, auk
þess sem efnistök höfundar séu þröng og taki mið af ein-
staklingnum. Sleppt sé að fjalla um þá samfélagsgerð
sem einstaklingurinn búi við, þróun hennar og ábyrgð
þeirra sem að málum koma.
Þá sé ekki að finna í skýrslunni neinn kerfisbundinn
samanburð á velferðarkerfi Íslendinga og annarra þjóða,
sem Íslendingar beri sig saman við, hvorki varðandi
fjölda öryrkja né upphæðir bóta. Þannig megi efast um
að skýrslan gefi raunhæfa mynd af tekjum öryrkja þar
sem ekki sé byggt á skattagögnum sem gæfu raunhæfari
mynd af tekjum þessa hóps en þau gögn sem höfundur
noti.